Besta deild karla

„Þau öskruðu nafnið mitt og ég skilaði mínu“
Hinn tvítugi sóknarmaður Fylkis, Óskar Borgþórsson, skoraði fjórða mark sinna manna og gulltryggði 4-2 sigur gegn FH í 3. umferð Bestu deildarinnar.

Ísak Andri: Erum með öflugt vopnabúr í sóknarleiknum
Ísak Andri Sigurgeirsson skilaði svo sannarlega góðu kvöldverki þegar lið hans, Stjarnan, bar sigurorð af HK, 5-4, í þriðju umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í kvöld. Ísak Andri lagði upp þrjú mörk og skoraði eitt sjálfur.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - FH 4-2 | Nýliðarnir komnir á blað
Nýliðar Fylkis eru komnir á blað í Bestu deild karla eftir 4-2 sigur á FH í 3. umferð en þetta var fyrsta tap FH á tímabilinu.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Víkingur - KR 3-0 | Víkingar með fullt hús stiga eftir stórsigur
Víkingur vann sannfærandi sigur á KR í stórleik 3. umferðar Bestu deildar karla í Víkinni í kvöld. Heimamenn áttu aldrei í vandræðum með óspennandi KR lið sem náði ekki að finna taktinn en munurinn á gæðunum í spilamennsku liðanna var augljós. Sterkur sigur Víkings var því óumflýjanlegur og liðið endar umferðina á toppi deildarinnar með fullt hús stiga, lokatölur 3-0.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - HK 5-4 | Heimamenn komnir á blað eftir ótrúlegan leik
Stjörnumenn eru ekki lengur stigalausir eftir magnaðan 5-4 sigur á nýliðum HK í þriðju umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í kvöld.

„Þegar þú ert í Val þá er ekkert annað í boði en að vinna titla“
Adam Ægir Pálsson segir meiri pressu fylgja því að spila fyrir Val samanborið við Keflavík hvar sem hann spilaði í fyrra. Adam Ægir varð stoðsendingakóngur á síðustu leiktíð og lagði upp tvö mörk þegar Valur vann Fram í Bestu deild karla á sunnudag.

Mörkin úr Bestu: Fór boltinn í höndina á Viktori Erni?
ÍBV vann dramatískan 2-1 sigur á Íslandsmeisturum Breiðabliks í 3. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Sigurmarkið kom úr umdeildri vítaspyrnu í uppbótartíma. Þá vann Valur 3-1 sigur á Fram í Úlfarsárdal.

Jón Þórir: Guðmundur Andri viðurkenndi að það var lítil sem engin snerting
Jón Þórir Sveinsson, þjálfari Fram, fannst frammistaða lærisveina sinna verðskulda stig þegar lið hans laut í lægra haldi fyrir Val í þriðju umferð Bestu deildar karla í fótbolta í Úlfarsárdalnum í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - Valur 1-3 | Tryggvi Hrafn skoraði tvö eftir að hafa komið inn af bekknum
Valur lagði Fram að velli með þremur mörkum gegn einu þegar liðin áttust við í þriðju umferð Bestu deildar karla í fótbolta í Úlfarsárdalnum í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: KA 0-0 Keflavík | Stigunum skipt á Akureyri
KA og Keflavík skiptu með sér stigunum í afar bragðdaufum leik þegar að liðin mættust á Akureyri fyrr í dag í Bestu deild karla. Niðurstaðan markalaust jafntefli.

„Ef við spilum svona verðum við ekki í toppbaráttu“
„Ég er mjög svekktur með frammistöðuna í þessum leik. Við spilum ekki nógu góðan leik, ég held við getum bara verið ánægðir með þetta eina stig,“ sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA eftir 0-0 jafntefli á móti Keflavík á Greifavellinum í dag.

Ósáttir Blikar senda pillu til Eyja | „Oft reynist flagð undir fögru skinni“
Lesa má út úr færslu sem stuðningsmenn Breiðabliks birtu á samfélagsmiðlinum Twitter að þeir hafi verið ósáttir með þær vallaraðstæður sem boðið var upp á í leik ÍBV og Breiðabliks í Bestu deild karla í dag.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV 2-1 Breiðablik | Dramatík í Eyjum
ÍBV gerði sér lítið fyrir og lagði ríkjandi Íslandsmeistara Breiðabliks á Hásteinsvelli í dag þegar að liðin mættust í Bestu deild karla. Eiður Aron Sigurbjörnsson tryggði ÍBV stigin þrjú sem í boði voru með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma venjulegs leiktíma.

Meistararnir spila heimaleik í Árbæ því KSÍ bannaði skipti
Íslandsmeistarar Breiðabliks spila næsta heimaleik sinn ekki á Kópavogsvelli heldur í Árbæ, í Bestu deild karla í fótbolta.

Léttirinn mikill: „Ég var hættur í fótbolta í sólarhring“
Hilmari Árna Halldórssyni, leikmanni Stjörnunnar, var býsna létt eftir að hann fékk góð tíðindi frá lækni í gær. Hann fór meiddur af velli í leik liðs hans við FH sem fram fór á Miðvelli, frjálsíþróttavelli FH, sem var ekki vel á sig kominn.

