
Besta deild karla

Betri leikmaður en fyrir ári
Finnur Orri Margeirsson samdi í gær við annað íslenska stórliðið á einu ári en hann gerði þriggja ára samning við KR. Hann væri til í að spila aftur erlendis.

Atli áfram hjá FH
Mun skrifa undir nýjan samning við FH von bráðar.

Finnur Orri: KR sýndi mér mestan áhuga
Finnur Orri Margeirsson var kynntur til leiks hjá KR í dag en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Vesturbæjarliðið.

Finnur Orri búinn að skrifa undir hjá KR
Finnur Orri Margeirsson var í dag kynntur sem nýr leikmaður KR.

Markahæsti leikmaður Fjarðabyggðar undanfarin tvö ár búinn að semja við Þrótt
Framherjinn Brynjar Jónasson er genginn í raðir Þróttar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Finnur Orri kynntur til leiks hjá KR
KR-ingar hafa boðað til blaðamannafundir klukkan 14.00 í dag þar sem þeir munu kynnan nýjan leikmann félagsins.

Hvert félag í Pepsi-deildinni fær 3,35 milljónir frá UEFA
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur samkvæmt venju úthlutað hluta af þeim tekjum sem sambandið hafði af Meistaradeildinni til félaga í öllum aðildarlöndum UEFA. KSÍ leggur út fyrir 38 milljónum króna til viðbótar til annarra félaga.

Kiko Insa sendir stjórn og þjálfurum Keflavíkur "kveðjur" í gegnum Twitter
Kiko Insa, leikmaður Arema Cronus í Indónesíu, sendir þjálfurum og stjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur kveðjur í gegnum Twitter-síðu sína í dag. Kiko lék með Keflavík fyrri hluta sumars.

Gregg Ryder þjálfar Þrótt til ársins 2017
Gregg Ryder mun stýra Þrótturum í Pepsi-deildinni næsta sumar en hann var að framlengja samning sinn við Þróttara til 2017.

Rasmus á leið frá KR
Tvö lið búin að ná samkomulagi við KR um kaupverð á danska varnarmanninum.

Stoðsendingakóngurinn til Sarpsborg
Kristinn Jónsson, besti leikmaður Pepsi-deildar karla 2015 að mati Fréttablaðsins, hefur yfirgefið Breiðblik og samið við norska úrvalsdeildarliðið Sarpsborg 08. Þetta kemur fram á Blikar.is og á heimasíðu norska liðsins.

Valur fær rúmar 20 milljónir fyrir Pedersen
Norska félagið Viking keypti danska sóknarmanninn á 1,5 milljónir norskra króna.

Beitir fylgir Þorvaldi til Keflavíkur
Markvörðurinn Beitir Ólafsson hefur söðlað um og mun leika með Keflavík næstu tvö árin.

Pedersen seldur til Noregs
Markahæsti leikmaður Pepsi-deildar karla síðasta sumar, Patrick Pedersen, verður ekki áfram í íslenska boltanum.

Atli líklega áfram hjá FH
Erlend lið hafa áhuga en ekkert lið hefur gert tilboð enn sem komið er.

KR og FH mætast í þriðju umferð í Pepsi-deildinni
Á formanna- og framkvæmdastjórafundi sem haldinn var í höfuðstöðvum KSÍ í dag var dregið í töfluröð í Pepsi-deild kvenna og karla og 1. og 2. deild karla.

Öruggt hjá KR gegn Víkingi
KR-ingar voru ekki í neinum vandræðum með Víkinga er liðin mættust í Bose-bikarnum í kvöld.

Eyjólfur: Fengið að kíkja heim í mesta svartnættinu
Eyjólfur Héðinsson kemur heim frá Midtjylland um áramótin en hann er búinn að skrifa undir samning við Stjörnuna.

Eyjólfur Héðinsson í Stjörnuna
Garðbæingar ná í annan miðjumann fyrir baráttuna í Pepsi-deild karla næsta sumar.

ÍBV birtir sannanir sínar gegn Fylki
Forráðamenn ÍBV eru ekki sáttir við að Fylkir skuli reyna að bera af sér sakir þrátt fyrir dóm KSÍ í Sito-málinu svokallaða.

Fylkir þarf að greiða sekt vegna Sito: „Félagið telur sig ekki hafa brotið af sér“
Fylkismenn segjast ekki geta borið ábyrgð á samskiptum milli umboðsmanna og leikmanna.

Emil: Nokkuð viss um að vera með fast byrjunarliðssæti
Emil Atlason spilar með Þrótti í Pepsi-deild karla í fótbolta á næsta tímabili.

Emil Atlason samdi við Þrótt
Nýliðarnir byrjaðir að styrkja sig fyrir komandi átök í Pepsi-deild karla í fótbolta.

Baldur: KR sýndi lítinn sem engan áhuga | Kemur heim sem betri leikmaður
Baldur Sigurðsson, sem gekk í raðir Stjörnunnar í dag, segir að KR hafi haft lítinn sem engan áhuga á að sækjast eftir starfskröfum Baldurs. Baldur skrifaði undir þriggja ára samning við Stjörnuna.

Garðar Jó ráðinn spilandi aðstoðarþjálfari Fylkis
Garðar Jóhannsson hefur verið ráðinn spilandi aðstoðarþjálfari Fylkis næstu þrjú árin, en félagið tilkynnti þetta á blaðamannafundi í morgun.

Baldur Sigurðsson í Stjörnuna
Baldur Sigurðsson er genginn í raðir Stjörnunnar, en þetta staðfesti hann í fótboltaþættinum Fótbolta.net á X-inu nú fyrir skömmu.

Stjarnan og FH berjast um Baldur
Samningur miðjumannsins hjá SönderjyskE í Danmörku á að renna út um áramótin.

Jónas Guðni spilar með litla bróður næsta sumar
Jónas Guðni Sævarsson er kominn heim því þessi 32 ára miðjumaður hefur ákveðið að spila með Keflvíkingum í 1. deildinni í fótbolta næsta sumar.

Gary Martin: Við Bjarni tókum á þessu eins og karlmenn
Gary Martin ætlar að mæta öflugir til leiks í Pepsi-deildina næsta sumar og hefur ákveðið að spila áfram með KR eftir að hafa sest niður með Bjarna Guðjónssyni, þjálfara KR.

Atli Guðnason hefur mögulega spilað sinn síðasta leik
Er samningslaus hjá FH og segir að allt komi til greina - líka að hætta.