
Heimaeyjargosið 1973

Vilja ekki sjá listaverk á Eldfelli
Fjöldi Eyjamanna hefur skrifað undir undirskriftarlista þar sem áformum um gerð listaverks á Eldfelli er mótmælt.

Bátarnir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum málaðir á vita
Allir bátarnir, sem fluttu Eyjamenn til landsins í eldgosinu 1973 hafa verið málaðir á vita í Vestmannaeyjum en vitinn vekur alltaf mikla athygil ferðamanna.

Mikil stemning á Goslokahátíð í Vestmannaeyjum
Það iðar allt af lífi og fjöri í Vestmannaeyjum um helgina því þar stendur Goslokahátíð yfir þar sem Eyjamenn og gestir þeirra halda upp á lok gossins í Vestmannaeyjum í byrjun júlí 1973.

Verðbólga jókst verulega í kjölfar gossins í Heimaey
„Það er erfitt að bera saman hugsanlegar efnahagsaðgerðir nú og á tíma Vestmannaeyjagossins fyrir 50 árum vegna þess hve mikið hagkerfið hefur breyst. Sérstaklega er umgjörð peningamála nú allt önnur.“

Eyjakona í Grindavík búin að flýja ógn jarðelds í annað sinn á ævinni
Kona úr Vestmannaeyjum sem settist að í Grindavík eftir að hafa flúið Heimaeyjargosið fyrir hálfri öld hefur núna upplifað það í annað sinn á ævinni að flýja undan ógn jarðelds. Hún segir ómetanlegt að sjá hvað landsmenn eru tilbúnir að gera til að hjálpa Grindvíkingum en sjálf býr hún núna í íbúð sem ókunnugt fólk lánaði henni.

„Fyrsta hugsun hjá mér var að nú væri komið stríð“
Tveir Vestmanneyingar sem upplifðu gosið í Heimaey árið 1973 minnast þess hvernig það var í nýju myndbandi 66° Norður.

„Hátíðin er fyrst og fremst til að þakka að ekki fór verr“
Skipuleggjendur Goslokahátíðarinnar í Vestmannaeyjum segja hátíðina hafa gengið snurðulaust fyrir sig í ár en fimmtíu ár eru frá eldgosinu.

Goslokahátíð ekki í samkeppni við Þjóðhátíð
Goslokahátíð Vestmannaeyjabæjar verður sett í dag. Í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá Heimaeyjargosi lauk munu hátíðarhöldin standa í heila viku. Bæjarstjóri segir hátíðina ekki í samkeppni við Þjóðhátíð, sem sé allt annars seðlis.

Hefur myndað Eyjar í sjötíu ár: „Þá sá ég að þeir voru að fara með jarðýtuna á húsið mitt“
Vestmanneyingar halda brátt upp á að 50 ár séu frá goslokum í Heimaey. Enginn hefur fest Heimaeyjargosið eða sögu Vestmannaeyja undanfarin 70 ár betur á filmu en Sigurgeir Jónasson ljósmyndari.

Vestmannaeyjar héldu höfninni ólíkt blómlegasta bæ Tenerife
Hálf öld er liðin þessa dagana frá því menn hófu hraunkælingu í Heimaeyjargosinu en hún er talin hafa stuðlað að því að Vestmannaeyjahöfn varð jafnvel betri á eftir. Íbúar eins blómlegasta bæjar Tenerife voru ekki jafn heppnir í eldgosi þremur öldum fyrr. Hraunið sem þar rann í höfnina kippti fótunum undan lífsafkomu bæjarbúa.

Fimmtíu ár frá upphafi Heimaeyjargossins: Forsetinn á óljósar minningar um áhyggjur og angist
Vestmanneyingar minnast í dag fimmtíu ára afmælis Heimaeyjargossins. Forseti Íslands á óljósar minningar um áhyggjur og angist landsmanna þegar gosið hófst.

Bein útsending: Minningarviðburður vegna eldgossins á Heimaey árið 1973
Minningarviðburður vegna eldgossins á Heimaey árið 1973 hefst klukkan 19:30 í Eldheimum í Vestmannaeyjum. Sýnt verður frá viðburðinum í beinu streymi hér fyrir neðan.

Táknrænt að veðrið og samgönguvandi séu eins og fyrir fimmtíu árum
Eyjamenn minnast þess í dag að hálf öld er liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey. Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir óveður gærdagsins svipa til veðursins sem var þann 22. janúar árið 1973, með tilheyrandi samgönguvanda sem sé nokkuð táknrænt.

Eyjamenn minnast hálfrar aldar afmælis eldgossins
Hálf öld er í dag, 23. janúar, liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey árið 1973. Gosafmælisins er minnst með margvíslegum hætti í Vestmannaeyjum og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsækja Eyjamenn.

Edda og Páll rifja upp Heimaeyjargosið: Bæjarstjórinn á Hlíðarenda og símar fastir í vegg
Hálf öld er liðin frá Heimaeyjargosinu sem hófst aðfaranótt 23. janúar 1973. Fjallað var um þetta fyrsta eldgos sem hófst í byggð á Íslandi í þættinum 50 ár frá gosi, á Bylgjunni í morgun, sunnudag klukkan 9. Í þættinum spjallaði Sighvatur Jónsson við Eddu Andrésdóttur og Pál Magnússon um gosið.

