Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
103 104 105 106 107 108 109 110 111 … 334 ›
Boris Johnson er hættur við að sleppa sóttkví Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Rishi Sunak fjármálaráðherra voru útsettir fyrir smiti eftir að þeir funduðu með Sajid Javid heilbrigðisráðherra, sem reyndist smitaður af Covid-19. Upphaflega ætluðu ráðherrarnir tveir ekki að fara í sóttkví. Erlent 18.7.2021 14:40
Keflavíkurflugvöllur að nálgast þolmörk Aðstoðaryfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir flugvöllinn að nálgast þolmörk. Suma daga þurfi lögregla á flugvellinum að taka á móti þrjú þúsund farþegum á einum og hálfum klukkutíma. Innlent 18.7.2021 13:32
Níu greindust innanlands, enginn í sóttkví Níu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, enginn þeirra í sóttkví, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavörnum. Innlent 18.7.2021 12:22
Meirihluti falsfrétta um Covid-19 komi frá tólf einstaklingum Mikill meirihluti falsfrétta og hræðsluáróðurs um bólusetningar á samfélagsmiðlum vestanhafs er runninn undan rifjum einungis tólf einstaklinga. Þetta segir í nýrri skýrslu Center for Countering Digital Hate, samtaka sem berjast gegn stafrænu hatri. Erlent 18.7.2021 10:03
Tveir Ólympíufarar hafa greinst smitaðir Tveir íþróttamenn í Ólympíuþorpinu hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni, aðeins fimm dögum áður en Ólympíuleikarnir hefjast. Íþróttamennirnir eru frá sama landinu og eru í sömu íþrótt og starfsmaðurinn sem greindist smitaður í gær. Sport 18.7.2021 07:51
Grunur um smit í leikmannahópi Bucks Fimmti leikurinn í úrslitaeinvígi Milwaukee Bucks og Phoenix Suns um NBA meistaratitilinn fer fram í nótt. Körfubolti 17.7.2021 23:00
Héldu að þau yrðu örugg á Íslandi en eiginmaðurinn smitaðist samt Farþegi skemmtiferðaskipsins Viking Sky hefur ekki hugmynd um hvar eiginmaður hennar, einnig farþegi á skipinu, smitaðist af kórónuveirunni. Hún lætur vel af Íslandsdvölinni þrátt fyrir allt. Aðrir gestir farsóttarhússins taka í sama streng. Innlent 17.7.2021 20:00
Reikna með yfir fjögur hundruð í sóttkví eftir daginn Almannavarnir reikna með því að yfir fjögur hundruð manns verði komnir í sóttkví eftir daginn í dag. Þá hefur ekki tekist að tengja þá sem greindust með kórónuveiruna í gær við eldri smit, samkvæmt upplýsingum frá Hjördísi Guðmundsdóttur samskiptastjóra almannavarna. Það sé áhyggjuefni. Innlent 17.7.2021 19:07
Heilbrigðisráðherra Bretlands smitaður af Covid Sajid Javid, heilbrigðisráðherra, hefur greinst smitaður af kórónuveirunni. Javid greinir frá þessu í myndbandi sem hann birti á Twitter, þar sem hann segist vera með væg einkenni Covid-19. Erlent 17.7.2021 13:45
Tónlist bönnuð á Mykonos vegna Covid Yfirvöld í Grikklandi tilkynntu í dag nýjar takmarkanir vagna kórónuveirufaraldursins. Takmarkanirnar eiga við grísku ferðamannaeyjuna Mykonos en þær fela í sér meðal annars bann við tónlist á veitingastöðum og krám. Erlent 17.7.2021 13:25
Segir samfélagsmiðla eiga þátt í „faraldri óbólusettra“ Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að eini faraldurinn sem nú geisar í Bandaríkjunum sé faraldur kórónuveirunnar meðal samlanda hans sem ekki vilji láta bólusetja sig fyrir veirunni. Hann segir athæfi samfélagsmiðlarisa á borð við Facebook spila þar stórt hlutverk. Erlent 17.7.2021 13:24
Talsvert veikir í farsóttarhúsi þrátt fyrir bólusetningu Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, þar af sjö utan sóttkvíar. Mjög hefur fjölgað í farsóttarhúsi síðustu daga en á fjórða tug eru þar í einangrun vegna kórónuveirusmits. Forstöðumaður segir að fólkið sé talsvert veikt, þrátt fyrir bólusetningu. Innlent 17.7.2021 12:49
Afléttingar á Bretlandi eiga ekki við ferðalanga frá Frakklandi Frá og með næsta mánudegi munu fullbólusettir ferðamenn sem eru á leiðinni til Englands og Wales frá Frakklandi þurfa að fara í tíu daga sóttkví við komuna til landsins. Þetta gildir ekki um ferðalanga frá öðrum ríkjum en stjórnvöld hræðast að Beta-afbrigði veirunnar sé ónæmt fyrir bóluefninu. Erlent 17.7.2021 12:43
Tólf greindust með veiruna innanlands í gær Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Af þeim voru fimm í sóttkví en sjö utan sóttkvíar. Innlent 17.7.2021 10:54
Alvarlegt ástand í Afríku: „Sökin er alfarið ríku landanna“ Ástandið vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar versnar sífellt í Afríku en í síðustu viku fjölgaði dauðsföllum um 43 prósent í heimsálfunni. Heilbrigðiskerfi margra ríkja eru að þrotum komin en ekkert útlit er fyrir að lát verði þar á. Erlent 16.7.2021 21:44
