Danski handboltinn

Auðvelt hjá Álaborg gegn Sönderjyske
Aron Pálmarsson átti fínan leik fyrir Álaborg sem lagði Sönderjyske auðveldlega í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Íslendinglið Ribe-Esbjerg tapaði í undanúrslitum | Díana Dögg frábær
Ribe-Esbjerg mátti þola tap í undanúrslitum dönsku bikarkeppninnar í handbolta. Elvar Ásgeirsson, Ágúst Elí Björgvinsson og Arnar Birkir Hálfdánsson spila með liðinu. Þá átti Díana Dögg Magnúsdóttir frábæran leik í Þýskalandi.

FH endurheimtir annan landsliðsmann
Markvörðurinn Daníel Freyr Andrésson kemur heim í Kaplakrika í sumar og hefur skrifað undir samning við FH sem gildir til tveggja ára.

Fínn leikur Ágústs Elís dugði ekki
Ágúst Elí Björgvinsson átti fínan leik í marki Ribe-Esbjerg þegar liðið tapaði með minnsta mun gegn Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Hvorki Elvar Ásgeirsson né Arnar Birkir Hálfdánsson léku með Ribe-Esbjerg.

Góður leikur Elínar Jónu í tapi gegn Esbjerg
Elín Jóna Þorsteinsdóttir átti fínan leik í marki Ringköbing sem tapaði fyrir Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Mikkel Hansen í veikindaleyfi vegna stress og álags
Danska handboltastjarnan Mikkel Hansen er farinn í veikindaleyfi vegna álags og stresseinkenna eftir erfitt ár. Félag hans, Álaborg, greinir frá þessu í dag.

Lærisveinar Gumma Gumm með tvo sigra í röð eftir HM
Íslendingalið Fredericia, undir stjórn landsliðsþjálfarans Guðmundar Þórðar Guðmundssonar, vann öruggan fimm marka sigur er liðið heimsótti SønderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 22-27 og Fredericia hefur nú unnið báða deildarleiki sína eftir jóla- og HM-pásuna löngu.

Góður leikur Arons í sigri í toppslagnum
Aron Pálmarsson átti góðan leik fyrir lið Álaborgar þegar liðið vann góðan sigur á GOG í toppslag dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag.

Elín Jóna varði á ögurstundu í mikilvægum sigri
Ringköbing, lið Elínar Jónu Þorsteinsdóttur, vann mikilvægan sigur á Ajax í danska handboltanum í dag.

Góður leikur Elínar Jónu dugði ekki að þessu sinni
Landsliðsmarkvörðurinn Elín Jóna Þorsteinsdóttir átti góðan leik í marki Ringköbing í dönsku úrvalsdeildinni í handbolt aí kvöld. Það dugði þó ekki að þessu sinni.

Sveinn fer loksins til Þýskalands
Handboltamaðurinn Sveinn Jóhannsson er farinn frá Skjern í Danmörku og genginn í raðir Minden í Þýskalandi.

„Ekki stærsti klúbburinn en hentar mér frábærlega á þessum tímapunkti“
Halldór Jóhann Sigfússon tekur við starfi aðalþjálfara hjá Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í vetur. Halldór klárar tímabilið sem aðstoðarþjálfari Holsterbro áður fyrrum landsliðsmaðurinn Arnór Atlason tekur við sem aðalþjálfari þar.

Halldór tekur við Nordsjælland
Halldór Sigfússon hefur verið ráðinn þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Nordsjælland. Hann tekur við því eftir tímabilið.

„Þetta er búin að vera stórfrétt í dönsku miðlunum“
Þeir Arnar Daði Arnarsson og Theodór Ingi Pálmason hringdu til Danmerkur í sérstakri viðhafnarútgáfu af hlaðvarpinu Handkastinu. Þar ræddu þeir við Rasmus Boysen, einn helsta handboltasérfræðing heims um heimkomu Arons Pálmarssonar.

„Um leið og fer að ganga illa sér maður úr hverju klúbburinn er gerður“
Janus Daði Smárason hóf sinn atvinnumannaferil í handbolta hjá danska stórliðinu Álaborg árið 2017. Hann varð danskur meistari í þrígang með liðinu áður en hann færði sig yfir til Göppingen í Þýskalandi, en í dag leikur hann með verðandi ofurliðinu Kolstad í Noregi.

