Norðurþing

Vélsleðamaður lenti í snjóflóði
Björgunarsveitir á Húsavík og Aðaldal voru kallaðar út upp úr klukkan tvö í dag vegna vélsleðaslys. Þá var tilkynnt að maður á vélsleða hefði lent í snjóflóði og slasast.

Flugi til Húsavíkur og Vestmannaeyja haldið áfram yfir veturinn
Flug til Húsavíkur og Vestmannaeyja verður boðið út fyrir næsta vetur en aðeins yfir vetrarmánuðina, frá desember til febrúarloka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Reiðarslag fyrir íbúa Vestmannaeyja og Húsavíkur
Áætlunarflugi frá Reykjavík til Vestmannaeyja og Húsavíkur verður hætt frá og með næstkomandi mánaðamótum. Rekstrarstjóri Ernis segir mikið reiðarslag fyrir íbúa bæjanna að ekkert Reykjavíkurflug verði í boði eftir þann tíma.

Hætta flugi til Húsavíkur og Vestmannaeyja
Vegagerðin hefur ákveðið að framlengja ekki samning við flugfélögin Mýflug og Eagle Air um flug frá Reykjavík til Húsavíkur og Vestmannaeyja. Síðasta áætlunarflug félaganna milli staðanna verður því flogið um mánaðamótin.

Sýknuð af ákæru fyrir að ljúga nauðgun upp á mann sem fyrirfór sér
Tuttugu og þriggja ára gömul kona hefur verið sýknuð af ákæru fyrir að hafa borið mann röngum sökum um að hann hafi nauðgað henni. Tæpum mánuði eftir að maðurinn var handtekinn eftir kæru konunnar fyrirfór hann sér.

Hyggjast breyta banka í ráðhús
Norðurþing hefur gert tilboð í gömlu húsakynni Íslandsbanka á Húsavík og ætlar að breyta því í ráðhús. Mygla fannst í stjórnsýsluhúsinu og hentugra þykir að flytja starfsemina.

Samið um flug til Eyja og Húsavíkur út mars
Vegagerðin hefur samið við flugfélagið Mýflug um flug frá Reykjavík til Vestmannaeyja og einnig til Húsavíkur út mars. Flognar verða fjórar ferðir í viku á tímabilinu 1. mars til 31. mars.

Mygla fannst í stjórnsýsluhúsinu
Mygla hefur greinst í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík. Niðurstaða greiningar verkfræðistofunnar Verkís hefur leitt í ljós að myglu er að finna á þremur stöðum en að kjallarinn sé verst farinn.

Samskipti við ráðuneytið um framtíð skólastarfs mikil vonbrigði
Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti í dag tillögu fjölskylduráðs sveitarfélagsins um að auglýsa eftir þremur stöðugildum fagmenntaðs starfsfólks til að sinna annars vegar skólastjórn og hins vegar kennslu. Náist ekki að fylla þessar stöður verði grunnskólanum á Raufarhöfn lokað.

Vilja breiðfylkingu um flug til Húsavíkur
Forsvarsmenn Framsýnar stéttarfélags Þingeyinga segja að komi ekki til kraftaverks verði áætlunarflugi Flugfélagsins Ernis frá Reykjavík til Húsavíkur hætt um næstu mánaðarmót. Stéttarfélagið kallar eftir tafarlausum viðbrögðum stjórnvalda.

Fleiri og fleiri bæjarhátíðir kveðja sjónarsviðið
Fleiri og fleiri stórar bæjar- og tónlistarhátíðir hafa kvatt sjónarsviðið síðustu misseri. Framkvæmdastjóri Lunga telur að álag á skipuleggjendur og takmarkað fjármagn spili þar stórt hlutverk.

Jarðskjálfti fannst á Akureyri
Jarðskjálfti að stærð 3,0 mældist sex kílómetrum suðaustan af Flatey á Skjálfanda á um 12km dýpi.

Sigurborg Ósk til SSNE
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir hefur hafið störf hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE). Hún mun hafa aðsetur á skrifstofu sambandsins á Stéttinni, Húsavík.

Fyrstu boð um að kviknað væri í framhaldsskólanum
Eldur kom upp í sorpgeymslu við Framhaldsskólann á Húsavík á þriðja tímanum í nótt. Töluverður viðbúnaður var á vettvangi þar sem slökkviliði barst útkall um að eldur hefði komið upp í skólanum. Líkur eru taldar á að um íkveikju hafi verið að ræða.

Svona gætu eldgosin orðið ef þau líkjast Kröflueldum
Kvikusöfnun virðist hafin að nýju undir Svartsengi. Vísindamenn segja þessa atburðarás og þetta stutta eldgos, sem lauk í dag, helst minna á Kröfluelda.

Skella í lás á Húsavík
Tekin hefur verið ákvörðun um að loka starfsstöð Persónuverndar á Húsavík og hefur tveimur starfsmönnum verið sagt upp. Starfsstöðin mun loka dyrum sínum um áramót. Forstjóri segir fjárlaganefnd ekki hafa veitt styrk til verkefnisins og því hafi þurft að loka.

