Lífið

Fréttamynd

Leitaði sér aðstoðar til Þýskalands vegna stams

"Ég stama sjálfur. Ég þekki þetta vandamál mjög vel þannig að ég átti ekkert erfitt með að leika þetta,“ segir kraftakarlinn Arnar Grant. Ný auglýsing Arnars og félaga hans Ívars Guðmundssonar fyrir próteindrykkinn Hámark í leikstjórn Hannesar Þórs Halldórssonar hefur vakið mikla athygli. Þar vísa þeir á skemmtilegan hátt í Óskarsverðlaunamyndina The King"s Speech sem fjallar um baráttu Georgs VI, konung Bretlands, við stam og ótta hans við að tala opinberlega.

Lífið
Fréttamynd

Skrælingjasýning Kristínar Svövu

Skrælingjasýningin nefnist ný ljóðabók eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur sem Bjartur gefur út nú í Dymbilviku. Þetta er önnur ljóðabók Kristínar Svövu, en hún vakti talsverða athygli fyrir frumraun sína, Blótgælur, sem kom út fyrir jól 2007. Var hún meðal annars valin ljóðabók ársins af starfsfólki bókaverslana.

Lífið
Fréttamynd

Dikta og GusGus opna Hörpu

Dikta, GusGus, Víkingur Heiðar og að sjálfsögðu Sinfóníuhljómsveitin verða meðal þeirra listamanna sem troða upp á opnunartónleikum Hörpunnar 13. maí. Opnunarathöfnin verður í beinni útsendingu Sjónvarpsins.

Lífið
Fréttamynd

Fallegustu prinsessur og prinsar heims

Vefsíðan BeautifulPeople.com fékk yfir hundrað þúsund manns til að velja tíu fallegustu prinsessur heims og kom nokkuð á óvart að Kate Middleton, tilvonandi eiginkona Vilhjálms Bretaprins, þótti fallegri en Díana prinsessa, móðir Vilhjálms.

Lífið
Fréttamynd

Gæsapartí á Ritz

Söngkonan Lily Allen ætlar að halda gæsapartí sitt á glæsihótelinu The Ritz í London. Allen ætlar að giftast unnusta sínum Sam Cooper í bænum Stroud í Glouchesterskíri 11. júní.

Lífið
Fréttamynd

Hárinu vegnar vel

Sex sýningum er lokið á söngleiknum Hárinu í Silfurtunglinu á Akureyri. Frumsýningin var á föstudaginn í síðustu viku í menningarhúsinu Hofi og gekk hún eins og í sögu. Sýningarnar halda áfram um páskana, eða á föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum.

Lífið
Fréttamynd

Í skattasúpu

Rokkarahjónin Ozzy og Sharon Osbourne fengu heldur betur að finna fyrir því þegar þeim barst krafa frá skattayfirvöldum í Bandaríkjum sem hljóðaði upp á tæpar 190 milljónir króna. Hjónin fengu fyrst veður af skattaskuldinni gegnum blaðamann sem hafði nælt sér í pappírana.

Lífið
Fréttamynd

Karlar ekki hrifnir af nýjustu tísku

Ef marka má könnun sem breska dagblaðið Daily Mail gerði hafa karlmenn mikla skoðun á því hverju konur klæðast eða öllu heldur hverju þær eiga ekki að klæðast.

Lífið
Fréttamynd

Kærastinn ekki ákærður

Matthew Rutler, hinn 25 ára kærasti söngkonunnar Christinu Aguilera, hefur sloppið við ákæru fyrir ölvunarakstur.

Lífið
Fréttamynd

Leikur helst illmenni

Breska fyrirsætan Elizabeth Hurley fór með gestahlutverk í sjónvarpsþáttum sem gerðir eru um ofurhetjuna Wonder Woman. Hurley lék illmenni í þessum fyrsta þætti þáttaraðarinnar og lét vel af.

Lífið
Fréttamynd

Rachel er tvíkynhneigð

Leikkonan Evan Rachel Wood viðurkennir í viðtali við tímaritið Esquire að hún girnist karla jafnt sem konur. Wood, sem var í löngu sambandi með rokkaranum Marilyn Manson, segist ekki setja kyn fyrir sig þegar hún leitar sér að maka.

Lífið
Fréttamynd

Léku sér að örlögunum

Leikkonan Kate Hudson á von á sínu öðru barni með kærastanum, breska söngvaranum Matt Bellamy. Parið hefur verið saman frá því síðasta vor og er þetta fyrsta barn Bellamys.

Lífið
Fréttamynd

Ræddi við móður Jeffs Buckley

Robert Pattinson, sem sló í gegn í Twilight-myndunum, hefur mikinn áhuga á að leika Jeff Buckley í nýrri kvikmynd um ævi tónlistarmannsins sáluga.

