

Hinir moldríkur eigendur Anzhi Makhachkala í Rússlandi munu nú vera á höttunum eftir Wesley Sneijder, leikmanni Inter á Ítalíu.
Zlatan Ibrahimovic hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann fyrir að slá til andstæðings um helgina. AC Milan, lið hans, hefur ákveðið að áfrýja úrskurðinum.
Miðjumaðurinn Daniel De Rossi hefur samþykkt nýjan fimm ára samning við AS Roma á Ítalíu. Samingur Ítalans átti að renna út í vor.
Fjölmargir leikir fóru fram í ítölsku úrvalsdeildinni í dag en þar ber helst að nefna stórsigur Roma gegn Inter Milan 4-0.
AC Milan mistókst að komast upp í efsta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar í kvöld en liðið tapaði fyrir Lazio, 2-0, í Róm. Inter og Palermo gerðu 4-4 jafntefli í fjörugum leik.
Edy Reja, þjálfari ítalska liðsins Lazio, væri ekki tilbúinn að skipta á Svíanum Zlatan Ibrahimovic og Þjóðverjanum Miroslav Klose. Zlatan hefur skorað þremur mörkum meira en Klose í vetur og Svíinn hefur orðið ítalskur meistari öll tímabil sín í deildinni.
Luca Toni, fyrrum framherji ítalska landsliðsins, er hættur hjá Juventus og búinn að semja við Al Nasr frá Dúbæ. Toni lék áður með Genoa, Roma, Bayern München, Fiorentina en gekk til liðs við Juve í byrjun síðasta árs.
AC Milan sigraði Cagliari 3-0 í 20. umferð ítölsku A-deildarinnar í kvöld og er því enn stigi á eftir Juvetnus á toppi deildarinnar.
Botnlið Lecce vann óvæntan 1-0 sigur á Inter í ítalska boltanum í dag. Þá skoraði Miroslav Klose tvö fyrir Lazio í sigri á Chievo sem nýtti sér tap Inter og skaust upp fyrir þá í 4. sæti deildarinnar.
Juventus jók forskot sitt á toppi Serie A í gærkvöld með 2-1 heimasigri á Udinese. Alessandro Matri skoraði bæði mörk heimamanna, hvort í sínum hálfleiknum.
AC Milan tryggði sér sæti í undanúrslitum ítalska bikarsins með því að vinna 3-1 sigur á Lazio í átta liða úrslitunum í kvöld. AC Milan mætir Juventus í undanúrslitunum en í hinum leiknum mætast Napoli og Siena.
Alessandro Del Piero skoraði eitt marka Juventus í 3-0 sigur á Roma í átta liða úrslitum ítalska bikarsins í kvöld. Juventus mætir annaðhvort AC Milan eða Lazio í undanúrslitunum.
Zlatan Ibrahimovic skoraði tvö mörk þegar AC Milan lagði botnlið Novara 3-0 á útivelli í Serie A á sunnudag. Grannarnir í Inter halda áfram að klóra í bakkann eftir hræðilega byrjun á tímabilinu en liðið lagði Lazio 2-1 á San Siro í gærkvöld.
Juventus jók í kvöld forystu sína á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar en fyrr í dag setti Francesco Totti, fyrirliði Roma, nýtt met í deildinni.
Emil Hallfreðsson spilaði allan leikinn í 2-0 sigri Hellas Verona á Juve Stabia í ítölsku B-deildinni í dag.
Silvio Berlusconi, eigandi AC Milan segist sjálfur hafa tekið þá ákvörðun að halda brasilíska framherjanum Alexandre Pato hjá félaginu en Paris Saint-Germain bauð 35 milljónir evra í leikmanninn í síðustu viku.
Inter sigraði nágrana sína í Milan 1-0 á útivelli í kvöld og heldur því áfram að nálgast topplið deildarinnar en Milan missti af tækifærinu á að ná tveggja stiga forystu á Juventus á toppi ítölsku deildarinnar.
Það ætlar að ganga illa hjá Manchester City að losa sig við Argentínumanninn Carlos Tevez en City náði ekki samkomulagi við AC Milan þegar forráðamenn félaganna hittust í London í gær.
Hinn 18 ára gamli Hörður Björgvin Magnússon skrifaði í dag undir fjögurra og hálfs árs samning við ítalska stórliðið Juventus. Leikmaðurinn staðfestir þetta á Twitter-síðu sinni í dag.
Hellas Verona mátti sætta sig við dramatískt 3-2 tap fyrir úrvalsdeildarfélaginu Lazio í 16-liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í kvöld. Er liðið því úr leik.
Það stefnir í baráttu á milli Mílanó-félaganna um Carlos Tevez því nú hefur Inter Milan blandað sér inn í málið fyrir alvöru. AC Milan hefur undanfarnar vikur reynt að fá Argentínumanninn að láni en nú hafa Inter-menn hafið viðræður við Manchester City um kaup á Tevez.
Hafnfirðingurinn Emil Hallfreðsson hefur gert það gott með nýliðum Hellas Verona í ítölsku B-deildinni. Liðið hefur ekki tapað í ellefu leikjum í röð og þar af unnið níu.
Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason ákvað að framlengja ekki samning sinn við norska félagið Viking þar sem hann hefur spilað undanfarin sex ár og er nú að leita sér að nýju félagi.
Toppliðin á Ítalíu - AC Milan og Juventus - unnu bæði góða útisigra í ítölsku úrvalsdeildinni í dag og haldast því áfram í hendur á toppnum.
Inter hefur heldur betur tekið við sér á síðustu vikum eftir ömurlegt gengi í upphafi tímabils. Inter vann í kvöld öruggan heimasigur á Parma, 5-0.
Claudio Ranieri, þjálfari Inter, hefur nú stigið fram fyrir skjöldu og lýst því yfir að það komi ekki til greina að selja Hollendinginn Wesley Sneijder í þessum mánuði.
Emil Hallfreðsson og félagar í Hellas Verona unnu dramatískan 2-1 sigur á FC Modena í ítölsku b-deildinni í kvöld en þetta var ellefti leikur Verona í röð án þess að tapa. Það stefndi þó í tap því liðið var undir þegar aðeins sex mínútur voru eftir af leiknum.
Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic er alls óhræddur við að skipta um skoðun á hlutunum. Hann segist nú vera opinn fyrir því að fara út í þjálfun að loknum ferlinum en hann hafði áður útilokað þann möguleika.
AC Milan hefur sýnt það í gegnum tíðina að félagið er óhrætt við að semja við óstýriláta leikmenn. Félagið er nú á höttunum eftir tveimur slíkum leikmönnum.
Svíinn Zlatan Ibrahimovic myndi fagna komu Carlos Tevez til AC Milan en sá síðarnefndi hefur mikið verið orðaður við ítalska stórveldið síðustu vikur og mánuði.