
Besta deild karla

Umfjöllun og viðtöl: KA 2-1 Breiðablik | Blikar sigraðir á Akureyri
KA sigraði Breiðablik, 2-1, í frábærum fótboltaleik á Greifavellinum á Akureyri í dag. Hallgrímur Mar skoraði sigurmark leiksins úr vítaspyrnu á 87. mínútu eftir að gestirnir höfðu jafnað leikinn.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Víkingur R. 0-3 | Góður fyrri hálfleikur dugði gegn orkulausum Keflvíkingum
Víkingur fylgdi 9-0 sigrinum eftir með nokkuð sannfærandi sigri á Keflavík 0-3. Öll mörk Víkings komu í fyrri hálfleik. Þetta var ekki sama flugeldasýningin og í síðasta leik en Íslandsmeistararnir kláruðu verkefnið fagmannlega. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Umfjöllun og viðtöl: FH-ÍA 6-1 | FH-ingar léku Skagamenn grátt í fallslag í Kaplakrika
FH lagði ÍA að velli með sex mörkum gegn einu þegar liðin áttust við í afar mikilvægum leik í fallbaráttu Bestu deildar karla í fótbolta í Kaplakrika í dag.

Umfjöllun: ÍBV-Fram 2-2| Allt jafnt í Eyjum
ÍBV tók á móti Fram á Hásteinsvelli í 21. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í dag. Það var mikið skorað í síðustu viðureign liðana sem endaði 3-3 og virtist engin breyting ætla að vera þar á í þessum leik. Guðmundi Magnússyni leið vel á sínum gamla heimavelli og skoraði tvö mörk fyrir Fram. Telmo Ferreira Castanheira og Alex Freyr Hilmarsson gerðu eitt mark hvor fyrir ÍBV. Lokatökur 2-2.

Bein útsending: KR-Stjarnan
KR tekur á móti Stjörnunni í 21. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir bæði lið í baráttunni um sæti í efri hluta úrslitakeppninnar en sýnt er frá leiknum í beinni útsendingu á Stöð 2 Vísi.

Fylkismenn tryggðu sér efsta sætið með stæl
Fylkismenn eru Lengjudeildarmeistarar í fótbolta og tryggðu efsta sætið í dag en enn er ein umferð eftir af mótinu.

Heimir í viðræður við HB
Knattspyrnuþjálfarinn Heimir Guðjónsson gæti mögulega verið á leið aftur til starfa í Færeyjum þar sem hann starfaði við afar góðan orðstír.

Þakkar fyrir ógleymanlegan stuðning eftir útreiðina í Víkinni
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis í Reykjavík, setti inn færslu á samfélagsmiðilinn Twitter í morgun eftir 9-0 tap liðs hans fyrir Íslands- og bikarmeisturum Víkings í Bestu deild karla í gærkvöld. Hann þakkar fyrir stuðning úr stúkunni við svo erfiðar aðstæður.

Sjáðu mörkin er Víkingum tókst næstum því að losna við metið slæma
Íslandsmeistarar Víkings unnu 9-0 stórsigur á Leikni Reykjavík er liðin mættust í Bestu deild karla í gærkvöld. Víkingar voru þar með einu marki frá því að losna við met sem hefur fylgt þeim frá árinu 1993.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur 9-0 Leiknir | Víkingar jöfnuðu met þegar þeir niðurlægðu Leikni
Víkingar rótburstuðu Leikni úr Breiðholti í Bestu deild karla í kvöld. Lokatölur 9-0 þar sem Leiknismenn sáu ekki til sólar.Fyrsta mark Víkinga kom á 14.mínútu og svo komu mörkin á færibandi. Staðan í hálfleik var 5-0 og eftir 42 sekúndur í síðari hálfleik var staðan orðin 6-0. Víkingar stigu aldrei af bensíngjöfinni en með sigrinum jafna þeir metið yfir stærsta sigur í sögu efstu deildar.

Arnar hugsaði út í metið: Aðalatriðið að taka ekki fótinn af pedalanum
„Frammistaðan var nánast fullkomin. Ég bað um svör eftir síðasta leik og fékk þau svo sannarlega, ég átti nú ekki von á þessu,“ sagði Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga eftir 9-0 sigur liðsins á Leikni í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld.

Gat ekki andað í 20 sekúndur: „Ég er bara glaður að ég sé á lífi“
Logi Tómasson segist allur vera að braggast eftir harkalegt högg sem hann fékk í leik Víkings og ÍBV í Bestu deild karla á sunnudag. Hann vonast til að geta spilað gegn Leikni í kvöld.

Beerschot staðfestir komu Nökkva
Nökkvi Þeyr Þórisson, markahæsti leikmaður Bestu deildar karla, er genginn í raðir Beerschot í Belgíu.

Sjáðu markið sem færði Blika nær titlinum
Breiðablik steig stórt skref í átt að Íslandsmeistaratitlinum með 1-0 sigri á Val í lokaleik 20. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í gær.

Ólafur Davíð: „Virkuðum hræddir framan af þessum leik"
Ólafur Davíð Jóhannesson þurfti að horfa upp á fyrsta tap Valsliðsins síðan hann tók við liðinu á nýjan leik um mitt sumar þegar Hlíðarendapiltar töpuðu fyrir Breiðabliki með einu marki gegn engu í 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld.

Óskar Hrafn: „Horfi ekki lengra en í næsta leik fyrir norðan“
Óskar Hrafn Þorvaldsson sveif ekki upp til skýjanna í gleði sinni þrátt fyrir að lið hans, Breiðablik, hafi náð 11 stiga forskoti á toppi Bestu deildar karla í fótbolta með 1-0 sigri gegn Val í 20. umferð deildarinnar á Kópavogsvelli í kvöld.