Lífið
Fréttamynd

Tekur upp nýja plötu

Leikarinn Jeff Bridges er að undirbúa nýja plötu með T-Bone Burnett, sem samdi tónlistina í myndinni Crazy Heart.

Lífið
Fréttamynd

Tónleikahald aftur í tísku

Fjöldi erlendra tónlistarmanna og skemmtikrafta er á leiðinni til Íslands á árinu. Mikil fjölgun hefur orðið síðan hrunið varð árið 2008. Tilkoma Hörpunnar spilar stóra rullu. Fréttir af hinum og þessum erlendu skemmtikröftum sem eru á leiðinni hingað til lands hafa verið tíðar að undanförnu.

Lífið
Fréttamynd

Umdeilt myndband

Söngkonan Lady Gaga sendir á föstudaginn langa frá sér myndband við lagið Judas. Það er annað smáskífulagið af væntanlegri plötu hennar Born This Way. Í myndbandinu er Gaga klædd sem María Magdalena og hafa ljósmyndir úr því þegar vakið mikla hneykslan hjá fjölda trúarhópa.

Lífið
Fréttamynd

Verslanakeðjan Lindex skoðar Ísland

„Við erum stöðugt að þreifa fyrir okkur á nýjum alþjóðlegum mörkuðum. Ísland er á lista með öðrum löndum sem við erum að skoða náið en við getum ekki gefið nein ákveðin svör í augnablikinu,“ segir Kaisa Lyckdal, fjölmiðlafulltrúi verslanakeðjunnar Lindex.

Lífið
Fréttamynd

Vont að gata eyrun

Hin unga og upprennandi leikkona Rooney Mara hefur þurft að þola miklar útlitsbreytingar til að líta út eins og Lisbeth Salander, til dæmis að lita hárið svart og klippa það stutt ásamt því að aflita á sér augabrúnir.

Lífið
Fréttamynd

Enn fleiri karlar sem hata konur

Niðurstaða: Ágætur reyfari þar sem hröð atburðarás og hrollvekjandi lýsingar af hremmingum fórnarlambsins sjá til þess að spennan heldur dampi til enda.

Gagnrýni
Fréttamynd

Músík í Mývatnssveit

Hin árlega tónlistarhátíð Músík í Mývatnssveit verður haldin í þrettánda sinn á morgun, skírdag, og föstudaginn langa.

Lífið
Fréttamynd

Að skapa er partur af því að vera til

Ágúst Borgþór Sverrisson hefur á undanförnum árum getið sér orð fyrir smásagnagerð. Nýlega sendi hann frá sér nýja nóvellu, Stolnar stundir, sem dregur dám af hans eigin lífi – og þó ekki.

Lífið
Fréttamynd

Frumsýna á föstudaginn langa

Leikfélagið Peðið frumsýnir leikritið Hlátur eftir Kristin Kristjánsson, fyrrverandi formann Hins íslenska glæpafélags, á föstudaginn langa.

Lífið
Fréttamynd

Helga Braga útskrifuð flugfreyja

Iceland Express getur væntanlega státað af fyndnasta flugfreyjuhópi landsins því á mánudag útskrifaðist Helga Braga Jónsdóttir úr flugfreyjuskóla flugfélagsins. Helga Braga mun hitta fyrir Eddu Björgvinsdóttur, sem kláraði skólann í fyrra. „Eða eins og einhver sagði við mig: Edda og Helga Braga? Hvenær byrjar eiginlega Laddi?“ segir Helga í samtali við Fréttablaðið.

Lífið
Fréttamynd

Breyttur bransi

Ofurfyrirsætan Cindy Crawford telur fyrirsætubransann hafa breyst mikið frá því hún var á hátindi ferils síns.

Lífið
Fréttamynd

Feðgar spila í Litháen

Feðgarnir Óskar og Pan Thorarensen sem skipa rafdúettinn Stereo Hypnosis spila á tónlistarhátíð í borginni Vilníus í Litháen 28. apríl. Hátíðin nefnist Jauna Muzika og er stærsta raftónlistarhátíð Eystrasaltsríkjanna. Þetta verður í fyrsta sinn sem þeir feðgar spila í Litháen en fyrir tveimur árum stigu þeir á svið í Eistlandi, Lettlandi og í Rússlandi.

Lífið
Fréttamynd

Gnarr sýnd á Tribeca-hátíðinni

"Það er mjög gleðilegt að komast inn á svona stóra og flotta hátíð. Þetta verður ofsalega gaman,“ segir leikstjórinn Gaukur Úlfarsson. Heimildarmynd hans, Gnarr, verður sýnd þrívegis á kvikmyndahátíðinni Tribeca í New York um páskana og verður frumsýningin á föstudaginn langa. Myndin fjallar um ævintýralega leið Besta flokksins í borgarstjórn með Jón Gnarr fremstan í flokki.

Lífið