
Mosfellsbær

Batt á sig klút til heiðurs Höllu
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hélt ekki kosningavöku líkt og venjan er hjá þeim sem eru í forsetaframbjóðendum. Þess í stað fór hún heim til vinar síns og hafði það rólegt. Slökkt var á sjónvarpinu og rauluðu gestir Kumbaya, My Lord.

Skrifuðu bók um Sólrúnu Öldu og brunann í Mávahlíð
Nemendur í 6. bekk Varmárskóla afhentu í gær Sólrúnu Öldu Waldorff bók sem þeir sömdu um batagöngu hennar síðan hún slasaðist alvarlega í eldsvoða fyrir nokkrum árum. Fram kemur í tilkynningu um bókina að Sólrún Alda hafi heimsótt skólann fyrr í vetur og sagt nemendum sögu sína. Heimsóknin hafi verið liður í verkefni um eldvarnir.

Byrjuðu saman sex árum eftir fyrstu skilaboðin
Ástarsaga Jóhönnu Helgu Jensdóttur, áhrifavalds og útvarpskonu á FM957, og Geirs Ulrich Skaftasonar viðskiptastjóra hjá Isavia á sér langan aðdraganda þar sem þau voru vinir um nokkurra ára skeið áður en þau felldu hugi saman.

Yngstu börnin um 14 til 15 mánaða við innritun í haust
Innritun leikskólabarna er vel á veg komin í flestum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Í Reykjavík er búið að bjóða 1.715 börnum leikskólapláss. Meðalaldur við innritun er í kringum 22 mánuðir.

Hundar mæta í vinnuna með eigendum sínum
Það færist sífellt í vöxt að dýr séu notuð í meðferðum með börnum til að bæta lífsgæði þeirra, ekki síst hundar. Gott dæmi um þetta er sálfræðingur í Reykjavík, sem ætlar sér að nýta sinn hund í tímum með skjólstæðingum sínum og í Fossvogsskóla mætir hundur tvisvar í viku með eiganda sínum í vinnuna.

Tveir fluttir á Landspítala eftir árekstur á mótorkrossbrautinni í Mosfellsbæ
Slys átti sér stað á mótorkrossbrautinni í Mosfellsbæ í gærkvöldi þar sem tveir einstaklingar skullu saman. Voru þeir fluttir á Landspítala til skoðunar.

Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal
Túlípanar eru alltaf að verða vinsælli og vinsælli til tækifærisgjafa eða bara til að hafa heima á stofuborðinu. Í gróðrarstöð í Mosfellsdal eru ræktaðar 95 mismunandi tegundir af túlípönum.

Útimarkaðurinn í Mosó hættir
Ákveðið hefur verið að útimarkaði Mosskóga í Mosfellsdal, þar sem hægt hefur verið að kaupa varning frá ræktendum og framleiðendum í nágrenninu, verði hætt nú í sumar.

Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann poka í Mosfellsbæ í dag þar sem finna mátti hræ fimm hvolpa. Matvælastofnun hefur verið gert viðvart og grunur er um brot á lögum um velferð dýra.

Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir
Bergur Vilhjálmsson á nú aðeins eftir að ganga tíu af þeim hundrað kílómetrum sem hann ætlaði sér að klára gangandi. Bergur lagði af stað á sumardaginn fyrsta og býst við því að klára gönguna um klukkan 14 í dag.

Sjö sóttu um embætti skólameistara
Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust sjö umsóknir um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólans í Kópavogi.

Mosfellsbær kom út í plús
Afgangur af rekstri Mosfellsbæjar fyrir árið 2023 nam 341 milljón króna. Þetta kom í ljós í dag þegar ársreikningur var lagður fram á fundi bæjarráðs.

Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum
Björgunarsveitir aðstoða nú göngumann sem lenti í sjálfheldu á Móskarðshnjúkum. Viðkomandi er ekki slasaður.

Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað
Of snemmt að segja til um hvort uppfæra þurfi verkferla hjá Öryggismiðstöðvarinnar vegna þjófnaðs sem átti sér stað í Hamraborg í Kópavogi á mánudagsmorgun. Þetta segir Ómar Brynjólfsson, framkvæmdastjóri mannaðra lausna hjá Öryggismiðstöðinni.

