
Grindavík

Gasmengun gæti náð á höfuðborgarsvæðið
Gasmengunar gæti orðið vart á höfuðborgarsvæðinu í dag vegna eldgossins á Sundhnúkagígsröðinni, samkvæmt gasdreifingarspá Veðurstofunnar.

Alls 914 umsóknir um uppkaup í Grindavík samþykktar
Alls hafa 914 umsóknir um kaup á húsnæði í Grindavík verið samþykktar hjá fasteignafélaginu Þórkötlu. Afhending hefur farið fram í 822 tilvikum. Þá hefur fasteignafélaginu borist 17 umsóknir um svokallaða hollvinasamninga vegna eigna sem þau hafa keypt í Grindavík. Í október á þessu ári þáðu 571 einstaklingur frá Grindavík leigustuðning en þeim hefur fækkað um nærri helming frá því í febrúar þegar 901 þáði slíkan stuðning.

Verulega dregið úr hættu á að hraun nái innviðum
Hraun frá eldgosinu á Sundhnúkagígaröðinni rennur nú til austurs og ógnar ekki innviðum. Fáar vísbendingar eru um hvort landris sé hafið á ný eða ekki.

Tíðindalítil nótt á gosstöðvunum en varað við gasmengun
Nóttin var tíðindalítil á gosstöðvunum, samkvæmt náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands.

Hraun streymir að langmestu frá Svartsengi
„Það heldur áfram að malla. Okkur sýnist það streyma að langmestu leyti til austurs í átt að Fagradalsfjalli og þá ógnar það ekki Svartsengi.“

Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn
Virkni á gosstöðvunum var mjög stöðug í nótt en er nú eingöngu bundin við nyrsta gíginn eftir að slökknaði í syðsta gígnum í gær. Þetta segir í tilkynningu náttúruvárvaktar Veðurstofu Íslands sem barst í morgun.

Gasmengun helsta hættan í Grindavík
Virkni eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni hefur ekki minnkað jafn hratt og í fyrri gosum og er hraunflæðið á við kröftugustu gosin í Fagradalsfjalli. Aðgengi að Grindavík var aukið á ný í dag.

Opna Grindavík á ný
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið í samvinnu við Grindavíkurnefndina að auka aðgengi að Grindavíkurbæ. Bænum var lokað á miðvikudag þegar enn eitt eldgosið hófst á Sundhnúksgígaröðinni.

Góður árangur af hraunkælingu við varnargarðana
Helgi Hjörleifsson, aðstoðarvarðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og hraunkælingarstjóri, segir hraunkælinguna ganga vel við varnargarðana í Svartsengi. Það sé nægt vatn til eins og stendur. Tvær af fjórum dælum eru í gangi.

Vara við gosmengun á nærliggjandi svæðum í dag
Dregið hefur hægt og lítillega úr gosóróa og sýnilegri virkni á Sundhnúksgígaröðinni frá því um kvöldmatarleytið í gær en gosið náði aftur stöðugleika um klukkan tvö í nótt.

Engar ruslatunnur í Grindavík
Verulega dró úr virkni í eldgosinu við Sundhnúksgíga í nótt. Unnið er hörðum höndum að hraunkælingu í Svartsengi, svo auðveldara sé að hækka varnargarða. Þá er Grindavík að verða að ruslatunnulausum bæ.

Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti
Eldgosið í Sundhnúkagígsröðinni sýnir þess engin merki að hafa minnkað. Samkvæmt Veðurstofunni hafa engar sýnilegar breytingar orðið á hraunflæði eða krafti í nótt.

Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst
Hraun ógnar nú innviðum af ýmsu tagi í Svartsengi, þar sem unnið er hörðum höndum að því að hækka varnargarða og bjarga mikilvægum rafmagnsmöstrum. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir brýnt að Bláa lónið verði opnað um leið og það er öruggt. Hann óttast ekki að sláandi myndir frá síðustu dögum hafi fælingarmátt.

Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið
HS Orka biður viðskiptavini sína á Suðurnesjum um að vera undir það búin að eldgosið við Grindavík gæti haft áhrif á afhendingu á heitu vatni. Íbúar eru hvattir til að fara sparlega með heita vatnið og halda varma inn í húsum með því að hafa glugga lokaða.

Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm
Enn gýs á þremur stöðum í eldgosinu við Sundhnúksgíga og er virknin enn nokkuð stöðug. Jafnframt mælist gosórói stöðugur en engir jarðskjálftar hafa mælst á svæðinu. Staðan er viðkvæm hvað varðar möguleg áhrif á innviði í og við Svartsengi vegna hraunflæðis.

„Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“
Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu segir tilkynningu um opnun lónsins næsta föstudag alls ekki endanlega. Staðan sé endurmetin á hverjum degi. Mikil vinna fer fram á Svartsengis-svæðinu við að vernda innviði.

Styrkja möstrin með möl eftir góða vinnu í nótt
Vinna við að verja tvær stæður á Svartsengislínu gegn hraunflæði úr Sundhnúkagígum, hófst aftur nú í morgun. Vel gekk að verja stæðurnar í nótt, með aðstoð Brunavarna Suðurnesja.

Stöðugt gos og engir skjálftar
Enn gýs á þremur stöðum í eldgosinu við Sundhnúksgíga og hefur virknin verið stöðug í nótt. Mest er hún sögð við miðbik gossprungunnar og hafa engir jarðskjálftar mælst í nótt.

Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember
Til stendur að opna Bláa lónið aftur fyrir gestum 29. nóvember næstkomandi. Þetta kemur fram í tölvupósti sem sendur var til viðskiptavina.

Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis
Rafmagnsmastur frá Landsneti er í hættu vegna hraunflæðis frá eldgosinu við Sundhnúksgíga. Slökkvistarf er enn í gangi, en erfiðlega hefur gengið að fá vatn á svæðið.

Atburðarás gærdagsins í myndum
Eldgos hófst á Sundhnúkagígaröðinni klukkan 23:14 síðastliðinn miðvikudag. Nóttin var ekki úti þegar hraun hafði flætt yfir Grindavíkurveg, og snemma morguns á fimmtudag var hraun komið yfir Njarðvíkuræð, sem sér Suðurnesjum fyrir heitu vatni. Æðin hélt þó.

„Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“
Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu segir að þrátt fyrir dramatíska atburðarás þegar bílastæði lónsins fór undir hraun í gær, standi allt athafnasvæði lónsins styrkum fótum.

Gist í um tuttugu húsum í Grindavík
Gist var í um tuttugu húsum í Grindavík í nótt og starfsemi er í einhverjum fyrirtækjum í bænum. Almannavarnir fylgjast vel með Njarvíkuæð sem er undir hrauni en segja ómögulegt að vita hversu mikinn þunga eða hita hún þolir.

Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir allt kapp lagt á það að vernda innviði á Reykjanesi. Fyllt hafi verið í skarð í varnargarð við Bláa lónið í gær en enn sé ekki þörf á að stækka varnargarðinn, það verði metið síðar. Einnig er unnið að því að skoða hvort hægt sé að gera nýjar akstursleiðir að Bláa lóninu og Northern Light inn en vegirnir að því eru undir hrauni.

Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar
„Þetta er bara búið að vera mjög stöðugt í nótt,“ segir Böðvar Sveinsson, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands um þróun gossins á Reykjanesskaga.

Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segist standa við þá fullyrðingu að eldgosatímabilinu muni ljúka fljótlega við Sundhnúksgígaröðina. Hann hefur áður fullyrt að því myndi ljúka í haust en það varð ekki raunin. Sjöunda gosið á einu ári hófst klukkan 23:14 í gær, en sjötta gos þessa árs.

Höfðu ekki áhyggjur af lóninu sjálfu
Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu hjá Bláa lóninu, segir að aldrei hafi verið uppi stórkostlegar áhyggjur um að lónið sjálft færi undir hraun. Áætlanir hafi verið til um hvernig skyldi fyllt upp í varnargarða ef til eldgoss kæmi.

Komust langt að gosinu því það gleymdist að loka veginum
Ferðamenn sem komust óáreittir mjög nálægt gosstöðvunum, vegna þess að það gleymdist að segja það vera töfrum líkast að sjá eldgos í slíku návígi. Einn ferðamannanna segist hafa brostið í grát.

Segir komið fram við sig eins og glæpamann fyrir að vilja vera heima í Grindavík
Rúmlega fimmtug hjón eru ekki vitund hrædd við eldgosið og gistu heima hjá sér í Grindavík í nótt þrátt fyrir rýmingu. Þau segjast ekki vera neinir þverhausar, bara fólk með sjálfstæða hugsun sem vill verja rétt sinn til að vera heima hjá sér.

„Ekki rólegur með hraunið ofan á“
Rafmagni var komið aftur á í Grindavík í morgun eftir að hafa dottið út þegar Svartsengislína sló út. Hraun rennur yfir Njarðvíkuræð en forstjóri HS Orku bindur miklar vonir við að varnir haldi.