Eiffel-turninn opnaður á ný Einn allra vinsælasti ferðamannastaður Frakklands, Eiffel turninn í París, var opnaður að nýju í dag eftir níu mánaða lokun vegna kórónuveirufaraldursins. Turninn var opnaður þrátt fyrir að sóttvarnaraðgerðir hafi verið hertar nokkuð í vikunni vegna Delta-afbrigðisins. Erlent 16.7.2021 21:32
Segir nauðsynlegt að stjórnvöld grípi til aðgerða á landamærum Yfirlæknir ónæmisfræðideildar á Landspítalanum segir nauðsynlegt að stjórnvöld grípi til aðgerða á landamærum vegna nýrrar stöðu í faraldri kórónuveirunnar hér á landi. Hann telur sterkar líkur á að fólk þurfi endurbólusetningu gegn nýjum afbrigðum á borð við hið bráðsmitandi delta afbrigði. Innlent 16.7.2021 19:30
„Greinilega er maður ekki alveg hólpinn með bólusetningunni“ Eyjólfur Ásberg Halldórsson, sem hafði verið bólusettur gegn Covid-19, segist hafa fagnað of snemma en hann greindist með veiruna eftir að hann kom heim frá Spáni fyrr í mánuðinum. Hann hvetur fólk til að fara varlega áfram. Innlent 16.7.2021 18:43
Smit um borð í Viking Jupiter og engum hleypt í land Eitt smit hefur verið staðfest um borð í skemmtiferðaskipinu Viking Jupiter sem liggur við höfn á Akureyri. Innlent 16.7.2021 15:53
„Algjörlega galið“ að herða tökin á landamærunum frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar og þeirri efnahagslegri viðspyrnu sem fjölgun ferðamanna hér á landi veiti sé það „algjörlega galið" ætli stjórnvöld sér að herða tökin á landamærunum, líkt og sóttvarnalæknir hefur í hyggju að leggja til að verði gert. Viðskipti innlent 16.7.2021 14:36
Starfsmaður á Jómfrúnni greindist með smit Starfsmaður Jómfrúarinnar greindist með kórónuveirusmit í gær og voru 24 starfsmenn veitingastaðsins sendir í skimun vegna smitsins. Þeir hafa allir verið bólusettir líkt og sá smitaði sem mætti síðast í vinnuna á mánudag. Einn starfsmaður hefur verið sendur í sóttkví. Innlent 16.7.2021 14:16
Leggur til að aðgerðir verði hertar á landamærum á ný Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hyggst leggja til breytingar á sóttvarnaaðgerðum á landamærum í ljósi fjölgunar tilfella síðustu daga. Hann vinnur nú að minnisblaði til ráðherra en vill ekki gefa upp hverjar tillögur hans verða. Innlent 16.7.2021 11:51
Forsetinn þakkar heilsugæslunni en segir verk að vinna í baráttu við veiruna „Kæru vinir. Bólusetningu vegna heimsfaraldurs er núna lokið í bili. Sú aðgerð tókst með eindæmum vel, meðal annars vegna þess að landsmenn áttuðu sig vel á nauðsyn þess að grípa til varna af því tagi.“ Innlent 16.7.2021 10:47
Sjö greindust með Covid-19 innanlands í gær Sjö greindust með Covid-19 innanlands í gær og voru fjórir utan sóttkvíar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Innlent 16.7.2021 10:30
„Þessar tölur sýna það ótvírætt að bólusetningin virkar“ Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmisdeild Landspítalans, segir það alveg ljóst að virkni bóluefnanna sé gríðarlega góð. Innlent 15.7.2021 21:05
Segir virkni bóluefna ekki eins góða og vonast var til Sóttvarnalæknir segir virkni bóluefna gegn kórónuveirunni ekki eins góða og vonast var til. Þá hafi heilsufar áhrif á virkni bólusetninga. Hann íhugar nú að leggja það til að allir sem koma til landsins verði krafðir um neikvætt PCR próf. Tíu fullbólusettir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru fimm utan sóttkvíar. Innlent 15.7.2021 19:31
Nýjar aðgerðir kynntar á Kanaríeyjum Nýjar aðgerðir voru kynntar á Kanaríeyjum rétt í þessu og má ætla að hópur Íslendinga hafi fylgst stressaður með, þar sem margir hafa bókað sér ferð í sólina í sumar. Erlent 15.7.2021 18:56
Farþegar skemmtiferðaskips hugsanlega sekir um sóttvarnabrot á Djúpavogi Aðgerðastjórn Lögreglustjórans á Austurlandi hefur hugsanlegt sóttvarnarbrot til rannsóknar eftir að farþegar skemmtiferðaskips fóru í land á Djúpavogi án leyfis. Einn farþegi skipsins greindist smitaður af Covid-19 í fyrradag. Innlent 15.7.2021 18:27
Metfjöldi látinna af völdum ofneyslu fíkniefna í Bandaríkjunum Alls létust 92 þúsund manns í Bandaríkjunum vegna of stórs skammts fíkniefna á Covid-árinu 2020. Það er mesti fjöldi sem látist hefur í Bandaríkjunum á einu ári af völdum fíkniefna. Erlent 15.7.2021 18:08
Aðgerðir ekki hertar: Flest smit undanfarna daga af delta-afbrigðinu Frá 1. júlí hafa 23 einstaklingar greinst með Covid-19 hér innanlands, flest af völdum delta-afbrigðisins svokallaða. Sóttvarnalæknir er ekki með tillögur að hertum sóttvarnaraðgerðum að svo stöddu, en það gæti breyst. Innlent 15.7.2021 11:30