Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)
39 40 41 42 43 44 45 46 47 … 148 ›
Mikilvægt að ekki verði til tvær mismunandi þjóðir í landinu Fyrirhugað er að koma upp einingahúsum fyrir allt að þúsund umsækjendur um alþjóðlega vernd hér á landi. Þá munu börn hælisleitenda sækja nám í sértæku úrræði áður en þau fara í almennt skólakerfi. Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir mikil tækifæri fólgin í að taka vel á móti fólki. Innlent 29.6.2023 20:31
Rangt gefið á Reykjanesi Ég hef í rúm fjögur ár gegnt embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS), sem ber þær lögboðnu skyldur að veita ört fjölgandi íbúum Suðurnesja eins fullkomna heilbrigðisþjónustu og völ er á, líkt og segir í lögum um heilbrigðisþjónustu. Réttindi íbúanna eru ekki einungis tryggð með lögum og reglum, heldur einnig í stjórnarskrá. Það er því skylda stjórnvalda að tryggja stofnuninni nægilegt fjármagn svo unnt sé að veita þá þjónustu sem íbúarnir eiga rétt á. Skoðun 29.6.2023 16:01
Hvar eru gögnin? Þegar matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, tók fyrirvaralaust ákvörðun um stöðvun veiða á langreyðum við Ísland 20. júní sl. óskuðu Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) samstundis eftir afriti af lögfræðilegri ráðgjöf og öðrum gögnum að baki þeirri ákvörðun ráðherra frá matvælaráðuneytinu. Skoðun 29.6.2023 13:30
„Verulega alvarleg áhrif á þetta ríkisstjórnarsamstarf“ Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist ekki vilja taka ríkisstjórnina af lífi í beinni útsendingu í morgun. Hann sagði þó að þau deilumál sem hafa komið upp að undanförnu væru að hafa verulega alvarleg áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Innlent 29.6.2023 11:45
Ábyrgðarlaust Alþingi þar sem hver bendir á annan Gísli Rafn Ólafsson þingmaður Pírata ritar athyglisverða grein þar sem hann fer yfir upplifun sína af þingstörfunum og starfsemi Alþingis. Og þar er ekkert endilega fagurt um að litast. Innlent 29.6.2023 11:02
Stjórnvöld eru ekki hafin yfir lög Öflugt atvinnulíf eykur velsæld, en óstöðugleiki, þungt regluverk og aðrar kvaðir hamla atvinnulífinu og koma að endingu niður á lífskjörum okkar. Í alþjóðlegum úttektum hefur ítrekað verið sýnt fram á að mun fleiri hindranir eru til staðar í rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja en á hinum Norðurlöndunum. Það er óásættanleg staða. Skoðun 29.6.2023 11:00
Fjármálaráðherra ber fulla ábyrgð Alþingi veitti fjármálaráðherra heimild til að selja eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka með lögum um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum frá 2012 og sérstakri heimild í fjárlögum fyrir árið 2022. Skoðun 29.6.2023 07:30
Fantasíur innviðaráðherra Ein stærsta hugsjón okkar sem stofnuðum og störfum í Miðflokknum er að tryggja jöfn tækifæri íbúa um allt land, að skilja engan eftir. Því miður er það svo að landsbyggðin situr eftir á flestum sviðum þjónustu hins opinbera og á það jafnt við um menntamál, heilbrigðismál og stjórnsýslu. Skoðun 29.6.2023 06:27
Sláandi að menn telji enn söluna hafa verið farsæla Þingmenn stjórnarandstöðu telja mörgum spurningum enn ósvarað um mál Íslandsbanka. Bankasýslan segir ábyrgðina liggja hjá bankanum og að útboðið hafi verið eitt það farsælasta í Evrópu. Viðskipti innlent 28.6.2023 22:00
Aldrei færri í hópi stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar Einungis átján prósent svarenda segjast ánægðir með störf ríkisstjórnarinnar, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Hlutfallið hefur aldrei verið lægra. Innlent 28.6.2023 15:01
