Ítalski boltinn

Byrjað að hagræða úrslitum leikja á Ítalíu á nýjan leik?
Ítalska knattspyrnusambandið hefur opnað rannsókn á 1-1 jafnteflisleik Chievo og Catania um helgina en grunur er um að úrslitum leiksins hafi verið hagrætt.

Meiðslavandræði AC Milan aukast - Pato með rifinn vöðva
Alexandre Pato, framherji AC Milan, verður frá keppni í næstu leikjum eftir að hann reif vöðva í fæti í leik liðsins í ítölsku úrvalsdeildinni um helgina.

Inter á eftir Vargas
Inter ætlar að bjóða Fiorentina 20 milljónir evra og markvörðinn Emiliano Viviano í skiptum fyrir vinstri vængmanninn Juan Vargas.

Markvörður Juve barði í borð og handleggsbraut sig
Antonio Chimenti, markvörður Juventus, spilar ekki fótbolta á næstunni eftir að hafa handleggsbrotið sig á afar klaufalegan hátt svo ekki sé nú meira sagt.

Moggi: Mourinho er allt of strangur
Gamli Juventus-maðurinn, Luciano Moggi, er ekki alls kostar sáttur við það hvernig Jose Mourinho, þjálfari Inter, fer með ungstirnið Mario Balotelli þessa dagana.

Leonardo: Breytti miklu að missa Pato af velli
AC Milan missteig sig í titilbaráttunni er liðið gerði 1-1 jafntefli við Napoli fyrr í kvöld. Hinn brasilísku þjálfari Milan, Leonardo, vill meina að meiðsli framherjans, Alexanders Pato, hafi sett strik í reikninginn.

AC Milan gerði jafntefli gegn Napoli
AC Milan tapaði dýrmætum stigum í toppbaráttunni á Ítalíu en þeir gerðu 1-1 jafntefli á móti Napoli í kvöld.

FC Bayern að undirbúa tilboð í Nicklas Bendtner
Samkvæmt Sunday Times er þýskaliði FC Bayern að undirbúa tilboð næsta sumar í Danska framherjann, Nicklas Bendtner, sem leikur með Arsenal.

Afmælisbarnið Ronaldinho hefur trú á sínu liði
Afmælisbarn dagsins Ronaldinho, leikmaður AC Milan, hefur trú á að lið sitt geti stolið titlinum af nágrönnum sínum í Inter Milan.

Jafntefli hjá Inter og AC getur komist á toppinn
Inter gerði í kvöld 1-1 jafntefli við Palermo í ítalska boltanum. Liðið er með tveggja stiga forskot í deildinni en AC Milan á leik inni gegn Napoli á morgun.

Forseti ítalska knattspyrnusambandsins vill ekki missa Mourinho
Giancarlo Abete, forseti ítalska knattspyrnusambandsins, er ekki eins óánægður með Jose Mourinho og margir landar hans. Abete vonast til þess að halda Mourinho sem lengst í ítölsku deildinni.

Tveir leikmenn Juve fá áminningu frá félaginu
Þeir Jonathan Zebina og Felipe Melo urðu sjálfum sér til skammar í Evrópuleiknum gegn Fulham í gær og félagið hefur nú brugðist við hegðun leikmannanna.

Bréf frá Beckham til liðs AC Milan
Leonardo, þjálfari AC Milan, las upp bréf frá David Beckham fyrir æfingu ítalska liðsins í dag. Tímabilinu er lokið hjá Beckham eftir meiðsli sem hann hlaut í síðustu viku.

Buffon orðinn pirraður á City-sögunum
Gianluigi Buffon, markvörður Juventus, hefur haft nóg að gera við að neita sögusögnum þess efnis að hann sé á leið til Manchester City.

Aðgerðin á Nesta gekk vel
Ítalski varnarmaðurinn Alessandro Nesta hjá AC Milan er kominn af skurðarborðinu og að sögn forráðamanna Milan gekk aðgerðin afar vel.

Galliani: Beckham velkominn aftur
Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, vonast til að David Beckham mæti aftur til AC Milan á næsta ári. Ljóst er að Beckham leikur ekki meira á þessu tímabili en hann verður frá í að minnsta kosti fjóra mánuði vegna meiðsla.

