Reykjavík

„Skilaðu hjólinu!“: Mættu fylktu liði að heimili manns sem hafði í hótunum
Bjartmar Leósson tók málin í eigin hendur á dögunum þegar hjólaþjófar voru farnir að hóta honum fyrir að sinna sínu starfi. Hjólahvíslarinn stendur í ströngu núna í því sem kallað hefur verið hjólaþjófnaðarfaraldri.

„Grensársvegur“ verður ekki lengi uppi
Búið er að panta nýtt götuskilti eftir að stafsetningarvilla á nýju götuskilti við Grensásveg kom í ljós. Mistökin hafa vakið mikla athygli netverja á undanförnum sólarhring.

Átti von á að fá byssukúlu í bakið
Karlmaður segist hafa átt von á því að fá byssukúlu í bakið þegar hann hörfaði inn á Kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni í hádeginu. Byssumaðurinn er í haldi lögreglu sem staðfestir að vopnið hafi verið hlaðið.

Arftaki Camillu fær loksins nafn
Langþráður draumur aðstandenda Bíó Paradísar um að eignast nýja poppvél rættist á dögunum. En til að nefna gripinn var brugðið til þess ráðs að leita til almennings eftir nafni. Vinningstillagan var hið hljómfagra nafn Maísól Camilludóttir.

Ógnaði fólki með hlaðinni skammbyssu á Kaffistofu Samhjálpar
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók um hádegisbil mann sem hafði ógnað fólki á Kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni með hlaðinni skammbyssu.

Hafa náð samkomulagi um rekstur nýs veitingastaðar í Hörpu
Nýr veitingastaður, „Hnoss“, mun opna á jarðhæð Hörpu í ágúst næstkomandi. Það er veitingafólkið Stefán Viðarsson og Fanney Dóra Sigurjónsdóttir sem munu reka staðinn sem áætlað er að opni skömmu fyrir Menningarnótt.

Glæsileg loftíbúð á Hverfisgötunni með inngangi úr vörulyftu
Á fasteignavef Vísis má sjá glæsilega loftíbúð á efstu hæð á horni Hverfisgötu og Vatnsstígs. Íbúðin er 214,4 fermetrar að stærð með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.

Krónan og Elko flytja í gamla Mylluhúsið í Skeifunni
Krónan og Elko munu opna nýjar verslanir í Skeifunni 19 um mitt næsta ár. Um er að ræða gamla Mylluhúsið sem er í gagngerri enduruppbyggingu, en verslunarrýmið verður alls rúmir fjögur þúsund fermetrar.

Opna 800 fermetra rafíþróttahöll við Hallveigarstíg
Reynsluboltar úr atvinnulífinu hafa sameinað krafta sína í opnun nýs rafíþróttastaðar í miðbæ Reykjavíkur. Boðið verður upp á aðstöðu til æfinga, keppni og skemmtun í rafíþróttum, ásamt bar þar sem hægt verður að fylgjast með stærstu rafíþróttamótum heims.

Þóttust ætla að þiggja gefins sófa en létu greipar sópa
Jóna María Hafsteinsdóttir segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum við par sem kom inn á heimili hennar til að fá gefins sófa á dögunum.

Bindur vonir við að orgel, altari og annað timburverk hafi ekki orðið fyrir rakaskemmdum
Töluvert tjón varð í Háteigskirkju vegna vatnsleka í kjallara kirkjunnar í dag. Kirkjuvörður bindur vonir við að orgel, altari og annað timburverk hafi ekki orðið fyrir rakaskemmdum.

Sjö konur látnar innan þriggja ára frá innlögn vegna heimilisofbeldis
Fjörutíu og níu konur voru lagðar inn á Landspítalann með áverka eftir heimilisofbeldi á fimmtán ára tímabili samkvæmt nýrri rannsókn. Sjö kvennanna létust innan þriggja ára frá innlögn. Doktorsnemi og hjúkrunarfræðingur segja samræmt verklag í málaflokknum skorta innan heilbrigðiskerfisins.

Aðeins tvö útibú Arion banka eftir á höfuðborgarsvæðinu
Aðeins tvö útibú Arion banka eru eftir á höfuðborgarsvæðinu en útibú bankans í Kringlunni lokaði á dögunum. Ekki er langt um liðið frá því að útibú Arion banka að Borgartúni 18 lokaði en þar er starfsendurhæfingarsjóður VIRK nú til húsa.

Lögregla meðvituð um hópslagsmálin en getur lítið gert
Lögregla er meðvituð um hópslagsmálin sem áttu sér stað í miðbæ Reykjavíkur snemma síðasta sunnudagsmorgun. Hún getur þó lítið gert í málinu á meðan engar kærur hafa komið fram í málinu.

Mikill vatnsleki í kjallara Háteigskirkju
Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í morgun vegna vatnsleka í kjallara Háteigskirkju.

