Ítalski boltinn

Slæmar fréttir fyrir Juventus en miklu betri fréttir fyrir Tottenham
Argentínumaðurinn Paulo Dybala meiddist um helgina og óttast menn hjá Juventus að hann gæti verið frá í 40 til 45 daga.

Juventus heldur í við Napoli
Juventus slapp með skrekkinn á útivelli gegn Cagliari í kvöld en með sigrinum ná ríkjandi meistararnir að halda í við Napoli á toppi deildarinnar.

„Dybala er ekki sóknarmaður“
Paulo Dybala getur ekki spilað sem sóknarmaður að mati knattspyrnustjóra hans. Dybala þurfti að spila sem sóknarmaður í bikarleik Juventus gegn Torino, en leit ekki vel út að mati Max Allegri, stjóra Juventus.

Dybala með langþráð mörk í sigri Juventus
Paulo Dybala hrökk aftur í gírinn þegar Juventus lagði Verona að velli, 1-3, í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Totti: Fótboltaheimurinn var betri í gamla daga
Roma-goðsögnin Francesco Totti nýtur lífsins eftir að hafa lagt skóna á hilluna. Hann íhugaði að fara út í þjálfun en hefur lagt þær áætlanir á hilluna í bili.

Inter vill fá tvo leikmenn frá Barcelona
Forráðamenn ítalska félagsins Inter eru stórhuga fyrir nýja árið og ætla að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum í janúar.

Gattuso: Ég er kannski lélegasti þjálfarinn í ítölsku deildinni
Gennaro Gattuso segir að hann sé kannski lélegasti þjálfarinn í ítölsku úrvalsdeildinni.

Hamsik sló markamet Maradona
Tuttugu og sex ára gamalt markamet Diego Maradona var slegið í gærkvöld þegar Napólí bar sigurorð af Sampdoria.

Emil hélt upp á nýja samninginn með stórsigri á gömlu félögunum
Emil Hallfreðsson lék síðustu 23 mínúturnar þegar Udinese vann stórsigur á Verona, 4-0, í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.

Emil áfram hjá Udinese
Emil Hallfreðsson hefur framlengt samning sinn við ítalska félagið Udinese og er nú skuldbundinn félaginu út júní 2020.

Emil og félagar lágu fyrir toppliðinu
Emil Hallfreðsson spilaði allan leikinn fyrir Udinese þegar liðið lá á útivelli gegn Napólí í ítölsku bikarkeppninni í fótbolta í kvöld.

Sigraðist tvisvar á krabbameini og er búinn að spila 100 leiki í röð
Francesco Acerbi, leikmaður Sassuolo í ítölsku úrvalsdeildinni, lék sinn 100. leik í röð fyrir félagið um helgina. Það er enn merkilegra fyrir þær sakir að Acerbi hefur tvívegis greinst með krabbamein.

Donnarumma hágrét eftir leik út af stuðningsmönnum sem vilja losna við hann
Gianluigi Donnarumma er langt því frá vinsæll hjá stuðningsmönnum AC Milan.

Markalaust í toppslagnum á Ítalíu
Markalaust jafntefli varð niðurstaðan í uppgjöri Ítalíumeistaranna í Juventus og toppliðs Seríu A deildarinnar, Inter Milan, í kvöld.

Emil orðaður við endurkomu til Verona
Emil Hallfreðsson gæti yfirgefið Udinese í janúar þar sem hann fær ekki að spila nógu mikið með félaginu. Þessu greina ítalskir fjölmiðlar frá í dag.

Gattuso: Hefði verið betra að vera stunginn en að fá á sig þetta mark
AC Milan missti af sigri gegn nýliðunum þegar að markvörðurinn skoraði í uppbótartíma.

Napoli gefur ekkert eftir
Napoli er enn ósigrað á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar en í dag vann liðið 0-1 útisigur á Udinese.

Sá markahæsti á Englandi er með fæst mörk
Liverpool maðurinn Mohamed Salah hoppaði um helgina upp í efsta sætið yfir markahæstu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar.

Bættu vafasamt met Man. Utd.
Ítalska úrvalsdeildarliðið Benevento bætti vafasamt met um helgina.

Áfallið var svo mikið að missa af HM að Buffon gat ekki spilað um helgina
Juventus datt niður í þriðja sæti ítölsku deildarinnar eftir tap á móti Sampdoria um helgina en ítölsku meistararnir fengu á sig þrjú mörk í leiknum sem er mjög óvenjulegt fyrir þetta öfluga varnarlið.

Ítalska sambandið vill að Antonio Conte taki við ítalska landsliðinu
Ítalir komust ekki á HM í fótbolta eins og við Íslendingar og Ítalir þurfa nú að líta til framtíðar og byggja upp nýtt landslið. Forseti ítalska knattspyrnusambandsins vill einn mann í starfið fremur en annan.

Roma og Napoli með sigra
Tveir leikir fóru fram í ítalska boltanum í kvöld en það voru viðureignir Roma og Lazio og Napoli og AC Milan.

Chiellini: Leikstíll Guardiola hefur eyðilagt ítalska varnarmenn
Giorgio Chiellini, varnarmaður Juventus og ítalska landsliðsins, segir að kynslóð ítalskra varnarmanna hafi verið eyðilögð af Pep Guardiola.

Perisic skaut Inter upp í 2. sætið
Inter lyfti sér upp í 2. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með 1-2 sigri á Verona í kvöld.

Skoruðu sigurmarkið sex mínútum eftir að Emil kom inn á | Sigurganga Napoli heldur áfram
Emil Hallfreðsson kom inn á sem varamaður þegar Udinese vann mikilvægan sigur á Atalanta, 2-1, í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Udinese er í 13. sæti deildarinnar.

Juventus vann Milan og jók pressuna á Montella
Gonzalo Higuaín skoraði bæði mörk Juventus í 0-2 sigri á AC Milan í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.

Leikmenn Lazio mæta allir í leikinn í kvöld í treyju með mynd af Önnu Frank
Ítalska félagið Lazio og Sería A ætla að taka saman höndum í baráttunni gegn gyðingahatri á Ítalíu en stuðningsmenn Lazio voru staðnir að verki um síðustu helgi og það kallaði á aðgerðir.

Buffon: Aðeins sigur í Meistaradeildinni kemur í veg fyrir að hann hætti í sumar
Gianluigi Buffon, markvörður Juventus og Ítalíu, ætlar að leggja skóna á hilluna næsta sumar og það er aðeins eitt sem getur breytt þeirri ákvörðun hans.

Allegri ánægður með rauða spjald Mandzukic
Massimiliano Allegri, knattspyrnustjóri Juventus, var ánægður með að Króatinn Mario Mandzukic lét reka sig af velli eftir hálftíma leik í dag.

Emil og félagar náðu ekki að vinna tíu menn Juventus
Tíu menn Juventus völtuðu yfir Emil Hallfreðsson og félaga í Udinese í Seria A á Ítalíu í dag.