
Danmörk

Handteknir fyrir að ráðast á strætóbílstjóra í Danmörku
Lögregla í Danmörku hefur handtekið þrjá einstaklinga fyrir að hafa ráðist á strætóbílstjóra í Tønder á Suður-Jótlandi eftir að bílstjórinn hafði krafist þess að þeir notuðu grímu um borð og greiddu sömuleiðis fargjald.

Hefðu aldrei trúað að þetta gæti gerst í sínum litla heimabæ
Rannsókn dönsku lögreglunnar á morðinu á Freyju Egilsdóttur miðar vel að sögn yfirmanns í lögreglunni. Börn Freyju séu komin í skjól. En í heimabæ Freyju og barnanna í Malling á Jótlandi, rétt um sautján kílómetrum suður af Árósum, ríkir sorg. Það er enda ekki eitthvað sem íbúar eru vanir, að svo hrottalegt morð sé framið í þeirra næsta nágrenni.

Segir börn Freyju í öruggum höndum hjá ættingjum
Freyja Egilsdóttir og fyrrverandi sambýlismaður hennar, sem hefur játað á sig morðið, áttu saman tvö ung börn.

Morðingi Freyju stakk hina barnsmóður sína átján sinnum
51 árs karlmaður sem hefur játað að hafa banað Freyju Egilsdóttur Mogensen í bænum Malling í Árósum var árið 1996 dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir morðið á barnsmóður sinni. Þau höfðu þá skilið að skiptum.

Harmi slegið samstarfsfólk Freyju fær áfallahjálp
Anni Andersen forstöðukona þjónustukjarnans Stenslundcentret í Odder, þar sem Freyja Egilsdóttir vann, kallaði nánasta samstarfsfólk Freyju til fundar í hádeginu í dag til að veita því stuðning og sálræna aðstoð. Tveir sálfræðingar voru kallaðir til.

Segir skilið við Venstre
Inger Støjberg, þingkona Venstre í Danmörku og fyrrverandi ráðherra innflytjendamála, hefur skráð sig úr flokknum. Hún heldur áfram á þingi sem óháður þingmaður.

Kvartaði yfir móttökunum í heimabænum: „Takmörk fyrir því hversu heimskt fólk getur verið“
Það var mikið húllumhæ í heimabæ danska landsliðsþjálfarans, Nicolajs Jacobsen, er hann snéri aftur til heimabæjarins Thurø, eyju sem tilheyrir Fjóni, í fyrrakvöld.

Maðurinn sem myrti Freyju áður verið dæmdur fyrir morð
Karlmaðurinn sem játað hefur að hafa myrt Freyju Egilsdóttur í Malling á Jótlandi hefur áður verið dæmdur fyrir morð. Árið 1996 hlaut hann dóm fyrir morðið á annarri barnsmóður sinni, en sonur þeirra var þá tveggja ára gamall.

„Hún var vinsæl og vinamörg, við erum í algjöru áfalli“
Vinir Freyju Egilsdóttur sem fannst látin á heimili sínu í nótt segja mikla sorg ríkja í Malling þar sem hún bjó. Þeir tóku þátt í leit að henni í gær, ásamt fjölmennu lögregluliði. Kerti og blóm hafa streymt að heimili hennar í dag.

Bjóða bólusettum kórónuvegabréf
Danir undirbúa nú útgáfu sérstakra kórónuvegabréfa í von um að geta opnað landamærin og samfélagið á ný.

Rannsaka bakgrunn og eðli sambands Freyju og hins grunaða
Eftir að grunur vaknaði um að fyrrverandi sambýlismaður og eiginmaður Freyju Egilsdóttur væri sekur um manndráp hefur meginþungi rannsóknar Lögreglunnar á Jótlandi falist í að kortleggja bakgrunn hins grunaða og í því að finna mögulegt tilefni drápsins.

Játar að hafa myrt konuna
Fyrrverandi sambýlismaður íslensku konunnar sem fannst myrt á Jótlandi hefur játað að hafa orðið henni að bana.

Grunaður um að hafa banað íslenskri konu í Danmörku
Íslensk kona sem lögregla í Danmörku lýsti eftir í gær hefur fundist látin. Fyrrverandi sambýlismaður hennar, sem er 51 árs, er í haldi lögreglu og grunaður um að hafa orðið henni að bana.

Fyrsta barnið látið af völdum Covid-19 í Danmörku
Dönsk heilbrigðisyfirvöld staðfestu í dag að barn, sem er á aldursbilinu núll til níu ára, hafi látist af völdum covid-19. Er það fyrsta barnið sem lætur lífið í Danmörku af völdum sjúkdómsins samkvæmt opinberum gögnum. TV2 greinir frá en barnið glímdi við undirliggjandi alvarleg veikindi.

Yfirgnæfandi meirihluti þingsins samþykkti að ákæra Støjberg
Meirihluti þingmanna danska þingsins hefur samþykkt tillögu um að Inger Støjberg, fyrrverandi innanríkisráðherra og ráðherra innflytjendamála, skuli stefnt fyrir Ríksrétt. Atkvæði voru greidd um það hvort Støjberg skildi ákærð fyrir Ríkisrétti og var það samþykkt með atkvæðum 139 þingmanna en þrjátíu þingmenn greiddu atkvæði gegn tillögunni.