Samskipti sín við forstjóra HSS ávallt á formlegu nótunum Heilbrigðisráðherra segir samskipti sín við forstjóra HSS ávallt hafa verið á formlegu nótunum og getur ráðherra ekki tjáð sig um ásakanir hans. Segist hann einungis hafa verið að sinna eftirlitsskyldum sínum. Innlent 28.6.2023 12:41
Ótrúverðugt að „undirbúningur upp á tíu“ hafi leitt til niðurstöðu „drekkhlöðnum lögbrotum“ „Við þurfum að fá að sjá spilin um það hver var aðdragandinn því það er einfaldlega ekki trúverðugt að einhver undirbúningur hafi verið upp á tíu hafi leitt til niðurstöðu sem er drekkhlaðin lögbrotum.“ Innlent 28.6.2023 10:26
Bjarni segir erfitt að spá fyrir um framtíð stjórnarsamstarfsins Nú ásama tíma og fylgi stjórnarflokkanna hefur aldrei mælst minna ríkir mikil óvissa um framtíð stjórnarsamstarfsins vegna deilna um tímabundið hvalveiðibann ofan á mjög ólíkar áherslur í málefnum útlendinga. Innlent 27.6.2023 20:01
Bjarni beri fulla ábyrgð á straumi fólks frá Venesúela hingað Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er gáttaður á því sem hann vill meina að sé afar misvísandi málflutningur Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra. Innlent 27.6.2023 13:23
Framtíð stjórnarsamstarfsins gæti ráðist af hvalveiðimálum Framtíð stjórnarsamstarfsins gæti ráðist af því hvernig hvalveiðimálum framvindur innan ríkisstjórnarinnar. Forsætisráðherra bakkar upp ákvörðun matvælaráðherra um tímabundið veiðibann. Fjármálaráðherra og innviðaráðherra segja að málið hins vegar snúast um framtíð hvalveiða almennt og það hefði því átt að koma fyrir Alþingi. Innlent 27.6.2023 12:20
„Mér finnst þetta ekki gott innlegg í stjórnarsamstarfið“ Ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra þess efnis að banna hvalveiðar tímabundið leggst afar illa í þá Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins og Sigurð Inga Jóhannsson formann Framsóknarflokksins svo vægt sé til orða tekið. Innlent 27.6.2023 12:15
„Þetta er auðvitað alveg óásættanleg mæling fyrir Sjálfstæðisflokkinn“ Samfylkingin mælist nú tæplega níu prósentustigum stærri en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýrri Maskínukönnun. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir mælinguna óásættanlega fyrir flokkinn. Prófessor í stjórnmálafræði segir fylgisbreytingu Samfylkingarinnar vera að festa sig í sessi. Innlent 27.6.2023 12:12
Kanna hvort eldspúandi dreki geti brætt göt á íslensk fjöll Tveir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa undirritað viljayfirlýsingu við fulltrúa bandaríska fyrirtækisins EarthGrid um möguleika á notkun svokallaðrar kyndilborunar, eða plasma-borunar, við gerð jarðganga á Íslandi. Jarðgöng fyrir umferð og lagnagöng fyrir vatnsveitur og rafveitur eru meðal þeirra verkefna sem talin eru upp í viljayfirlýsingunni. Innlent 27.6.2023 12:02
Vilja að pólitísk ábyrgð í Íslandsbankamálinu sé skoðuð betur Þingflokkur Viðreisnar hefur farið fram á að Alþingi verði kallað saman sem fyrst vegna niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins um lögbrot við sölu Íslandsbanka. Forsætisráðherra segir ekkert tilefni fyrir þing til að koma saman. Innlent 27.6.2023 12:00
Sammála um alvarleika en ósammála um ábyrgð Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, og Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, eru sammála að um alvarlegt mál sé að ræða. Þau eru þó ekki á sömu blaðsíðu þegar kemur að ábyrgð fjármálaráðherra í því. Innlent 27.6.2023 11:27
