
Árásin á Kheiru Hamraoui

Sökuð um að skipuleggja líkamsárás á liðsfélaga en fann sér nýtt lið
Franska knattspyrnukonan Aminata Diallo sætir enn þá rannsókn í Frakklandi vegna líkamsárásar á fyrrum liðsfélaga sinn en hún er nú búinn að fá nýjan samning.

Hamraoui gæti leikið sinn fyrsta leik eftir árásina
Kheira Hamraoui er í leikmannahópi Paris Saint-Germain fyrir riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Það gæti því styst í að hún spili sinn fyrsta leik síðan hún varð fyrir fólskulegri árás fyrir tæpu ári.

Sá fimmti handtekinn vegna árásinnar á Hamraoui
Maður hefur verið handtekinn, grunaður um aðild að árásinni á frönsku fótboltakonuna Kheiru Hamraoui.

„Hvernig brýtur maður hnéskel?“
Franska blaðið Le Parisien hefur birt hálfótrúlegar upplýsingar úr lögregluskýrslu sem renna stoðum undir það að knattspyrnukonan Aminata Diallo hafi skipulagt árásina á liðsfélaga sinn í PSG, Kheiru Hamraoui, til að losna við samkeppni um stöðu í liðinu.

Aftur handtekin í tengslum við árásina á liðsfélaga
Knattspyrnukonan Aminata Diallo hefur á ný verið handtekinn og sett í gæsluvarðhald vegna rannsóknar frönsku lögreglunnar á árásinni á Kheiru Hamraoui, liðsfélaga Diallo hjá PSG.

Opnar sig um árásina: „Hélt að ég myndi bara liggja þarna“
Franska knattspyrnukonan Kheira Hamraoui átti sér einskis ills von þegar tveir grímuklæddir menn réðust að henni og börðu hana með járnröri, svo illa að hún hélt að hún gæti aldrei aftur staðið upp.

Ráðist á hana í nóvember en núna er hún komin í agabann fyrir slagsmál
Það eru áfram læti í kringum frönsku landsliðskonuna Kheira Hamraoui og nú er ljóst að hún verður ekki með Paris Saint-Germain í seinni undanúrslitaleiknum í Meistaradeildinni á móti Söru Björk Gunnarsdóttur og félögum í Lyon.

Lék sinn fyrsta leik eftir handtökuna
Aminata Diallo, leikmaður Paris Saint-Germain, lék í gær sinn fyrsta leik í tvo mánuði. Hún var handtekinn í byrjun nóvember, grunuð um að hafa látið ráðast á samherja sinn, Kheiru Hamraoui.

Abidal grátbiður eiginkonuna um fyrirgefningu eftir framhjáhaldið
Eric Abidal, fyrrverandi leikmaður Barcelona og franska landsliðsins, hefur grátbeðið eiginkonu sína, Hayet, um að fyrirgefa sér framhjáhald með fótboltakonunni Kheiru Hamraoui.

Stórsér á Hamraoui eftir árásina
Kheira Hamraoui, leikmaður Paris Saint-Germain, er illa farin eftir að ráðist var á hana fyrir utan heimili hennar í París í síðustu viku.

Eiginkona Abidals grunuð um að hafa látið berja Hamraoui í hefndarskyni
Eiginkona Erics Abidal, fyrrverandi leikmanns Barcelona og franska landsliðsins, er grunuð um að hafa staðið á bak við árásina á Kheiru Hamraoui, leikmanni Paris Saint-Germain.

Eric Abidal verður yfirheyrður vegna árásarinnar á Hamraoui
Eric Abidal, fyrrverandi leikmaður Barcelona og franska landsliðsins, verður yfirheyrður á næstu dögum vegna árásarinnar á Kheiru Hamraoui, leikmann Paris Saint-Germain.

Fyrrverandi kærasti grunaður um að hafa látið berja Hamraoui
Grunur leikur á um að fyrrverandi kærasti Kheiru Hamraoui, leikmanns Paris Saint-Germain, hafi skipulagt árás á hana.

Miðjumanni PSG sleppt úr haldi lögreglu
Frönsku landsliðskonunni Aminata Diallo, sem var handtekin síðastliðinn miðvikudag, grunuð um að skipuleggja líkamsárás á liðsfélaga sinn, hefur verið sleppt úr haldi lögreglu án ákæru.

Minnir á mál Tonyu og Nancy Kerrigan: Myndaðar saman á Kópavogsvelli
Það er óhætt að segja að mál frönsku landsliðskvennanna hjá Paris Saint Germain minnir mikið á mál bandarísku skautadansaranna Tonyu Harding og Nancy Kerrigan.

Handtekin fyrir að fá grímuklædda menn til að meiða liðsfélaga sinn
Paris Saint-Germain hefur staðfest það að lögreglan hafi handtekið leikmann kvennaliðs félagsins í dag.