„Menn eru ekki á eitt sáttir um þessa niðurstöðu“
Straumur var tekinn af 156 hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík í morgun og býst skrifstofustjóri borgarinnar við því að slökkt verði á stöðvunum út vikuna. Formaður Rafbílasambands Íslands segir þetta hafa töluverð áhrif á rafbílaeigendur og harmar að úrskurðurinn hafi valdið því að slökkva þurfti á stöðvunum.

Skemmdarvargur iðraðist og gaf sig fram við lögreglu
Snemma í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning vegna einstaklings sem braut rúðu í verslun í miðbænum. Stuttu seinna gaf viðkomandi sig fram við lögreglu og vildi gera hreint fyrir sínum dyrum.

Borgarstjóri segir bagalegt að slökkva þurfi á hleðslustöðvunum
Straumur verður tekinn af 156 hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík á morgun. Óvissa ríkir um hvenær hægt verður að taka stöðvarnar, sem telja meirihluta stöðva sem borgin rekur, aftur í notkun. Borgarstjóri segir málið bagalegt.

Segir órökrétt að gefa skemmtistöðum frjálsan opnunartíma
Borgarstjóri telur ekki rökrétt að gefa skemmtistöðum frjálsan opnunartíma, líkt og kallað hefur verið eftir. Hins vegar sé eðlilegt að taka samtalið og stuðla betur að því að skemmtanalífið dreifist betur yfir nóttina.

Hrottaleg hópslagsmál í miðbænum í nótt
Hópslagsmál brutust út meðal ungra pilta í miðbænum í nótt. Myndband af atvikinu hefur gengið um samfélagsmiðla og vakið óhug. Það má sjá í færslu hér að neðan í fréttinni.

„Ég held að í frelsinu geti falist margar lausnir“
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins kallar eftir umræðu um frjálsan opnunartíma skemmtistaða í miðborg Reykjavík og óttast að í faraldrinum hafi skapast jarðvegur fyrir stjórnlyndi hér á landi.

Raforkustöðin í Elliðarárdal hundrað ára
Hundrað ár eru síðan rafstöðin í Elliðaárdal var gangsett. Um sannkallaða byltingu var að ræða: Ljós kviknuðu, eldavélar hitnuðu og vélar púluðu af stórauknum krafti.

Líkamsárás, slagsmál og glasi fleygt í lögreglubíl
Þrír voru handteknir í miðbænum í nótt vegna ofdrykkju og slagsmála á skemmtanalífinu. Einnig var tilkynnt um tvær líkamsárásir, aðra í miðbænum en hina í Laugardalnum.

Ísorka minnti kærunefnd á sektarheimildir vegna hleðslustöðva
Lögmaður Ísorku sendi kærunefnd útboðsmála bréf með athugasemdum við að rafmagn væri áfram veitt í hleðslustöðvum Orku náttúrunnar í Reykjavík þrátt fyrir að nefndin hefði úrskurðað samning um þær óvirkan. Framkvæmdastjóri Ísorku fullyrti í gær að engin samskipti hefðu átt sér stað við kærunefndina.

Kallar eftir umræðu um frjálsan opnunartíma skemmtistaða: „Ég vil meira frelsi í Reykjavík“
Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins kallar eftir umræðu um frjálsan opnunartíma skemmtistaða í Reykjavík.

Listval opnar nýtt sýningarrými á Granda
Listval, nýtt sýningarrými opnar á Hólmaslóð 6, laugardaginn 26. júní milli 16 og18 en það eru þær Elísabet Alma Svendsen og Helga Björg Kjerúlf sem standa á bakvið Listval.

Glampandi sól og allt að 24 stiga hiti
Þrátt fyrir mikið hvassviðri og appelsínugular og gular viðvaranir fyrir norðan fyrri part dags verður glampandi sól víðast hvar á landinu í dag. Langhlýjast verður austanlands þar sem hiti fer upp í 24 stig í dag.

Ölvaðir í miðbænum ekki til mikilla vandræða
Svo virðist sem djammið í miðbænum í nótt hafi gengið nokkuð eðlilega fyrir sig, að minnsta kosti að því marki sem slíkt getur talist eðlilegt. Afskipti lögreglu af fólki í bænum í nótt virðast nefnilega hafa verið lítil sem engin.

„Partíið er byrjað“
Skemmtistaðaeigendur eru nú í óðaönn að undirbúa helgina eftir gleðifréttir dagsins. Þeir búast við að mikið fjör verði í miðbænum í kvöld og segist plötusnúður feginn að þurfa ekki að minna á grímurnar.

Áframhaldandi varðhaldi í hnífstungumáli hafnað
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði því að framlengja gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður um hnífstunguárás í miðborg Reykjavíkur fyrr í þessum mánuði.