Mosfellsbær

Vona að áreiðanleiki verði meiri með fjölgun vagna og aukinni tíðni
Jóhannes Rúnarsson framkvæmdarstjóri Strætó segir ganga vel hjá strætó eftir að tíðni ferða var fjölgað til muna þann 17. ágúst síðastliðinn. Breytingarnar kosti strætó um 400 milljónir en vögnum var fjölgað um 25 og starfsfólki um 60 manns.

Hafdís Huld bæjarlistamaður Mosfellsbæjar
Hafdís Huld Þrastardóttir var útnefnd bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2025 á sérstakri hátíðardagskrá við setningu bæjarhátíðarinnar Í túninu heima í Mosfellsbæ í dag. Hafdís Huld Þrastardóttir er söngkona og lagahöfundur. Hún hóf feril sinn ung og hefur átt fjölbreyttan feril sem spannar yfir þrjá áratugi.

Gátu ekki opnað hraðbankann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
Mál lögreglu um þjófnað á hraðbanka í Mosfellsbæ telst upplýst. Karlmaður á fimmtugsaldri hefur játað sök en fleiri eru með réttarstöðu sakborninga en enginn situr í gæsluvarðhaldi. Hraðbankinn fannst lasakaður en enn voru milljónirnar 22 þar inni.

Hraðbankaþjófur játar sök
Karlmaður á fimmtugsaldri, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í tengslum við þjófnað á hraðbanka í Mosfellsbæ í síðustu viku, hefur játað sök og hefur hann verið úrskurðaður í fjögurra vikna síbrotagæslu til 24. september að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Játaði Hamraborgarmálið, grunaður í hraðbankamálinu og vitni í Gufunesmálinu
Maður sem er bæði grunaður um stuld á hraðbanka í Mosfellsbæ í síðustu viku og í Hamraborgarmálinu svokallaða er meðal þeirra sem áætlað er að gefi skýrslu við aðalmeðferð Gufunesmálsins í Héraðsdómi Suðurlands á næstu dögum.

Hraðbankinn fannst á Hólmsheiði
Hraðbankinn sem hvarf úr verslunarkjarna í Mosfellsbæ á dögunum fannst við hitaveitutanka á Hólmsheiði síðdegis í gær samkvæmt heimildum fréttastofu. Peningarnir voru enn í honum; alls tuttugu og tvær milljónir króna.

Milljónirnar 22 voru enn í hraðbankanum þegar hann fannst
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fundið hraðbanka Íslandsbanka sem stolið var úr verslunarkjarna í Mosfellsbæ á dögunum. Ásamt hraðbankanum hefur lögreglan endurheimt 22 milljónir króna.

Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu
Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir rannsókn lögreglunnar á þjófnaði hraðbanka í Mosfellsbæ miða vel. Rannsókn sé viðamikil og lögregla á fullu. Tveir eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins og eru grunaðir um aðild að þjófnaðinum og á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu
Tveir vinir og nýstúdentar héldu í sumar vímuefnalausan viðburð þar sem ungmenni gátu skemmt sér utandyra með jafnöldrum sínum. Þeir segja viðburðinn hafa heppnast afar vel og stefna á að stækka hann á næsta ári.

Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman
Landsréttur hefur úrskurðað karlmann á fimmtugsaldri, góðkunningja lögreglunnar, í gæsluvarðhald til 27. ágúst grunaðan um aðild að hraðbankaþjófnaði í Mosfellsbæ. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður hafnað kröfu lögreglu þess efnis.

Bíll konunnar sást á upptöku
Kona á fertugsaldri var úrskurðuð í gæsluvarðhald til þriðjudags í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag grunuð um aðild að hraðbankaþjófnaði í Mosfellsbæ aðfaranótt þriðjudags. Lögregla hafði áður krafist þess fyrir dómi að fá heimild til að skoða síma konunnar. Mynd af bíl konunnar er meðal lykilsönnunargagna í málinu.

Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi
Um tuttugu milljónir króna voru í hraðbanka sem stolið var í Mosfellsbæ í vikunni. Kona á fertugsaldri hefur verið úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald til þriðjudags grunuð um aðild að þjófnaðinum.

Bærinn hefur afhent lögreglu myndefni í tengslum við hraðbankaránið
Mosfellsbær hefur afhent lögreglu myndefni úr eftirlitsmyndavélum bæjarins í tengslum við rannsókn á hraðbankaráni í bænum fyrr í vikunni. Rannsókn málsins er sögð á frumstigi en héraðsdómur hafnaði í morgun beiðni lögreglu um gæsluvarðhald yfir manni sem hún hefur grunaðan í málinu.

Óska eftir myndefni af gröfunni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biðlar til eigenda eftirlitsmyndavéla í Mosfellsbæ og við Hafravatn að kanna hvort að þar leynist myndefni af vinnuvél, sem notuð var við þjófnað á hraðbanka í Mosfellsbæ.

Gæsluvarðhaldskröfu hafnað í hraðbankamálinu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað beiðni Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um aðild að þjófnaði á hraðbanka í Mosfellsbæ á dögunum.

