
Innflytjendamál

Víst er ég Reykvíkingur
Mikið hefur verið rætt um meintan flótta íbúa úr borginni. Í Pallborði hjá Vísi og Stöð2 benti Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreisnar fyrir nokkru réttilega á að Reykvíkingum hafi fjölgað um 10.000 á síðustu fjórum árum. Þá svaraði Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins: „En megnið af því fólki er að koma að utan.“

Ég styð ókeypis íslenskunám
Ég styð ókeypis íslenskunám fyrir fólk af erlendum uppruna sem sest að á Íslandi. Ég flutti til Íslands þriðjudaginn 29. apríl 2003.

Löngu tímabært Fjölmenningarráð í Kópavog
Síðustu fjögur ár hefur undirritaður gegnt formennsku í jafnréttis- og mannréttindaráði Kópavogs. Þar hef ég ítrekað bent á skort á upplýsingagjöf bæjarins til íbúa sem eru af erlendu bergi brotnir og tala litla eða enga íslensku.

My Home, My Vote
It’s been 31 years since I moved to Iceland. Making a home here was not always easy but with time, dedication, and good friends I can now easily say Reykjavík is my home. Breiðholt is my neighborhood. It is where I first got involved in community affairs. Early on, while I was still learning Icelandic, I became active in the parent/teacher association at my children’s school.

Your Home, Your Vote
Reykjavik has been my home for almost 22 years now, I have lost track of how much German or Icelandic I am by now, but I am definitely a Reykvikian, if that is even a word.

Kyana verður ekki send úr landi
Áhrifavaldurinn Kyana Sue Power verður ekki send úr landi líkt og átti að gera síðar í mánuðinum. Í dag fékk hún dvalar- og atvinnuleyfi frá Vinnumálastofnun.

Fjöldi útlendinga þrefaldast á milli kosninga
Fjöldi útlendinga á kjörskrá fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar hér á landi hefur þrefaldast á milli kosninga.

Kyönu Sue gert að yfirgefa landið: „Við bíðum enn eftir svari frá vinnumarkaðsráðuneytinu“
Kæru bandaríska áhrifavaldsins Kyöna Sue Powers, vegna synjunar Útlendingastofnunar um að veita henni dvalarleyfi hér á landi, hefur verið hafnað af kærunefnd útlendingamála. Kyana þarf að yfirgefa landið innan þrjátíu daga nema Vinnumálastofnun grípi inn í.

Íslenskunám á vinnutíma fyrir starfsfólk
Viðreisn í Kópavogi telur að það séu sameiginlegir hagsmunir sveitarfélagsins og starfsmanna sem vinna í leik- og grunnskólum bæjarins að styðja við íslenskunám þeirra með því að bjóða upp á íslenskukennslu á vinnustað á starfstíma fyrir þau sem slíkt vilja þiggja.

Óvenju margir létust á fyrstu þremur mánuðum ársins
Óvenju margir létust á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 þegar 760 einstaklingar létust á Íslandi samkvæmt tölum Hagstofunnar. Ekki hafa verið fleiri dauðsföll á einum ársfjórðungi frá því að byrjað var að birta slíkar tölur á fjórða ársfjórðungi 2009.

Framsóknarflokkurinn sniðgengur börn af erlendum uppruna í borginni
Öll sveitarfélög landsins fá framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna barna af erlendum uppruna - nema Reykjavík. Borgin hefur stefnt ríkinu vegna þessa og stefnir allt í að þessi framlög verði útkljáð fyrir dómstólum. Öll börn í Garðabæ af erlendum uppruna fá fjármagn frá Jöfnunarsjóði, öll börn í Kópavogi, öll börn í Hafnarfirði - öll börn nema í Reykjavík.

Fimmtíu og sex þúsund erlendir ríkisborgarar búa á Íslandi
Í byrjun apríl voru 55.982 erlendir ríkisborgarar skráðir með fasta búsetu á Íslandi eða um fimmtán prósent þeirra sem búa á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðskrá.

Nítján öðlast ríkisborgararétt
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis leggur til að veita nítján einstaklingum ríkisborgararétt en alls bárust 136 umsóknir. Stjórnarandstaðan hafði áður gagnrýnt Útlendingastofnun og dómsmálaráðherra fyrir seinagang í málinu.

„Ég vil vera á Íslandi því þetta er heimilið mitt“
Davíð Goði Þorvarðarson gerði myndband um mögulega brottvísun Kyönu Sue Powers frá Íslandi sem hefur farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla. Á innan við sólarhring voru vel yfir fimmtán þúsund manns búnir að sjá það á Instagram.

Aldrei fleiri aðfluttir Íslendingar umfram brottflutta
Fleiri fluttust til Íslands en frá landinu á árinu 2021 eða 4.920. Flutningsjöfnuður eykst nokkuð frá árinu 2020 þegar aðfluttir umfram brottflutta voru 2.435. Flutningsjöfnuður íslenskra ríkisborgara aldrei verið hærri en alls fluttu 828 fleiri íslenskir ríkisborgarar til landsins en frá því á seinasta ári. Talan var 557 árið 2020.

