Norðurþing

Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“
Þrátt fyrir að tæplega tveir mánuðir séu liðnir frá fyrstu húsleit sést enn ekki fyrir endann á fíkniefnamálinu umfangsmikla á Raufarhöfn. Einn útlendingur er í varðhaldi og verður honum að öllum líkindum vísað til Albaníu. Aftur á móti er málið enn ekki komið til ákærusviðs.

Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum
Forstjóri PCC á Bakka segir Evrópu geta orðið upp á Kína komna hvað framleiðslu kísilmálms verði af boðuðum tollum á kísiljárn og án verndartolla á kísilmálm.

Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi
Einum þeirra sem handteknir voru í tengslum við umfangsmikla rannsókn á fíkniefnaframleiðslu á Norðurlandi og víðar hefur verið vísað úr landi til Albaníu. Þrír eru enn í gæsluvarðhaldi.

Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu
Lögreglan á Norðurlandi eystra fer í dag fram á áframhaldandi gæsluvarðhald eins þeirra fimm sem voru handteknir í aðgerðum þeirra þann 18. júní vegna umfangsmikillar rannsóknar á fíkniefnaframleiðslu víða um land. Tveimur þessara fimm hefur verið sleppt úr haldi en einn handtekinn til viðbótar.

Tveir handteknir eftir húsleit í Laugardal og Kópavogi
Lögreglan handtók tvo í gær eftir húsleit við Austurbrún í Laugardal í Reykjavík annars vegar og í Kópavogi hins vegar. Alls eru fimm í haldi í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skipulagðri glæpastarfsemi.

Náðu með markaðsátaki að lokka til sín fleiri smærri leiðangursskip
Norðurþing hefur með sérstöku markaðsátaki náð að fjölga umtalsvert komum minni skemmtiferðaskipa sem hafa samfélagsábyrgð og umhverfisvernd að leiðarljósi. Markaðsstjóri hafnanna í Norðurþingi segir komur leiðangursskipanna skipta sköpum fyrir samfélögin vítt og breitt um landið.

Að byggja upp á Bakka
Iðnaðarsvæðið á Bakka er eitt mikilvægasta svæði Íslendinga til uppbyggingar á sviði iðnaðar og orkunýtingar. Á svæðinu eru einstakar auðlindir sem skapa tækifæri til tekjuöflunar, fjölgun starfa og gjaldeyristekjur fyrir land og þjóð.

Tugir missa vinnuna í sumar
Forstjóri PCC á Bakka vonar að þeir tugir starfsmanna verksmiðjunnar sem missa vinnuna í sumar þreyi þorrann þar til hægt verði að hefja rekstur að nýju og ráði sig aftur til PCC. Stjórnvöld hafa sett á fót nefnd sem fjallar um mál PCC. Forstjórinn segir nauðsynlegt að stemma stigu við ríkisstyrktum innflutningi á kínverskum málmi.

Steini frá Straumnesi látinn
Steingrímur Stefánsson, leiðsögumaður í Laxá í Aðaldal og betur þekktur sem Steini frá Straumnesi, varð bráðkvaddur á heimili sínu þann 24. júní síðastliðinn 56 ára gamall. Veiðisamfélagið syrgir goðsögn í laxveiði.

Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi
Helgi Valberg Jensson verður formaður starfshóps forsætisráðherra sem vinnur að kortlagningu á stöðu atvinnumála í Norðurþingi. Tilkynnt hefur verið um tímabundna rekstrarstöðvun kísilvers PCC á Bakka frá miðjum júlí. Málið var rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.

Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur
Fimm ár eru síðan Eurovision myndin fræga með Will Ferrell í aðalhlutverki um Húsvíkinga sem kepptu í Eurovision fyrir Íslands hönd var frumsýnd. Myndin setti Húsavík á kortið á alþjóðavettvangi og enn í dag flykkjast Eurovision aðdáendur þangað að bera þorpið augum, og til að skoða Eurovision-safnið sem þar hefur risið.

Verður nýr skólameistari á Húsavík
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Halldór Jón Gíslason í embætti skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.

Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu
Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skipulagðri brotastarfsemi er umfangsmikil og enn yfirstandandi samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Lagt hefur verið hald á muni og efni til fíkniefnaframleiðslu.

Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað fimm einstaklinga í vikulangt gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að fíkniefnaframleiðslu. Þeir voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu víða um land, meðal annars á Raufarhöfn, á miðvikudag.

Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum
Jón Eyþór Gottskálksson, eða Jón dansari, er eigandi húsnæðisins á Raufarhöfn þar sem sérsveit réðst í húsleit í gær í tengslum við umfangsmikla rannsókn á skipulagðri glæpastarfsemi og fíkniefnaframleiðslu. Hann segist ekki kannast við málið.

„Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“
Íbúar á Raufarhöfn eru furðu lostnir eftir að sérsveit réðst í umfangsmikla húsleit þar á bæ í gær. Húsleitin tengist rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi sem talin er tengjast fíkniefnaframleiðslu. Erlendur maður er sagður búa í húsinu en íbúar segja hann hafa búið þar í skamman tíma.

Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið
Lögreglan og sérsveitin réðust í umfangsmiklar aðgerðir gegn fíkniefnaframleiðslu víða um landið í gær. Ráðist var í húsleit á Raufarhöfn í gær.

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag
Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag og stendur til að halda fjölda viðburða um allan landshlutann. Verkefnastjóri menningarmála hjá Akureyrarbæ vill auka sýnileika hinsegin samfélagsins á svæðinu.

Norðurþing treður yfir varnaðarorð og eignarrétt
Hver þarf samkomulag þegar maður á jarðýtu? Sveitarfélagið Norðurþing hefur tekið upp nýja aðferð í skipulagsmálum sem er bæði einföld og skilvirk. „Láttu sem þú eigir landið, skipuleggðu það á pappír, og komdu svo með tækin.“

Óvæntur gestur sást í fyrsta sinn á Íslandi
Fjöldi fuglaáhugamanna gerði sér ferð á Kópasker á föstudag til að mynda fugl sem hefur hingað til aldrei sést á Íslandi og raunar örsjaldan í Evrópu.

Draga úr framkvæmdum um meira en fjórðung vegna rekstrarstöðvunar PCC
Framkvæmdir og fjárfestingar í samstæðu Norðurþings verða skornar niður um meira en fjórðung til þess að mæta tekjutapi sveitarfélagsins vegna rekstrarstöðvunar PCC á Bakka. Þá verður hagrætt um 160 milljónir króna á fleiri sviðum hjá sveitarfélaginu.

Áttatíu milljóna gjaldþrot Heimabakarís á Húsavík
Heimabakarí -Eðalbrauð ehf., sem hélt utan um rekstur Heimabakarís á Húsavík, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Engar eignir fundust í búinu og skiptum var því lokið án þess að greiðsla fengist upp í lýstar kröfur, sem hljóða upp á 84,904,533 krónur.

VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor
Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir víða um land rætt um mögulegt samstarf í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga sem fara fram næsta vor. Hún vill ekki segja til um hvaða flokka sé að ræða en nefnir í þessu samhengi Kópavog, Árborg og Ísafjörð.

Loka hluta útsýnispallsins vegna aurskriðu
Hluta af útsýnispalli við Dettifoss hefur verið lokað vegna aurskriðu sem féll í gær.

Gestum ráðið frá að heimsækja Dettifoss vegna stórrar skriðu
Þjóðgarðsverðir í Vatnajökulsþjóðgarði ráða gestum frá því að heimsækja Dettifoss. Stór aurskriða féll úr klettabrúnum Jökulsárgljúfra við útsýnispalla rétt norðvestan við fossinn.

Ríkið tekur – landsbyggðirnar fá minna
Óvissa, sundurlyndi og uggur einkennir umræðuna um hækkun veiðigjalda. Þar sem hún mun hafa mest áhrif. Vilji ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur er skýr um að gjöldin skuli hækka. Og um það virðist stór hluti þjóðarinnar sammála. Að í sameiginlega sjóði renni með beinum hætti aukin renta af fiskveiðiauðlindinni.

Þegar samfélagið þagnar
Það er ekki svo langt síðan „samfélag“ var ekki bara orð. Það var andrúmsloft, óskrifuð regla, ósýnilegur strengur á milli fólks. Það var að ganga inn í sjoppuna og vita að einhver vissi hvað þú hétir og hafði áhuga á því hvað þú hafðir fyrir stafni.

Útskrifaður samdægurs eftir hnífaárás á Húsavík
Maður sem hlaut áverka eftir að hnífi var beitt í heimahúsi á Húsavík síðastliðna þriðjudagsnótt var útskrifaður af sjúkrahúsi samdægurs.

Lokun kísilvers á Bakka: „Þetta er grátbölvað“
Verkalýðsforingi á Húsavík segir fyrirhugaða lokun kísilversins á Bakka reiðarslag fyrir samfélagið. Það sé með ólíkindum að íslenskir framleiðendur velji frekar ódýran kínverskan kísilmálm.

Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka
Áttatíu missa vinnuna í kísilverinu á Bakka ef verður af tímabundinni rekstrarstöðvun, sem tilkynnt var í gær. Forseti sveitarstjórnar heldur í vonina að lausn finnist en til þess þurfi stjórnvöld að grípa til aðgerða gegn ódýrum innfluttum kínverskum kísilmálmi.