Miðflokkurinn

Segir ríkisstjórn Bjarna „nýtt hræðslubandalag“
Stjórnarandstæðingar eru ekki hrifnir af endurnýjuðu stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist sjá litlar breytingar með endursmíðaðri stjórn sem hann kallar „hræðslubandalag“. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrverandi Vinstri grænn, segir þá sem kusu VG hafa keypt köttinn í sekknum.

„Þau eru að rífast um forsætisráðherrastólinn“
Forystumenn ríkisstjórnarflokkanna hafa fundað stíft í dag um framtíð stjórnarinnar vegna forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur. Formaður flokks fólksins segir að um slag um forsætisráðherrastólinn sé að ræða. Formaður Miðflokksins furðar sig á hve óundirbúnir stjórnarflokkarnir voru undir ákvörðun Katrínar.

Segir íbúa ekki hugsa hlutina til enda og treysta sérfræðingum í blindni
Bæjarfulltrúi í Grindavík veltir fyrir sér hvort íbúar séu of fljótir á sér með uppkaupum húsnæðis og flótta úr bænum. Hann telur íbúa og bæjarstjórn vera áhorfendur að því sem sé að gerast og hlusti á sérfræðinga í blindni án þess að hugsa hlutina til enda.

Athugasemdir við eignaumsýslu Landsbanka Íslands
Allmikil umræða hefur skapast um vilja stjórnenda Landsbanka Íslands til að endurvekja Brunabótafélag Íslands í endurnýjaðri mynd með kaupum á Tryggingamiðstöðinni,TM. Eins og vant er hafa allir aðilar máls mundað fingurinn og benda sem ákafast hver á annan.

„Framsókn tryggt að páskalambið renni ljúflega niður í ár“
Halla Signý Kristjánsdóttir fagnaði breytingum á búvörusamningum á þinginu áðan en það gerði Sigmar Guðmundsson Viðreisn ekki. Hann óskaði Sjálfstæðisflokknum sérstaklega til hamingju með að hafa á örfáum dögum ríkisvætt tryggingafélag og tryggt einokun milliliða í landbúnaði.

Litlar breytingar á fylgi flokkanna
Litlar breytingar urðu á fylgi stjórnmálaflokkanna fyrri hluta marsmánaðar ef marka má nýja könnun Maskínu.

„Þetta er að verða komið gott“
Formenn Miðflokksins og Samfylkingarinnar eru sammála um að fyrirhuguð sala ríkisins á Landsbankanum fari gegn eigandastefnu ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin tali í kross og málið beri þess merki að hún sé ekki sammála um grundvallaratriði.

Tekist á um aðgerðir ríkisstjórnar á Alþingi
Formenn Samfylkingar og Viðreisnar gagnrýndu á Alþingi í dag að stórfelldar aðgerðir stjórnvalda upp á 80 milljarða í tengslum við kjarasamninga væru ófjármagnaðar. Formaður Miðflokksins gagnrýndi einnig meinta óstjórn stjórnvalda í útlendingamálum.

Ekki þarf próf í stjórnmálafræði til að sjá stefnubreytingu Samfylkingar
Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir ekki fara á milli mála að Samfylkingin hafi breytt um stefnu í innflytjendamálum. Annað sé bara della.

Kerfið lúti stjórn öfgamanna
Reglugerðardrög matvælaráðherra um sjálfbæra landnýtingu hafa víðs vegar vakið upp hörð viðbrögð. Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokksins gerðu alvarlegar athugasemdir við drögin í aðsendri grein í Bændablaðinu í gær. Sigmundur Davíð segir þetta aðför að íslenskum landbúnaði. 82 umsagnir bárust í samráðsgátt, en drögin hafa lokið umsagnarferli.

Bergþór stríðir Samfylkingunni
Samfylkingin styður markmið útlendingafrumvarpsins sem er til umræðu á Alþingi og dómsmálaráðherra fagnar stefnubreytingu flokksins. Þingflokkur Vinstri Grænna gerir ýmsa fyrirvara við málið.

Sýni að Vinstri græn séu í tilvistarkreppu
Vinstri græn mælast með 4,7 prósenta fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn myndi detta af þingi yrði það niðurstaðan. Stjórnmálafræðingur segir flokkinn í tilvistarkreppu. Minna fylgi Samfylkingar milli mánaða og aukið fylgi Miðflokks megi rekja til útlendingamála.

Vinstri græn næðu ekki inn á þing
Vinstri græn mælast með 4,7 prósent í nýjum Þjóðarpúlsi Gallúp. Flokkurinn myndi detta af þingi ef niðurstaðan yrði þessi í næstu Alþingiskosningum. Samfylkingin mælist áfram stærsti flokkur landsins þó fylgið dali um rúm tvö prósentustig frá síðustu könnun.

Taxi!
Ég bið lesendur velvirðingar á að sletta í fyrirsögn en sú var tíð að hægt var að ná sér í leigubíl í Reykjavík með því að veifa og kalla frá gangstéttarbrún. Þú gast treyst því að laus bíll stöðvaði, stigið um borð og fengið örugga ferð heim að dyrum hvert sem ferðinni var heitið og greitt uppsett verð samkvæmt mæli.

