
Skoðanakannanir

Flokkur fólksins næði ekki manni á þing samkvæmt nýrri könnun
Sjálfstæðisflokkurinn fengi mest fylgi ef gengið yrði til Alþingiskosninga nú eða 22,5 prósent. Fylgi flokksins er þó nokkuð minna en í síðustu kosningum. Þá mælist Samfylkingin með næst mest fylgi eða 17,2 prósent.

Meirihluti fylgjandi því að bólusetning gegn Covid-19 verði skylda
Sex af hverjum tíu sem tóku afstöðu í nýrri könnun sem Zenter rannsóknir unnu fyrir Fréttablaðið vilja að bólusetning gegn Covid-19 eigi að vera skylda hér á landi.

Hangikjöt á boðstólum 65 prósent landsmanna
Þeim fær fækkandi sem bjóða upp á hangikjöt á jóladag en þó verður það á boðstólum hjá meirihluta landsmanna, ef marka má niðurstöður könnunar MMR sem framkvæmd var um miðjan desember. Samkvæmt henni búast 65 prósent landsmanna við því að snæða hangikjöt í dag.

Píratar mælast næststærsti flokkurinn í nýrri könnun
Sjálfstæðisflokkurinn er sem fyrr stærsti flokkur landsins miðað við nýja könnun sem Zenter gerði fyrir Fréttablaðið og birt er í dag. Flokkurinn mælist með 22,9 prósenta fylgi og dalar örlítið.

Enn fækkar þeim sem senda jólakort
Enn fækkar í hópi þeirra sem senda jólakort. Einungis sextán prósent segjast ætla að senda jólakort í bréfpóst í ár, að því er segir í niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Um 57 prósent segjast ekki ætla senda nein jólakort í ár, en 23 prósent segjast ætla að senda jólakort með rafrænum hætti.

92% Íslendinga ætla í bólusetningu
Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga er jákvæður í garð bólusetningar gegn Covid-19 en í könnun Maskínu sögðust 61% þátttakenda örugglega ætla í bólusetningu og 31% líklega ætla í bólusetningu.

Fylgi Sjálfstæðisflokks mælist rúm 27 prósent
Ný könnun MMR leiðir í ljós að fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 27,1 prósent, rúmlega tveimur prósentustigum hærra en við síðustu könnun sem framkvæmd var í fyrri hluta nóvember.

Fjórir af hverjum tíu Íslendingum segjast trúaðir
Rúmlega fjórir af hverjum tíu Íslendingum telja sig trúaða ef marka má könnun sem Maskína gerði fyrir lífskoðunarfélagið Siðmennt í janúar á þessu ári.

Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið og stuðningur við ríkisstjórnina eykst
Sjálfstæðisflokkurinn mælist sem fyrr stærsti flokkur landsins ef marka má nýja könnun MMR.

Skömmin gæti skýrt skekkju í spám
Eitt sem skýrt gæti skekkju í spám er einfaldlega það að kjósendur skammist sín fyrir að hafa kosið Trump.

Fylgi Sjálfstæðisflokks tæp 22 prósent í nýrri könnun
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 21,9 prósent í nýrri könnun MMR, tæplega fjórum prósentustigum lægra en í síðustu könnun sem framkvæmd var í september.

Sex af hverjum tíu telja mikilvægt að fá nýja stjórnarskrá
Um sex af hverjum tíu segjast nú telja mikilvægt að Íslendingar fái nýja stjórnarskrá á yfirstandandi kjörtímabili. Það er meira en tvöfaldur sá fjöldi sem telur það lítilvægt.

Minnkandi fylgi VG dregur stjórnarflokkana niður
Vinstri græn og Miðflokkurinn tapa fylgi á milli kannana hjá Fréttablaðinu en Samfylkingin bætir við sig prósenti.

Umburðarlyndi Íslendinga gagnvart innflytjendum eykst
Umburðarlyndi Íslendinga gagnvart innflytjendum hefur aukist á undanförnum þremur árum, samkvæmt nýrri heimskönnun Gallup.

