Besta deild karla

Áskorun frá KSÍ: Allt samfélagið horfir til okkar og fylgist með
KSÍ sendi frá sér skilaboð til síns fólks í gær og þar kemur meðal annars fram að allir þurfi nú að snúa bökum saman og sýna að íslenka knattspyrnufjölskyldan sé traustsins verð.

Stjarnan næst titlinum og KR ekki í fallsæti
Boltinn byrjar aftur að rúlla í Pepsi Max-deild karla í fótbolta þar sem segja má að Stjarnan sé næst titlinum. Breiðablik stendur vel að vígi í Pepsi Max-deild kvenna þar sem heil umferð fer fram á sunnudag og mánudag.

„Ólafur Karl er geysilega sterk viðbót og svo setur hann viðmið í klæðaburði“
Ólafur Karl Finsen styrkir lið FH fyrir seinni hluta tímabilsins. Þetta segir Logi Ólafsson, annar þjálfara FH.

Rauschenberg lánaður til HK
Danski miðvörðurinn Martin Rauschenberg hefur verið lánaður til HK og mun klára tímabilið með liðinu.

Víðir svaraði gagnrýni leikmanna: Hafa meiri heimild en við hin
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segir sjálfsagt mál að knattspyrnufólk sýni ábyrgð í sínu daglega lífi, til að forðast kórónuveirusmit, í ljósi þeirra forréttinda sem það nýtur varðandi tveggja metra regluna.

Leikur Celtic og KR verður sýndur beint á Stöð 2 Sport
Einvígi íslensku og skosku meistaranna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í næstu viku.

Áhorfendur ekki leyfðir um sinn
Hlutirnir gerast hratt á tímum kórónuveirufaraldursins og nú er orðið ljóst að áhorfendur verða ekki leyfðir á íþróttaleikjum hérlendis á næstunni.

Pepsi Max stúkan: Hræðsla leikmanna við fallbaráttu
Þeir Guðmundur Benediktsson, Atli Viðar Björnsson og Tómas Ingi Tómasson krufðu neðri hluta Pepsi Max-deildarinnar til mergjar í Stúkunni sem var á dagskrá á mánudagskvöldið.

Uppfært: Áhorfendur bannaðir
Áhorfendur verða ekki leyfðir á íþróttaleikjum frá og með morgundeginum þegar leyft verður á ný að stunda íþróttir með snertingu hér á landi.

Ólafur Karl: Er búinn að vera heill í allt sumar
Ólafur Karl Finsen, sem gekk í raðir FH á láni frá Val í gær, segist hafa verið heill heilsu í allt sumar.

„Fylgjum öllum reglum eftir bestu getu“
Þjálfari ÍA segir að félagið muni gera sitt allra besta til að fara eftir ströngum sóttvarnarreglum þegar keppni á Íslandsmótinu hefst á ný.

Ólafur Karl lánaður til FH
Valur hefur lánað Ólaf Karl Finsen til FH og mun hann leika með Fimleikafélaginu út tímabilið.

Félagi Djair úr West Ham klár í slaginn með Fylki
Enski knattspyrnumaðurinn Michael Kedman er orðinn gjaldgengur með liði Fylkis í Pepsi Max-deildinni í fótbolta. Hann getur spilað með liðinu gegn ÍA á laugardaginn.

Pepsi Max stúkan: Tveggja metra reglan í hávegum höfð í varnarleik Skagamanna
Spekingar Pepsi Max stúkunnar hafa ekki verið hrifnir af varnarleik Skagamanna í sumar og segja að þeir hafi verið full djarfir að nota tveggja metra regluna í sumar.

Engir áhorfendur þegar boltinn fer aftur af stað
Ef íslenski boltinn fer að rúlla á föstudaginn, eins og vonir standa til, verður það án áhorfenda.

„Búið að vera mikið af hauskúpuleikjum hjá KA“
Tómas Ingi Tómasson er ekki hrifinn af því hvernig KA byggir upp sitt spil.

Atli Viðar um Víkinga: „Hrífst af þeim en er taktíkin svona góð?“
Víkingur var á meðal þeirra liða sem voru til umræðu í Pepsi Max stúkunni á mánudaginn.

Íslenski fótboltinn byrjar aftur á Pepsi Max fótbolta fjóra daga í röð
FH og Stjarnan eiga að spila tvisvar sinnum á rétt rúmum þremur sólarhringum um helgina eins og leikjaplanið lítur núna út hjá Knattspyrnusambandi Íslands.

Blikar kalla Stefán Inga til baka úr láni
Breiðablik hafnaði beiðni Grindavíkur um að fá Stefán Inga Sigurðarson á láni út tímabilið.

Andstæðingar Víkings í sóttkví
Olimpija Ljubljana þarf að fara í sóttkví eftir að þrír leikmenn liðsins greindust með kórónuveiruna. Liðið á að mæta Víkingi síðar í mánuðinum.

Tómas Ingi um Gróttu-leiðina: „Fallegt en ofboðslega heimskt“
Tómas Ingi Tómasson segir að Gróttu þurfi að breyta um aðferðafræði til að eiga möguleika á að leika í Pepsi Max-deild karla á næsta tímabili.

Valsmenn sendu KSÍ súkkulaðiköku
Knattspyrnusamband Íslands fékk sendingu í dag frá Valsmönnum.

FH bíður eftir staðfestingu frá heilbrigðisráðherra
FH gengur út frá því að spila heimaleik sinn í undankeppni Evrópukeppninnar á heimavelli.

KSÍ miðar við að boltinn byrji að rúlla á föstudaginn
Knattspyrnusamband Íslands miðar nú við að keppni í meistaraflokkum í fótbolta, sem og í 2. og 3. flokki, geti hafist að nýju á föstudaginn.

Breiðablik kaupir Atla Hrafn af Víkingi
Breiðablik hefur fest kaup á miðjumanninum Atla Hrafni Andrasyni frá Víkingi R. og hefur hann skrifað undir langtímasamning við Kópavogsfélagið.

Adam ákvað að velja Víking
Bikarmeistarar Víkings R. hafa fengið knattspyrnumanninn Adam Ægi Pálsson frá Keflavík en fleiri félög í Pepsi Max-deildinni voru með hann í sigtinu.

FH vill spila í Skessunni lengist Íslandsmótið
Valdimar Svavarsson, formaður knattspyrnudeildar FH, segir að félagið vilji spila í knatthúsi sínu, Skessunni, geti þeir ekki spilað á grasvelli sínum undir lok Íslandsmótsins í knattspyrnu.

Blikar gætu fengið sigur eða undanþágu til að komast til Noregs
Leikmenn Breiðabliks gætu þurft að fá undanþágu frá sóttvarnareglum í Noregi til að mæta þar liði Rosenborg. Fáist sú undanþága ekki gæti Blikum verið úrskurðaður sigur, 3-0.

Liðin mega ekki ganga saman út á völl, varamenn sitja ekki saman og engar liðsmyndir leyfðar
Strangar sóttvarnarreglur verða í gildi þegar og ef íslenski fótboltinn fer aftur af stað í lok vikunnar.

„Í versta falli þurfum við að geta sagt nei“
FH-ingar bíða enn eftir endanlegu svari hvort þeir geti spilað leikinn gegn Dunajská Streda í Evrópudeildinni á heimavelli.