Telur handtökuna byggja á slúðri
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist gæsluvarðhalds á hendur karlmanni sem er grunaður um hraðbankastuld í Mosfellsbæ í gærnótt. Dómari hjá Héraðsdómi Reykjavíkur hefur gefið sér umhugsunarfrest til morguns um hvort hann fallist á kröfu lögreglu.

Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar
Lögregla hefur krafist gæsluvarðhalds yfir manni sem er grunaður um að stela hraðbanka úr útibúi Íslandsbanka í Mosfellsbæ í fyrrnótt. Hann er einnig grunaður um rán í Hamraborg í fyrra.

Enginn handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ
Enginn hefur enn verið handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ í gær. Milljónir voru í hraðbankanum. Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við fréttastofu að ekkert nýtt sé að frétta af rannsókn lögreglunnar.

Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“
Útitónleikar bæjarhátíðar Mosfellsbæjar hafa verið færðir yfir á sunnudag, einhverjum bæjarbúum til ama. Verkefnastjóri segir núllstillingu mikilvæga eftir erfiða atburði í kringum hátíð síðasta árs.

Ekkert bendi til tengsla milli bankastuldsins og Gufunesmálsins
Ekkert bendir til tengsla milli hraðbankaþjófnaðar í Mosfellsbæ í nótt og Gufunesmálsins svokallaða að sögn Hjördísar Sigurbjartsdóttur, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Bubbi segir Hróa Hattar-brag á stuldinum
Bubbi Morthens, einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, hefur tjáð sig um hraðbankaþjófnað sem varð í Mosfellsbæ í nótt. Bubbi segir stuldinn hafa minnt sig á goðsagnapersónuna Hróa Hött.

Húsleit á heimili þekkts brotamanns
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið í tvær húsleitir með aðstoð sérsveitar í dag vegna rannsóknar sinnar á þjófnaði úr hraðbanka í Mosfellsbæ í nótt. Samkvæmt heimildum fréttastofu býr Stefán Blackburn, þekktur brotamaður, á öðru heimilinu sem lögreglan heimsótti í dag.

Notuðu gröfu til að brjótast inn í hraðbanka
Þjófar stálu hraðbanka Íslandsbanka og milljónum sem í honum voru þegar þeir brutust inn í hraðbankaútibú Íslandsbanka í nótt. Hraðbankinn var staðsettur við bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar í Þverholti í Mosfellsbæ. Fleiri en einn er grunaður um þjófnaðinn samkvæmt lögreglu og er grunur um að grafan sem var notuð við þjófnaðinn hafi verið tekin á byggingarsvæði á Blikastaðalandi.

Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda
Heilunarguðþjónustur hafa notið mikilla vinsælda í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ en 35 slíkar messur hafa verið haldnar og verður sú þrítugasta og sjötta haldin nú í september. Þá verður líka stór viðburður í bæjarfélaginu, sem kallast Heimsljós.

Valdar strætóleiðir ganga oftar og lengur
Strætó ræðst í umfangsmikla þjónustuaukningu sunnudaginn næsta. Hlutfall íbúa sem búa innan við 400 metrum frá stoppistöð með tíu mínútna tíðni á annatíma fer úr um 18 prósent í rúmlega 50 prósent.

Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ
Jóhann Alfreð Kristinsson, uppistandari og lögfræðingur, og eiginkona hans Valdís Magnúsdóttir, hagfræðingur og endurskoðandi, hafa fest kaup á fallegu raðhúsi við Sölkugötu í Mosfellsbæ. Kaupverðið nam 146 milljónum króna.

Einn handtekinn vegna líkamsárasar
Einn var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur fyrir líkamsárás og vörslu fíkniefna en lögregla vistaði viðkomandi í fangageymslu vegna rannsókn málsins.

Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að sinna í nótt. Fjöldi ökumanna var stöðvaður vegna hrað- eða ölvunaraksturs og einn var vistaður í fangaklefa vegna líkamsárásar. Gleðin var líka víða við völd og fór lögregla í nokkur hávaðaútköll.

„Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“
Rúmur helmingur landsmanna er með neikvætt viðhorf gagnvart þéttingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu. Oddviti Framsóknarflokksins telur niðurstöður könnunarinnar ekki breyta neinu fyrir meirihlutann í borginni.

„Ég vakna á hverjum degi og þrái ekkert meira en að fá hann aftur“
Þann 3. nóvember síðastliðinn lést Sigurður Kristófer McQuillan Óskarsson, formaður Björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ, á sameiginlegri straumvatnsæfingu á vegum Landsbjargar. Eftirlifandi unnusta hans, Hrefna Ingibjörg Jónsdóttir, segir að með Sigurði hafi hún ekki aðeins kynnst ástinni, heldur einnig starfi björgunarsveitanna. Í dag, nokkrum mánuðum síðar, stendur hún sjálf á barmi þess að verða fullgildur meðlimur í sömu sveit — og undirbýr sig nú fyrir hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu, þar sem hún safnar áheitum fyrir Landsbjörg.