Kjaramál

Covid árið 2020 gert upp: Veikindadögum fækkaði og jafnlaunavottunin virkar
Starfsmannaveltan var 13% á því sögulega ári 2020 þegar Covid skall á. Veikindadögum fækkaði á milli ára og jafnlaunavottunin er að virka. Þá eru fyrirtæki að þreifa fyrir sér í sjálfvirknivæðingu og gervigreind, þó þannig að starfsfólki er ekki að fækka.

8 mínútur og 39 sekúndur
Í síðustu viku birti Hagstofa Íslands niðurstöður rannsóknar á launamun kynjanna. Launamunur hefur farið lækkandi hægt en örugglega frá árinu 2008, munur á atvinnutekjum karla og kvenna lækkaði úr 36,3% niður í 23,5%, óleiðréttur launamunur minnkaði úr 20,5% í 12,6% og leiðréttur launamunur úr 6,4% í 4,1%.

Krefjast samningsfundar fyrir kosningar
Félag talmeinafræðinga á Íslandi hefur krafist þess að Sjúkratryggingar Íslands gangi að samningsborðinu við félagið fyrir Alþingiskosningar 25. september næstkomandi. Félagið lýsir yfir miklum vonbrigðum með framgöngu Sjúkratrygginga við félagið.

Samfylkingin og ASÍ eiga samleið
Jafnaðarmenn og verkalýðshreyfingin berjast í þessari kosningabaráttu fyrir því að bæta kjör fólks og hafa komið því rækilega á dagskrá. Samfylkingin hefur sett kjör fjölskyldunnar og barnafólks í forgang og Alþýðusamband Íslands hefur verið áberandi með skilaboð sín um að það sé nóg til.

Eru sjómenn annars flokks?
Stéttarfélög sjómanna slitu í síðustu viku samningaviðræðum við útgerðarmenn um gerð nýs kjarasamnings. Sjómenn fóru fram með þær hógværu kröfur að greitt yrði sama mótframlag í lífeyrissjóð og annað launafólk fá og að kauptrygging sjómanna hækki um sömu krónutölur og laun á almennum vinnumarkaði.

Villandi umræða um laun á milli markaða
Ýmislegt hefur verið rætt og ritað um opinberra starfsmenn á undanförnum vikum. Hefur því meðal annars verið haldið fram, að opinber rekstur sé að þenjast út með tilheyrandi fjölgun opinberra starfsmanna, og að launaþróun þeirra leiði launamyndun á atvinnumarkaði. Báðar þessar fullyrðingar eiga sér enga stoð.

Sveitarfélög greiði háskólamenntuðum 40 prósent lægri laun en fyrirtæki
Háskólamenntaðir sérfræðingar fengu 40 prósent lægra tímakaup hjá sveitarfélögum en á almennum markaði og 15 prósentum lægra tímakaup en hjá ríkinu í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bandalagi háskólamanna.

Leiðréttur launamunur kynjanna 4,1 prósent
Launamunur kynjanna hefur dregist saman frá árinu 2010 en kynbundin skipting í störf og atvinnugreinar skýrir að miklu leyti þann launamun sem enn er til staðar. Á sama tíma hafa áhrif menntunarstigs og lýðfræðilegra þátta á launamun minnkað.

Sjómenn slíta viðræðum: „Vilja eignast Ísland og auðlindir okkar án þess að greiða fyrir það“
Stéttarfélög sjómanna slitu í gær kjaraviðræðum sínum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Viðræður hafa átt sér stað í nokkra mánuði en kjarasamningar sjómanna hafa verið lausir frá því í lok 2019.

Sjúkraþjálfarar þurfa ekki tveggja ára reynslu til að fá samning við SÍ
Heilbrigðisráðherra hefur fellt úr gildi skilyrði um það að sjúkraþjálfarar þurfi að hafa starfað í tvö ár eftir löggildingu í 80 prósent starfi til að fá samning við Sjúkratryggingar Íslands.

Flugumferðarstjórar semja og aflýsa verkfalli
Félag íslenskra flugumferðarstjóra skrifaði í dag undir nýjan kjarasamning við Isavia og hefur aflýst verkföllum sem voru fyrirhuguð voru í næstu viku.

Íslenskt samfélag
Þau voru bæði orðin sjötíu og tveggja ára og höfðu hætt að vinna fyrir tveimur til þremur árum. Og á þessum föstudagsmorgni sátu þau við eldhúsborðið og drukku morgunkaffið eins og þau gerðu reyndar á hverjum morgni.

Laun hjá hinu opinbera hafa rokið upp
Launavísitala lækkaði lítillega milli júní og júli en á síðustu tólf mánuðum hefur hún hækkað um 7,8 prósent, þar af 5,4 prósent á fyrstu sjö mánuðum ársins. Þetta segir í nýjustu tölum Hagstofu Íslands.

Millilandaflug fer úr skorðum
Millilandaflug á Keflavíkurflugvelli fer úr skorðum á þriðjudag eftir viku þegar allt flug til og frá landinu á þriðjudagsmorgun fellur niður takist ríkissáttasemjara ekki að sætta Isavia og flugumferðarstjóra fyrir þann tíma. Verkfall þeirra hefur ekki áhrif á innanlandsflug.

