
Um land allt

Hornfirðingar smíða gítara sem eru engum öðrum líkir
Gítarar með snertiskjám og led-ljósum eru meðal þess sem hornfirskir áhugamenn um hljóðfærasmíði hafa þróað. Svo mikil er gróskan að Hornfirðingar hafa stofnað til tónlistarhátíðar óvenjulegra hljóðfæra.

Bátarnir á Bíldudal fá nöfn eftir alþýðufólki
Laxeldisfyrirtækið Arnarlax á Bíldudal hefur valið þá leið að nefna skip sín í höfuðið á alþýðufólki, sem sett hefur svip sinn á vestfirsk samfélög.

Of margir Íslendingar þekkja ekki þessar þjóðargersemar
Rúm sextíu ár eru frá því einhverjar merkustu fornleifar Íslendinga fundust í Skálholti. Rektor Skálholtsskóla segir að of margir Íslendingar hafi ekki hugmynd um þessar þjóðargersemar.

Segir Húsvíkinga ekki þurfa að hafa áhyggjur
Umhverfisstofnun tilkynnti í dag að hún hefði veitt PCC starfsleyfi fyrir rekstri kísilvers á Bakka við Húsavík. Forstjóri PCC segist finna fyrir miklum stuðningi heimamanna.

Vill gullna söguhringinn um sveitir Sturlunga til að styrkja Dalabyggð
Svavar Gestsson, fyrrverandi ráðherra, vill treysta byggð í Dalasýslu með því að búa til gullna söguhringinn. Byrjað verður á minningarreit um Sturlu Þórðarson.

Ólafsdalur verður einn fjölsóttasti staðurinn við Breiðafjörð
Endurreisn fyrsta búnaðarskóla landsins er að hefjast í Ólafsdal við Gilsfjörð. Spáð er að þar verði einn fjölsóttasti ferðamannastaður við Breiðafjörð þegar uppbyggingu lýkur.

James Bond myndi varla þekkja aftur Jökulsárlón
Á þeim aldarþriðjungi sem liðinn er frá því Jökulsárlón birtist fyrst í alþjóðlegri stórmynd hefur lónið tvöfaldast að stærð, náð að verða dýpsta vatn Íslands og jökuljaðarinn hefur skroppið saman um 3-4 kílómetra.

Ungt par byggir upp eyðijörð í Öræfum
Jörð í Öræfasveit, sem fór í eyði fyrir hálfri öld, er að lifna á ný. Ungt par, sem nýlega flutti í Öræfin, hefur ákveðið að breyta eyðijörðinni í sitt framtíðarheimili.

Skipuleggja fyrsta þorpið í Öræfum
Fyrsti þéttbýliskjarninn er að verða til í Öræfasveit. Sveitarfélagið hefur látið skipuleggja nýtt þorp fyrir átján íbúðarhús.

Ísland í sumar lofar banastuði í sólinni
Mannlífið á Íslandi, glaumur og gleði verða við völd í þættinum Ísland í sumar sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í allt sumar að loknum kvöldfréttum.

Hún vill starfsheitið útgerðarprinsessan
Hún byrjaði tólf ára gömul á sjó og undirbýr nú sína fimmtu vertíð sem skipstjóri á strandveiðibát, stúlkan sem ögrar starfsheiti trillukarlsins.

Rúnar Marvinsson dró fram pönnuna fyrir ítalskan matgæðing
Meistarakokkurinn Rúnar Marvinsson tók fram pottinn og pönnuna á ný þegar hann var fenginn til að elda saltfisk fyrir ítalskan matarblaðamann í Ólafsvík.

Unga fólkið snýr til baka vegna framhaldsskólans
Bæjarstjóri Snæfellsbæjar segir að hlutfall stúdenta hafi hækkað úr 40 upp í 85 prósent eftir stofnun framhaldsskóla á Nesinu.

Segist stolt af því að kallast kvótagreifynja
Kristín Vigfúsdóttir í Ólafsvík er orðin einn reyndasti forstjóri í íslenskum sjávarútvegi en hún hefur stýrt útgerð og fiskvinnslu í 48 ár.