Þvertekur fyrir fullyrðingar íslenskra miðla um meiðsli sín
Danski sóknarmaðurinn Jannik Pohl, leikmaður Bestu deildar liðs Fram gefur lítið fyrir fréttaflutning íslenskra fjölmiðla af meiðslum sínum og ætlar sér að vera mættur aftur inn á knattspyrnuvöllinn eftir tvo mánuði.

KR og Víkingur víxla leikjum | Mætast í Víkinni á mánudag
KR og Víkingur Reykjavík hafa samið um að víxla heimaleikjum liðanna í deildarkeppni Bestu deildar karla í sumar. Meistaravellir í Vesturbæ er ekki klár til knattspyrnuiðkunar er liðin eigast við í næstu umferð.

Óskar Hrafn tók málin í sínar hendur og birti næsta byrjunarlið Blika á Twitter
Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur farið heldur óvenjulega leið til að koma í veg fyrir að hægt verði að leka byrjunarliði Breiðabliks í Fjölni fyrir bikarleik liðanna. Hann birti það einfaldlega á Twitter-síðu sinni.

Patrik varar við því að nú gæti olnbogaskotum fjölgað
Patrik Johannesen, sóknarmaður Breiðabliks, segir að það verði mikið um olnbogaskot í Bestu deildinni í fótbolta í sumar fari dómarar sömu leið og gert var í leik Breiðabliks og Vals í gær.

„Þetta er risastór varsla“
Sindri Kristinn Ólafsson, markmaður FH, varði vítaspyrnu Jóhanns Árna Gunnarssonar í 1-0 sigri FH gegn Stjörnunni á sunnudaginn.

„Þetta er rosalega KR-legt“
KR-ingar byggja sóknarleik sinn mikið á spili upp kantana. Það skilaði sér í báðum mörkum þeirra í 0-2 sigri KR gegn Keflavík á laugardag á gervigrasinu fyrir utan Nettó-höllina í Bestu deildinni.

„Það er kannski búið að vera bíta okkur í rassinn“
Ólafur Íshólm Ólafsson, markmaður Fram, var besti leikmaðurinn í Kórnum í gærkvöldi þegar Fram sótti HK heim í Bestu deildinni. Leikurinn endaði 1-1 en án Ólafs í markinu hefðu heimamenn skorað að minnsta kosti eitt mark í fyrri hálfleik.

Mörkin úr Bestu: Blikar á beinu brautina, markamaskínan Ekroth og öll hin
Öll mörkin úr 2. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu má sjá hér að neðan.

Arnar Grétarsson: Það var ekki það sem varð okkur að falli í dag
Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, var ósáttur með niðurstöðu leiksins og fannst hans lið eiga meira skilið en 0-2 tap gegn Breiðablik á heimavelli.

Umfjöllun, myndir og viðtöl: Valur - Breiðablik 0-2 | Íslandsmeistararnir komnir á blað
Íslandsmeistarar Breiðabliks eru komnir á blað í Bestu deild karla í knattspyrnu eftir súrt tap gegn HK í 1. umferð. Meistararnir unnu góðan 2-0 útisigur á Val í kvöld og eru komnir á blað. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Umfjöllun og viðtöl: HK - Fram 1-1 | Tókst ekki að byggja á sigrinum á Kópavogsvelli
HK og Fram gerðu 1-1 jafntefli í blíðunni í Kórnum í 2. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Guðmundur Magnússon kom Fram yfir og Örvar Eggertsson jafnaði skömmu síðar.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Fylkir 2-0 | Víkingar áfram á sigurbraut
Víkingur byrjar tímabilið vel í Bestu deild karla í knattspyrnu. Tveir leikir, tveir sigrar, fjögur mörk skoruð og ekkert fengið á sig. Fylkir hefur hins vegar tapað fyrstu tveimur leikjum sínum. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Rúnar Páll: Að tala um andleysi í mínu liði er bara þvílík þvæla
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, kvaðst vera stoltur af sínum mönnum í dag en var að vonum svekktur með að vera lentur undir snemma leiks. Víkingur bar sigurorð af Fylki 2-0 í 2. umferð Bestu deildar karla í leik sem leið fyrir veðuraðstæður.

Vuk Oskar: Náðum að finna taktinn í seinni hálfeik
Vuk Oskar Dimitrijevic fer vel af stað í Bestu-deild karla í fótbolta á þessari leiktíð en hann tryggði FH-liðinu stigin þrjú þegar liðið fékk Stjörnuna í heimsókn í Kaplakrika í annarri umferð deildarinnar í dag.

Umfjöllun og viðtöl: KA - ÍBV 3-0 | Öruggur sigur KA aldrei í hættu
KA vann öruggan sigur á ÍBV í Bestu deild karla í dag, 3-0. Ásgeir Sigurgeirsson, Bjarni Aðalsteinsson og Þorri Mar Þórisson skoruðu mörkin gegn ÍBV sem átti erfitt sóknarlega og var sem liðið hefði varla trú á því að það gæti skorað.