Aron Pálmarsson kemur heim með þrjátíu stóra titla á ferilskránni
Aron Pálmarsson er sigursælasti handboltamaður Íslands á erlendri grundu. Nú hefur hann ákveðið að snúa aftur heim til Íslands eftir mögnuð fjórtán ár í atvinnumennsku í bestu deildum heims.

Álaborg staðfestir brottför Arons
Álaborg hefur staðfest að Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, muni yfirgefa félagið eftir tímabilið. Hann gekk í raðir þess í fyrra.

Aron á heimleið
Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, yfirgefur herbúðir danska félagsins Álaborgar í sumar. Samkvæmt öruggum heimildum íþróttadeildar er hann á leið til FH.

Íslendinglið Ribe-Esbjerg áfram en Álaborg úr leik
Ribe-Esbjerg er komið í undanúrslit dönsku bikarkeppninnar í handbolta á meðan Aron Pálmarsson og félagar í Álaborg eru úr leik.

Sveinn í undanúrslit | Tugur íslenskra marka í Svíþjóð
Sveinn Jóhannsson er kominn í undanúrslit dönsku bikarkeppninnar í handbolta. Þá skoruðu íslenskir leikmenn sænska úrvalsdeildarliðsins Skara alls tíu mörk í kvöld en það dugði ekki til.

Lærisveinar Gumma Gumm lágu fyrir GOG
Guðmundur Guðmundsson, ásamt Einari Ólafssyni, fóru í heimsókn til GOG í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Þeir þurftu að lúta í gras fyrir topp liðið deildarinnar GOG 39-32 á útivelli.

Aron Pálmarsson í eldlínunni í danska handboltanum í dag
Íslendingaliðin Álaborg, Ribe-Esbjerg og Lemvig Thyboron stóðu í ströngu í dag í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta en Aron Pálmarson lagði heldur betur lóð á vogaskálarnar fyrir sína menn í Álaborg. Aron skoraði sjö mörk og Ribe-Esbjerg og Lemvig-Thyboron áttust við í Íslendingaslag.

Frétti frá dönskum blaðamönnum eftir sigur að liðið hans væri farið á hausinn
Danskir fréttamenn reyndust boðberar válegra tíðinda fyrir Arnór Atlason eftir góðan sigur Íslands á Túnis á Ólympíuleikunum í London 2012. Þeir tilkynntu honum nefnilega að lið hans, AG Kaupmannahöfn, væri farið á hausinn.

Aron skoraði tvö er Álaborg tyllti sér á toppinn
Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir Álaborg er liðið vann öruggan átta marka sigur gegn Skjern í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 32-24. Með sigrinum komu Aron og félagar sér á topp deildarinnar.

Aron öflugur í öruggum sigri Álaborgar
Aron Pálmarsson lét til sín taka þegar Álaborg vann öruggan sigur í Lemvig í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Elín Jóna sneri aftur eftir hálfs árs fjarveru
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, markvörður íslenska handboltalandsliðsins, sneri aftur á völlinn í gær eftir um sex mánaða fjarveru vegna mjaðmarmeiðsla.

Íslendingalið Fredericia fékk skell
Íslendingaliðið Fredericia, undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar og með Einar Þorstein Ólafsson innanborðs, mátti þola átta marka tap er liðið heimsótti Skanderborg til Árósa í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 33-25.

Álaborg marði Ribe-Esbjerg án Arons
Íslendingaliðin Álaborg og Ribe-Esbjerg mættust í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Heimamenn voru án Arons Pálmarsson en það kom ekki að sök þar sem þeir unnu eins marks sigur, 29-28.

Elvar allt í öllu þegar Esbjerg-þríeykið lagði landsliðsþjálfarann
Áhugaverður leikur var í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld þar sem Ribe-Esbjerg og Fredericia Håndboldklub mættust. Þrír Íslendingar spila með fyrrnefnda liðinu og einn með því síðarnefnda sem og Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, er þjálfari Fredericia.

Aron og félagar enn taplausir á toppnum
Aron Pálmarsson og félagar hans í liði Álaborgar unnu sterkan þriggja marka sigur er liðið heimsótti Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 23-26.