Danski handboltinn

Fimm mörk frá Óðni og sigur hjá Sveini, Aroni og Elvari
Ágúst Elí Björgvinsson var með tæplega 40% markvörslu er Kolding tapaði fyrir Skjern í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Viktor Gísli hafði betur í Íslendingaslagnum
Viktor Gísli var á sínum stað er GOG vann Ribe-Esjberg í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Rúnar Kárason, Gunnar Steinn og Daníel Ingason leika með Ribe-Esjberg. Arnar Birkir og Sveinbjörn Pétursson voru í eldlínunni með liði sínu í þýsku B-deildinni.

Fjórir sigrar í röð hjá Skjern
Elvar Örn Jónsson og félagar í Skjern unnu sinn fjórða sigur í röð í dönsku úrvalsdeildinni er þeir mættu Holstebro, lokatölur 37-31.

Elvar Örn öflugur í þriðja sigri Skjern í röð
Skjern er á fljúgandi ferð í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Liðið vann sinn þriðja leik í röð í dag er það heimsótti Ringsted. Elvar Örn Jónsson átti góðan leik í liði Skjern.

Með fullt hús stiga á toppi deildarinnar
Sandra Erlingsdóttir átti góðan leik fyrir Álaborg er liðið lagði AGF í dönsku B-deildinni í handbolta í dag. Lokatölur 29-20 Álaborg í vil.

Annar sigurinn í röð og Óðinn kominn í 4. sætið með Holstebro
Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Holstebro unnu fjögurra marka sigur á liði Árhúsa í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Elvar fór á kostum og Bjarki skoraði sex gegn landsliðsþjálfaranum
Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur mörk er Magdeburg skellti Fuchse Berlín, 32-22, í þýska handboltanum í dag. Eitt marka Ómars kom úr vítakasti.

Viktor lokaði markinu í Íslendingaslag
Viktor Gísli Hallgrímsson átti góðan leik er GOG vann öruggan sigur á KIF Kolding í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Elvar Örn átti góðan leik | Viktor Gísli ekki enn tapað leik
Elvar Örn átti frábæran leik fyrir Skjern sem vann fimm marka sigur á Arhus í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Óðinn Þór og félagar í Holstebro máttu svo þola 35-31 tap á heimavelli gegn GOG en Viktor Gísli ver mark liðsins.

Ágúst Elí með stórleik í öruggum sigri Kolding
Markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson fór á kostum er Kolding vann Frederica í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Ekki nóg með að Ágúst Elí hafi lokað markinu þá skoraði hann einnig í 31-22 sigri Kolding.

Íslendingalið Kristianstad taplaust á toppnum
Íslendingalið Kristianstad hefur farið einkar vel af stað í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta. Liðið lagði Önnereds í kvöld með 13 marka mun, 33-20.

Gunnar og Rúnar sáu til að Ribe-Esjberg landaði loks sigri
Rúnar Kárason og Gunnar Steinn Jónsson sáu til þess að Ribe-Esjberg landaði sigri gegn Lemvig í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Þá léku Elín Jóna Þorsteinsdóttir og Steinunn Hansdóttir með Vendsyssel sem mátti þola tveggja marka tap.

Elvar Örn fór mikinn í góðum bikarsigri Skjern
Elvar Örn Jónsson fór mikinn í liði Skjern er það lagði SønderjyskEaf velli danska bikarnum með sex marka mun, 33-27. Þá lék Sveinn Jóhannsson með liði SønderjyskE.

Willum skoraði tvö mörk og Viktor Gísli lokaði markinu hjá GOG
Willum Þór Willumsson átti frábæran leik fyrir Bate Borisov er hann skoraði tvö mörk í 5-2 sigri liðsins á Smolovichy í dag í Hvíta-Rússlandi.

