Erlent
290 291 292 293 294 295 296 297 298 … 334 ›
Foreldrarnir ekki í nokkrum vafa Foreldrar stúlku sem hvarf fyrir átta árum í Austurríki segjast ekki í neinum vafa um að 18 ára stúlka sem fannst í garði nærri Vín í gær sé dóttir þeirra. Erlent 25.8.2006 09:21
Nýjar tegundir ógna dýralífi Náttúrufræðingar á Galapagoseyjum hafa vaxandi áhyggjur af því að nýjar tegundir ógni innfæddu dýralífi á eyjunum. Erlent 25.8.2006 08:44
Fjórir danir kærðir fyrir tilraun til hryðjuverkaárásar Dómsmálaráðaherra Danmerkur hefur ákveðið að ákæra fjóra unga Dani fyrir tilraun til hryðjuverkaárásar. Erlent 25.8.2006 08:35
Berst fyrir lífi sínu í brasilísku fangelsi Tuttugu og þriggja ára Íslendingur, Hlynur Smári Sigurðarson, hefur setið í fangelsi í Brasilíu í tæpa þrjá mánuði fyrir fíkniefnasmygl. Síðan þá hefur hann þurft að verjast nokkrum morðtilraunum. Aðbúnaður í fangelsinu er hræðilegur. Innlent 24.8.2006 22:19
Fundin eftir átta ára prísund Maður á fimmtugsaldri, sem grunaður var um að hafa rænt austurrískri skólastúlku fyrir átta árum og haldið nauðugri heima hjá sér, fyrirfór sér með því að kasta sér fyrir járnbrautarlest í Vínarborg í fyrradag, skömmu eftir að stúlkan komst í hendur lögreglu. Erlent 24.8.2006 22:19
Undirbúa svar öryggisráðs SÞ Bandarískir ráðamenn eru ásamt evrópskum bandamönnum og fulltrúum fleiri landa, sem eiga sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, að leggja drög að viðbrögðum ráðsins við því sem Bandaríkjastjórn nefnir ófullnægjandi svar Íransstjórnar við kröfum alþjóðasamfélagsins um að hún stöðvi auðgun úrans. Erlent 24.8.2006 22:19
Flugfarið kostaði 300 þúsund Sænski ráðherrann Mona Sahlin var ein á lúxusfarrými í flugi frá Svíþjóð til Washington í vor. Flugferðin kostaði sænskan almenning tæplega 300 þúsund íslenskar krónur, að sögn Expressen. Erlent 24.8.2006 22:19
Töldu ekki öll framlög fram Stjórnmálaflokkum í Bretlandi láðist að telja fram ríflega 41 milljón króna af frjálsum framlögum í kosningasjóði sína vegna kosningabaráttu ársins 2005. Misræmið á uppgefnum og raunverulegum framlögum mun vera til komið vegna nýrra kosningalaga, en yfirmaður kjörstjórnar segir að flokkarnir sýni lögunum ekki nægilega virðingu. Erlent 24.8.2006 22:19
Annar maður gaf sig fram Ungur maður hefur verið handtekinn vegna tilraunar til að sprengja upp lest í Þýskalandi. Jihad Hamad er tvítugur að aldri og gaf sig fram við lögregluna í Líbanon í gær. Hinn maðurinn er árinu eldri og var handtekinn í Kiel í Þýskalandi síðastliðinn laugardag. Erlent 24.8.2006 22:18
Foringi Tígra á að gera tilboð Ríkisstjórnin á Srí Lanka íhugar nú að taka aftur upp þráðinn í vopnahlésviðræðum við Tamílatígrana. Stjórnin setur sem skilyrði að hinn sjaldséði leiðtogi Tígranna, Prabhakaran, leggi fram skriflegt tilboð þess efnis að Tamílatígrarnir fari fram á frið. Erlent 24.8.2006 22:19
Ítrekar forystutilkall Frakka Frakkar munu senda alls 2.000 hermenn til að taka þátt í alþjóðlega friðargæsluliðinu í Suður-Líbanon, að þeim 400 meðtöldum sem þegar eru þar. Þetta tilkynnti Jaques Chirac Frakklandsforseti í sjónvarpsávarpi í gær. Erlent 24.8.2006 22:18
Gefur sykursjúkum von Nýtt lyf sem prófað hefur verið í Svíþjóð gefur von um að hægt sé að hægja á þróun insúlínháðrar sykursýki hjá börnum, kemur fram í frétt Svenska Dagbladet. Erlent 24.8.2006 22:19