Óttast að sjávarborð hækki hraðar en spár gera ráð fyrir
Loftslagsvísindamenn við stofnun Niels Bohr við Kaupmannahafnarháskóla segjast telja að sjávarborð gæti hækkað um allt að 135 sentímetra fyrir næstu aldamót.

Annar hver Dani eldri en þriggja ára sá úrslitaleikinn
Danir fylgdust vel með löndum sínum í úrslitaleiknum á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi í gærkvöldi er Danmörk vann sitt annað gull í röð á HM.

Kærkomin tilbreyting eftir þungt ástand í Danmörku
„Stemningin í þjóðfélaginu er mikil og það eru allir að fylgjast með, og því synd að fólkið geti ekki fagnað með þeim,“ segir Arnór Atlason um dönsku heimsmeistarana í handbolta sem snúa heim til Danmerkur í dag eftir frægðarför til Egyptalands.

Danski landsliðsþjálfarinn lifði á niðurgangslyfjum og sykurlausu kóki í fjóra daga
Magakveisa herjaði á danska hópinn á meðan heimsmeistaramótinu í handbolta stóð, meðal annars þjálfarann Nikolaj Jacobsen.

Danir í skýjunum: „Ni-GULD-aj Ja-tak-obsen“
Danir voru eðlilega himinlifandi með gullið á HM í Egyptalandi. Þeir unnu Svía í úrslitaleiknum í gær 26-24 eftir að leikar voru jafnir í hálfleik, 13-13. Niklas Landin og Mikkel Hansen fóru mikinn í liði Dana.

Internetið fór á hliðina í Danmörku
Það var mikil gleði í Danmörku eftir að handboltalandsliðið tryggði sér annan heimsmeistaratitilinn í röð eftir sigur á Svíþjóð.

Hansen valinn verðmætastur annað mótið í röð
Mikkel Hansen var valinn mikilvægasti leikmaðurinn á HM í Egyptalandi en hann varð í kvöld heimsmeistari með Dönum.

Danir vörðu heimsmeistaratitilinn
Danmörk er heimsmeistari í handbolta og vörðu þar með titilinn frá því á heimavelli árið 2019. Þeir höfðu betur gegn grönnum sínum í Svíþjóð, 26-24, í úrslitaleiknum í Egyptalandi í dag eftir að staðan hafi verið jöfn í hálfleik, 13-13.

„Hann er frá annarri plánetu“
Danskir fjölmiðlar voru eðlilega í skýjunum eftir sigur danska handboltalandsliðsins á Spáni, 35-33, í síðari undanúrslitarimmunni á HM í Egyptalandi. Danir eru ríkjandi heimsmeistarar.

Framlengja harðar aðgerðir út febrúar
Dönsk stjórnvöld tilkynntu á blaðamannafundi síðdegis að sóttvarnareglur, sem verið hafa í gildi í janúar og þykja nokkuð íþyngjandi, muni áfram gilda til 28. febrúar.

„Varð kyntákn á HM en nú skiptir hann um feril“
Danski miðillinn Berlingske, BT, gerði Rúrik Gíslason að umfjöllunarefni sínu fyrir helgi en þar fjallaði miðillinn um skipti Rúriks; úr fótboltanum yfir í sjónvarpsheiminn. Fyrir helgi var tilkynnt að Rúrik myndi taka þátt í þýska sjónvarpsþættinum Let’s Dance.

Milljarða samkomulag í höfn um greiðslu bóta til minkabænda
Samkomulag er í höfn milli dönsku ríkisstjórnarinnar og meirihluta flokka á þingi um greiðslu bóta vegna minkamálsins svokallaða. Samkomulagið tókst loksins í kvöld eftir ríflega tveggja mánaða viðræður og hljóðar það upp á 18,7 milljarða danskra króna, eða sem nemur tæpum 396 milljörðum íslenskra króna.

Nýttu glufu í kerfinu til að tryggja sjálfum sér bólusetningu
Hópur bæklunarlækna við Sønderjylland-sjúkrahúsið í Danmörku nýtti sér glufu í kerfinu til að tryggja sjálfum sér bólusetningu gegn covid-19. Læknarnir nýttu glufuna til að bóka bólusetningu fyrir sjálfa sig en málið hefur vakið nokkra reiði meðal samstarfsmanna þeirra á sjúkrahúsinu og víðar í danska heilbrigðiskerfinu.

Handteknir vegna hótana í garð Mette Frederiksen
Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið tvo einstaklinga vegna hótana í garð Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur. Hinir handteknu eru grunaðir um að hafa kveikt í brúðu, sem á var búið að festa mynd af andliti forsætisráðherrans auk skilaboða um líflátshótun. Ekki er útilokað að fleiri verði handteknir vegna málsins að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni í dag.

Í sérstakri sóttkví eftir að breska afbrigðið greindist á leikskóla sonarins
Anna Þorsteinsdóttir, íslensk kona sem búsett er í Danmörku, er nú í tveggja vikna sóttkví eftir að hið svokallaða breska afbrigði kórónuveirunnar greindist á leikskóla sonar hennar. Hún segir stöðuna erfiða.