Íslenski handboltinn

Formaður hkd. Hauka: HSÍ ætti að vera löngu búið að aflýsa öllum mótum
Formaður handknattleiksdeildar Hauka, Þorgeir Haraldsson, setur mikla pressu á HSÍ að öll mót innan handboltahreyfingarinnar verði flautuð af vegna kórónuveirunnar.

Seinni bylgjan: „Finnst þetta algjörlega fáránleg ákvörðun og verið að gefa skít í kvennaboltann“
Einar Jónsson, þjálfari norska liðsins Bergøy, skilur ekkert í handknattleiksdeild ÍR að leggja niður meistaraflokk kvenna hjá félaginu og segir ákvörðunina asnalega. Hann segir að hún skjóti skökku við.

Berglind segir ÍR-ingum að skoða jafnréttisstefnu sína
Berglind Hrund Jónasdóttir, markvörður Stjörnunnar í fótbolta og uppalinn ÍR-ingur, harmar þá ákvörðun síns gamla félags að leggja niður kvennalið ÍR í handbolta.

Dagskráin í dag: Dominos Körfuboltakvöld í nýjum búning, magnaðar rimmur Grindavíkur og KR og Íslandsmeistaratitill Selfoss
Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar.

Óvissa með 65% af tekjum KA: Skilar sér í skerðingu á þjónustu eða uppsögnum
Sævar Pétursson, framkvæmdarstjóri KA, segir að KA viti ekki hvort 47 milljónir af þeim 75 milljónum sem reiknað hafði verið með í mars og apríl munu skila sér í hús vegna kórónuveirunnar.

ÍR dregur kvenna- og U-liðið úr keppni
Handknattleiksdeild ÍR hefur ákveðið að draga kvenna- og U-lið félagsins úr keppni á næstu leiktíð. Þetta staðfesti Sigurður Rúnarsson, formaður handknattleiksdeildar ÍR, í Sportinu í dag.

Ingvar um skuld KR: „Staðan ekki jafn slæm og tölurnar gefa til að kynna“
Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR, segir að þrátt fyrir stóra skuld KR sé staða félagsins ekki eins slæm og hún líti út fyrir að vera.

Leikmenn á Íslandi hafa áhyggjur | Ástandið ekki gott áður en þessi faraldur fór af stað
Arnar Sveinn Geirsson, forseti Leikmannasamtaka Íslands, segir ljóst að efnahagslegar afleiðingar kórónuveirunnar bíti íþróttafélög landsins sem hafi auk þess ekki verið í sérlega góðri stöðu áður en veiran breiddist út.

Sandra Erlingsdóttir aftur í raðir ÍBV
Sandra Erlingsdóttir er gengin aftur í raðir ÍBV eftir að hafa leikið með Val síðustu tvö tímabil. Þetta kemur fram í tilkynningu sem ÍBV gaf frá sér rétt í þessu.

Sportið í dag: Íþróttahús ÍR skreytt á einstakan hátt | Myndband
Henry Birgir Gunnarsson heimsótti Austurbergið, íþróttahús ÍR í Breiðholti, á föstudaginn var en þar er nóg um að vera þó engir iðkendur séu í húsinu.

Allt íþróttastarf fellur niður
Mælst er til þess að skipulagt íþróttastarf á Íslandi falli niður í óákveðinn tíma vegna aðgerða til þess að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar.

Íþróttaleikir í borginni eina sem er talið tengja smit í Eyjum
Tíu kórónuveirusmit hafa nú verið staðfest í Vestmannaeyjum. Lögreglan þar segir að það eina sem virðist tengja tilfellin saman séu íþróttakappleikir á höfuðborgarsvæðinu sem einstaklingarnir eða fólk þeim tengdir sótti sem áhorfendur eða leikmenn. Íþróttamiðstöðinni hefur verið lokað tímabundið.

Á dagskrá í dag: Heimildaþættir og körfuboltaveisla
Það er mikið af dagskrárefni í boði á Stöð 2 Sport og hliðarstöðvum í dag þrátt fyrir það ástand sem hefur skapast í íþróttaheiminum af völdum kórónuveirunnar.

„Þetta var mjög svekkjandi“ | Ragnheiður heldur í vonina um úrslitakeppni
Ragnheiður Júlíusdóttir og stöllur hennar í Fram voru einum leik frá því að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í handbolta þegar allri handboltakeppni á Íslandi var frestað um óákveðinn tíma vegna kórónuveirunnar.

