Ísafjarðarbær
Kærkomin snjósending fyrir skíðaviku en heldur mikil ófærð
Ófært er víða á Vestfjörðum og óvissustig í gangi vegna snjóflóðahættu. Vegir eru víða lokaðir og gul veðurviðvörun í gildi til hádegis. Bæjarstjórinn segir snjósendinguna hafa verið kærkomna en ekki ófærðina.
Hús rýmd á Ísafirði vegna snjóflóðahættu
Ákveðið hefur verið að rýma hús á reit 9 undir Seljalandshlíð á Ísafirði frá klukkan 16 í dag, fimmtudag, vegna hættu á snjóflóðum.
Gera tilraunir með skafrenningsmæli
Tilraunir hafa verið gerðar með skafrenningsmæli á Steingrímsfjarðarheiði í vetur en vonir standa til að mælirinn komi til með að nýtast við að meta snjóflóðahættu.
Metfjöldi skemmtiferðaskipa í sumar
Aldrei hafa jafn mörg skemmtiferðaskip boðað koma sína á Ísafjörð líkt og í sumar. Bæjarstjórinn segir unnið að því að tryggja að ferðamenn í bænum verði ekki fleiri en innviðirnir þola.
Draumur Davíðs Smára rætist en kostnaðurinn tugir milljóna
Draumur Davíðs Smára Lamude og hans manna í Vestra um upphitaðan heimavöll verður að veruleika því ákveðið hefur verið að leggja hitalagnir undir nýja gervigrasvöllinn á Ísafirði.
Múrarinn sem fékk símtal og varð bruggari
Upphaf fyrsta brugghússins á Vestfjörðum má rekja til afdrifaríks símtals frá mági framkvæmdastjórans. Hann vann við að múra þegar símtalið kom en mánuði eftir það var brugghúsið orðið að veruleika.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum
Óvissustigi hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Ekki er talin hætta í byggð að svo stöddu en aðstæður geta breyst þegar líður á veðrið.
Líklegt að loka þurfi vegum vegna veðurs
Von er á stórhríð á Vestfjörðum og Snæfellsnesi á morgun, og gætu vindhviður náð allt að 36 metrum á sekúndu. Aðalvarðstjóri á Ísafirði segir að vegna veðursins gæti þurft að ráðast í lokanir á vegum.
Óvissa um útboð næsta áfanga á Dynjandisheiði
Útboð þriðja áfanga Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði er í óvissu. Til stóð að bjóða verkið út í febrúar en núna fást óljós svör frá Vegagerðinni um hvort búið sé að fresta útboðinu og hve lengi því muni seinka.
Kristinn braut siðareglur Blaðamannafélagsins
Kristinn H. Gunnarsson ritstjóri Bæjarins besta telst hafa brotið Siðareglur blaðamannafélags Íslands og er brotið ámælisvert.
Starfsfólki hefur fjölgað hjá Kerecis eftir söluna
Fjöldi starfsmanna fyrirtækisins Kerecis á Ísafirði hefur nærri tvöfaldast á tólf mánuðum og framleiðslan vaxið. Framleiðslustjórinn segir fyrirtækið leggja mikla áherslu að styðja við samfélagið í bænum.
Biðin eftir jarðgöngum óásættanleg
Bæjarstjóri Ísafjarðar segir óásættanlegt að biðin eftir jarðgöngum á milli Súðavíkur og bæjarins verði líklega um tuttugu ár eins og staðan er nú. Ítrekað hafi þurft að loka veginum um Súðavíkurhlíð í vetur vegna snjóflóða og ótrúlegt sé að ekki hafi orðið stórslys.
Sundlaugin fyllist á ný og bæjarbúar fagna
Byrjað er hleypa vatni ofan í sundlaugina á Þingeyri á ný þar sem framkvæmdir hafa staðið yfir síðustu mánuði. Nýr dúkur hefur verið lagður þar sem sá eldri lak og segir starfsmaður sundlaugarinnar að bæjarbúar fagni innilega.
Tuttugu ára afmæli Aldrei fór ég suður: Of Monsters and Men meðal hljómsveita
Of Monsters and Men verður á meðal þeirra hljómsveita sem munu koma fram á vestfirsku tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður sem fram fer um páskana á Ísafirði. Hátíðin fagnar tuttugu ára afmæli í ár og verður blásið í herlúða að sögn skipuleggjanda.
Arctic Sea Farm fær að rækta fleiri fiska í Ísafjarðardjúpi
Matvælastofnun hefur veitt Arctic Sea Farm ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 5. júní og var frestur til að skila inn athugasemdum til 5. júlí 2023.
Skoða að byggja nýja slökkvistöð
Bæjarstjóri Ísafjarðar skoðar nú að reisa nýja slökkvistöð í bænum. Elsti hluti núverandi byggingar er 86 ára gömul og glíma slökkviliðsmenn við tíð lekavandamál þar vegna fjölþættra vandamála.
Kerecis aðalstyrktaraðili Vestra: „Afar þakklát fyrir veglegan stuðning“
Líftæknifyrirtækið Kerecis er nýr aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildar Vestra á Ísafirði. Heimavöllur félagsins fær nú nafnið Kerecisvöllurinn og munu öll lið Vestra leika í búningum merktum fyrirtækinu, sem í fyrra var selt fyrir 175 milljarða króna.
Engin byggingarleyfi í höfn þvert á fullyrðingar Arctic Fish
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur ekki gefið út byggingarleyfi vegna sjókvía. Þetta segir í svörum HMS við fyrirspurn fréttastofu en tilefnið eru ummæli sem höfð voru eftir framkvæmdastjóra Arctic Fish í Bæjarins besta um að leyfi væri í höfn.
Fleiri og fleiri bæjarhátíðir kveðja sjónarsviðið
Fleiri og fleiri stórar bæjar- og tónlistarhátíðir hafa kvatt sjónarsviðið síðustu misseri. Framkvæmdastjóri Lunga telur að álag á skipuleggjendur og takmarkað fjármagn spili þar stórt hlutverk.
Fær sínu framgengt í stóra aparólumálinu á Ísafirði
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur lagt fram ný hönnunargögn vegna leikvallar á Eyrartúni. Í nýjum drögum er umdeild aparóla fjær íbúðarhúsum, þvert gegn afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar sveitarfélagsins. Íbúi við hliðina á túninu hafði kært málið til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Gagnrýni Samúels ósanngjörn: „Þetta verður stórkostleg breyting“
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar lætur kveinstafi Samúels Samúelssonar, stjórnarmanns knattspyrnudeildar Vestra, sem vind um eyru þjóta. Hún segir bæjaryfirvöld styðja stolt við knattspyrnustarfið fyrir vestan.
Snjó ekki rutt burt, stórskemmt vallarhús og mörk og línur vantar
Ísafjarðarbær þarf að þjónusta og styðja við fótboltastarfið í bænum með mun betri hætti en nú er. Þetta segir Samúel Sigurjón Samúelsson, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Vestra.
Lætur bæjaryfirvöld á Ísafirði fá það óþvegið
Formaður meistaraflokksráðs Vestra í fótbolta, Samúel Samúelsson - betur þekktur sem Sammi, er heldur betur ósáttur með bæjaryfirvöld á Ísafirði þessa dagana. Lét hann gamminn geysa á Facebook-síðu sinni.
Önnuðust krefjandi útkall á hafi
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar annaðist krefjandi útkall á haf út í slæmu veðri í gærkvöldi. Óskað var eftir aðstoð þyrlusveitarinnar vegna veikinda sem upp komu í togara sem var á veiðum um 20 sjómílur út af Ísafjarðardjúpi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni sem birt var á Facebook-síðu þeirra í morgun.
Tveir handteknir fyrir að virða ekki lokanir vegna snjóflóðahættu
Lögreglan á Vestfjörðum handtók í nótt ökumann og farþega bifreiðar sem virtu ekki lokunarpóst á veginum frá Súðavíkur til Ísafjarðar. Veginum hafði verið lokað vegna mikillar snjóflóðahættu.
Loka aftur Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu
Veginum um Súðavíkur- og Kirkjubólshlíð, milli Ísafjarðar og Súðavíkur, verður aftur lokað í kvöld. Honum var lokað í gær eftir að snjóflóð féll á veginn.
Vegurinn milli Súðavíkur og Ísafjarðar opinn á ný
Vegurinn á milli Ísafjarðar og Súðavíkur á Vestfjörðum hefur verið opnaður fyrir umferð á nýjan leik. Veginum var lokað í gærkvöldi eftir að snjóflóð féll úr hlíðinni og yfir veginn.
Lokað milli Ísafjarðar og Súðavíkur vegna snjóflóðs
Veginum milli Ísafjarðar og Súðavíkur hefur verið lokað eftir að stórt snjófljóð féll úr Súðavíkurhlíð. Vegurinn verður ekki opnaður fyrr en í fyrsta lagi í fyrramálið.
Hlakka til að skrúfa frá í febrúar
Ísafjarðarbær á von á því að fá aðföng til þess að geta gert við sundlaugina á Þingeyri í febrúar. Forstöðukona segir gesti sársakna laugarinnar.
Bæjarstjóri leggst yfir aparólumálið
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar hefur óskað eftir fundi með hönnuðum leikvallar á Eyrartúni svo hægt sé að kanna hvort hægt sé að koma betur til móts við sjónarmið íbúa vegna staðsetningar væntanlegrar aparólu.