Samfylkingin bætir við sig fylgi eftir ummæli Kristrúnar
Samfylkingin mælist með 27,2 prósent fylgi í nýrri könnun Maskínu og bætir flokkurinn við sig einu og hálfu prósentustigi á milli mánaða. Mikil umræða hefur farið fram um skoðanir Kristrúnar Frostadóttur, formanns flokksins, á útlendingamálum undanfarnar vikur.

Varist eftirlíkingar!
Það hefur verið hjákátlegt að fylgjast með málflutningi sjálfstæðisráðherranna fjármála, dóms -og utanríkismála undanfarandi.

Bjarni segir bókun 35 ekki ráða löggjöf Alþingis
Utanríkisráðherra segir bókun 35 við EES-samninginn ekki fela í sér framsal á fullveldi Íslands. Formaður Miðflokksins geldur varhug við frumvarpi um bókunina og segist munu berjast gegn því með kjafti og klóm.

Álit annara og almannarómur auk ímyndar
Ímynd Íslands útávið, er einhver eltingarleikur og markaðssetning sem undanfarin ár hefur leitt til þess að minnimáttarkennd þjóðarinnar hefur aukist. Saga Íslands í rúm þúsund ár er saga baráttu uppá líf og dauða við náttúruöflin og að eiga til hnífs og skeiðar, draga björg í bú.

Fékk SMS í tæka tíð og þarf að kaupa hund
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins þarf að standa við loforð sem hann gaf eiginkonu sinni og dóttur í Kryddsíldinni og kaupa hund á heimilið þar sem þær stóðu við sinn hluta áskorunar. Hann segist örlítið móðgaður yfir því hvað SMS barst seint frá mæðgunum sem er til marks um að þær hafi ekki horft á þáttinn.

Samfylkingin yfir þrjátíu prósenta múrinn
Samfylkingin er enn í sókn í nýjum þjóðarpúlsi Gallup og bætir flokkurinn við sig 2,3 prósentum í fylgi. Hann mælist nú með tæplega 31 prósent fylgi.

Skoðunarferð með Sigmundi um nýtt og umdeilt húsnæði þingsins
Smiðja, nýtt skrifstofuhúsnæði Alþingis hefur verið í umræðunni þessa vikuna eftir að þingmenn stigu fram og gagnrýndu aðstöðuna. Við skelltum okkur í túr um húsið í fylgd með miðflokksmanninum Sigmundi Davíð sem er líklega ósáttastur með framkvæmdina.

Enn rís Miðflokkurinn
Samfylkingin mælist með tæplega 26 prósenta fylgi og er enn stærsti stjórnmálaflokkurinn samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Fylgi Miðflokksins eykst þriðju mælinguna í röð og mælist flokkurinn nú með tólf prósenta fylgi.

Nomalísering daglegrar neyslu vímuefna er uppgjöf
Víða í heiminum og ekki síst hér á Íslandi hefur náðst góður árangur við að hjálpa fíknisjúklingum frá neyslu til edrúmennsku, ekki síst með tilkomu AA samtakana sem stofnuð voru árið 1935 í USA. Stofnfundur AA samtakana á Íslandi var 16. apríl 1954. Nær eingöngu var þá um að ræða einstaklinga sem áttu við áfengissýki að etja.

Frumvarp matvælaráðherra lélegt kosningaplagg!
Nú hefur umsagnafrestur um fiskveiðifrumvarp matvælaráðherra verið framlengdur. Ráðherra hlýtur að gera sér grein fyrir að frumvarpið í núverandi mynd verður aldrei samþykkt í núverandi ríkisstjórn.

Sigmundur Davíð vill að byggð verði ný Grindavík
Breið samstaða er að myndast um að stjórnvöld leysi þá Grindvíkinga sem þess óska undan húseignum þeirra. Fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokka á Alþingi tóku undir þetta í Pallborðinu í dag. Formaður Miðflokksins vill að reist verði ný Grindavík.

Áhyggjuefni að umboðsmaður setji dýravelferð til hliðar í álitinu
Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) segir það vonbrigði að umboðsmaður Alþingis gefi gömlum hvalveiðilögum meira vægi en nýjum dýraverndarlögum í nýju áliti sínu um hvalveiðar.

Vantrauststillaga lögð fram um leið og þing kemur saman
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir flokkinn munu leggja fram vantrauststillögu á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra um leið og Alþingi kemur saman 22. janúar næstkomandi.

Bíða viðbragða ríkisstjórnarinnar
Stjórnarandstaðan er ekki samstíga um hvort leggja eigi fram vantrausttillögu á matvælaráðherra þegar Alþingi kemur saman á ný. Sumir eru á því á meðan aðrir telja þetta vandamál ríkisstjórnar.

Aldrei mælst minni í Þjóðarpúlsi Gallup
Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með átján prósenta fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups og hefur flokkurinn aldrei mælst með minna fylgi í rúmlega þriggja áratuga sögu Þjóðarpúlsins. Samfylkingin mælist enn stærst með 28 prósenta fylgi og Miðflokkurinn mælist þriðji stærsti flokkurinn.

Ætlar upp á drottninguna á árinu
Formenn þingflokkanna fóru yfir áramótaheit sín fyrir árið 2024 í Kryddsíld á gamlársdag. Þar kenndi ýmissa grasa, loforð um sumarfrí, minna álag og nýjan hund. Áætlanir um að verða öflugri en nokkru sinni fyrr og loforð um minna mas. Utanríkisráðherra ætlar að hætta að grána, hitta vini og klífa drottningu íslenskra fjalla, Herðubreið.