Alcoa sektað fyrir 1.819 brot Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur sektað Alcoa um 645 milljónir íslenskra króna, fyrir að hafa brotið lög um loftmengun 1.819 sinnum á tveggja ára tímabili. Dagblaðið Dallas Morning News greindi frá því í gær að Alcoa hafi gert samning við dómsmálaráðuneytið og umhverfisverndarsamtök árið 2003. Erlent 24.8.2006 22:18
Nýir starfsmenn lækka í launum Finnsk-íslenska flugfélagið Finnair ætlar að lækka launin hjá fimm hundruð nýjum starfsmönnum um þrjátíu prósent frá því sem nú er. Þetta kemur fram í vefútgáfu Hufvudstadsbladet. Erlent 24.8.2006 22:19
Fylgi beggja fylkinga nær hnífjafnt Í nýrri skoðanakönnun mælist fylgi við Jafnaðarmannaflokk Görans Persson forsætisráðherra og samstarfsflokka hans nú í fyrsta sinn frá því í vor meira en fylgi kosningabandalags borgaralegu flokkanna. Þingkosningar fara fram í Svíþjóð 17. september. Erlent 24.8.2006 22:19
Tilboð lagt fram í HoF Fjárfestahópur, sem meðal annars er skipaður Baugi og FL Group, hefur lagt fram yfirtökutilboð í House of Fraser, eina þekktustu verslunarkeðju Bretlands fyrir 60 milljarða. Baugur og FL taka samanlagt helmingshlut. Viðskipti erlent 24.8.2006 18:22
Stytta af Ramses Ristastór stytta af Ramses öðrum faraóa verður flutt frá Ramses-torgi þar sem hún hefur staðið síðan snemma á sjötta áratug síðustu aldar og í miðborg Kairó í Egyptalandi, nær pýramídunum miklu. Erlent 24.8.2006 16:16
Uppfærð hagvaxtarspá fyrir Þýskaland Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) hefur uppfært hagvaxtarspá sína fyrir Þýskaland. IMF spáði 1,3 prósenta hagvexti í landinu á þessu ári en býst nú við 2 prósenta hagvexti á árinu. Viðskipti erlent 24.8.2006 15:53
Plútó hefur verið sviptur plánetutitlinum Hnötturinn Plútó hefur verið skilgreindur sem reikistjarna í stjötíu og sex ár, eða frá því hann var fyrst uppgötvaður árið 1930. Síðan þá hefur verið litið á Plútó sem níundu og ystu reikistjörnu sólkerfis okkar. Á ráðstefnu stjörnufræðinga, sem haldin var í Prag í Tékklandi, í dag var þó tekin ákvörðun um að svipta Plútó þessum titli og verður hann ekki nefndur sem slíkur í skólabókum aftur. Í mörg ár hefur verið deilt um stöðu hans þar sem hann er mun minn en hinar reikistjörnurnar átta auk annarra hnatta sem uppgötvaðir hafa verið á seinni árum. Ákvörðunin þykir því ekki koma mjög á óvart. Erlent 24.8.2006 14:12
Sýrlendingar hóta að loka landamærum Svo gæti farið að Sýrlendingar loki landamærum að Líbanon ef friðargæsluliðum Sameinuðu þjóðanna verði komið fyrir í Líbanon, nálægt landamærum Sýrlands. Sýrlandsforseti segir fjölgun í friðargæsluliði þar fjandsamlega Sýrlendingum og brjóta gegn fullveldi Líbanons. Erlent 24.8.2006 12:09
Óvænt uppsögn hjá McDonald's Mike Roberts, einn af æðstu stjórnendum skyndibitakeðjunnar McDonald's, sagði upp störfum í gær. Uppsögnin kemur talsvert á óvart en gert var ráð fyrir að Roberts yrði næsti forstjóri keðjunnar. Viðskipti erlent 24.8.2006 10:33
Sýning á 500 ára gömlum gullgripum Seðlabankinn í Perú opnaði í gær sýningu á fornum munum frá menningarskeiðum Lambajek-Chimu og Nasca. Þessi menningarskeið hófust á 17. öld en gripirnir eru allir minnst 500 ára gamlir. Meðal muna á sýningunni eru dauðagrímur, skálar, bikarar og kassar úr gulli. Formaður þjóðmenningarstofnunar Perú minnir á að munirnir séu ekki einungis mikils virði út af gullinu eða aldri þeirra, heldur einnig vegna menningar- og tilfinningagildis, því munirnir hafi margir hverjir haft trúarlegan tilgang, meðal annars skartið. Erlent 24.8.2006 08:27
