Auglýsinga- og markaðsmál

Skrúfað fyrir auglýsingar til flokksblaða í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir fulltrúi Pírata í bæjarstjórn Kópavogs, segir að Sjálfstæðisflokkurinn þar hafi tvívegis fengið meira fjármagn en reglurnar heimila til að auglýsa í flokksblaði sínu.

John Cleese rifjar upp auglýsingu Kaupþings
Enski gamanleikarinn John Cleese tók upp á því um helgina að rifja upp eina af nokkrum auglýsingum Kaupþings frá góðæristímanum í aðdraganda bankahrunsins.

Bestu íslensku auglýsingarnar 2020
Tilnefningar til íslensku auglýsingaverðlaunanna, Lúðursins, voru opinberaðar á fimmtudag.

Ráðin í starf markaðsstjóra Flugakademíunnar
Alexandra Tómasdóttir hefur verið ráðin í starf markaðsstjóra Flugakademíu Íslands. Alexandra starfaði áður sem markaðsstjóri Private Travel þar sem hún hóf störf árið 2016.

Bannað að auglýsa nikótínvörur og selja til yngri en 18 ára
Heilbrigðisráðherra lagði í gær fram frumvarp sem felur í sér að lög um rafrettur og áfyllingar munu einnig ná til nikótínvara, meðal annars svokallaðra nikótínpúða.

Volkswagen laug til um nafnabreytingu
Volkswagen í Bandaríkjunum laug að fjölmiðlum þegar sendar voru út fréttatilkynningar á mánudag og þriðjudag um að til stæði að breyta nafni starfseminnar úr „Volkswagen of America“ í „Voltswagen of America“. Var það sagt gert til að undirstrika aukna áherslu á rafbílaframleiðslu félagsins.

Uppfært: Breyta ekki nafni bandarísku starfseminnar í Voltswagen
Uppfært: Volkswagen laug til um nafnabreytingu. Volkswagen í Bandaríkjunum er ekki að fara að breyta nafni félagsins í Voltswagen líkt og kom fram í fréttum í gær. Um var að ræða markaðsbrellu.

Svana og Davíð til Datera
Svana Úlfarsdóttir og Davíð Arnarson hafa verið ráðin til starfa hjá gagnadrifna birtingafyrirtækinu Datera.

Alætu-Júmbó hafði betur gegn fulltrúum grænkera
Neytendastofa telur að ekki séu nógu mikil líkindi með merkjum Júmbó og Jömm annars vegar eða Júmbó og Oatly hins vegar til að skapa hættu á því að neytendur ruglist á þeim. Nokkur umræða skapaðist um málið í október 2019 þegar sumir höfðu orð á því að ný umbúðahönnun Júmbó líktist hönnun áðurnefndra vörumerkja.

„Verði honum að góðu“
Foringi Frjálslynda lýðræðisflokksins telur „XOXO“ í auglýsingu Kjöríss minna rækilega á flokkinn sem hefur listabókstafinn O. Guðrún Hafsteinsdóttir hjá Kjörís, sem ætlar sér efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins segist fagna væntanlegum viðskiptum frá Guðmundi Franklín.

Mikill áhugi á Íslandi og markaðsherferðir hafnar
Forstjóri Icelandair segir afar jákvætt að farþegar utan Schengen fái að koma til landsins með gild bólusetningar-eða mótefnavottorð. Mikilvægustu markaðir félagsins séu þar. Íslandsstofa hefur þegar hafið markaðssátak í Bretlandi og skynjar mikinn áhuga á Íslandi.

Ótrúleg auglýsing sem tekin var í einni töku með dróna
Kvikmyndagerðarmennirnir Jay Christensen og Anthony Jaska tóku upp kynningarmyndband fyrir keilustaðinn og kvikmyndahúsið Bryant-Lake Bowl á dögunum.

Innanlandsflug einnig undir merkjum Icelandair
Innanlands- og millilandaflug Icelandair verður samþætt undir merkjum Icelandair. Frá þessu segir í tilkynningu frá Icelandair, en leiðakerfi og sölu- og markaðsstarf Air Iceland Connect og Icelandair mun sameinast undir vörumerki Icelandair frá þriðjudeginum næsta, 16. mars.

Bestu vörumerkin 2020: Ekki nóg að mæta fínn í partí
Það myndaðist góð stemning víða þegar viðurkenningar voru veittar fyrir Bestu íslensku vörumerkin 2020, en viðurkenningin var veitt rafrænt þann 25.febrúar síðastliðinn. Hjá mörgum tilnefndum fyrirtækjum hafði starfsfólk komið sér fyrir saman fyrir framan skjá og fylgdu húrrahróp og mikið klapp hjá þeim sem hlutu viðurkenningu. Hjá einstaka viðurkenningarhafa var jafnvel skálað í kampavíni.

ICA-Stig og sænska auglýsingasápuóperan
Talsverð umræða skapaðist í sænsku samfélagi fyrr á árinu eftir að tilkynnt var að nýr leikari myndi taka við hlutverki verslunarmannsins Stig í auglýsingum matvörukeðjunnar ICA. Auglýsingar ICA eru í formi sápuóperu þar sem sagt er frá ástum og örlögum starfsfólks ótilgreindrar ICA-verslunar á sama tíma og greint er frá tilboðum á skjánum.

Bein útsending: Bestu íslensku vörumerkin 2020
Vörumerkjastofan brandr mun í dag útnefna bestu íslensku vörumerkin árið 2020 í beinu streymi sem hefst klukkan 16. Kynnir verðlaunanna er Þorsteinn Bachmann og mun Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, flytja stutt ávarp áður en sigurvegarar verða kynntir.