David Beckham sleit líklega hásin í sigri AC Milan
HM-draumar David Beckham dóu væntanlega í kvöld þegar enski landsliðsmaðurinn sleit líklega hásin í 1-0 sigurleik AC Milan á Chievo í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Beckham meiddist í lok leiksins og varð AC Milan að klára leikinn með tíu menn þar sem liðið var búið með skiptingarnar sínar.

Real Madrid og Inter berjast um varnarmann Lazio
Real Madrid hafa bæst við í kapphlaupið um hinn 24 ára varnarmann Lazio, Aleksandar Kolarov, en bæði Inter og Real Madrid vilja ólm fá hann í sínar raðir næsta sumar.

Leikur Inter hrundi á síðustu sextán mínútunum
Ítölsku meistararnir í Inter Milan koma með slæmt tap á bakinu inn í leikinn á móti Chelsea í Meistaradeildinni í næstu viku eftir að liðið fékk á sig þrjú mörk á síðustu sextán mínútunum á móti Catania í gær. Smáliðið vann 3-1 sigur og AC Milan getur því minnkað forskot Inter á toppnum í eitt stig.

Tímabilið hugsanlega búið hjá Nesta
Ítalski varnarmaðurinn Alessandro Nesta hjá AC Milan spilar hugsanlega ekki meira í vetur því hann þarf væntanlega að leggjast undir hnífinn vegna hnémeiðsla.

Buffon ætlar að hætta þegar hann kemst ekki lengur í landsliðið
Gianluigi Buffon, markvörður Juventus og ítalska landsliðsins, segir að framtíð hans með ítalska landsliðinu ráði algjörlega framtíð hans í fótboltanum. Buffon sem er 32 ára gamall, ætlar að leggja skóna á hilluna þegar hann verður ekki lengur valinn í landsliðið.

Mourinho á leið í lengra bann - skipti sér af leik Inter um helgina
Jose Mourinho, þjálfari Inter, gæti verið á leiðinni í lengra bann frá ítölsku úrvalsdeildinni eftir að upp komst að Portúgalinn hafi verið að koma taktískum skilaboðum til aðstoðarmanna sinna í leik Inter um helgina þegar hann átti að vera í leikbanni.

Pato með gegn Man Utd
Brasilíumaðurinn Pato æfði með AC Milan í morgun og verður í hópnum á miðvikudaginn þegar liðið leikur gegn Manchester United á Old Trafford.

Inter gerði aðeins jafntefli við Genoa
Lærisveinar Jose Mourinho hjá Inter misstígu sig aðeins í kvöld er liðið gerði markalaust jafntefli við Genoa á heimavelli.

Burdisso: Þetta er ekki búið
Nicolas Burdisso, varnarmaður Roma, vill meina að ekki sé öll von úti fyrir lið hans í titilbaráttunni á Ítalíu þó svo að liðið hafi gert markalaust jafntefli við AC Milan um helgina

Milan varð af tveimur mikilvægum stigum
Ekkert mark var skorað í stórleik kvöldsins í ítalska boltanum. Þá tók Roma á móti AC Milan á Ólympíuleikvanginum í Róm.

Langþráður sigur hjá Juventus
Það hefur nákvæmlega ekkert gengið upp hjá Juventus síðustu vikur en stuðningsmenn félagsins gátu leyft sér að brosa í kvöld þegar liðið vann góðan útisigur á Fiorentina, 1-2.

Ranieri vill fá Gallas til Rómar
Roma hefur áhuga á franska miðverðinum William Gallas hjá Arsenal. Samningur leikmannsins við enska félagið rennur út í sumar.

Huntelaar vill vera áfram hjá Milan
Hollenski framherjinn Klaas-Jan Huntelaar er hættur að hugsa um að komast burt frá AC Milan og ætlar þess í stað að festa sig í sessi hjá félaginu.

Juventus mun bjóða Diego og peninga fyrir Ribery
Juventus er eitt fjölmargra liða sem vill fá Frakkann Franck Ribery í sínar raðir. Juve ætlar að gera Bayern freistandi tilboð í leikmanninn.