
Einvígi aldarinnar

Fær að skila eftirlíkingunni til Páls í Pólaris
Kaupum bandarísks fjárfestis á taflborði og skákmunum af íslenskum auðmanni árið 2012 hefur verið rift. Bandaríkjamaðurinn taldi sig hafa keypt taflborð sem Bobby Fischer og Boris Spasskí notuðu í einvígi aldarinnar árið 1972.

Boris Spasskí grafinn með viðhöfn í Moskvu
Rússneski skákmeistarinn Boris Spasskí var jarðsettur með viðhöfn í Moskvu í vikunni í kirkjugarði þar sem margar af hetjum Rússlands og Sovétríkjanna hvíla. Útförin var gerð frá höfuðkirkju rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar.

Telur að reyna ætti að fá Spasskí
Það væri einnar nætur virði að reyna að fá skákmeistarann Boris Spasskí jarðsettan við hlið Bobby Fischers á Íslandi. Þetta segir Guðmundur G. Þórarinsson, sem var forseti Skáksambandsins árið sem einvígi aldarinnar var háð á Íslandi.

Væri ekki óviðeigandi að þeir hvíldu saman
„Það væri kannski ekkert óviðeigandi að þessir gömlu kappar og keppinautar… að þeir væru svona hvor öðrum til skemmtunar og ánægju eftir að þessari jarðvist lýkur.“

Boris Spassky er látinn
Skákmeistarinn og Íslandsvinurinn Boris Spassky er látinn. Hann var 89 ára gamall en ekki liggur fyrir hvernig hann dó.

Áhrifamesti Íslendingur skáksögunnar níræður
Friðrik Ólafsson, einn áhrifamesti skákmaður Íslandssögunnar verður heiðraður í Hörpu í dag á níræðisafmælisdaginn. Forseti Skáksambands Íslands segir Friðriki að þakka að skákin sé jafn vinsæl á Íslandi og raun ber vitni.

Mál umdeilda skákborðsins ætlar engan endi að taka
Landsréttur hefur sent mál sem varðar eftirlíkingu af skákborði sem Bobby Fischer og Boris Spasskí notuðu þegar þeir tefldu í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972 aftur í hérað.

Eins söguleg og skáldsaga getur orðið
„Þetta einvígi lifir með þjóðinni og mun gera það áfram,“ segir Sigurbjörn J. Björnsson gæðatryggingastjóri hjá Algalif og rithöfundur.

Framsóknarmenn undirbúa listaverk um einvígi aldarinnar
Menningar- og viðskiptaráðherra hefur falið sérstökum undirbúningshópi að vinna að undirbúningi og samkeppni um listaverk um einvígi aldarinnar. Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, leiðir hópinn, sem skipaður er þremur öðrum Framsóknarmönnum og tveimur skákmönnum.

Bobby Fischer og Gunnar á Hlíðarenda
„Bobby Fischer verður jafn frægur og Gunnar á Hlíðarenda eftir þúsund ár”, segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og áhugamaður um heimsmeistarann í skák, sem hvílir í Laugardælakirkjugarði í Flóanum. Þá er Fischersafn á Selfossi, sem fagnar tíu ára afmæli þessa dagana.

Íslensk vegabréf Bobby Fischer fundust fyrir tilviljun
Stefán Haukur Jóhannsson, sendiherra Íslands í Japan, afhenti Fischersetrinu á Selfossi tvö íslensk vegabréf skáksnillingsins Bobby Fischer sem gefin voru út árið 2005 þegar hann fékk ríkisborgararétt hér á landi. Vegabréfin voru týnd en fundust fyrir tilviljun, eitt í sendiráðinu í Japan og annað á skrifstofu utanríkisráðuneytisins.

Keypti eftirlíkingu á 27 milljónir og situr uppi með Svarta-Pétur
Noah Siegel, bandarískur fjárfestir, pókerspilari og skákmaður, keypti taflborð í þeirri trú að um væri að ræða borð sem notað var í einvígi aldarinnar milli þeirra Bobby Fischers og Borisar Spasskí. Hins vegar kom á daginn að um var að ræða eftirlíkingu og Siegel keypti þannig köttinn í sekknum.

Spassky vill hvíla við hlið Fischers í Laugardælakirkjugarði
Það var múgur og margmenni í Laugardælakirkjugarði í Flóahreppi í dag en ástæðan er sú að skákmeistararnir, sem eru nú að keppa í heimsmeistaramótinu í Slembiskák mættu þangað til að vitja leiðis Bobby Fischers, heimsmeistara í skák. Þar kom fram að Boris Spassky, sem tefldi á móti honum fyrir fimmtíu árum hefur óskað eftir því að fá í hvíla í garðinum eftir sinn dag með Fischer.

Magnus Carlsen mætir til Íslands á sunnudag í baráttu um sextíu milljónir króna
Skákáhugamenn hér á landi iða í skinninu enda aðeins tveir sólarhringar í að heimsmeistarinn Magnus Carlsen komi til landsins. Átta sterkir skákmenn berjast um tæplega sextíu milljóna króna verðlaunafé á heimsmeistaramótinu í afsprengi skákar úr smiðju Bobby Fischer.

Einvígi aldarinnar 50 ára – Afmælinu fagnað í Vík í Mýrdal
Kötlusetur í Vík í Mýrdal mun fagna því á morgun, 9. júlí að 50 ár eru liðin frá einvígi aldarinnar í skák með skáksýningu og hraðskákmóti í setrinu.