Blysför í Vestmannaeyjum í tilefni 50 ára gosafmælis
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsækja Vestmannaeyjar á morgun, mánudag, 23. janúar, í tilefni þess að 50 ár verða liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey. Hápunktur margvíslegra minningarviðburða í bænum verður blysför frá Landakirkju annaðkvöld að Eldheimum þar sem gossins verður minnst með athöfn sem hefst klukkan 19:30.

Svona upplifðu Eyjamenn að vakna upp við eldgos
Fimmtíu ár verða liðin á mánudag, 23. janúar, frá upphafi eldgossins á Heimaey árið 1973, sem telja má einn af stærstu viðburðum Íslandssögunnar. Yfir fimm þúsund íbúar Vestmannaeyja þurftu í skyndi að yfirgefa heimili sín um nóttina þegar gossprunga opnaðist í jaðri byggðarinnar.

Eyjastemmning á næstu Menningarnótt í Reykjavík
Vestmannaeyjabær verður heiðursgestur Menningarnætur í Reykjavík 2023 í tilefni af fimmtíu ára goslokaafmæli og langvarandi vinatengslum bæjarfélaganna.

Leita til Ólafs Elíassonar um hönnun minnisvarða um Heimaeyjargosið
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að veita tvær milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til Vestmannaeyjabæjar vegna hugmyndavinnu fyrir minnisvarða um eldgosið í Heimaey. Samningur hefur verið gerður við Stúdíó Ólafs Elíassonar um hugmyndavinnuna.

Fólk læri af hafnarbjörguninni í Eyjum 1973 og treysti sérfræðingum
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að af fréttum síðustu daga mætti ætla að þingmenn úr röðum Sjálfstæðisflokksins væru upp til hópa að rísa gegn ákvörðunum sóttvarnayfirvalda. Hann segir að hver tali þar fyrir sig en að hann vilji hafa það á hreinu að það gildi ekki um sig.

Hefur tvisvar á ævinni neyðst til að yfirgefa heimili sitt vegna eldgoss
Kona undir Eyjafjöllum sem neyddist til að flytja af bújörð sinni eftir eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010 hafði einnig lent í því sem barn að þurfa að flýja Heimaeyjargosið árið 1973.

Þóttust þurfa að bjarga fé úr Heimakletti í miðju eldgosi
Margir Eyjamanna áttu erfitt með að sætta sig við takmarkanir sem yfirvöld settu á ferðir til Vestmannaeyja eftir að eldgosið hófst þann 23. janúar 1973.

Skrítin tilhugsun að geta misst hús undir hraun í annað sinn á ævinni
Vestmannaeyingar sem settust að í Grindavík, eftir að hafa neyðst til að flýja jarðeld í skyndi, eru núna minntir á að sagan gæti endurtekið sig, en á öðrum stað.

Slökkvibíllinn með sírenur átti að slökkva í eldgosinu
Gosnóttin á Heimaey gleymist seint þeim sem upplifðu hana; að vakna upp við jarðeld og þurfa að yfirgefa heimili sitt í skyndi. Eyjamenn sem settust að í Grindavík rifja upp 23. janúar 1973.

Rektorinn í Oxford sendi Ingvar í boði háskólans í eldgosið í Vestmannaeyjum
47 árum eftir eldgosið á Heimaey eru enn að koma í dagsljósið myndir af gosinu sem ekki hafa áður birst opinberlega. Það á við um filmubút sem ungur jarðfræðingur tók.

Áður óbirtar myndir frá eldgosinu á Heimaey sýndar á Stöð 2 í kvöld
Sextán mínútna löng kvikmynd ásamt fjölda ljósmynda, sem Ingvar Friðleifsson jarðfræðingur tók á fyrstu dögum eldgossins á Heimaey árið 1973, verða sýndar í fyrsta sinn opinberlega á Stöð 2 í kvöld.

45 ár frá upphafi eldgoss í Heimaey
Verkefnin sem gosið í Heimaey leiddi af sér voru mjög lærdómsrík.

Skrýtið hvernig örlög húsanna í gosinu réðust af nöfnum þeirra
Húsið Hraun fór undir hraun, hraunjaðarinn stöðvaðist við húsið Jaðar, hornið fór af húsinu Horn, og aðeins blátindurinn stóð upp úr af húsinu Blátindi.

Spennandi söguminjar við hvert spor í Eyjum
Fornleifar í Herjólfsdal eru að miklu leyti órannsakaðar og afar spennandi vegna elstu byggðar á Íslandi.

„Við Vestmannaeyingar höfum aldrei fengið áfallahjálp“
Kristín Jóhannsdóttir, forstöðumaður gosminjasafnsins Eldheima í Eyjum, áttaði sig á margvíslegu gildi sögunnar um Heimaeyjargosið 1973 og vann að því af eldmóði að henni yrðu gerð skil á áhrifaríkan hátt.