
Dýraheilbrigði

Telja ræktandann hafa leynt veikindum kattanna fyrir kaupendum
Ellefu eigendur Maine coon-katta frá kattaræktuninni Giant hearts í Suðurnesjabæ hafa tilkynnt ræktandann til Matvælastofnunar (MAST).

Kæra líkamsárás hundaeigenda á eftirlitsmann til lögreglu
Líkamsárás sem starfsmaður Matvælastofnunar varð fyrir í eftirliti hefur verið kærð til lögreglu.

Undirrituðu samkomulag um tilraunaverkefni um heimaslátrun
Markmið verkefnisins er sagt vera að leita leiða til þess að auðvelda bændum að slátra sauðfé heima til markaðssetningar þannig að uppfyllt séu skilyrði regluverks um matvælaöryggi og gætt sé að dýravelferð og dýraheilbrigði.

Aukning á salmonellu í svínum og alifuglum á síðasta ári
Salmonella í alifuglum og svínum var meiri árið 2019 samanborið við árið áður, en ekki var aukning á slíkum sýkingum í fólki.

Minkar hafa smitað minnst tvo af veirunni í Hollandi
Að minnsta kosti tveir hafa smitast af kórónuveirunni eftir að hafa komist í nánd við smitaða minka í Hollandi. Eru þetta fyrstu tilfelli slíkrar smitleiðar svo vitað sé.

Feitur og pattaralegur og veifaði ekki einu sinni bless
Búið að sleppa hringanóranum sem Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn fékk í fangið.

Klónið Samson í sérstakri hundaþjálfun í Aspen
Dorrit segir hundinn hafa þurft að fara í aðgerð.

Tígrísdýr í Bronx-dýragarðinum greindist með kórónuveiru
Fjögurra ára tígrísdýr í dýragarðinum í Bronx í New York í Bandaríkjunum hefur greinst með kórónuveirusmit.

Smitandi lifradrep veldur kanínudauða
Kanínur sem drápust í Elliðaárdal nýlega drápust vegna smitandi lifradreps en veiran RHDV2 (Rabbit Hemorhagic Disease Virus 2) veldur veikinni.

Heimilisköttur í Belgíu greindur með kórónuveiruna
„Sjúkdómar sem geta snert okkur mannfólkið geta farið í dýr og öfugt en í þessu tilfelli þá eru dýrin ekki neinn verulegur partur af smitkeðjunni heldur virðist í ákveðnum einstaklingum ná að fara yfir í dýrið,“ sagði Hanna Arnórsdóttir, dýralæknir á dýraspítalanum í Garðabæ.

Kanínudauði rakinn til lifradreps
Matvælastofnun segir að að öllum líkindum megi rekja veikindi og dauða mikils fjölda kanína í Elliðaárdalnum til sjúkdómsins smitandi lifrardrep.

Hvorki rottueitur né frostlögur drápu kanínurnar í Elliðaárdal
Kanínurnar sem drápust í Elliðaárdal virðast ekki hafa sungið sitt síðasta fyrir tilstuðlan músa- eða rottueiturs, frostlagar eða salta vegna hálkuvarna

Kórónuveiran greindist í hundi eftir að eigandinn smitaðist
Matvælastofnun fylgist vel með þekkingarþróun á þessu sviði.

Riða í Skagafirði
Matvælastofnun undirbýr nú aðgerðir eftir að hafa staðfest riðuveiki á bænum Grófargili, við Varmahlíð í Skagafirði.

Hringanórinn hámar í sig síld og er tekinn að hressast
Hefur fengið nafnið Kári.

Gerir helmingur allra hrossabænda sig sekan um vanrækslu eða dýraníð?
Margir virðast halda, að það sé almenn regla, að bændur á Íslandi annist dýr sín vel og fylgi lögum um dýravernd og dýravelferð í sínu dýrahaldi. Væri vel, ef rétt væri.

Nýtt sníkjudýr greinist í innfluttum hundi
Nýlega greindist sníkjudýrið Leishmania í fyrsta skipti í hundi hér á landi en hundurinn var fluttur til landsins árið 2018.

Garnaveiki greinist í Húnavatnshreppi
Garnaveiki greindist í kind á bænum Reykjjum í Húnavatnshreppi skömmu fyrir jól.

Einangrun hunda og katta stytt úr fjórum í tvær vikur
Tími sem hundar og kettir þurfa að vera í einangrun eftir innflutning til landsins verður styttur úr fjórum í tvær vikur.

Flutningur fjögurra hrúta tilkynntur til lögreglu
Matvælastofnun hefur óskað eftir lögreglurannsókn á meintum flutningi fjögurra lambhrúta frá Vestfjörðum til Norðurlands eystra.

Báðir mjög horaðir og annar dauður
Matvælastofnun hefur tekið páfagauk af eiganda á Norðurlandi vegna vanrækslu.

Banna flutning á alifuglum frá Dísukoti
Ástæða flutningsbanns er meintur ólöglegur innflutningur kalkúnafrjóeggja frá Færeyjum á síðasta ári. Undan eggjunum hafi komið svartir kalkúnar sem hafi verið í fréttum nýverið.

Garnaveiki í sauðfé á Tröllaskaga
Tilfellið uppgötvaðist við smölun um síðustu helgi og eftir að héraðsdýralæknir hafði skoðað kindina, sem var grunuð um að vera smituð, var henni lógað, sýni tekið úr henni og sent til greiningar á Keldum. Sýnið reyndist jákvætt með tilliti til garnaveiki.

Dularfulla hundaveikin: Fólk sem kemur frá Noregi gæti ítrustu varkárni
Bann við innflutningi hunda frá Noregi sem Matvælastofnun setti 6. september mun vera áfram í gildi um óákveðinn tíma.

Segir ólíklegt að dularfullur hundasjúkdómur berist til Íslands
Herdís Hallmarsdóttir, formaður Hundaræktarfélags Íslands, segir dularfullan sjúkdóm sem hefur komið upp í hundum í Noregi síðustu daga vera bakteríusýkingu sem orsakast af gerjun í rotnandi grænmeti í jörðu.

Kjúklingarnir sem lifðu henta til slátrunar
Framkvæmdastjóri Reykjagarðs segir að það hafi tekið langan tíma að átta sig á stöðu mála þegar bera fór á kjúklingadauða á búi í Landsveit.

Kjúklingabú á Hólavöllum í einangrun vegna nýrra sjúkdóma
Veirusjúkdómarnir Gumboro veiki og innlyksa lifrarbólga hafa greinst í kjúklingum á Rangárbúinu á Hólavöllum í Landssveit.

Leggja til að stytta einangrunartíma hunda um helming
Matvælastofnun leggur til að dvöl innfluttra hunda í einangrun verði stytt úr fjórum vikum í tvær vikur við komuna til landsins.

Skerpa þurfi á fyrirbyggjandi aðgerðum í sláturhúsum og kjötvinnslum
Formaður Bændasamtaka Íslands segir niðurstöður Matvælastofnunar um sjúkdómsvaldandi bakteríur í íslensku lamba- og nautakjöti koma á óvart. Rannsaka þurfi málin betur og skerpa á fyrirbyggjandi aðgerðum í sláturhúsum og kjötvinnslum. Skoðunin hafi hins vegar leitt í ljós sterka stöðu svína- og kjúklingakjöts.

Sjö hross felld vegna nýs taugasjúkdóms á Íslandi
Frá þessu er greint á vef Matvælastofnunar en þar segir að ekki sé um smitsjúkdóm að ræða og ekkert bendi til að hann sé arfgengur.