Nyhedsavisen kemur út 6. október næstkomandi Búið er að ákveða fyrsta útgáfudag Nyhedsavisen, nýs fríblaðs dótturfélags Dagsbrúnar. Það kemur fyrst út í Danmörku 6. október næstkomandi. Stefnt er að því að blaðinu verði dreift á um 900 þúsund heimili ef allt gengur eftir. Nokkuð hefur verið um hrakspár undanfarið vegna mikillar samkeppni á þessum nýja markaði og frétta af því að fjárhagsstaða útgefandans sé ekki jafnstyrk og búist var við. Erlent 24.8.2006 09:14
Fiskimennirnir komnir heim frá Marshalleyjum Þrír mexíkóskir fiskimenn sem segjast hafa hrakist komu til Hawaii á leið sinni heim frá Marshalleyjum. Þangað komu þeir eftir að fiskiskip fann þá á reki á opnum báti tæpa 9000 kílómetra frá heimalandi sínu. Þeir halda því fram að þá hafi rekið um opið haf í níu mánuði eftir að sterkur straumur bar þá frá landi og segjast þeir hafa lifað á hráum fiski og sjófugli og drukkið regnvatn. Ýmislegt þykir þó kasta rýrð á sögu mannanna, þeir þykja undarlega vel haldnir og eins ber fjölskyldumeðlimum þeirra ekki saman um hversu lengi þeirra hafi verið saknað. Erlent 24.8.2006 08:17
Vopnahléð enn mjög brothætt Spenna jókst á landamærum Líbanons í gær er Sýrlandsstjórn setti sig öndverða gegn því að alþjóðlegt gæslulið yrði staðsett við landamærin, og Ísraelsstjórn kallaði ástandið í Suður-Líbanon "sprengifimt" er fallbyssuskot og sprengingar urðu þremur líbönskum hermönnum og einum Ísraela að bana. Erlent 23.8.2006 22:01
Sýrlendingar gætu lokað landamærum sínum Sýrlendingar gætu lokað landamærum sínum fyrir allri umferð ef friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna í Líbanon yrðu staðsettir nærri landamærunum að Sýrlandi. Utanríkisráðherra Finnlands bar blaðamönnum þessi skilaboð eftir fund sinn með sýrlenskum starfsbróður sínum. Forseti Sýrlands hefur einnig sagt að aukning friðargæsluliðs í Líbanon sé fjandsamleg Sýrlendingum og brjóti gegn fullveldi Líbanons. Erlent 24.8.2006 07:32
Ísraelar kaupa kjarnorkubáta Ísraelar hafa undirritað kaupsamning um tvo kafbáta sem geta skotið kjarnorkueldflaugum og verða þeir afhentir og sjófærir innan skamms. Þýsk yfirvöld láta Ísraelum kafbátana í té, en samkvæmt þýska blaðinu Spiegel var veittur góður afsláttur af bátunum. Kaupverðið mun vera 91,5 milljarðar króna. Erlent 23.8.2006 22:01
Krefjast frelsis fyrir fangelsaða múslima Myndband sem birt var í gær var fyrsta lífsmarkið frá fréttamönnum Fox-sjónvarpsstöðvarinnar sem var rænt á Gaza fyrir tíu dögum. Gíslatökumennirnir krefjast lausnar allra múslima úr bandarískum fangelsum í skiptum fyrir gíslana. Erlent 23.8.2006 22:02
Allir útlendingar fluttir burt Alþjóðlegi Rauði krossinn ætlar að senda ferju frá Jaffna á norðurhluta Srí Lanka til þess að flytja á brott þá útlendinga sem enn eru á svæðinu. Farþegar verða erlendir hjálparstarfsmenn og annað fólk með erlend vegabréf, en þeirra á meðal eru Bretar, Kanadamenn og tamílar með norsk vegabréf. Ferjan tekur hundrað og fimmtíu farþega, en vitað er af fleiri útlendingum sem sendiráð ýmissa landa vilja koma á brott. Erlent 23.8.2006 22:01
Loftárásir og bardagar í suðri Að minnsta kosti 36 skæruliðar talibana féllu í skærum og loftárásum NATO í suðurhluta Afganistans í gær. Einn NATO-hermaður féll og fimm aðrir særðust í árásum skæruliða, að því er talsmenn NATO-liðsins greindu frá. Erlent 23.8.2006 22:01