UMF Álftanes

Foxillur Kjartan grýtti spjaldinu í gólfið: „Áran yfir þeim rosa þung og leiðinleg“
Það er mikið í húfi hjá körfuboltaliði Álftaness á næstu vikum en sérfræðingarnir í Subway Körfuboltakvöldi voru sammála um að áran yfir liðinu gæfi ekki ástæðu til bjartsýni.

Kjartan Atli: Ekkert jákvætt sem ég ætla að taka úr þessum leik
Leikur Álftaness og Vals á Hlíðarenda var í miklu jafnvægi í fyrri hálfleik og var staðan 46-42 fyrir heimamönnum en það skildi heldur betur á milli liðanna í þeim seinni. Lokatölur urðu 89-71 fyrir Val og það var augljóst að Kjartan Atli þjálfari Álftaness var hundfúll með kvöldið.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Álftanes 89-71 | Ellefu sigrar í röð hjá Val
Valur steig stórt skref í átt að deildarmeistaratitlinum með sigri á nýliðum Álftaness á Hlíðarenda. Valsmenn sýndu af sér fagmannlega frammistöðu og eftir jafnan fyrri hálfleik þá gengu þeir á milli bols og höfuðs á Álftnesingum. Lokatölur 89-71.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Álftanes - Keflavík 109-114 | Háspenna lífshætta í Forsetahöllinni
Keflavík vann ótrúlegan fimm stiga sigur gegn Álftanesi í tvíframlengdum maraþonleik í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 109-114.

Umfjöllun og viðtöl: Hamar - Álftanes 67-104 | Heimamenn áttu aldrei möguleika
Hamar situr enn þá á botni Subway deildarinnar án sigurs þegar Álftanes fóru yfir Hellisheiðina í Hveragerði og sóttu þægilegan sigur 67-104.

Mesta Íslandsmeistarapressan er á liðinu í níunda sæti
Subway Körfuboltakvöld fór yfir það í síðasta þætti sínum á hverjum væri mesta Íslandsmeistarapressan nú þegar aðeins sex leikir eru eftir af deildarkeppninni.

Suðurnesjaslagur í undanúrslitum hjá konunum
Keflavík og Njarðvík eigast við í undanúrslitum VÍS-bikars kvenna í körfubolta. Dregið var í undanúrslit keppninnar í dag.

Haukur Helgi lenti í árekstri á Reykjanesbrautinni
Íslenski landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson var ekki með Álftanesi í leiknum á móti Þórsurum í Subway deild karla í körfubolta í gærkvöldi og munaði mikið um fjarveru hans.

Umfjöllun og viðtöl: Álftanes - Þór Þ. 94-104 | Þórsarar aftur á sigurbraut
Álftanes og Þór Þorlákshöfn töpuðu bæði í síðustu umferð Subway-deildar karla. Þau mættust í Forsetahöllinni í kvöld og ljóst að bæði lið ætluðu sér að komast aftur á beinu brautina.

Giga bætist við Álftanes
Nýliðar Álftaness í Subway-deild karla í körfubolta tilkynntu um sannkallaða „risaviðbót“ fyrir lok félagaskiptagluggans.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Álftanes 89-51 | Gestirnir sáu aldrei til sólar
Njarðvík lagði Álftanes af velli með 38 stiga mun 89-51 þegar liðin mættust í 15.umferð Subway-deildar karla í körfubolta.

Álftanes fær einn efnilegasta körfuboltamann landsins
Það er nóg af gleðitíðindum úr herbúðum nýliðana af Álftanesi. Í gær komst liðið í bikarúrslitin í Laugardalshöllinni með sigri á Grindavík og í dag tilkynnti félagið að einn efnilegasti körfuboltamaður Íslands væri á leiðinni til félagsins.

Kjartan Atli: Bónuskeppni sem er bragðgott krydd í tilveruna
Álftanes komst í fyrsta sinn í undanúrslit bikarkeppninnar í körfubolta eftir 90-79 sigur gegn Grindavík í Smáranum í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Grindavík - Álftanes 79-90 | Álftnesingar á leið í Laugardalshöll eftir æsispennandi leik
Álftanes gerði sér ferð í Smárann og vann 79-90 gegn Grindavík eftir æsispennandi leik í 8-liða úrslitum VÍS bikarsins. Álftnesingar eru þar með komnir í undanúrslitin sem fara fram í Laugardalshöll þann 19. mars.

Gamli Haukur mættur aftur: „Einn af okkar allra bestu frá upphafi“
„Sá skilaði framlagi,“ sagði Stefán Árni Pálsson, stjórnandi Körfuboltakvölds, um frammistöðu Hauks Helga Pálssonar í leik Álftaness og Breiðabliks í síðustu umferð Subway-deildar karla í körfubolta.