„Skiptir mestu máli að viðskiptavinurinn er í fyrsta sæti”
Vörumerki þarf að standa fyrir svo mörgu öðru en eingöngu útliti markaðsefnis. Það þarf að mynda sterka og jákvæða upplifun og endurspegla þá upplifun sem viðskiptavinir verða fyrir. Það þarf að njóta virðingar viðskiptavina.

„Frábært vörumerki getur verið lítið þekkt á meðal almennings“
„Okkar markmið er sýna hvernig góð vörumerki líta út og að þau verði þannig leiðarljós fyrir önnur fyrirtæki sem vilja vinna markvisst í sínum vörumerkjum. Þegar við segjum góð, þá meinum við góð samkvæmt viðurkenndum hagnýtum og fræðilegum aðferðum. Og góð því þau skila eigendum sínum meiri hagnaði en ella og neytendum skýrum ávinningi,“ segir Friðrik Larsen formaður dómnefndar um valið Bestu íslensku vörumerkin 2020 sem fram fer þann 25.febrúar næstkomandi.

Erla, Karl Ólafur og Leifur til Hvíta hússins
Erla María Árnadóttir, Karl Ólafur Hallbjörnsson og Leifur Wilberg Orrason eru nýir starfsmenn hjá Hvíta húsinu. Í tilkynningu kemur fram að með nýjum ráðningum sé verið að styðja við vöxt félagsins og mæta auknum umsvifum í starfseminni.

Þessar rándýru Superbowl auglýsingar hittu í mark
Tampa Bay Buccaneers vann sinn fyrsta NFL-titil í átján ár og þann annan frá upphafi með því að vinna Kansas City Chiefs 31-9 á heimavelli sínum í Tampa Bay í nótt þegar leikurinn um Ofurskálina, Superbowl, fór fram.

Kynna ný markaðsverðlaun og útnefna bestu vörumerki landsins
30 vörumerki hafa hlotið tilnefningu sem bestu íslensku vörumerkin árið 2020 sem hluti af nýjum markaðsverðlaunum sem fram fara þann 25. febrúar.

Öskurherferðin hlýtur virt verðlaun
Íslandsstofa hlaut í vikunni virt markaðsverðlaun hjá bandaríska fagtímaritinu Digiday fyrir öskurherferðina Let it Out síðasta sumar. Dómarar eru meðal annars frá bandarísku fjölmiðlunum CBS, New York Times, Bloomberg og Forbes.

Sakar bæjaryfirvöld í Kópavogi um sjálftöku, spillingu og leyndarhyggju
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, fulltrúi Pírata í bæjarstjórn Kópavogsbæjar, segir Sjálfstæðisflokkinn dæla auglýsingafé í málgagn sitt í bænum langt umfram heimildir.

Breyta ensku heiti Íslandsstofu
Frá og með 31. janúar verður ensku heiti Íslandsstofu breytt úr Promote Iceland í Business Iceland.

„Koddahugmyndirnar“ í rúminu misgóðar daginn eftir
Guðmundur Pálsson framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, segist oftast fljótur að sofna á kvöldin. Stundum poppa þó upp svo góðar hugmyndir fyrir viðskiptavini að hann glaðvaknar. Þessar „koddahugmyndir“ reynast þó misgóðar daginn eftir þegar mætt er til vinnu. Í golfinu vinnur Guðmundur markvisst af því að ná forgjöfinni niður fyrir tíu.

Ráðin til H:N Markaðssamskipta
Andri Þór Ingvarsson, Diljá Jóhannsdóttir, Jónbjörn Finnbogason og Lúna Grétudóttir hafa öll við ráðin til auglýsingastofunnar H:N Markaðssamskipta.

RÚV eykur enn hlutdeild sína á auglýsingamarkaði
Tekjusamdráttur fjölmiðla er sem nemur sjö prósentum árið 2019 á föstu verðlagi. Fjórar af hverju tíu krónum fara til erlendra aðila.

Skoða hvort breyta þurfi vörumerkinu í ljósi líkinda
Einn forsvarsmanna pítsustaðarins Slæs segir að merki staðarins, sem bent hefur verið á að svipi til merkis annars pítsustaðar, sé fengið í gegnum vefsíðuna Fiverr, markaðstorg á netinu þar sem hægt er að kaupa þjónustu af einyrkjum. Verið sé að skoða hvort taka þurfi upp nýtt merki í ljósi líkindanna.

Við segjum áskrifendum fréttir
Í kvöld bjóðast kvöldfréttir Stöðvar 2 eingöngu áskrifendum stöðvarinnar. Þar með lýkur rúmlega 34 ára sögu þar sem allur almenningur hefur haft opinn aðgang að fréttum tveggja sjónvarpsstöðva. Samkeppni milli kvöldfréttaþáttanna tveggja verður áfram á fullu – en það þarf áskrift að Stöð 2 til að horfa á hana. Af kommentakerfi fjölmiðla og samfélagsmiðla má ráða að ákvörðunin komi við kvikuna í mörgum.

Gagnrýnir nikótínpúðaauglýsingu Dr. Football: „Svona vitleysingar eru að eitra huga komandi kynslóða“
Hjörvar Hafliðason, fjölmiðlamaður og hlaðvarpsstjórnandi, hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir auglýsingu á nikótínpúðum í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í vikunni. Doktor í íþróttafræðum segir það ljóst að auglýsingin hafi verið sett fram sem grín til þess að draga úr alvarleika notkun ungs fólks á nikótínpúðum.