Töskurnar fundust tómar á þremur mismunandi stöðum
Þjófar sem taldir eru hafa stolið spilakassafé að andvirði hátt í þrjátíu milljóna króna ganga enn lausir og peningarnir hafa heldur ekki fundist. Töskurnar sjö sem geymdu fjármunina eru allar fundnar. Tvær fundust við Lágafellskirkju í Mosfellsbæ, ein við Bugðufljót og fjórar úti í móa uppi við Esjumela.

Fundu rangan bíl með rétt skráningarnúmer
Heimir Ríkharðsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni í Kópavogi, segir að litlar sem engar upplýsingar séu til staðar um þá tvo sem áttu í hlut í ráni á peningaflutningabíl í Hamraborg í Kópavogi í gærmorgun.

Fundu töskurnar í Mosfellsbæ en þjófarnir enn týndir
Töskur sem tveir þjófar stálu í Hamraborg í Kópavogi í gærmorgun fundust í Mosfellsbæ í dag, meðal annars í Esjumelum. Verðmæti höfðu verið tekin úr töskunum.

Yngstu börnin innrituð í Garðabæ og Mosfellsbæ
Á höfuðborgarsvæðinu er nú unnið að því að innrita börn í leikskóla fyrir bæði næsta haust og sum þetta vorið. Um er að ræða árganga barna sem fæddust árin 2022 og 2023 en misjafnt er eftir sveitarfélögum hversu langt þau ná inn í árið 2023.

Heimsókn í kakókastala Helga Jean
Í síðasta þætti af Heimsókn leit Sindri Sindrason við hjá Helga Jean Claessen í Mosfellsbænum sem tók hús sitt í gegn og byrjuðu framkvæmdir árið 2019.

Dorrit þvoði á sér hárið í Varmá
Dorrit Moussaieff fyrrverandi forsetafrú tók sig til og þvoði hárið á sér í Varmá. Þetta má sjá á samfélagsmiðlinum Instagram.

Siggi Sveins þarf hópefli til bjargar Skolla
Sigurður Sveinsson handboltakappi með meiru leitar nú eftir liðsinni við að bjarga golfbíl sínum úr skafli.

Golfbíllinn fannst kaldur og yfirgefinn í Mosfellsdal
Golfbíll Sigurðar Sveinssonar, Skolli, er kominn í leitirnar. Hann fannst í skóglendi í Mosfellsdal og því má ætla að hinir ábyrgu sleppi við að Sigurður dýfi þeim í tjöru og fiðri, líkt og hann hafði hótað.

Mun finna þjófana og dýfa í tjöru og fiðra
Sigurður Sveinsson handboltakempa, sem ætíð er kallaður Siggi Sveins, lenti í því að golfbíl hans var stolið. Þjófarnir eiga ekki von á góðu.

Svona er dagskrá Vetrarhátíðar í ár
Vetrarhátíð verður haldin dagana 1. til 3. febrúar í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Dagskráin er fjölbreytt og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Væntanlegir snjallgámar Sorpu eiga að tryggja tímanlega losun
Starfsmenn Sorpu munu á næstu vikum koma fyrir skynjurum í grenndargáma á höfuðborgarsvæðinu sem eiga að tryggja að gámarnir verði losaðir tímanlega.

Tóku hurðina af hjörunum og rændu sjóðsvél
Nóttin virðist hafa verið róleg af dagbók lögreglunnar að dæma. Þó var tilkynnt um líkamsárás í Mosfellsbæ en lögreglan fór á vettvang til að ræða við aðila máls samkvæmt dagbókinni.

Maðurinn sem lögregla lýsti eftir er fundinn
Maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í dag er kominn í leitirnar.

Lögregla lýsir eftir Jóhanni Inga
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóhanni Inga Ögmundssyni, 30 ára.

Fluttu úr miðbænum í einstaka náttúruparadís
Heiðar Logi Elíasson brimbrettakappi og kærastan hans, Anný Björk Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, fluttu nýverið úr miðbæ Reykjavíkur og festu kaup á sumarhúsi í landi Miðdals við Silungatjörn í Mosfellsbæ. Húsið er staðsett á 5000 fermetra eignarlóð með einstöku útsýni og veiðileyfi í tjörninni.

Enginn þarf að flytja út sem vill það ekki
Íbúar Skálatúns eru í algjörum forgangi hjá Mosfellsbæ að sögn sviðsstjóra velferðarsviðs. Aðstandendur hafa lýst því að þeim finnist íbúarnir gleymast í allri umræðu um starfsemina.