Blönk í bænum með uppblásið sófasett í stofunni
Birgitta Haukdal, söngkona, rithöfundur og sjónvarpsstjarna, segist ekki hafa átt krónu þegar hún flutti átján ára gömul til Reykjavíkur til þess að elta drauminn um að verða söngkona. Hún átti engin húsgögn og lét uppblásið sófasett duga til að byrja með.

Var á óvenju hraðskreiðri snjóþotu þegar hann lést
Nítján ára karlmaður sem lést eftir að ekið var á hann við Framhaldsskólann á Laugum í febrúar 2022 var að renna sér á hraðskreiðari snjóþotu en almennt var notuð við skólann. Áratugalöng hefð er fyrir því að nemendur renni sér á rassasnjóþotum niður brekku við skólann.

Semja aftur um flug til Húsavíkur
Samningar hafa náðst milli Flugfélagsins Ernis og Vegagerðarinnar um áframhaldandi flug til Húsavíkur næstu þrjá mánuði og verður í kjölfarið ákveðið með framhaldið.

Ákærð fyrir að ljúga nauðgun upp á mann sem svipti sig lífi
Tuttugu og þriggja ára gömul kona hefur verið ákærð fyrir að hafa borið mann röngum sökum um að hann hafi nauðgað henni. Tæpum mánuði eftir að maðurinn var handtekinn eftir kæru konunnar fyrirfór hann sér.

Menningarminjar að sökkva í sæ
Það bárust sorgarfréttir á dögunum um andlát Harðar Sigurbjarnarsonar. Húsvíkingar hafa misst einn af máttarstólpum samfélagsins en árum saman var Hörður mikil driffjöður framfara og uppbyggingar á svæðinu. Ég votta ættingjum og vinum Harðar mínar innilegustu samúðarkveðjur.

Hörður Sigurbjarnarson er látinn
Hörður Sigurbjarnarson, stofnandi Norðursiglingar á Húsavík, er látinn, 71 árs að aldri. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu í Mývatnssveit aðfararnótt síðasta sunnudags.

Mjög harður árekstur tveggja bíla í Aðaldal
Mjög harður árekstur tveggja bíla varð á Norðausturvegi, skammt vestan við Laxamýri í Aðaldal, suður af Húsavík, um klukkan 11 í morgun.

Húsavíkurflugi haldið áfram í tvo mánuði í viðbót
Flugfélagið Ernir mun halda áfram með áætlunarflug á milli Reykjavíkur og Húsavíkur fimm daga í viku næstu tvo mánuði, á meðan framtíðarfyrirkomulag flugsins verður skoðað. Þetta er ljóst eftir viðræður Vegagerðarinnar og flugfélagsins.

Um 100 manns taka þátt í flugslysaæfingu á Húsavík
Það er mikið umleikis á Húsavíkurflugvelli í dag því þar fer fram flugslysaæfing þar sem um eitt hundrað viðbragðsaðilar á svæðinu taka þátt. Æfingin gengur út á það að tuttugu manna flugvél hafi hrapað á vellinum þar sem margir eru illa slasaðir og einhverjir látnir.

Hvæsandi rostungur leit við á Raufarhöfn
Fjöldi íbúa á Raufarhöfn safnaðist saman við fjöru í bænum í dag, til að berja rostung augum sem þar hafði gert sig heimankominn. Honum virðist ekki hafa líkað athyglin sérstaklega vel en hann yfirgaf svæðið fyrir stundu.

Ráðuneytið skoðar niðurgreiðslu á Húsavíkurflugi
Innviðaráðuneytið og sveitarfélögin Norðurþing og Þingeyjasveit kanna möguleika á því að styðja flug til Húsavíkur afmarkað yfir vetrarmánuðina. Flugfélagið Ernir hefur haldið úti reglubundnu áætlunarflugi milli Reykjavík og Húsavíkur síðan 2012.

Munaðarlausir Þingeyingar
Það var flaggað í heila stöng þegar Flugfélagið Ernir hóf áætlunarflug til Húsavíkur vorið 2012 í góðu samstarfi við heimamenn, enda hafa Þingeyingar aldrei efast um mikilvægi góðra samgangna. Það varðar ekki síst íbúa í hinum dreifðu byggðum Þingeyjarsýslna allt til Þórshafnar á Langanesi, sem búa við það hlutskipti að þurfa að sækja verslun, almenna þjónustu, sem og heilbrigðisþjónustu um langan veg.

Á Norðausturland að vera utan þjónustusvæðis?
Nú er útlit fyrir að flug til og frá Húsavík leggist af um mánaðamótin verði ekkert að gert.

Flug til Húsavíkur er þjóðhagslega hagkvæmt
Flugfélagið Ernir hefur í rúman áratug flogið reglulegt áætlunarflug til og frá Húsavík án þess að þörf hafi verið á því að styrkja flugleiðina sérstaklega með framlögum. Það hefur því verið félagið og viðskiptavinir þess sem hafa kostað flugið og félagið sjálft tekið þá áhættu sem af því hlýst að reka flugleiðina.