
Kynferðisofbeldi

Nauðgunarmál Finns ekki fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Finns Þ. Gunnþórssonar, sem Landsréttur dæmdi í júní í þriggja ára fangelsi vegna nauðgunar. Áður hafði Héraðsdómur Reykjaness gefið honum tveggja og hálfs árs dóm, en hann var þyngdur í Landsrétti.

Reyndi að brjótast út eins og fórnarlamb hans
Karlmaður, sem sakaður er um að hafa rænt konu og haldið henni fanginni í klefa á heimili hans í Oregon í Bandaríkjunum, reyndi að brjótast út úr fangelsi á fimmtudagskvöld. Lögregla gómaði manninn eftir að konunni tókst að brjóta niður hurð klefans með berum höndum.

Maðurinn sem tryggði Argentínu heimsmeistaratitilinn kærður fyrir nauðgun
Gonzalo Montiel, nýjasti leikmaður Nottingham Forest og maðurinn sem tryggði Argentínu heimsmeistaratitilinn í desember síðastliðnum, hefur verið kærður fyrir nauðgun í heimalandi sínu.

Albert segist saklaus af ásökunum um kynferðisbrot
Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson hefur hafnað ásökunum um kynferðisbrot. Hann hefur verið kærður og fær ekki að koma fram fyrir Íslands hönd á meðan.

Brutu gegn átján konum á veitingastað og bar föður þeirra
Bræðurnir Danny og Roberto Jaz hafa verið dæmdir í 17 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn samtals átján konum. Málið hefur vakið mikla reiði á Nýja-Sjálandi, þar sem bræðurnir notuðu bar og veitingastað föður síns til að fremja brotin.

Lokaslagurinn við að taka aftur völdin eftir kynferðisofbeldi
Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi við lagið Freedom eftir tónlistarkonuna Þórunni Sölku. Lagið fjallar um kynferðisofbeldi sem Þórunn Salka varð fyrir árið 2020 og í tónlistarmyndbandinu klæðist hún svipuðum fatnaði og kvöldið sem atvikið átti sér stað.

Albert sagður neita sök
Albert Guðmundsson, leikmaður Genoa á Ítalíu og íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, segist saklaus af meintu kynferðisbroti sem hann hefur verið kærður fyrir. Forsvarsmenn liðsins ætla að standa með honum.

Albert Guðmundsson kærður fyrir kynferðisbrot
Albert Guðmundsson, leikmaður Genoa á Ítalíu og íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur verið kærður fyrir kynferðisbrot. Knattspyrnusambandi Íslands barst staðfesting á kærunni í morgun. Hann fær ekki að koma fram fyrir hönd Íslands á meðan málið er rannsakað.

Kæra Vítalíu endanlega felld niður
Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun héraðssaksóknara frá því í apríl síðastliðnum um að fella niður rannsókn á kynferðisbrotakæru Vítalíu Lazarevu á hendur þeim Ara Edwald, Hreggviði Jónssyni og Þórði Má Jóhannessyni.

Fær milljarð Bandaríkjadala í skaðabætur vegna hefndarkláms
Bandarískri konu voru dæmdir 1,2 milljarðar Bandaríkjadala í skaðabætur vegna hefndarkláms sem fyrrverandi kærasti hennar hafði dreift af henni.

Venjulegar vinkonur
Vinkonuhópur úr grunnskóla hittist eftir aðskilnað í áravís. Þær eru 22 ára. Það eru fagnaðarfundir, margt á dagana drifið og frá mörgu að segja gleði og sorg – væntingar og vonbrigði. Eins og lífið er. Þegar hallar að kvöldi og trúnó tekur völdin stígur ein þeirra upp og segir frá ofbeldi sem þjálfarinn hennar beitti hana.

Upprættu „tæknilega fágaðan“ barnaníðshring eftir morð á fulltrúum FBI
Lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum og Ástralíu handtóku 98 einstaklinga og 45 hafa þegar verið dæmdir í tengslum við umfangsmikinn barnaníðshring. Einstaklingarnir notuðu djúpvefinn til að skiptast á efni en meðal þeirra voru þó nokkrir sérfræðingar í forritun og upplýsingatækni.

Heimsfrægur barnaníðingur í lífshættu eftir stunguárás
Ian Watkins, fyrrverandi söngvari velsku rokkhljómsveitarinnar Lostprophets, berst nú fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi eftir að þrír samfangar hans réðust á hann vopnaðir eggvopni í klefa hans í fangelsi. Hann afplánar 29 ára langan fangelsisdóm fyrir gróft barnaníð.

Segir ofbeldismenn best geymda eina heima
Verkefnastjóri hjá ríkislögreglustjóra segir áríðandi að fólk sé vakandi fyrir ofbeldi eða mögulega hættulegum aðstæðu. Alltaf eigi að láta vita ef grunur sé um slíkt. Hún segir ofbeldismenn best geymda eina heima.

Ákærður fyrir að nauðga dóttur sinni ítrekað
Karlmaður á suðvesturhorni landsins hefur verið ákærður fyrir nauðgun, sifjaspell og stórfellt brot í nánu sambandi gegn dóttur sinni. Honum er gefið að sök að hafa nauðgað stúlkunni, sem þá var fimmtán ára, ítrekað yfir hálfs árs tímabil.