Aron markahæstur í risasigri
Aron Pálmarsson skoraði í kvöld sex mörk fyrir Spánarmeistara Barcelona sem virðast ekki frekar en fyrri ár ætla að vera í vandræðum með að vinna spænsku 1. deildina í handbolta.

Misjafnt gengi markvarðanna í Danmörku í kvöld
Ágúst Elí Björgvinsson og Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkverðir Íslands í handbolta, léku báðir með liðum sínum í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Sveinn hafði betur gegn Elvari Erni | Ólafur skoraði sex
SønderjyskE vann öruggan 10 marka sigur á Skjern í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Þá skoraði Óskar Ólafsson sex mörk í eins marks sigri Drammen í norsku úrvalsdeildinni.

Óðinn hafði betur gegn Rúnari, Gunnari Steini og Daníel
Danska úrvalsdeildin í handbolta hófst með Íslendingaslag Ribe-Esjberg og Team Tvis Holstebro. Fór það svo að gestirnir fóru með fimm marka sigur af hólmi, 37-32.

Þráinn Orri gæti farið til Hauka
Handknattleiksmaðurinn Þráinn Orri Jónsson hefur sagt skilið við danska úrvalsdeildarfélagið Bjerringbro-Silkeborg og gæti verið á heimleið.

Elín Jóna leikmaður ársins og kampavínið flæddi
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, landsliðsmarkvörður í handbolta, var um helgina útnefnd besti leikmaður tímabilsins hjá danska félaginu Vendsyssel, annað árið í röð.

Einn besti handboltamaður heims orðinn stúdent
Handboltastjarnan Mikkel Hansen, leikmaður PSG í Frakklandi og danska landsliðsins, er orðinn stúdent en hann fékk hvítu húfuna um helgina.

Ágúst og félagar samþykktu launalækkun
Það virðist vera að rofa aðeins til hjá hinu sigursæla danska handknattleiksfélagi KIF Kolding sem glímir við mikla fjárhagserfiðleika.

Mál Ágústar Elís í biðstöðu
Mál Ágústar Elís Björgvinssonar eru í biðstöðu vegna fjárhagsvandræða KIF Kolding, danska félagsins sem hann var búinn að semja við.

Þurfa að safna fimm til sex milljónum danskra króna til að bjarga liðinu frá gjaldþroti
Danska úrvalsdeildarfélagið KIF Kolding þarf að safna fimm til sex milljónum danskra króna ef liðið ætlar sér að spila í deild þeirra bestu á næstu leiktíð. Ágúst Elí Björgvinsson er samningsbundinn liðinu.

Arnar Birkir á leið til Þýskalands
Arnar Birkir Hálfdánsson gengur í raðir þekkts Íslendingaliðs í sumar.

Íslenskir liðsfélagar hjá Vendsyssel næsta vetur
Íslenska landsliðskonan Steinunn Hansdóttir hefur gert samning við danska b-deildarliðið Vendsyssel.

Félag Ágústs í alvarlegri krísu – Leikmenn höfnuðu launalækkun
Handboltamarkvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson skrifaði í vetur undir samning til tveggja ára við danska félagið KIF Kolding sem nú á í miklum fjárhagserfiðleikum.

„Heiður að danska sambandið hafi leitað til mín“
„Það er gaman að hafa aftur eitthvað að gera í landsliðspásunum,“ sagði Arnór Atlason léttur í bragði í Sportinu í dag þar sem hann ræddi um sitt nýja starf sem aðalþjálfari U18-landsliðs pilta í handbolta í Danmörku.

Arnór tekur við danska unglingalandsliðinu
Arnór Atlason stýrir danska karlalandsliðinu skipuðu leikmönnum átján ára og yngri næstu tvö árin.

Sandra: Gaman að taka þetta skref á eigin forsendum
Sandra Erlingsdóttir er á leið til Danmerkur til þess að spila með Álaborg. Þetta var staðfest í morgun en hún segir að þetta hafi komið upp fyrir um tveimur vikum.