Erlent starfsfólk er ferðaþjónustunni gríðarlega mikilvægt
Ferðaþjónustan stendur frammi fyrir þeirri áskorun að stór hluti þess erlenda starfsfólks sem starfaði í greininni fyrir heimsfaraldur er horfinn og hefur færst til annarra atvinnugreina. Fyrir tíma heimsfaraldurs var fólk af erlendum uppruna þriðjungur af heildarfjölda starfsfólks í ferðaþjónustu.

Au pair látin gista í lítilli geymslu með bráðabirgðatjaldi
Kærunefnd útlendingamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að afturkalla dvalarleyfi filippseyskrar konu sem starfaði sem „au pair“ hjá íslenskri fjölskyldu. Leyfið var afturkallað eftir að konan hætti störfum hjá fjölskyldunni vegna aðstæðna sem hún lýsti sem óviðunandi.

„Þarna erum við með risastóran hóp sem hefur bara gleymst að tala við“
Fyrirtæki og stofnanir eru að gleyma að tala við fjölmennan hóp Íslendinga.

Skóli fyrir alla?
Nú þegar íslenskt samfélag tekur á móti fjōlda barna á flótta þurfum við að huga betur að menntun og aðlōgun þessara barna inn í grunnskóla landsins.

Úkraínumenn þjakaðir af samviskubiti gagnvart heimalandinu
Úkraínskar mæðgur sem hafa búið hér á landi um árabil hafa hafið söfnun fyrir fólk í vanda í heimalandinu.

Sakar ráðherra og Útlendingastofnun um valdarán
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, sakaði Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra og Útlendingastofnun um valdarán á Alþingi í dag undir liðnum fundarstjórn forseta.

Úkraínumenn á Íslandi
Þar sem Úkraína er ekki innan Evrópska efnahagssvæðisins er líklega meirihluti Úkraínumanna hérlendis á tímabundnu dvalarleyfi. Fólkið er þá bundið því fyrirtæki sem fær útgefið dvalarleyfið, getur ekki sagt upp og ráðið sig annars staðar. Er í raun eins og innflutt hráefni í eigu fyrirtækisins og býr vanalega í húsnæði sem launagreiðandinn skaffar.

Kæra ríkisstjórn, við hverju mega þessir 800 erlendu sérfræðingar búast?
Í dag las ég grein í Frettablaðinu þar sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, sagði að eitt af forgangsverkefnum í ráðuneyti hennar væri að auðvelda komu erlendra sérfræðinga utan EES. Ég var undrandi að lesa þetta metnaðarfulla markmið frá nýja ráðuneytinu, í ljósi eigin persónulegrar reynslu sem fyrrverandi handhafi dvalarleyfis á grundvelli sérfræðiþekkingar, þar sem ég fór í gegnum ótrúlega niðurlægjandi, dýrt og fjandsamlegt umsóknarferli og öll áföllin sem því fylgdi.

Ég mun hafa heilsu sjúklinga minna að leiðarljósi framar öllu öðru
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd) eru nú í vinnslu í dómsmálaráðuneytinu. Fjölmargar umsagnir bárust um frumvarpsdrögin í samráðsgátt stjórnvalda. Læknafélag Íslands (LÍ) og Félag læknanema (FL) hafa í umsögn til dómsmálaráðuneytis gert alvarlegar athugasemdir við 19. gr. frumvarpsins, sem bætir nýrri 114. gr. a við lögin. Lagt er til að hin nýju 114. gr. a, sem ber yfirheitið heilbrigðisskoðun og læknisrannsókn, verði svohljóðandi:

Öllum lögfræðingum Rauða krossins sagt upp störfum
Samningur dómsmálaráðuneytisins við Rauða krossinn um réttaraðstoð og talsmannaþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd hefur ekki verið framlengdur og rennur út að tveimur mánuðum liðnum. Öllum lögfræðingum Rauða krossins hefur verið sagt upp störfum vegna þess.

Skorað á dómsmálaráðherra að segja af sér
Lagt var til á Alþingi í morgun að dómsmálaráðherra segði af sér eða yrði látinn segja af sér vegna vinnubragða hans og Útlendingastofnunar í tengslum við umsóknir fólks til Alþingis um ríkisborgararétt. Þingmenn margítrekuðu óskir um að forseti Alþingis skærist í leikinn.

Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað um 0,4 prósent
Erlendir ríkisborgarar með skráða búsetu á Íslandi voru 55.181 í upphafi febrúarmánaðar og fjölgaði um 202 frá 1. desember 2021, eða um 0,4 prósent.

Bein útsending: Svarar fyrir umdeildar breytingar á veitingu ríkisborgararéttar
Allsherjar- og menntamálanefnd hefur boðað Jón Gunnarsson innanríkisráðherra á sinn fund í dag, klukkan 9.10. Fundurinn er í beinni útsendingu.

Jón Gunnarsson og landsdómur
Útlendingastofnun hefur mánuðum saman neitað Alþingi afhendingu umsókna til þingsins um veitingu ríkisborgararéttar með lögum. Jón Gunnarsson, innanríkisráðherra hefur staðfest í grein á Vísi að stofnunin snuði þingið með vilja ráðherra

Ríkisborgararéttur og Alþingi
Afskaplega undarleg umræða um Útlendingastofnun og afgreiðslu ríkisborgararéttar fór af stað á Alþingi á þriðjudaginn og það undir liðnum fundarstjórn forseta. Engu var líkara en að þingmenn sem tóku til máls væru að keppast um að fara rangt með staðreyndir málsins.