
Klukkan á Íslandi

Vandræðaklukka send út til viðgerðar
Illa hefur gengið um nokkurt skeið að halda tröllvaxinni klukku við Austurvöll gangandi. Viðgerðir hér heima hafa ekki borið árangur og hún hefur því verið send í viðgerð til útlanda. Rekstrarstjóri hótels sem klukkan prýðir segir skipta miklu máli að fá hana í lag.

Grænlendingar skipta um tímabelti
Ríkisstjórnin á Grænlandi tilkynnti fyrir helgi að frá og með laugardeginum síðastliðnum tilheyrir Grænland nýju tímabelti.

Nýjasta ástæða til að breyta íslensku klukkunni er frá hönnuði í New York
Sigurður Oddsson, Siggi Odds, er á meðal virtari hönnuða Íslendinga. Hann útskrifaðist úr Listaháskólanum árið 2008, fór að vinna hjá Jónsson og Lemacks’, vann sig upp þar og var loks á meðal þeirra sem leiddu ímyndar- og vörumerkjaþróunina þar.

Klukkan játar sig sigraða eftir 86 ára þjónustu
Síminn hefur ákveðið að leggja klukkunni, sjálfvirkri þjónustu þar sem landsmenn gátu fengið að vita hvað klukkan væri. Eftir 86 ára þjónustu hefur klukkan hætta að svara í símann og játað sig sigraða gagnvart tæknibyltingunni.

Sólin búin að lengja daginn um 47 mínútur í Reykjavík
Myrkrið víkur núna hratt með hækkandi sól og í dag hafði daginn lengt um 47 mínútur í Reykjavík frá vetrarsólstöðum og um eina klukkustund á Akureyri.

Telur að viðskiptahagsmunir hafi vegið þyngra en lýðheilsa þjóðarinnar
Erla Björnsdóttir, sálfræðingur, kveðst afar vonsvikin vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að klukkan á Íslandi verði óbreytt. Ákvörðunin sé tekin þvert á vilja meirihluta landsmanna og þvert á vilja meirihluta þeirra sem skiluðu umsögnum um málið.

Klukkunni verður ekki seinkað
Klukkunni verður ekki seinkað um eina klukkustund hér á landi líkt og komið hefur til umræðu öðru hvoru undanfarin ár.

Sá á kvölina sem á völina í klukkumálinu
Forsætisráðherra segir að afar góð rök séu fyrir seinkun á klukkunni en einnig fyrir því að halda tímanum óbreyttum. Eftir samráð um málið ætlar hún að leggjast undir feld og tekur svo ákvörðun í málinu á vordögum.

Heilbrigðisráðherra segir það lýðheilsumál að seinka klukkunni
Heilbrigðisráðherra segir það eindregna skoðun sína að seinka eigi klukkunni á Íslandi enda sé um stórt lýðheilsumál að ræða. Málið hefur endanlega verið afgreitt af heilbrigðisráðuneytinu og er nú í höndum forsætisráðherra að taka ákvörðun um næstu skref.

Norrænir miðjuflokkar vilja afnema klukkubreytingu
Tillaga um afnám klukkubreytinga í norrænum löndum er meðal þess sem liggur fyrir Norðurlandaráðsþingi sem hefst í dag. Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, er meðal flutningsmanna tillögunnar en hún kveðst vongóð um að hún nái fram að ganga.

B-manneskjan þarf að þröngva sér inn í ramma A-manneskjunnar og fær því styttri svefn
Hinar svokölluðu B-manneskjur, nátthrafnar sem fara seint að sofa, þurfa að þröngva sér inn í ramma A-manneskjunnar sem fer snemma að sofa og vaknar einnig snemma. Þar af leiðandi fær B-manneskjan styttri svefn en A-manneskjan, að sögn Erlu Björnsdóttur, doktors í sálfræði, sem hefur mikið rannsakað svefn.

Löng bið eftir niðurstöðu í klukkumálinu
Stuðningsfólk þess að seinka klukkunni á Íslandi er farið að lengja eftir því að stjórnvöld ákveði næstu skref í málinu. Nú þegar nærri sjö mánuðir síðan að hætta var að taka við umsögnum um málið er það enn í skoðun hjá forsætisráðuneytinu.