Umfjöllun: Breiðablik-Valur 1-0 | Langþráð mark Ísaks Snæs tryggði Blikum 11 stiga forskot
Breiðablik lagði Val að velli með einu marki gegn engu þegar liðin áttust við í 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld. Það var Ísak Snær Þorvaldsson sem reyndist hetja Blika í leiknum.

Framkvæmdastjórinn um ákvörðun KA að selja Nökkva Þey: „Mjög erfið en samt í raun ekki“
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, segir það markmið KA að koma leikmönnum út í atvinnumennsku. Það sé því í raun erfið ákvörðun, en samt ekki, að leyfa Nökkva Má Þórissyni að fara til belgíska B-deildarliðsins Beerschot.

Þurfa að afsanna fullyrðingar Íslandsmeistaranna
Stórleikur er á dagskrá í Bestu deild karla í kvöld er Breiðablik og Valur eigast við á Kópavogsvelli klukkan 19:15. Blikar geta komist í vænlega stöðu á toppi deildarinnar með sigri.

Besti þátturinn: Skot Bjarna Ben söng í samskeytunum
Fjórða viðureignin í Besta þættinum hefur hefur verið gefin út en í þættinum eru leikmenn og stuðningsmenn liða í Bestu deildinni paraðir saman í keppni á móti pari frá öðru liði.

Sjáðu markaveisluna á Akranesi, dramatíkina í Víkinni og ótrúlega endurkomu Norðanmanna
Nóg var um að vera í Bestu deild karla í fótbolta í gær er fimm leikir voru á dagskrá. Alls voru skoruð 18 mörk í leikjunum.

Sjáðu vítaklúðrin hjá FH í botnslagnum
Tvær vítaspyrnur fóru í súginn hjá FH í botnslagnum gegn Leikni í Breiðholtinu í 20. umferð Bestu deildar karla í gær. Steven Lennon skaut í slá og Viktor Freyr Sigurðsson varði svo frá Birni Daníel Sverrissyni á lokaandartökum leiksins.

„Aldrei leiðinlegt að klobba og skora“
Jakob Snær Árnason sá til þess að KA fór heim til Akureyrar með eitt stig í farteskinu með því að skora jöfnunarmark liðsins gegn Fram á elleftu stundu. KA-menn lentu 2-0 undir en skoruðu tvö mörk í uppbótartíma.

Umfjöllun og viðtal: Stjarnan-Keflavík 0-2 | Keflvíkingar sterkari í Garðabænum
Keflavík vann flottan 0-2 sigur á Stjörnunni í tuttugustu umferð Bestu deildarinnar í kvöld í leik sem bæði liðin þurftu að vinna. Sigurinn setur mikla pressu á Stjörnuna og KR sem sitja enn sem komið er í efri hluta deildarinnar. Frans Elvarsson og Joey Gibbs skoruðu mörkin fyrir gestina sem voru einfaldlega sterkari aðilinn í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fram - KA 2-2 | Meistari Jakob kom KA til bjargar
Þökk sé tveimur mörkum í uppbótartíma fór KA úr Úlfarsárdalnum með eitt stig eftir 2-2 jafntefli við Fram í 20. umferð Bestu deildar karla í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: ÍA-KR 4-4 | Markaveisla á Skaganum
Erkifjendurnir ÍA og KR skildu jöfn 4-4 á Akranesvelli í dag. Gestirnir komust í 0-3 stöðu áður en hálftími var liðinn. Heimamenn minnkuðu forystuna niður í eitt mark fyrir hálfleik og jöfnuðu svo í upphafi síðari hálfleiks. Bæði lið áttu eftir að bæta við sitthvoru markinu í hreint mögnuðum leik.

„Ömurleg byrjun sem varð okkur að falli“
Hinn tvítugi sóknarmaður ÍA, Eyþór Wöhler skoraði 2 mörk í annað sinn á móti KR á þessu tímabili. Báðir leikir liðanna hafa verið hádramatískir og alls fjórtán mörk skoruð í þeim.

Umfjöllun og viðtal: Víkingur R.-ÍBV 2-2 | Halldór Smári bjargaði stigi fyrir meistarana
Íslandsmeistarar Víkings misstigu sig í toppbaráttu Bestu deildar karla í fótbolta er þeir fengu ÍBV í heimsókn í dag. Halldór Smári Sigurðsson jafnaði metin í blálokin eftir að ÍBV hafði komist 2-0 yfir snemma leiks. Eyjamenn misstu hins vegar markmann sinn af velli með rautt spjald í fyrri hálfleik og náðu Víkingar að nýta sér það, þó ekki nægilega vel til að tryggja sér þrjú stig. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Umfjöllun og viðtöl: Leiknir R.-FH 0-0 | Viktor Freyr hetja Leiknis er hann varði vítaspyrnu í uppbótartíma
Leiknir Reykjavík og FH gerðu markalaust jafntefli í sannkölluðum sex stiga fallslag í Bestu deild karla í dag. Gestirnir úr Hafnafirði brenndu af tveimur vítaspyrnum í leiknum. Þá fyrri setti Steven Lennon í þverslána og þá síðari, á síðustu mínútu uppbótartíma, varði Viktor Freyr Sigurðsson frá Birni Daníel Sverrissyni.

Arnar Gunnlaugsson: Eyjamenn voru bara kraftmiklir
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var eðlilega ekki ánægður með leik síns liðs gegn ÍBV í Bestu deildinni í dag en honum var þó létt að hafa náð inn jöfnunarmarki í uppbótartíma.