

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, var ekkert sérstaklega sáttur í leikslok þegar hans menn lutu í gras fyrir FH.
ÍA vann mikilvægan og óvæntan 2-1 sigur á Íslandsmeisturum Vals í Pepsi Max-deild karla í fótbolta á laugardag. Farið var yfir fórnfýsi leikmanna Skagaliðsins í varnarleik sínum í Pepsi Max stúkunni, og velti Baldur Sigurðsson því upp hvort lukkan væri að snúast hjá Skagamönnum.
Íslandsmeistarar Vals töpuðu óvænt fyrir botnliði ÍA í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu um helgina. Valur varð fyrir því óláni að skora tvö sjálfsmörk en varnarleikur liðsins í síðara marki ÍA var til umræðu í Stúkunni að leik loknum.
ÍA vann Val, 2-1, þegar botn- og topplið Pepsi Max-deildar karla áttust við á Akranesi í dag. Þetta var fyrsti sigur Skagamanna síðan 21. maí og gríðarlega mikilvægur fyrir þá.
Það voru óvænt úrslit í Lengjudeild kvenna er þrír leikir fóru fram í tíundu umferð deildarinnar fóru fram.
„Mér finnst allt tal um rautt spjald argasta vitleysa,“ sagði Atli Viðar Björnsson um brot Sindra Snæs Magnússonar, leikmanns ÍA, gegn Leikni í Pepsi Max-deildinni í fótbolta í gærkvöld. Rauða spjaldið fór reyndar á loft, vegna mótmæla.
Leiknir unnu sinn fjórða heimaleik í kvöld þegar þeir lögðu botnlið ÍA, 2-0.
ÍA tapaði 2-0 fyrir nýliðum Leiknis í kvöld. Leiknir voru heilt yfir betri aðilinn út á grasinu sem skilaði sér í tveimur mörkum og þremur stigum.Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA var afar svekktur í leiks lok.
Þrír leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í dag. KR vann 2-0 sigur gegn grönnum sínum í Gróttu og eru nú með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar. Grindavík og Víkingur skiptu stigunum á milli sín, sem og ÍA og Haukar.
Víkingur fékk umdeilda vítaspyrnu í uppbótartíma leiksins gegn ÍA í leik liðanna í Pepsi Max deildinni. Vítaspyrnudómurinn var til umræðu í Stúkunni að leik loknum.
Reynsluboltinn Beitir Ólafsson var frábær er KR ríghélt í 2-1 forystu manni færri gegn KA á Dalvíkurvelli í Pepsi Max deildinni í knattspyrnu. Þá var nýliðinn Árni Marinó Einarsson grátlega nálægt því að tryggja ÍA stig í Fossvogi. Víkingur tryggði 1-0 sigur með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma.
Hörð viðbrögð eins efnilegasta knattspyrnumanns landsins á samfélagsmiðlum eru dæmi um það hversu ósáttir Skagamenn voru með vítaspyrnuna sem Víkingar fengu í uppbótartíma í gær.
Víkingur vann 1-0 sigur á ÍA í Víkinni í Fossvogi í kvöld. Víkingar jafna Breiðablik að stigum í 2.-3. sæti deildarinnar með sigrinum en vítaspyrnumark Nikolaj Hansen undir lok uppbótartíma tryggði þeim sigurinn.
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA var virkilega svekktur með 0-1 tapið gegn Víkingum í Pepsi Max-deild karla fyrr í kvöld.
Botnlið Pepsi Max deildar karla hefur sótt hollenska varnarmanninn Wout Droste. Þá segist Ísak Snær Þorvaldsson ætla að vera áfram í herbúðum ÍA en lánssamningur hans á að renna út á næstu dögum.
Jóhannes Karl, þjálfari ÍA, var að vonum svekktur í leikslok þegar Skagamenn gerðu 2-2 jafntefli við Keflavík á Akranesi í kvöld.
Skagamenn eru enn á botni Pepsi Max deildarinnar eftir 2-2 jafntefli gegn Keflavík í kvöld. ÍA komst í 2-0 en glutraði niður forystunni.
FH, ÍA, Fjölnir og HK eru komin áfram í sextán liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir að hafa unnið leiki sína í 32-liða úrslitunum í kvöld.
Fylkismenn tóku á móti Skagamönnum á Würth vellinum í dag á þessum sólríka sunnudegi. Skagamenn voru án fyrirliða síns, Óttars Bjarna, sem að fékk rautt spjald í seinasta leik gegn KA eftir hættulega tæklingu.
Áttundu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Þó enn eigi eftir 7. umferð mótsins þá var sú áttunda kláruð í gær. Hún hófst þann 12. júní og lauk svo í gær með tveimur leikjum.
KA hafði ekki spilað leik í 24 daga er liðið heimsótti Skipaskaga í dag. Það kom ekki að sök en liðið vann öruggan 2-0 sigur á ÍA í Pepsi Max deild karla.
FH vann góðan 3-0 sigur á ÍA á útivelli í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu í kvöld.
KR vann 3-1 sigur á ÍA í sjöundu umferð Pepsi Max-deildar karla í fótbolta í kvöld. Um er að ræða fyrsta heimasigur KR í sumar.
Valur, KA og Breiðablik sóttu öll þrjú stig á útivöll í Pepsi Max deild karla í fótbolta í gærkvöldi og nú er hægt að sjá mörkin úr leikjunum hér inn á Vísi.
Jóhannes Karl Guðjónsson var ekki sáttur í leikslok eftir 3-2 tap ÍA gegn Breiðabliki í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu en var þó ánægður með ýmsa hluti í leik sinna manna.
Flóðgáttirnar gáfu sig í síðari hálfleik upp á Skaga þar sem Breiðablik vann 3-2 sigur á heimamönnum í ÍA er liðin mættust í Pepsi Max deild karla í kvöld.
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA var virkilega ánægður með sína menn eftir leik kvöldsins. Skagamenn unnu sinn fyrsta leik á tímabilinu og eru komnir með fimm stig nú þegar 5. umferð er að ljúka.
ÍA tókst að sigra sinn fyrsta leik á tímabilinu en þeir mættu HK í Kórnum í hörkuleik. Þrátt fyrir að heimamenn voru meira með boltann unnu Skagamenn sannfærandi 3-1 sigur.
Króatíski markvörðurinn Dino Hodzic lék sinn fyrsta leik í efstu deild þegar ÍA gerði markalaust jafntefli við Stjörnuna í fyrradag. Hann komst vel frá sínu eins og fjallað var um í Pepsi Max Stúkunni.
Skagamenn tefla fram nýjum markverði í kvöld eftir að fyrirliðinn Árni Snær Ólafsson sleit hásin í leik við FH á fimmtudaginn. Sá heitir Dino Hodzic og er 25 ára Króati sem er hæstánægður með lífið á Akranesi.