Rúnar segir lífið í sóttkví sérstakt | Tímabilið eyða í sögunni?
Leikmenn og þjálfarar karlaliðs Stjörnunnar í handbolta hafa verið í sóttkví í tæpa viku eftir að meðlimur í þjálfarateymi liðsins smitaðist af COVID-19.

Hefur „ekki hugmynd“ um hvenær HSÍ getur klárað Íslandsmótið
HSÍ ákvað fyrr í dag að fresta öllum leikjum ótímabundið. Ákvörðunin kom eftir tilkynningu heilbrigðisráðherra fyrr í dag þar sem sett var á samkomubann en Róbert Geir Gíslason, framkvæmdarstjóri HSÍ, sagði ekkert annað í stöðunni.

HSÍ frestar öllum leikjum ótímabundið
Handknattleikssamband Íslands hefur ákveðið að fresta öllum leikjum ótímabundið frá og með deginum í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSÍ.

Leikjunum gegn Tyrkjum líklega frestað
Væntanlega verður ekkert af landsleikjum Íslands og Tyrklands í undankeppni EM 2020 sem spila átti í þessum mánuði.

Sviss mótherji Íslands í umspilinu
Ísland mætir Sviss í umspilsleikjum um laust sæti á HM 2021 í handbolta sem fer fram í Egyptalandi, 15. til 31. janúar á næsta ári.

Sterkur hópur hjá Arnari
Arnar Pétursson, þjálfari kvennalandsliðsins, valdi í dag 18 manna leikmannahóp en fram undan eru leikir í undankeppni EM 2020.

Umfjöllun: ÍBV - Stjarnan 26-24 | Eyjamenn bikarmeistarar í fjórða sinn
ÍBV vann tveggja marka sigur á Stjörnunni í úrslitaleik Coca Cola-bikars karla í handbolta.

Steinunn: Varnarleikurinn og markvarslan var á sturluðu stigi
Maður leiksins, Steinunn Björnsdóttir, leikmaður Fram, var að sjálfsögðu hæstánægð eftir sigurinn á KA/Þór í bikarúrslitaleiknum í handbolta í Laugardalshöll í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA/Þór 31-18| Fram er bikarmeistari kvenna
Fram vann stórsigur á KA/Þór í úrslitaleiknum í Laugardalshöll, 13 mörk skyldu liðin að í hálfleik. Yfirburðir Fram voru svakalegir

Framkonur fengu bikar að láni til að stilla sér upp á sigurmynd
Það er óhætt að segja að ýmislegt hafi breyst frá því að Fram mætti síðast liði frá Akureyri í bikarúrslitaleik kvenna í handbolta. Fram og KA/Þór mætast í Laugardalshöll á morgun.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Stjarnan 21-22 | Stjarnan í úrslitaleikinn eftir háspennu
Stjarnan er komin í úrslit í Coca Cola-bikars karla eftir eins marks sigur á móti Aftureldingu í undanúrslitum, 21-22 og mætir því ÍBV í Laugardalshöll í úrslitum á laugardaginn 7. mars.

Grétar Þór: Liðin eru að reyna að finna mótefni við þessu
ÍBV leikur til úrslita í Coca-cola bikarnum á laugardaginn eftir sigur á Haukum í undanúrslitum í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Haukar 27-26| ÍBV sló Hauka út í þriðja skiptið í höllinni
ÍBV vann eins marks sigur á Haukum í undanúrslitaleiknum. Hart barist frá fyrstu mínútu, ÍBV náði mest fjögurra marka forystu en Haukar komu alltaf tilbaka

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fram 17-23| Fram fór illa með Val í undanúrslitum
Aldrei spurning í uppgjöri bestu liðanna, Fram fór illa með Val í undanúrslitaleiknum

Umfjöllun og viðtöl: KA/Þór - Haukar 22-21 | Akureyringar í bikarúrslit
KA/Þór vann sigur á Haukum í æsispennandi undanúrslitaleik í Coca Cola-bikar kvenna í handbolta í Laugardalshöll í dag.

Yfirlýsing Harðar: Altalað að flugfélagið hafi styrkt Þór
Yfirlýsing handknattleiksdeildar Þórs Akureyri fyrr í dag virðist hafa hleypt illu blóði í Harðarmenn á Ísafirði og sættirnar sem áttu að hafa orðið í deilu félaganna eru fyrir bí.