Umfjöllun og viðtöl: Álftanes - Breiðablik 106-100 | Álftanes vann Breiðablik eftir framlengingu
Álftanes bar sigurorð af Breiðabliki, 106-100, eftir framlengdan leik þegar liðin leiddu saman hesta sína í Forsetahöllina í 14. umferð Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld.

„Síðasta mínútan var svolítið grindvísk“
Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur var afar sáttur með sigur Suðurnesjaliðsins gegn Álftanesi í kvöld. Úrslitin réðust undir lokin eftir að gestirnir höfðu leitt lengst af.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Grindavík - Álftanes 87-84 | Dramatískur endir í Smáranum
Grindvík vann sannkallaðan seiglusigur gegn Álftanes í Subway-deildinni í kvöld. Gestirnir leiddu nær allan tímann en Grindvíkingar náðu sigrinum undir lokin.

Hörður Axel orðinn stoðsendingahæsti leikmaður sögunnar
Hörður Axel Vilhjálmsson varð í gær stoðsendingahæsti leikmaður í sögu Úrvalsdeildarinnar í körfubolta þegar Álftanes vann frækinn sigur á Íslandsmeisturum Tindastóls.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Álftanes 68 - 80 | Nýliðarnir lögðu Íslandsmeistarana
Íslandsmeistarar Tindastóls tóku á móti nýliðum Álftaness í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld en liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn.

Umfjöllun og viðtöl: Höttur - Álftanes 78-73 | Höttur hnoðaði í sigur
Höttur batt enda á þriggja leikja sigurhrinu Álftaness í úrvalsdeild karla í körfuknattleik með 78-73 sigri þegar liðin mættust á Egilsstöðum í kvöld. Líkamleg barátta einkenndi leikinn á löngum köflum og þeim verður best lýst sem óttalegu hnoði.

Stórleikir í 8-liða úrslitum bikarsins
Bikarmeistarar síðustu tveggja ára í körfubolta karla, Valur og Stjarnan, mætast í 8-liða úrslitum VÍS-bikarsins í næsta mánuði. Haukakonur, sem unnið hafa bikarinn þrjú ár í röð, fengu heimaleik gegn toppliði Subway-deildarinnar, Keflavík.

Keflavík, KR og Álftanes flugu áfram
Keflavík, KR og Álftanes eru komin í 8-liða úrslit VÍS-bikars karla í körfubolta. Öllu unnu góða sigra í kvöld.

„Erum að finna gott jafnvægi á milli samkenndar og samkeppni“
Álftanes vann öruggan sigur gegn Haukum 90-67. Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftaness, var afar ánægður með sigurinn og hrósaði liðsheildinni.

Umfjöllun og viðtöl: Álftanes - Haukar 90-67 | Þriðji sigur Álftnesinga í röð
Álftanes vann 23 stiga sigur gegn Haukum 90-67. Heimamenn voru með yfirhöndina allan leikinn og unnu sinn þriðja leik í röð.

Nablinn tapaði tíu þúsund á grannaslagnum í Garðabænum
Það var mikið um dýrðir í Garðabænum á dögunum þegar fyrsti innanbæjarslagurinn í efstu deild fór fram í bænum.

Valdi fallegustu og ljótustu búningana: „Þetta er falleinkunn fyrir mér“
Tómas Steindórsson tók að sér það krefjandi verkefni í síðasta þætti Subway Körfuboltakvölds Extra að velja fallegustu og ljótustu búningana í Subway deild karla.

Körfuboltakvöld: Hvort liðið hafði betur í leikmannaskiptum Hauka og Álftaness?
„Maður hefur sjaldan séð skipti sem ganga jafn vel upp í körfuboltaheiminum,“ sagði Stefán Árni Pálsson, þáttastjórnandi Körfuboltakvölds, um leikmannaskipti Hauka og Álftaness í Subway-deild karla í körfubolta.

Umfjöllun: Stjarnan - Álftanes 84-90 | Álftnesingar unnu grannaglímuna eftir framlengdan leik
Það er óhætt að tala um spennutrylli þegar talað er um nágrannaslag Stjörnunnar og Álftaness í Subway-deild karla í kvöld. Um var að ræða fyrstu grannaglímu Garðabæjar í körfuboltasögunni en þessi leikur stóðst allar þær væntingar sem gerðar voru til hans, allavega fyrir hlutlausa.

Stóru dagarnir sem breyttu Garðabæ í körfuboltabæ
Garðabær á heldur betur sviðið í kvöld þegar fyrsta grannaglíma Garðabæjar í sögunni fer fram í Umhyggjuhyggjuhöllinni. Það er von á fullt af fólki og flottum leik þegar Stjarnan tekur á móti Álftanesi í lokaleik níundu umferðar Subway-deildar karla í körfubolta.