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Samfylkingar minnkar
Fylgi Pírata og Miðflokksins eykst, en fylgi Samfylkingarinnar og Vinstri grænna minnkar í nýrri könnun MMR.

TikTok tekur risastökk meðal Íslendinga
Facebook er þó enn vinsælasti samfélagsmiðillinn á Íslandi.

Núverandi meirihluti fengi rúman meirihluta
Meirihlutinn myndi bæta við sig þremur borgarfulltrúum og fá 58 prósent atkvæða borgarbúa.

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur en fylgi Miðflokks minnkar
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi stjórnmálaflokka, eða 24,7 prósent. Það er tæplega tveimur prósentustigum meira en í síðustu mælingu sem gerð var um miðjan júní.

Guðni með 93% fylgi
Samkvæmt nýrri könnun sem gerð var af Gallup er Guðni Th. Jóhannesson, sitjandi forseti Íslands, með 93,5 prósenta fylgi í aðdraganda forsetakosninganna sem fram fara næstkomandi laugardag. Guðmundur Franklín Jónsson, mótframbjóðandi hans, er með 6,5 prósenta fylgi.

Könnun MMR: Píratar á siglingu
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 23,5 prósent í nýrri könnun MMR, rúmu prósentustigi meira en í síðustu könnun sem gerð var í upphafi maímánaðar.

Tvær kannanir sýna 60 prósent stuðning við ríkisstjórnina
Samanlagt njóta stjórnarflokkarnir þrír hins vegar á bilinu 43 til 47 prósenta stuðnings.

96% Íslendinga treysta almannavörnum og heilbrigðisyfirvöldum til að takast á við COVID-19
Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups treystir um 96% Íslendinga almannavörnum og heilbrigðisyfirvöldum á Íslandi til að takast á við COVID-19 sjúkdóminn.

Ríkisstjórnin bætir við sig miklu fylgi
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur ekki notið meira fylgis frá því í apríl 2018 þegar fimm mánuðir voru frá myndun hennar. Miðflokkurinn og Sósíalistaflokkurinn miss fylgi frá síðustu könnun en stuðningur við aðra flokka stendur í stað samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup.

Fjórir af hverjum fimm hafa áhyggjur af efnahagnum
79 prósent þeirra tæplega 1100 landsmanna eldri en átján ára sem tóku þátt í nýlegri könnun MMR segjast hafa frekar miklar eða mjög miklar áhyggjur af áhrifum af útbreiðslu kórónuveirunnar á íslenskan efnahag.

Meira en þriðjungur hefur breytt vinnufyrirkomulagi sínu
Kórónuveirufaraldurinn hefur leitt til þess að meira en þriðjungur landsmanna vinnur nú heima hjá sér að einhverju eða öllu leyti ef marka má nýja könnun MMR.

Meirihlutastuðningur við verkföll Eflingar
Skoðanakönnun sem stéttarfélagið Efling lét gera fyrir sig bendir til þess að almennur stuðningur sé við verkfallsaðgerðir þess.

Íslendingar ekki mælst svartsýnni í sex ár
Íslendingar hafa ekki mælst svartsýnni til stöðu og framtíðarhorfa í efnahags- og atvinnulífinu í sex ár, ef marka má Væntingavísitölu Gallup.

Fleiri Íslendingar hafna raunverulegum orsökum hlýnunar jarðar
Könnun Gallup leiðir í ljós að um níu prósentustigum fleiri telji nú að náttúrulegri þættir, ekki athafnir manna, valdi loftslagsbreytingum, þvert á vísindalega þekkingu á orsökum þeirra.

Sósíalistar með þrjá menn á þingi samkvæmt nýrri könnun
Flokkur fólksins dytti af þingi samkvæmt skoðanakönnun MMR.

VG hrynur í Norðvesturkjördæmi
Sósíalistaflokkurinn orðinn stærri í kjördæminu.