Þjóðgarðurinn álíka og 2-3 skuttogarar
Áætlað er að ný fjárfesting í hótelum, veitingahúsum og afþreyingarþjónustu undir Jökli nálgist tvo milljarða króna.

Spá hálfri milljón gesta í þjóðgarð Snæfellsjökuls
Gestafjöldinn fyrstu þrjá mánuðina er orðinn meiri en hann var allt fyrsta rekstrarár þjóðgarðsins.

Bændagistingin stækkar upp í 40 herbergja hótel
Litla bændagistingin, sem byrjaði í einu herbergi á sveitabæ, er orðin að fjörutíu herbergja hóteli og einum stærsta vinnustað Staðarsveitar.

Löngufjörur skópu þörf fyrir reiðhöll
Svo vinsæll er íslenski hesturinn meðal útlendinga að bændurnir á Lýsuhóli á Snæfellsnesi eru búnir að reisa þúsund fermeta reiðhöll til að sýna erlendum ferðamönnum hestinn.

Eigum að vera með fólk á stað eins og Raufarhöfn
Byggðastofnun hefur skilgreint byggðina sem brothætta en íbúafjöldinn er nú um þriðjungur af því sem mest var fyrir 40 árum.

Nýjasta eyðibyggðin er á Melrakkasléttu
Norðurströnd Melrakkasléttu er nýjasta eyðibyggð Íslands eftir að heilsársbúsetu lauk á síðustu sveitabæjum milli Leirhafnar og Raufarhafnar.

Flugvélinni ekið að eldhúsglugganum
Hámark flugdellunnar á Íslandi gæti verið í Múlakoti í Fljótshlíð en þar byggja menn sumarbústaði við flugbraut og leggja svo akstursbraut fyrir flugvélina beint að eldhúsglugganum.

Múlakot best varðveitta hótelið frá gamalli tíð
Hafin er endurreisn gamla bæjarins í Múlakoti í Fljótshlíð en hann er talinn eitt best varðveitta hótel sem til er í landinu frá gamalli tíð.

Byggðastofnun synjaði en bankinn sá ljós í nýsköpun
Hjón sem gerðust bændur á Austfjörðum til nýsköpunar í matvælaframleiðslu segjast hafa rekist á veggi hjá Byggðastofnun og segja stuðningskerfi landbúnaðarins algerlega sniðið að hefðbundnum búskap.

Mjög sárt þegar allir fluttu burt úr Flatey á Skjálfanda
Hálf öld er í ár liðin frá einum sérkennilegasta atburði byggðasögu Íslands þegar allir íbúar Flateyjar á Skjálfanda ákváðu saman að flytja brott.

„Við erum ekkert á leiðinni suður aftur“
Ung hjón sem nýlega fluttu úr borginni austur á Breiðdalsvík sjá mest eftir því að hafa ekki gert það löngu fyrr.

Álverið haft mjög jákvæð áhrif á búsetu og lífskjör á Austurlandi
Álverið á Reyðarfirði er ein þriggja lífskjarabyltinga Austurlands, að mati sóknarprests Breiðdælinga, Gunnlaugs Stefánssonar, fyrrverandi alþingismanns.

Vaðlaheiðargöng fjölga fjölskyldum í Fnjóskadal
Þótt enn sé langt í að Vaðlaheiðargöng opnist eru fjölskyldur þegar farnar að flytjast í Fnjóskadal vegna jarðganganna.

Ívar vill aðgerðir gegn dýrum flugfargjöldum
Segir fáránlegt að fólk úti á landi hafi ekki efni á að sækja opinbera þjónustu til Reykjavíkur.

Það eru bara allir í góðu skapi á makrílvertíð á Fáskrúðsfirði
Uppgrip eru hjá 160 starfsmönnum Loðnuvinnslunnar á makrílvertíð sem stefnir í að slá öll met.

Nýja brúin sem lætur menn hossast minna í Hornafirði
Hún verður önnur mesta stytting hringvegarins frá því Hvalfjarðargöng voru opnuð.