Þráinn Bertelsson

Sakamenn og sjentilmenn!
Björgólfsfeðgar í mál við dæmdan dópsmyglara“. Segir í stórri fyrirsögn á fréttamiðlinum visir.is.

Stormviðvörun
Skynsamlegustu skrif sem birst hafa um íslensk efnahagsmál í háa herrans tíð eru eftir Andrés Magnússon geðlækni. Þótt ég sé að sjálfsögðu fremur sjúklingur en læknir deili ég ákveðinni kvíðatilfinningu með Andrési.

Sofandi hulduhrútar
Margir líta þá hornauga sem tala um fræðigreinar sínar á skiljanlegan hátt. Það þótti ekki fínt í fræðikreðsum hér áður að vera í talsambandi við illa þveginn almúgann. Þetta er þó að breytast. En lúshægt.

Saklaust gæðablóð?
Tvisvar hef ég séð stjórnmálaflokka veikjast heiftarlega. Sá fyrri dó drottni sínum í sælli trú á framhaldslíf á bleiku skýi jafnaðarstefnu á rauðum sokkum.

Að flytja flugvöll
Með nýjum og yfirveguðum borgarstjóra er í bili búið að skrúfa fyrir hina flóknu umræðu um hvert skuli flytja Reykjavíkurflugvöll – hvort fara skuli með flugvöllinn upp á heiðar eða út í sjó eins og ýmsir stórgáfaðir menn hafa gert að tillögum sínum.

Náðhús Reykjavíkur
Í þróuðum löndum ríkir pólitískur stöðugleiki vegna þess að almenningur hefur lært að láta stjórnmálamenn í friði og skiptir sér ekki af því sem þeir taka sér fyrir hendur. Stöðugleiki merkir „óbreytt ástand án framfara“ og byggist á gagnkvæmu samkomulagi um að hvor aðili um sig láti hinn njóta vinnufriðar.

Dæmisögur úr pólitík
Hinar yndislegu pælingar sem dómsmálaráðherrann okkar birtir á blogginu sínu eru ljós í skammdeginu. Núna á laugardaginn birti þessi höfuðsnillingur dæmisögu sem útskýrir bandarísk stjórnmál af mikilli réttsýni:

Varnir gegn fíflum
Lýðræði er versta aðferðin til að stjórna löndum, fyrir utan allar aðrar aðferðir sem reyndar hafa verið gegnum tíðina,“ sagði Winston Churchill í ræðu í breska þinginu 11. nóvember 1947.

Spáð í 2008
Veður á árinu 2008 verður svipað og undanfarin ár nema heldur vætusamara á 17da júní og um verslunarmannahelgina.

Jólakort frá Íslandi
Hallóhalló, öllsömul þarna úti í geimnum og fyrir handan, uppi og niðri og allt um kring! Við ætlum að halda jólin að þessu sinni á smáeyju sem heitir Ísland og er rétt fyrir neðan það sem eftir er af Norðurheimskautinu.

Jólagjöf til þjóðarinnar
Tími venjulegrar manneskju skiptist í vinnutíma og frítíma. Samkvæmt verðmætamati þjóðfélagsins er vinnutími fremur lítils virði nema í undantekningartilvikum þegar um háttsetta aðila er að ræða. Vinnutími kvenna er yfirleitt mun ódýrari en vinnutími karla þótt ýmsar mælingar bendi til þess að kvenna- og karlaklukkustundir séu jafnlangar.

Hottar og tottar
Á Mörlandi er athyglisvert stjórnarfar. Þar fer minnihlutahópur Totta með völdin og peningana og hefur gert það svo lengi sem elstu menn muna.

Dýrlingurtungunnar
Á föstudagskvöld horfðum við á þátt sem heitir „Tekinn" á Stöð 2. Andri, 9 ára, leit upp frá sjónvarpinu og sagði: „Þetta er eiginlega allt á ensku. Af hverju er verið að sýna þetta á „degi íslenskrar tungu"?"

Frakkar, frelsið og áfengið
Hugmyndir manna um "frelsi" eru ákaflega mismunandi. Íslensk orðabók handa skólum og almenningi segir að frelsi sé "sjálfstæði, frjálsræði" sem bendir til þess að Íslendingar haldi að frelsi sé sjálfsagður hlutur sem hvorki þurfi að skilja né skilgreina. Orðabók Cambridge-háskóla kafar aðeins dýpra og segir að frelsi sé "réttur til að geta eða mega segja, hugsa o.s.frv. hvað sem þú vilt, án eftirlits eða takmarkana".

Háir og lágir – bókstaflega!
Oliver Curry framtíðarrýnir við Hagfræðiskóla Lundúna spáir því að mannkynið nái hátindi um næstu árþúsundamót.

Ljósberar okkar tíma
Stundum fara stórmerkilegar alheimsfréttir fyrir ofan garð og neðan hjá fólki. Tiltölulega fáir vita af eftirtöldum merkisatburðum: "Snoop Dogg sinnir samfélagsstörfum í almenningsgarði", "Upplýst um leyndarmál Erics Clapton í nýrri ævisögu" og "Mel C á sérfæði til að stækka á sér brjóstin". Meira að segja vandaðar frásagnir eins og "Mary krónprinsessu líður eins og einstæðri móður" eða "Britney fær aukinn umgengnisrétt" lenda utanveltu í umræðunni.

