

Þeir eru ýmsir sem hafa hneykslast yfir þeim opinberum fjármunum sem margar þjóðir hafa mokað í verkefni sem snúa að því að skipta úr jarðefnaeldsneyti yfir í hreinni orkugjafa eða bæta orkunýtni tækja.
Það er flestum ljóst sem sem skoðað hafa þróun fólksbíla af sæmilegri yfirvegun að rafmagnið er hægt og rólega að taka við sem orkugjafi.
Þegar ráfað er í gegnum fjöl- og samfélagsmiðla má oft finna talsverða neikvæðni hjá einkabílanotendum í garð breyttra ferðavenja í formi hjólreiða.
Veirufaraldurinn sem geisað hefur um heimsbyggðina, hefur heldur betur hrist upp í viðhorfi til heimavinnu.
"Fáðu þér bíl, þarna auminginn þinn“ var sérlega fyndið atriði í síðasta áramótaskaupi. Það dapurlega er að þetta var bara fyndið vegna þess að það endurspeglaði raunveruleg viðhorf alltof margra bíleigenda.
Ýmsir hafa komið fram að undanförnu og lýst yfir efasemdum um áhrif manna á loftslagið og vilja að dregið verði úr aðgerðum gegn meintum loftslagsbreytingum
Orkupakkaumræðan hefur heldur betur raskað hugarró landsmanna og eitt af áhyggjuefnum andstæðinga orkupakka þrjú eru getgátur um snarhækkandi raforkuverð sem fylgt gætu innleiðingu pakkans.
Með staðfestingu á loftslagssamningi þjóða heims, sem fullgildur var af Alþingi árið 2016, var í raun ákveðið að fara með þjóðina í sameiginlega ferð til Parísar árið 2030.
Það getur verið ruglandi fyrir almenning að átta sig á öllu þessu tali um endurheimt votlendis, skógrækt og landgræðslu sem sífellt er verið að blaðra um í tengslum við loftslagsmál.
Ýmsir málsmetandi menn hafa stigið á stokk að undanförnu og líst verulegum efasemdum um vænleika rafbíla. Sumir lýsa yfir miklum áhyggjum af umhverfisvænleika rafbíla á meðan aðrir reyna að útskýra fyrir fólki að rafbíllinn sé í raun ekki tilbúinn og fólk eigi ekki að hugsa um slík kaup næstu árin.
Þeir sem hella mjólk út á morgunmatinn sinn upplifa öðru hverju eitt kíló þegar þeir taka upp óopnaða mjólkurfernu. Margfaldaðu þá tilfinningu með 500 milljónum og þú skilur að um er að ræða mikið magn. Hér er verið að tala um útblástur gróðurhúsalofttegunda þ.e. koltvísýring.
Það er von að margir spyrji af hverju menn eins og ég vilji endilega troða raforku inn í síðasta vígi jarðefnaeldsneytis, þ.e.a.s. samgöngur. Er ekki nóg að raforka keyri allt annað í okkar daglega lífi, allt frá farsímum til frystiskápa?
Nú er tími jólaljósa og landsmenn keppast við að skreyta hús sín og slá nágrönnum við í ljósadýrðinni. En lýsingin staldrar stutt við, hún slær á skammdegið í mánuð eða svo og er síðan rifin niður og pakkað saman.
Enn eru til þeir sem afneita því að loftlagsbreytingar séu af mannavöldum og vilja helst hætta öllum aðgerðum sem stuðla að minni útblæstri kolefnis. Þetta er þægileg afstaða enda er alltaf auðveldast að gera ekki neitt.
Kæru þingmenn. Ég vil byrja á að þakka ykkur öllum fyrir að samþykkja fullgildingu Parísarsamningsins um loftlagsmál. Ég vil jafnframt benda ykkur á að með þessari samþykkt eruð þið að samþykkja vegferð sem krefst vinnu og hugrekkis.
Umfangsmesta umhverfisógn sem heimsbyggðin glímir við er taumlaus útblástur gróðurhúsaloftegunda sem tilkemur af hömlulausri brennslu á óendurnýjanlegu jarðefnaeldsneyti. Að mínu mati er vandinn ótrúlega einfaldur og auðskiljanlegur.