Svefnfriður á morgnana
Jafnvel hið dagfarsprúðasta fólk getur umturnast ef það verður fyrir því að friði þeirra er raskað að kvöldlagi þegar svefntími er genginn í garð.

Trump lýsir stuðningi við að flýta klukkunni
Frumvarp um að taka upp sumartíma allt árið liggur fyrir Bandaríkjaþingi. Með því yrði klukkunni flýtt um eina klukkustund á veturna frá því sem nú er.

Óttast að ungmenni hreyfi sig minna með seinni klukku
Barnalæknir segir að lítið hafi verið gert úr göllum þess að seinka klukkunni í greinargerð starfshóps ráðherra, þar á meðal um neikvæð áhrif á hreyfingu ungmenna.

Tveir þriðju hlynntir klukkutíma seinkun
Frestur til að skila umsögnum um tillögur að breyttum staðartíma á Íslandi rennur út eftir rúma viku. Hingað til eru flestir á því að seinka skuli klukkunni. Sumir leggja til tilraunaverkefni á Vestfjörðum eða að flýta klukkunni.

Vilja að skólinn byrji seinna á morgnana
Margt var um manninn á fundi í MH um svefnvenjur og klukkubreytingar.

Átta glænýjar staðreyndir um svefn
Það hefur sjaldan verið talað eins mikið um svefn á Íslandi enda umræðan um breytingu á klukkunni hávær.

Meirihluti er hlynntur því að seinka klukkunni
Meirihluti Íslendinga er hlynntur því að klukkunni verði seinkað um eina klukkustund í samræmi við hnattstöðu landsins.

Er umræðan um klukkustillingu á villigötum?
Enn á ný er umræða um stillingu klukkunnar áberandi í fjölmiðlum. Forkólfar og sérfræðingar í svefnrannsóknum stíga fram og minna okkur á mikilvægi þess að fá nægan svefn.

Meirihluti landsmanna vill seinka klukkunni
Rúmlega 63 prósent Íslendinga vilja að klukkunni verði seinkað um eina klukkustund frá því sem nú er. Aðrir vilja óbreytta stöðu klukkunnar.

„Klukkumálið“ ekki afgreitt á vorþingi
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að hugsanlegar breytingar á klukkunni verði ekki afgreiddar á vorþingi.

Breyting á klukku myndi bæta svefninn
Svefn er gríðarlega mikilvægur og okkur lífsnauð-synlegur. Mikil endurnýjun á sér stað í líkamanum á meðan svefn stendur yfir. Íslendingar virðast sofa minna en aðrar þjóðir og telja sérfræðingar að hægt sé að leiðrétta slíkt meðal annars með breytingu á klukkunni. Oft gætir misskilnings um málið.

Breyting á klukkunni muni ekki fjölga birtustundum
Vegna legu landsins á hárri breiddargráðu eru fáar birtustundir í boði á Íslandi yfir háveturinn og mun þeim ekki fjölga með breytingu á stillingu klukkunnar.

Færum myrkrið frá morgni til kvölds
Sennilega er okkur Íslendingum ýmislegt betur lagið en að fara eftir aðstæðum. Mætti nefna mörg dæmi þar um, en látum nægja þau endemi að við skulum stefna börnum okkar á hverjum virkum degi út í náttmyrkrið að vetrinum.

Golfarar eru mótfallnir hringli með klukkuna
Golfsamband Íslands er enn á móti því að klukkunni sé breytt. Síðast þegar slíkar hugmyndir voru uppi mótmæltu kylfingar og Icelandair einna harðast.

Fagnar algjörri metþátttöku í umsögnum um klukkubreytingu
Opnað var fyrir umsagnir í gær en klukkan níu í morgun voru þær orðnar tæplega 400 talsins.

Ein segir ekki hægt að kenna klukkunni um svefnvenjur Íslendinga og annar óttast bandarísk áhrif
Á þriðja hundruð umsagna hafa borist vegna klukkubreytingar en flestir virðast velja kost B, það er að klukkunni verði breytt.

Óttarr segist eiga erfitt með að átta sig á tillögum um klukkubreytingu
Heilbrigðisráðherrann fyrrverandi fór yfir kostina þrjá í Reykjavík síðdegis.

Hvaða klukkubreytingu líst þér best á?
Greinargerðin Staðartími á Íslandi – stöðumat og tillögur hefur verið birt í samráðsgátt Stjórnarráðsins.