Besta deild karla

Fleiri mörk á sig úr föstum leikatriðum en allt síðasta tímabil
FH-ingar eiga í vandræðum með að verjast föstum leikatriðum í Pepsi-deildinni.

Sjáðu þrennuna hans Ásgeirs er KA valtaði yfir Fylki
KA pakkaði Fylki saman sem er búið að tapa fimm leikjum í röð.

Sjáðu mörkin sem Blikar settu á FH-inga
Breiðablik valtaði yfir FH í 13. umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta.

Felix Örn yfirgefur ÍBV
Bakvörðurinn Felix Örn Friðriksson hefur spilað sinn síðasta leik fyrir ÍBV í sumar og er á leið í dönsku úrvalsdeildina.

Kári neitar því að um „leikrit“ hafi verið að ræða
Kári Árnason er á leið til Tyrklands og spilar ekki með Víkingum eins og búist var við.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - FH 4-1 | Breiðablik niðurlægði FH
Blikar fóru í annað skipti illa með FH á þessu tímabili.

Óli Kristjáns: Asnalegt að nota það sem afsökun fyrir þessu tapi
Ólafur Kristjánsson var súr og svekktur eftir að FH steinlá gegn Blikunum í Kópavogi í kvöld.

Gulli: Ég hef alveg átt nokkrar ágætis markvörslur í sumar
Það var ekki að sjá í kvöld að Gunnleifur Gunnleifsson (Gulli), markmaður Blika, sé elsti leikmaður Pepsi-deildarinnar. Varði hann nokkrum sinnum frábærlega í síðari hálfleik í stöðunni 1-1 og á hann því stóran þátt í mikilvægum 4-1 stórsigri Breiðabliks á FH í kvöld.

Helgi Sig: Þótt Óli sé góður er hann enginn Messías
Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis, var, eins og gefur að skilja hundfúll eftir stórt tap gegn KA í Pepsi-deildinni.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Stjarnan 1-0 | Óskar Örn stöðvaði Stjörnuna
Óskar Örn Hauksson skoraði eina mark KR er liðið stoppaði Stjörnuna sem hafði fyrir leikinn í kvöld unnið sex leiki í röð.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KA - Fylkir 5-1 | KA burstaði lánlausa Fylkismenn
KA heldur áfram í stuðinu og burstaði Fylki fyrir norðan. Fylkismenn eru í fallsæti og eru búnir að tapa fimm í röð.

Sjáðu glæsimark Óskars, dramatíkina í Grafarvogi og markasúpuna á Hlíðarenda
Óskar Örn Hauksson skoraði sitt fyrsta mark í Pepsi-deildinni þetta sumarið gegn Stjörnunni og það var af dýrari gerðinni. Nóg af mörkum voru skoruð í dag.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - Víkingur 4-1 | Valur rúllaði yfir Víking
Valur lengi í engum vandræðum með heita Víkinga á Hlíðarenda.

Óskar Örn: Við unnum toppliðið, held ég
Markaskorarinn Óskar Örn Hauksson var að vonum ánægður eftir 1-0 sigur KR á Stjörnunni í dag.

Logi: Óskum Kára góðs gengis
Logi Ólafsson, þjálfari Víkings, þurfti að horfa upp á lið sitt fá skell í dag gegn toppliði Vals í kvöld er hans menn töpuðu 4-1. Ekki nóg með það heldur fóru tveir menn Víkings út af vellinum meiddir áður en fyrri hálfleikur var hálfnaður.

Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir 1-1 ÍBV | Jafntefli í sex stiga slagnum
Fjölnir og ÍBV skildu jöfn í fyrsta leik dagsins í Pepsi-deild karla.

Kári mun ekki leika með Víkingi - Á leið til Tyrklands
Víkingur Reykjavík hefur staðfest að Kári Árnason muni ekki leika með liðinu í Pepsi-deild karla í sumar.