Hér er pæling. Hvað myndi gerast ef olíulítrinn færi í þrjú hundruð krónur? "Galið!“ myndu flestir hrópa og spyrja, "hvað með útgjöld heimilanna? Hvað með verðbólguþrýstinginn? Hvað með kjarasamningana? Hvað með stöðugleikann?!“
Það er snúið að vera umhverfissinni af þeirri einföldu ástæðu að umhverfismál eru svo víðtæk og með óteljandi snertifleti. Þegar umhverfismál eru annars vegar eru málin því miður sjaldan bara svört eða hvít
Ein mesta efnahagsinnspýting í langan tíma fyrir Íslendinga á sér nú stað með stórfelldri lækkun olíuverðs. Íslenska þjóðin kaupir um 500 milljónir lítra af olíu árlega til að keyra samfélagið til sjávar og sveita.
Enn og aftur er allt í uppnámi vegna Rammaáætlunar og lítil von til þess að sátt náist um virkjunarkosti þar. Það er þó önnur áætlun í gangi, Rammaáætlun Orkuseturs, en þar er enginn biðflokkur og virkjunarframkvæmdir nú þegar hafnar af krafti.
Sumir hafa lýst yfir áhyggjum af því að arðurinn af raforkuauðlindinni renni í vasa fárra og telja að aðeins útvaldir sleiki smjörið sem af stráunum drýpur.
Mörgum finnst hægt ganga að rétta þjóðarskútuna við eftir hrun og telja að ýmsir hefðbundnir mælikvarðar sýni verri stöðu en áður var.
Ef aðeins einni krónu af hverjum olíulítra væri varið í stuðning við innlenda eldsneytisframleiðslu myndi hún blómstra og færa okkur að markinu miklu mun fyrir en ella.
Mörgum svelgdist eflaust á þegar þeir heyrðu um fyrirhugað bann á kraftmiklar ryksugur sem ganga á í garð um næstu mánaðamót.
Það skemmtilegasta við hjólreiðar er hvað þær í einfaldleika sínum snerta á mörgum vandmálum sem þjóðin stendur frammi fyrir.
Í sumarlok var ég á ferð með samstarfsmönnum í evrópska orkuverkefninu PROMISE og þar á meðal eru miklir reynsluboltar frá Samsö í Danmörku. Á ferð okkar um landið vorum við m.a. að ræða stuðningskerfi við sólarselluuppsetningar í Danmörku.
Við Íslendingar virðumst seint þreytast á að draga menn í andstæðar fylkingar til að tryggja deilur og rifrildi í umræðum.
Hér er ekki verið að stimpla inn enn eitt framboðið til Alþingis með eftirsóknarverðu kosningaloforði. Við erum oft ginkeypt fyrir skyndilausnum sem eiga að kippa íþyngjandi útgjaldaliðum heimilanna í liðinn í einum grænum. Ofangreind lækkun er þó vel möguleg en ekki í einum grænum heldur með grænum skrefum. Hér verða kynntar þrjár leiðir sem geta lækkað eldsneytiskostnað um helming eða meira.
Við Íslendingar eigum þrjár risa auðlindir sem nýttar er af mismiklum krafti. Auðug fiskimið, hrein orka og áhugavert land sem ferðamenn sækjast eftir að heimsækja. Þessar auðlindir eiga að mínu mati miklu meira sameiginlegt en haldið er fram í almennri umræðu.
Við Íslendingar erum oft ragir við að viðurkenna þekkingarleysi okkar á ákveðnum sviðum. Það er eins og mörgum finnist það vera algerlega ótækt að geta ekki tjáð sig eins og sérfræðingur um allt frá Aðalnámskrá til Rammaáætlunar. Að mínu mati er það enginn glæpur að segjast ekki þekkja málaflokk nógu vel til að gefa út glannalegar yfirlýsingar. Umræðan í fjölmiðlum og stjórnmálum á Íslandi byggist því oft á alhæfingum, einföldunum og upphrópunum. Hér eru nokkrar upphrópanir sem eru að mínu mati oft settar fram með villandi hætti.