Vill láta reisa styttu af Bobby Fischer við gröf hans í Laugardælakirkjugarði
Fimmtíu ár eru í sumar var skákeinvígi aldarinnar á milli Bobby Fischers og Boris Spasskís í Laugardalshöllinni. Verðlaunaféð á núvirði var um tvö hundruð milljónir króna. Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra vill láta reisa styttu af Fischer við gröf hans í Laugardælakirkjugarð við Selfoss.

Undirbúa hátíð vegna hálfrar aldar afmælis einvígis Fischers og Spasskís
Heimsmeistarinn í skák, Magnus Carlsen, er meðal þeirra sem ætla að heiðra Ísland í tilefni þess að hálf öld verður liðin frá því Bobby Fischer og Boris Spasskí háðu „einvígi aldarinnar“ í Laugardalshöll. Aldrei áður hafði nafn Reykjavíkur komist eins rækilega í heimsfréttirnar eins og þær vikur sumarið 1972 sem þeir Fischer og Spasskí tefldu um heimsmeistaratitilinn í skák á tíma þegar kalda stríðið milli stórveldanna var í hámarki.

Fischer komst ekki í aðra skákina vegna ágangs ljósmyndara
Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistari sá um Bobby Fischer og aðstoðarfólk þegar það dvaldi á Hótel Loftleiðum vegna einvígis aldarinnar. Hann segir hér sögu sem er mikilvægt púsl í söguna.

Merkilegt hvernig talan 64 markar örlög Fischers
Skákmeistarinn Bobby Fischer var rangfeðraður og talan 64 reyndist undarleg örlagatala í öllu lífi hans. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri bók um skákeinvígið 1972, sem kom Reykjavík á spjöld sögunnar.

Spasskí og Fischer á sviði í London með Guðmundi G. og Sæma Rokk
Þeir Spasskí og Fischer eru aðalpersónurnar í nýju leikriti um skákeinvígi aldarinnar, sem frumsýnt hefur verið í London. Tveir Íslendingar eru persónur í leikritinu.

Ríkið styrkir skákhátíð á Selfossi um fjórar milljónir
Ákveðið var á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun að veita fjögurra milljóna króna styrk af ráðstöfunarfé ríkisstjórnar til alþjóðlegrar skákhátíðar og skákmóts á Selfoss.

Bandaríkjamaður teflir í fyrsta sinn um heimsmeistaratitil frá einvígi aldarinnar
Heimsmeistaraeinvígið í skák hefst í Lundúnum í dag þar sem Bandaríkjamaðurinn Fabiano Caruana skorar heimsmeistarann Magnús Carlsen á hólm.

Menntamálaráðherra líst vel á að halda heimsmeistaramótið í skák í Reykjavík
Menntamálaráðherra hefur lýst áhuga á að skoða með Skáksambandi Íslands möguleika á því að heimsmeistaramótið í skák fari fram í Reykjavík árið 2022, þegar fimmtíu ár verða liðin frá einvígi aldarinnar árið 1972.

Vilja fagna fimmtíu árum frá „einvígi aldarinnar“ með heimsmeistaramóti á Íslandi
Hugmyndir eru uppi um að halda heimsmeistaramót í skák hér á landi árið 2022 þegar 50 ár verða liðin frá svonefndu einvígi aldarinnar á milli þeirra Boris Spassky og Bobby Fisher í Laugardalshöllinni sem vakti heimsathygli.

Skákheimurinn horfir til Íslands á ný
Evrópumótið er stærsti skákviðburður sem fram hefur farið á Íslandi síðan Fischer og Spasskí mættust árið 1972. Rjóminn af sterkustu skákmeisturum heims mætir til leiks. Þrjár sveitir tefla fyrir Íslands hönd.

Framtíð skáklistarinnar í húfi
Norska undrabarnið Magnus Carlsen berst um heimsmeistaratitilinn í skák við indverska snillinginn Viswanathan Anand. Þeir eru fulltrúar mismunandi kynslóða en vonir standa til þess að sigur Carlsens gæti endurvakið áhuga almennings á skák.

Lothar Schmid allur
Þýski stórmeistarinn og skákdómarinn Lothar Schmid lést um helgina, 85 ára gamall.

Fischer-setrið líklegasta nafnið
Það er unnið að fullu að undirbúningi, mikil fundarhöld og margir sem koma að þessu. Við erum með arkitekta, verkfræðinga, safnverði og fleira, segir Magnús Matthíasson formaður Skákfélags Selfoss.

Fjörutíu ár liðin frá Einvígi aldarinnar
Fjörutíu ár eru liðin í dag frá því að Einvígi aldarinnar hófst. Þá tefldu þeir Boris Spassky, heimsmeistari í skák, og Bobby Fischer sína fyrstu skák hér í Reykjavík. Skákmenn munu halda upp á daginn með því að nýtt húsnæði skákfélagsins á Suðurlandi verður vígt. Það er helgað minningu Fischers og verður í senn minningarsetur um hann. Gunnar Finnlaugsson skákáhugamaður hefur haft veg og vanda að byggingu hússins. Fischer hvílir, sem kunnugt er, í Laugardælakirkjugarði á Selfossi.

Skákborð Páls í Pólaris seldist ekki á uppboði í Kaupmannahöfn
Skákborð og talfmenn úr einvígi aldarinnar árið 1972 seldust ekki á uppboði í Kaupmannahöfn þar sem hæsta boð var langt undir matsverði þeirra.