Grindavík samdi við finnskan bakvörð
Grindvíkingar hafa samið við Elias Alexander Tamburini um að spila með félaginu í Pepsi deild karla.

KR-ingar elstir og með fæsta uppalda í Pepsi-deildinni
Eyjamenn eru með yngsta liðið en Fylkismenn spila á flestum uppöldum.

Berisha með Fjölni út tímabilið
Fjölnir hefur framlengt lánsamning sænska framherjans Valmir Berisha út tímabilið.

Pepsimörkin: Þessir voru bestir í fyrri umferðinni
Fyrri umferð Pepsi deildar karla í fótbolta er lokið og var hún gerð upp af sérfræðingum Pepsimarkanna á Stöð 2 Sport. Það þarf ekki að koma mikið á óvart að Stjörnumaðurinn Hilmar Árni Halldórsson var valinn besti leikmaður fyrstu ellefu leikjanna.

Ólafur Ingi kominn með félagsskipti í Fylki
Félagsskipti landsliðsmannsins Ólafs Inga Skúlasonar í Fylki eru gengin í gegn og er hann því löglegur með liðinu í næsta leik í Pepsi deildinni.

Hitinn hrellir Valsmenn í Þrándheimi
Valsmenn eru nú staddir í Þrándheimi í Noregi en liðið spilar við heimamenn í Rosenborg annað kvöld. Hitabylgja er í Noregi og hefur valdið einhverjum vandræðum.

Pepsimörkin: KA er með besta byrjunarliðið eins og er
KA vann 2-1 sigur á Grindavík í síðasta leik sínum í Pepsi deild karla. Liðið er komið í áttunda sæti, fjórum stigum frá fallsæti. Sérfræðingar Pepsimarkanna fóru yfir sigurmark KA í leiknum í þætti gærkvöldsins.

Pepsimörkin: Keflvíkingar ættu að fara „back to basics“
Keflavík er eitt þriggja liða á Íslandi sem ekki hefur unnið fótboltaleik á þessu tímabili. Hin liðin tvö spila í fjórðu deild. Guðlaugur Baldursson sagði upp starfi sínu sem þjálfari Keflavíkur og aðstoðarmaður hans Eysteinn Húni Hauksson hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari. Sérfræðingar Pepsimarkanna ræddu Keflvíkinga í þætti gærkvöldsins á Stöð 2 Sport.

Pepsimörkin: Klárt rautt spjald á Sindra
Víkingur komst í fimmta sæti Pepsi deildar karla með sigri á Keflavík í 10. umferð deildarinnar á föstudag. Sindri Þór Guðmundsson mátti telja sig heppinn að hafa ekki fengið rautt spjald í leiknum.

Loksins útskýrt hvers vegna KA-markið var dæmt af: „Framkvæmdin á þessu er rosalega léleg“
Gunnar Jarl Jónsson tók fyrrverandi kollega sína í gegn fyrir hörmungina í Grindavík.

Rúnar um Björgvin Stefáns: Vonandi læknast hann og kemur aftur
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var nokkuð sáttur með sitt lið eftir 5-2 sigur á Fylki í Egilshöllinni í kvöld. Hann sagðist vonast eftir Björgvini Stefánssyni aftur í KR-liðið áður en sumarið er úti en Björgvin er tímabundið frá á meðan hann leitar hjálpar vegna misnotkunar á róandi lyfjum.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - Fjölnir 2-1 | Aukaspyrna Olivers í uppbótartíma munurinn
Oliver Sigurjónsson tryggði Blikum sigur með aukaspyrnumarki í uppbótartíma. Blikarnir eru því með 22 stig en Fjölnismenn ellefu.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fylkir - KR 2-5 | KR-ingar sigruðu í markaveislu í Egilshöll
KR vann 5-2 sigur á Fylki í sjö marka leik í Egilshöllinni í kvöld. Fylkir hefur nú tapað síðustu fjórum deildarleikjum sínum í röð.