Braut sér leið út úr klefa eftir að hafa verið rænt
Alríkislögreglu Bandaríkjanna grunar að kona hafi bjargað kynsystrum sínum frá raðkynferðisafbrotamanni og mannræningja, með því að ná að brjóta sér leið út úr klefa á heimili mannsins. Hann er grunaður um kynferðisbrot í fimm ríkjum Bandaríkjanna.

Hótaði að myrða fyrrverandi sambýliskonu í nálgunarbanni
Karlmaður hefur verið dæmdur til átta mánaða langrar fangelsisvistar fyrir margvísleg brot í nánu sambandi, kynferðisbrot og brot gegn nálgunarbanni með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað heilsu og velferð fyrrverandi sambýliskonu sinnar.

Kevin Spacey létt eftir sýknudóm
Hollywood leikarinn Kevin Spacey var í dag sýknaður fyrir dómi í Lundúnum af öllum ákærum um kynferðisbrot gegn fjórum karlmönnum.

Háttsettur maður innan ensku úrvalsdeildarinnar ásakaður um að nauðga táningsstelpu
Lögreglan í Bretlandi yfirheyrði nýverið háttsettan mann innan ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu vegna ásakana um að hann hefði nauðgað stelpu sem var þá aðeins 15 ára gömul.

Margmenni á Druslugöngunni: „Það var mikið grátið og mikið öskrað“
Margmenni kom saman í miðborg Reykjavíkur í dag til að ganga hina árlegu Druslugöngu. Á samstöðufundi á Austurvelli greindi fólk frá ofbeldi sem það varð fyrir og skilaði skömminni.

Finna reiðina og losa hana út í Druslugöngunni
Druslugangan fer fram í ellefta skiptið í dag. Hún var fyrst gengin árið 2011 en lá niður í tvö ár í heimsfaraldrinum. Lísa Margrét Gunnarsdóttir, ein af skipuleggjendum göngunnar, segir öll velkomin hvort sem það séu þolendur, aðstandendur eða fólk sem vill styðja við bakið á þeim sem hafa lent í kynferðisofbeldi.

Ógeðfellt kynferðisbrotamál: Ofbeldi á brúðkaupsnótt og yfir landsleik í handbolta
Karlmaður sem sakaður er um nauðgun, stórfellda líkamsárás og stórfellt brot í nánu sambandi hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir ítrekuð brot gagnvart eiginkonu sinni á fjögurra ára tímabili. Brot mannsins gætu varðað allt að sextán ára fangelsi. Miskabótakrafa konunnar hljóðar upp á níu milljónir króna.

Gerendameðvirkni og normalíseríng grasseri enn
Á laugardaginn verður Druslugangan haldin í ellefta sinn enn gengið verður bæði í Reykjavík og á Sauðárkróki. Einn skipuleggjenda göngunnar segir þolendur kynferðisofbeldis finna samstöðu og styrk í krafti hvers annars með því að ganga öskrandi niður Skólavörðustíginn.

Grunaður um barnaníð á Íslandi og mörgum öðrum löndum
Hjúkrunarfræðingurinn og presturinn Bradley Earl Reger hefur verið handtekinn í Kaliforníu og er grunaður um áratugalanga misnotkun á drengjum. Hann er grunaður um að hafa flutt drengi úr landi og misnotað þá þar, meðal annars á Íslandi.

Mendy ekki lengi að finna sér nýtt lið eftir að vera sýknaður
Vinstri bakvörðurinn Benjamin Mendy er genginn í raðir Lorient í Frakklandi. Hann hefur ekki spilað síðan í ágúst 2021 eftir að fjöldi kvenna sakaði hann um nauðgun.

Nuddari viðurkenndi kynferðisbrot í textaskilaboðum
Nuddarinn Ioseb Gogiashvili hefur verið dæmdur til tveggja ára fangelsis fyrir kynferðisbrot gegn konu á heimili hennar. Ioseb flúði land en var handtekinn og framseldur til Íslands.

Þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga þáverandi eiginkonu í sumarbústað
Maður var í dag dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir nauðganir og stórfelld brot í nánu sambandi. Brotin voru framin gegn fyrrverandi eiginkonu hans í sumarbústað.

Skemmtum okkur fallega í sumar
Sumarið er tíminn! Tíminn þar sem fólk nýtur sumarnótta, skemmtir sér, fer í útilegur og prófar sig áfram í samskiptum. Því miður er sumarið líka tíminn þar sem menn hafa beitt ofbeldi (eins og á öðrum tímum ársins) og á stundum nýtt sér óreiðu og varnarleysi til að ganga yfir mörk og virða ekki samþykki. Samþykki er forsenda þess að fólk stundi kynlíf en beiti ekki ofbeldi en ofbeldi og kynlíf er tvennt ólíkt og ber ekki að rugla saman!

„Ég er mikill daðrari“
Kevin Spacey, hinn þekkti bandaríski leikari, segist miður sín yfir því að maður hafi sakað sig um nauðgun. Spacey segist hafa liðið eins og hann hafi verið stunginn í bakið þegar hann heyrði fyrst af ásökunum.

Mikilvægt að færa fókus á gerendur ofbeldis
Stöðug ásókn er í þjónustu Stígamóta. Talskona segir áríðandi að ná sem fyrst til bæði þolenda og gerenda. Samtökin skipuleggja ráðstefnu í haust þar sem ítarlega verður fjallað um gerendur kynbundins og kynferðislegs ofbeldis.