

Tveir leikir fóru fram í Lengjubikarnum í fótbolta í dag þar sem Valskonur unnu góðan sigur á FH á meðan Grindvíkingar lögðu Vestra að velli karlamegin.
KA og Hamar urðu í gær bikarmeistarar í blaki þegar úrslitaleikir Kjörísbikarsins fóru fram.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson skilur sáttur við Vestra en hann lætur af störfum hjá Ísafjarðarliðinu eftir lokaumferð Lengjudeildar karla á laugardaginn. Hann segir að tímabilið hafi hvatt sig áfram í að halda áfram í þjálfun.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson hættir sem þjálfari karlaliðs Vestra í fótbolta eftir tímabilið.
Þremur leikjum í Lengjudeild karla lauk nú rétt í þessu þar sem Grindavík, Vestri og Kórdrengir unnu sigra. Grindavík vann 1-3 útisigur gegn KV, Vestri vann óvæntan 4-1 sigur gegn Fjölni og Kórdrengir lögðu Selfyssinga á útivelli, 0-1.
Þór Akureyri vann 1-0 sigur á Vestra í síðasta leik 15. umferð í Lengjudeild karla í fótbolta í dag. Austankonur lögðu þá Grindavík í Lengjudeild kvenna.
HK endurheimti toppsæti Lengjudeildarinnar með 2-1 sigri á Gróttu í kvöld. Vestri vann öruggan 4-0 sigur á Þrótti Vogum á meðan Þór vann annan leikinn í röð, 1-2 útisigur gegn Grindavík.
Vestri vann 3-1 sigur á Gróttu í síðasta leik 13. umferðar Lengjudeildar karla í fótbolta í dag. Liðið fór upp um tvö sæti með sigrinum.
Lið Aftureldingar úr Mosfellsbæ gerði sér góða ferð á Vestfirði og vann 1-4 sigur á liði Vestra í Lengjudeild karla í fótbolta.
Vestri hafði betur, 2-1, þegar liðið fékk Grindavík í heimsókn í áttundu umferð Lengjudeildar karla í fóbolta á Olísvellinum á Ísafirði í dag.
Lið Vestra frá Ísafirði mun ekki leika í 1. deild kvenna á komandi leiktímabili í körfuboltanum.
Vestri gerði góða ferð í sólina í Grafarvogi í dag þar sem þeir sóttu öll stigin með 1-2 endurkomusigri gegn Fjölni.
Bandaríkjamaðurinn Ken-Jah Bosley, leikmaður Vestra, hefur sagt skilið við liðið og lagt körfuboltaskóna á hilluna.
Vestri og Kórdrengir skildu jöfn, 2-2, þegar liðin áttust við í sjöttu umferð Lengjudeildar karla í fótbolta á Olísvellinum á Ísafirði í dag.
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, hvetur foreldra yngri iðkenda í fótbolta til að vera meðvituð um þann raunveruleika sem blasir við íþróttakrökkum á fámennari svæðum landsins. KSÍ skoðar nú hvort breyta þurfi reglum til að þeir krakkar fái að spila sína heimaleiki án vandræða.
Grótta burstaði Vestra með fimm mörkum gegn engu þegar liðið fékk Vestra í heimsókn á Vivaldi-völlinn á Seltjarnarnesi í fyrstu umferð Lengjudeildar karla í fótbolta í dag.
ÍR-ingar unnu ellefu stiga sigur gegn Vestra í lokaumferð Subway-deildar karla í kvöld, 92-81.
Þjálfari Stjörnunnar, Arnar Guðjónsson, var að sjálfsögðu ánægður með sigur sinna manna í kvöld á Vestra 99-66 í Ásgarði.
Stjarnan vann þægilegan sigur á föllnu liði Vestra er þau mættust í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld.
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar er með til skoðunar fjárhagsvandræði körfuknattleiksdeildar Vestra eftir að deildin óskaði eftir aðstoð vegna afar slæmrar rekstrarstöðu.
Breiðablik vann mikilvægan 21 stigs sigur gegn Vestra í uppgjöri nýliðanna í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 112-91. Úrslitin þýða að Blikar eiga enn góða möguleika á að komast í úrslitakeppnina, en Vestramenn eru hins vegar fallnir niður um deild.
Pétur Már Sigurðsson og lærisveinar hans í Vestra háðu í kvöld lokabaráttu sína um að halda sæti sínu í Subway-deildinni að ári. Með sigri í kvöld hefði liðið ennþá átt tölfræðilegan möguleika á að halda sér uppi og sást það á leik þeirra framan af að það var allt undir. Í lokaleikhlutanum tóku heimamenn þó öll völd á vellinum, og vildi Pétur meina að hans menn hefðu einfaldlega klárað allt sem þeir áttu á tanknum í fyrstu þremur leikhlutunum
Njarðvíkingar unnu öruggan 33 stiga sigur á Vestra á Ísafirði í eina leik kvöldsins í Subway-deild karla í körfubolta, 82-115.
Fyrir tveimur árum var landsliðsmaðurinn fyrrverandi Gunnar Heiðar Þorvaldsson ekkert sérlega áhugasamur um að gerast fótboltaþjálfari. Hann fékk hins vegar bakteríuna heima í Vestmannaeyjum og hefur nú tekið við Vestra á Ísafirði eftir að félaginu mistókst að krækja í þungavigtarmenn á þjálfaramarkaðnum.
Vestri vann stórsigur á Þór Akureyri, 73-117, í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld í frestuðum leik í Subway deild karla. Vestra menn voru betri allan leikinn og gengu á lagið í seinni hálfleik og kafsigldu heimamenn og unnu að lokum auðveldan 45 stiga sigur.
Vestri vann stórsigur á föllnum Þórsurum á Akureyri í Subway-deild karla í kvöld. Lokatölur 73-117 í leik sem var einstefna frá uppahfi til enda.
„Langur og ekki langur, hvað er langt og hvað er stutt. Þetta voru einhverjir dagar, þetta var ekkert sem ég sagði já við einn tveir og bingó,“ sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson, nýráðinn þjálfari Lengjudeildarliðs Vestra, í viðtali í Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld.
Vestri frá Ísafirði hefur ráðir Eyjamanninn Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem þjálfara liðsins fyrir komandi átök í Lengjudeild karla í fótbolta.
Grindavík vann Vestra í endurkomu Sverris Þórs Sverrissonar sem þjálfara Grindavíkur. Eftir hikandi byrjun duttu heimamenn í gang í öðrum leikhluta og litu aldrei um öxl eftir það. Grindavík vann á endanum sextán stiga sigur 90-74.
KR-ingar unnu afar sannfærandi 6-1 sigur gegn Vestra er liðin mættust í A-deild Lengjubikars karla í dag.