„Það er ekki sjálfstætt markmið að Ísland verði endastöð“ Formenn ríkisstjórnarflokkanna sammælast um það að nauðsynlegt sé að gera meira í málefnum útlendinga. Katrín Jakobsdóttir segir engan efast um það að aukinn fjöldi hælisleitenda, og ekki síst innflytjenda, valdi álagi á alla innviði. Bjarni Benediktsson segir Sjálfstæðisflokkinn vilja að fleira fólki sé snúið við strax við komuna til landsins og vill koma móttökubúðum upp nálægt landamærunum. Sigurður Ingi Jóhannsson kallar eftir opnu samtali við alla þjóðina um málaflokkinn. Innlent 27.6.2023 10:50
Bankastjórnendur rúnir trausti og þurfa að axla ábyrgð Stjórnendur Íslandsbanka gengu fram af vanvirðingu fyrir verkefninu sem þeim var treyst fyrir þegar hlutir ríkisins í bankanum voru seldir í fyrra, að sögn forsætisráðherra. Innviðaráðherra segir augljóst að þeir þurfi að axla ábyrgð og að fullkomið vantraust ríki í garð þeirra. Innlent 27.6.2023 09:19
Samfylkingin langstærsti flokkurinn og ríkisstjórnin fellur enn Samfylkingin mælist nú tæplega níu prósentustigum stærri en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýrri Maskínukönnun. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna hefur ekki mælst minna frá kosningum og er nú 34,2 prósent. Könnunin fór fram 1. til 22. júní. Innlent 27.6.2023 08:34
Ákvörðun Svandísar standist ekki lög Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa sent frá sér tilkynningu þar sem segir að sú ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra að stöðva tímabundið veiðar á langreyðum standist ekki lög. Það er í það minnsta mat lögfræðistofunnar LEX sem samtökin fengu til að gera lögfræðilegt álit á gjörningnum. Innlent 27.6.2023 08:00
Stjórnmálaskörungurinn Svandís á sviðið Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra var ótvírætt maður nýliðinnar viku. Hún átti stórleik á hinum pólitíska vettvangi og virðist standa uppi með pálmann í höndunum. Innlent 27.6.2023 07:58
Formenn ræddu ágreinings- og átakamál í Pallborðinu á Vísi Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra mæta í Pallborðið á Vísi klukkan 8.30 til að ræða ýmis stór mál sem hafa reynst ríkisstjórninni erfið. Innlent 27.6.2023 07:19
Samskiptaörðugleikar ráðherra og forstjóra HSS áhyggjuefni Þingmaður Viðreisnar segir slæm samskipti forstjóra HSS og heilbrigðisráðherra hljóta að vera áhyggjuefni fyrir íbúa svæðisins. Ekkert varð fundi heilbrigiðsráðherra með forstjóranum í dag sem var frestað á síðustu stundu. Innlent 26.6.2023 21:01
Samstaða meðal forsætisráðherra Norðurlandanna og Kanada í Eyjum Forsætisráðherrar Norðurlandanna ítrekuðu stuðning þjóðanna við Úkraínu á árlegum sumarfundi þeirra í Vestmannaeyjum í dag þar sem Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada var sérstakur gestur. Innlent 26.6.2023 19:45
Formenn stjórnarflokkanna í Pallborðinu í fyrramálið Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra ræða ýmis ágreinings- og átakamál á boðri ríkisstjórnarinnar í Pallborðinu hjá Heimi Már Péturssyni fréttamanni á Vísi og Stöð 2/Vísi í fyrramálið klukkan hálf níu. Innlent 26.6.2023 19:15
Bankinn hafi brugðist trausti Fjármálaráðherra segir ljóst af sátt Íslandsbanka og Seðlabanka Íslands að Íslandsbanki hafi brugðist því trausti sem honum var sýnt þegar ákveðið var að hann myndi sjálfur sjá um útboð á hlut ríkisins í bankanum. Viðskipti innlent 26.6.2023 17:14
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti