Grindavík

Mál Grindavíkur ekki á dagskrá fyrr en á fimmtudag
Þingmaður Viðreisnar segir skrýtið að fyrsta fundi velferðarnefndar Alþingis eftir jólafrí hafi verið frestað um tvo daga og furðar sig á að mál Grindavíkur verði ekki rædd á þeim fundi. Hann segir vinnubrögðin óboðleg.

Engin kvika sést síðan klukkan eitt í nótt
Engin kvika hefur sést koma upp úr sprungunum norðan Grindavíkur síðan klukkan 1:08 í nótt. Vakthafandi náttúruvársérfræðingur segir eldgosið virðast hafa fjarað alveg út.

Malbikið flettist upp og húsin síga niður
Hraun flæðir enn úr einum gíg á Reykjanesi, en flæðið úr gígnum sem opnaðist Grindavíkurmegin við varnargarðana er hætt. Nýtt hraun setur undarlegan svip á bæinn.

Björgunarsveitir þurft að skipta sér af færra fólki en í fyrri gosum
Björgunarsveitir hafa þurft að hefta för fólks sem vill fara gangandi að eldgosinu norður af Grindavík. Ásóknin er þó minni en áður, sem er vel að sögn björgunarsveitarmanns.

Uppbyggingu varnargarða við Grindavík haldið áfram
Forsætisráðherra segir að uppbyggingu varnargarða við Grindavík verði haldið áfram. Þeir hafi sýnt gildi sitt í gær og markmiðið sé að verja byggðina í Grindavík til framtíðar. Ríkisstjórnin leggur til við Alþingi að afkomustuðningur við Grindvíkinga verði framlengdur.

Segir íbúa þurfa lausnir en ekki hrós: „Þú sleppir börnunum þínum ekki út úr húsi“
Íbúi við Efrahóp í Grindavík segir íbúa þurfa að heyra eitthvað annað en hvað þeir séu þrautseigir og duglegir. Nú þurfi þeir að fá raunhæfar lausnir frá stjórnvöldum. Þeir geti ekki lifað í biðstöðu. Hún ætlar ekki að flytja aftur í bæinn.

Gosið sé að lognast út af en Grindavík sé ekki staður fyrir almenning
Eldfjallafræðingur segir allt útlit fyrir að gosinu norðan við Grindavík sé að ljúka. Litlar líkur séu á að nýjar gossprungur opnist áður en gosinu ljúki.

Nýjar sprungur myndast og þær eldri stækka
Margar sprungur hafa myndast í og við Grindavík í jarðhræringum síðustu sólarhringa. Eldri sprungur, sem unnið hafði verið að því að fylla upp í og gera við, hafa einnig stækkað.

Jörðin gaf sig undan björgunarsveitamanni
„Þetta sýnir bara hversu ótryggt svæðið er hérna og hversu hættulegt þetta er. Ég var bara að labba eftir þessum stíg og það virtist allt vera í góðu lagi fyrir framan mig,“ segir björgunarsveitamaður að störfum í Grindavík. Rétt í þessu gaf jörðin sig þegar hann gekk eftir malbikuðum stíg.

„Met stöðuna tiltölulega örugga“
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum fór ásamt aðstoðarmönnum sínum í skoðunarferð um Grindavík í morgun. Hann segir götur í bænum aflagaðar og nýjar sprungur bersýnilegar. Forgangsverkefni sé að koma rafmagni aftur á. Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið segist hann bjartsýnn fyrir hönd Grindvíkinga.

Mælitæki Veðurstofunnar greindu engin merki áður en seinni sprungan opnaðist
Gliðnun innan bæjarmarka Grindavíkur hefur verið allt að 1,4 metrar síðasta sólarhringinn. Nýjar sprungur hafa opnast og eldri sprungur stækkað. Ekki er hægt að útiloka að nýjar gossprungur opnist án fyrirvara, líkt og gerðist í gær þegar sprunga opnaðist við bæjarmörk Grindavíkur. Engin merki sáust á mælitækjum Veðurstofunnar í tengslum við þá gosopnun.

„Langt frá því að vera búið“
Ármann Höskuldsson, prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands, segir mikilvægt að hafa í huga að þrátt fyrir að gosið við Grindavík virðist vera að lognast út af, sé eldsumbrotunum á Reykjanesskaga langt frá því að vera lokið. Varnargarðarnir hafi sannarlega sannað gildi sitt í gær og hafi „svínvirkað“.

Til skoðunar að hækka varnargarðana um nokkra metra
Enn er unnið við gerð varnargarða við Grindavík. Framkvæmdastjóri mannvirkja hjá Ístaki segir vel hafa tekist til við hönnun og val á staðsetningu. Í dag sé verið að skoða hvort þörf sé á að hækka þá enn frekar.

Til Grindvíkinga
Þegar fólk verður fyrir alvarlegu ytra áfalli er skynsamlegt að átta sig á nokkrum atriðum. Varnarviðbrögð manna við ógn hafa verið kortlögð en athugið, að við bregðumst mismunandi við eftir því hvernig persónuleiki okkar er og fyrri reynsla.

Áhyggjur af fjárhag geti sundrað grindvískum fjölskyldum
Gunnar Ólafur Ragnarsson, fjölskyldufaðir í Grindavík, sér ekki fyrir sér að búa aftur í bænum. Þó sé vandfundinn harðari Grindvíkingur en hann sjálfur. Hann kallar eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar enda geti fjárhagsáhyggjur ofan í aðrar áhyggjur sundrað fjölskyldum í Grindavík.

Sprungur að stækka og líkur á nýjum gosopum
Þrátt fyrir að dregið hafi úr gosvirkni eru líkur á að ný gosop opnist innan Grindavíkur og sprungur eru að myndast í bænum. Deildarstjóri eldvirkni og jarðskjálfta segir mikla hættu til staðar á svæðinu þar í kring og óvissu um framhaldið.

Framlengja stuðning við íbúa Grindavíkur og kaupa fleiri íbúðir
Ríkisstjórn hefur ákveðið að framlengja hússnæðisstuðning við íbúa Grindavíkur. Aukinn kraftur verður settur í að kaupa íbúðir fyrir Grindvíkinga. Þá er aukinn stuðningur við fyrirtæki ti lskoðunar. Forsætisráðherra segir tjónamat í bænum hafa verið mjög langt komið en atburðir helgarinnar hafi sett strik í reikninginn. Hún geri sér grein fyrir að tilfinningar Grindvíkingar séu blendnar, sumir vilji snúa til baka en aðrir alls ekki.

Vill að ríkið kaupi íbúa Grindavíkur út
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og íbúi í Grindavík, segir það allt of mikla svartsýnisspá að ekki verði búið aftur í Grindavík næstu árin eða áratugi. Það sé fullur hugur í eigendum fyrirtækja að halda starfsemi áfram, sem sé forsenda þess að hægt sé að byggja bæinn upp á nú. Hins vegar sé nauðsynlegt að grípa þá íbúa sem ekki geti hugsað sér að snúa til baka.

Þyrlan flaug yfir Grindavík
Vísir var í beinni útsendingu frá þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flaug yfir gosstöðvarnar norðan við Grindavík í morgun.

660 skjálftar frá miðnætti
Um 660 jarðskjálftar hafa mælst á Reykjanesskaga frá miðnætti. Sá stærsti var 1,8 að stærð. Flestir skjálftarnir hafa verið í kringum Hagafell en þónokkrir hafa mælst við kvikuganginn undir Grindavík.

Raunsæi í stað bjartsýni: „Ég býst ekki við því að flytja heim aftur“
Sunna Jónína Sigurðardóttir, íbúi við Efrahóp í Grindavík - götuna þar sem hús hafa orðið hrauninu að bráð, segir kominn tíma til að horfa raunsætt á hlutina og hætta að vera bjartsýn. Hún sér ekki fyrir sér endurkomu til Grindavíkur.

Jákvætt að sjá að varnargarðarnir virki
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir jákvætt að sjá að varnargarðarnir, sem byrjað var að reisa fyrir norðan Grindavík í byrjun mánaðar, hafi virkað og haldið mestöllu hrauninu frá bænum.

Ekki öruggt að senda fólk inn í bæinn
Samskiptastjóri almannavarna segir ekki öruggt að senda fólk inn í Grindavík til að reyna að kæla hraunið sem þangað rennur. Hraunflæði úr syðri sprungunni, sem er nær bænum, virðist hafa minnkað talsvert í nótt.

Vaktin: Lítil virkni í einu gosopi
Eldgos hófst norðan Grindavíkur, suðsuðaustan Hagafells, rétt fyrir klukkan átta í gærmorgun, sunnudag. Fyrst opnaðist sprunga sem lá að stærstum hluta norðan varnargarða, en síðar opnaðist önnur rétt norðan byggðarinnar.

Hraunflæði innan bæjarmarkanna fjarar út
„Okkur sýnist syðri sprungan, sem er innan bæjarmarkanna, alveg vera að gefa upp öndina,“ segir Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við fréttastofu.

Eldgosið tekið fyrir í heimspressunni
Margir stærstu fjölmiðla heims hafa fjallað um eldgosið sem hófst norðan Grindavíkur í gærmorgun.

Spurning hvort hraunið nemi staðar eða haldi hægt áfram
Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að töluvert hafi dregið úr virkni syðri gossprungunnar, þeirrar sem er við bæjarmörk Grindavíkur.

Þrívíddarlíkan sýnir gosstöðvarnar
Náttúrufræðistofnun Íslands og Landmælingar Íslands hafa birt þrívíddarlíkön af gossvæðinu við Sundhnúksgíga.

Ætla ekki að bjóða upp á útsýnisflug yfir gosið
Forsvarsmenn þyrlufyrirtækisins HeliAir Iceland hafa ákveðið að bjóða ekki upp á útsýnisflug á meðan óvissan er mikil varðandi hús og eignir fólks í Grindavík eftir að eldgos hófst í morgun. Hugur fyrirtækisins er hjá Grindvíkingum.

Ljósmyndir úr flugi RAX yfir Grindavík
Ljósmyndarinn RAX flaug yfir gosstöðvarnar við Grindavík í dag og myndaði sprungurnar og þann hluta bæjarins þar sem hraun flæðir nú.