Segir starfsfólki Play engir afarkostir settir
Forstjóri flugfélagsins Play segir að engum starfsmönnum félagsins hafi verið settir afarkostir í tengslum við áframhaldandi starf í haust og vetur. Tillaga um að bjóða fastráðnum starfsmönnum að lækka starfshlutfall til að fleiri gætu haldið vinnu hefði mælst vel fyrir, en það væri engin skylda.

Félag íslenskra flugumferðastjóra boðar til verkfalls
Fundi Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Isavia var slitið upp úr klukkan 23:30 í kvöld. Fundað hafði verið frá klukkan eitt í dag en samkomulag náðist ekki milli aðila og því hefur verið boðað til verkfalls.

Gætu boðað til verkfalls á mánudag
Ekki náðist sátt um vinnutíma flugumferðarstjóra á sáttafundi félags þeirra og Isavia hjá ríkissáttasemjara í dag. Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur út mánudaginn til að boða til verkfalls sem félagsmenn hafa þegar samþykkt að fara í.

„Er ekki einhver þefur af láglaunakvenna-fyrirlitningu hjá ykkur?“
Eflingarfólk gefur lítið fyrir kumpánlegar kveðjur Samfylkingar til verkalýðsstéttarinnar.

Mánaðarlaun þingmanna komin upp í tæplega 1,3 milljón króna
Laun þingmanna hækka enn og hafa hækkað um 16,7 prósent frá árinu 2016 en þá höfðu þau verið hækkuð til mikilla muna eða um 44,3 prósent í einni svipan.

Heildarlaun lækkuðu í sumum starfsgreinum
Grunnlaun hækkuðu að jafnaði um 6,6% milli áranna 2019 og 2020. Á sama tíma hækkuðu heildarlaun fullvinnandi um 5,3% og því ljóst að stytting vinnutíma hefur haft áhrif á þróunina.

Telja sig hlunnfarna um milljónir í laun frá Pizzunni
Hópur starfsmanna pítsukeðjunnar Pizzunnar telur sig hlunnfarinn um laun frá fyrirtækinu. Stéttarfélag starfsmannanna er með á milli sex og sjö milljóna króna í innheimtu frá fyrirtækinu vegna vangreiddra launa, einkum þar sem yfirvinnutímar hafa ekki verið greiddir sem slíkir.

Segir styttingu vinnuvikunnar hafa snúist upp í andhverfu sína
Fjármagn sem sagt var renna til lögreglunnar vegna styttingar vinnuvikunnar fór einnig til tveggja annarra stofnana að sögn formanns Landssambands lögreglumanna. Hann segir að lögreglumönnum hafi ekki fjölgað því jafn margir hafi hætt og voru ráðnir. Menn íhugi að hætta vegna álags.

Iðnaðarmenn samþykktu kjarasamning við Rio Tinto á Íslandi
Kjarasamningur iðnaðarmanna við Rio Tinto á Íslandi hefur verið samþykktur en atkvæðagreiðslu lauk í morgun.

Flugfreyjufélagið óskar eftir viðræðum við Play
Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, segir Flugfreyjufélag Íslands nú hafa óskað formlega eftir viðræðum við flugfélagið Play.

Samningslausir sjómenn og viljalausir útgerðarmenn
Sjómenn hafa nú verið án kjarasamnings í heila 18 mánuði. Þrátt fyrir marga fundi með viðsemjendum gengur hvorki né rekur við samningaborðið, enda virðist samningsvilji útgerðarmanna enginn.

Kjarasamningarnir sögð ein af forsendum framtíðarmöguleika Play
Þeir kjarasamningar sem stjórnendur Play hafa gert við flugmenn og áhöfn eru ein af grunnstoðum rekstraráætlunar félagsins og framtíðarmöguleika.

Kröfur vegna launaþjófnaðar hjá ferðaþjónustunni hlaupa á hundruðum
ASÍ gaf út ályktun á dögunum um það að tími til þess að vanda til verka þegar ferðaþjónustan tæki við sér hafi ekki verið nýttur. Því væru uppi áhyggjur um aukna gerviverktöku, lægri laun og minni réttindum.

Ekki „skilgreindur pottur til vinnandi fólks á Íslandi“
Forseti ASÍ telur að fara þurfi varlega í að bera saman kaupmátt nú og í fyrra þegar aðstæður eru allt aðrar. Samtökin muni áfram sækja kjarabætur í formi launahækkana fyrir félagsmenn þótt Samtök atvinnulífsins telji launahækkanir algjörlega óraunhæfar.

Sambærilegar launahækkanir „óraunhæfar með öllu“
Aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ánægjulegt að markmið um kaupmáttaraukningu hafi náðst í kórónuveirufaraldrinum með síðustu kjarasamningum. Það sé hins vegar ekki raunhæft að búast við samskonar launahækkunum á næsta samningstímabili

Óttast launaskerðingu með aukinni arðvæðingu
Forseti ASÍ hefur áhyggjur af því að aukin arðvæðing í öldrunarþjónustu hér á landi leiði til kjaraskerðingar starfsfólks. Dæmi frá Norðurlöndum ættu að vera Íslendingum víti til varnaðar.