Íslenskt gullauga
Í allri hinni neikvæðu umræðu um okur, græðgi og einkavinavæðingu á Íslandi hefur gleymst að halda því til haga að íslenskur almenningur býr við mikil ókeypis hlunnindi. Til dæmis stendur hverjum sem er til boða að þamba nægju sína af köldu vatni úr næsta krana frítt og gratis.

Evra eða króna?
Íslendingar hafa notast við margs konar gjaldmiðil: Álnir vaðmáls, merkur silfurs, kúgildi, jarðarhundruð, ríkisdali, skildinga, spesíur, danskar krónur, íslenskar krónur og nú er talað um að prófa hvort evru muni fylgja meiri gæfa en krónu.

Goodbye, ástkæra …
Sú var tíð að hægt var að sjá af holdafari fólks staðsetningu þess í metorðastiga þjóðfélagsins. Aðeins kaupmenn, prófastar og sýslumenn höfðu efni á að koma sér upp ístru, sem var stöðutákn þeirra tíma. Snotur ístra jafngilti 50 milljóna sportbíl í nútímanum en knésíð vömb var á við einkaþotu.

Jólasveina-vísitala
Nú hefur verið ákveðið að fækka jólasveinum niður í fjóra. Upphaflega voru þeir einn og átta (sama sem níu) en vegna vísitölutryggingar voru þeir komnir upp í þrettán. Með þessu á að fylgja eftir niðurskurðaraðgerðum Ríkisútvarpsins ohf. sem ganga út á að fækka Spaugstofumönnum til að geta keypt vetrarhjólbarða undir bifreið útvarpsstjóra.

Ég er frjálsborinn Íslendingur
Í vísindaskáldsögum og kvikmyndum er það alþekkt þema að vélmenni með margfalda mannlega krafta snúast gegn skapara sínum, mannkyninu - og enginn nema Bruce Willis getur bjargað framtíð okkar á jörðu.

Rammigaldur í Borgarnesi
Hundrað áhorfendur sem margir eru komnir langan veg sitja undir súð á háaloftinu í gömlu húsi. Kvöldskemmtunin sem fólkið bíður eftir er sú að maður birtist og segir þeim sögu. Söguna kunna flestir gestanna fyrir, hafa lesið hana í skóla eða að eigin frumkvæði.

Hinir vammlausu
Fyrir um það bil ári fékk fólk sem býr í eldgömlu fjölbýlishúsi í 101-hverfinu óvænt símtal frá manni sem kynnti sig sem fasteignasala. Erindið var að spyrja hvað íbúð fjölskyldunnar ætti að kosta. Svarið var að íbúðin væri alls ekki til sölu.

Kurteisari en flugfreyjur?
ÚR því að frelsið virðist lúta viðskiptalögmálum er eðlilegt að maður spyrji hvort önnur lögmál gildi um það líka. Á það til dæmis við um frelsið sem gildir um svo margt annað - að það sem ekki er notað er tekið frá manni? „Use it or loose it" er það kallað á ensku.

Milljarðamæringaávarpið
Þótt Reykjavík sé að mörgu leyti ágæt skortir hér töluvert upp á boðlega aðstöðu fyrir milljarðamæringa. Til dæmis vantar almennilegar hallir. Eina höllin sem stendur undir nafni er Sundhöllin og hún er notuð handa skítugum almenningi að baða sig.

Að muna ártöl
Ef tímatal okkar væri miðað við Miklahvell væri býsna erfitt að setja á sig ártöl úr mannkynssögunni. Til dæmis að muna að Kristur fæddist árið 13699999993 og Múhameð flýði frá Mekka til Medína árið 13699998615 og Ísland varð lýðveldi árið 13999998056.

Sauðkindurnútímans
Ef manneskja stendur úti á miðri götu og hefur gleymt bílaumferðinni við að taka mynd af Leifi heppna með Hallgrímskirkju í baksýn eru yfirgnæfandi líkur á því að þetta sé svonefndur túristi. Þeirra vegna verða ökumenn að gæta sérstakrar varúðar.

Stúlka í Prag
Fyrir nokkrum árum sýndi tékknesk stúlka mér alveg sérstakan áhuga. Það gerðist í Borgarvirki eða Hradcany í Prag. Því miður beindist áhugi hennar ekki að mér persónulega heldur var það þjóðerni mitt sem gerði mig spennandi. Það var hinn íslenski lögreglumaður Erlendur í bókum Arnaldar Indriðasonar átti hug hennar og hjarta.

Íslendingar í útlöndum
Marmaris heitir lítið sjávarpláss í Tyrklandi. Þetta er útgerðarbær og lifir á ferðamönnum en ekki fiskveiðum. Tiltölulega stutt er síðan Íslendingar fóru að venja komur sínar til Marmaris að njóta góðrar aðhlynningar í sumarleyfinu. Öldum saman hafði þá verið lítill samgangur milli Tyrklands og Íslands.

McFréttir eða lífrænt ræktaðar
Hið gamla spakmæli „allt er best í hófi“ kemur upp í hugann þegar maður fer í sumarleyfi og finnur hvílík hvíld er fólgin í því að losna úr heljargreipum þess lífsmynsturs sem maður er fastur í dagsdaglega. Maður hringir bara nauðsynleg símtöl til að tilkynna aðstandendum að maður hafi náð að komast á réttan áfangastað og sé ekki kafnaður úr hita. Maður fær bara nauðsynlegar fréttir af því að ekki hafi gleymst að vökva blómin og skipta um sand í kattakassanum.