Félagsmál

„Eins og veikindin séu ekki nóg"
Ráðuneyti vísa á hvort annað eða á sveitarfélag þaðan sem engin svör fást í máli konu með MS- sjúkdóminn sem hefur verið á stofnunum í tæpt ár vegna úrræðaleysis í húsnæðismálum. Baráttan við kerfið er farið að taka á heilsu konunnar.

Hátt í eitt hundrað umsóknir um hlutdeildarlán á einni viku
Áttatíu og níu umsóknir um hlutdeildarlán hafa borist Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á rúmri viku, eða frá því að opnað var fyrir umsóknir hinn 1. nóvember.

Félag fanga lýsir vantrausti á dómsmálaráðherra
Afstaða, félag fanga, hefur lýst vantrausti á fangelsismálayfirvöld og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra, vegna viðbragða þeirra við kórónuveirufaraldrinum í fangelsum landsins.

„Þurfum að gæta að því að það sé enginn útskúfaður úr samfélaginu“
Foreldrar langveikra og fatlaðra barna hvetja Sjúkratryggingar Íslands til þess að endurskoða reglugerð varðandi endurgreiðslu í tengslum við kaup á hjólastólahjólum og öðrum hjálpartækjum. Framkvæmdastjóri landssambands hreyfihamlaðra segir að það sé nauðsynlegt að tryggja jafnan aðgang allra að hjólum.

Hefur boðið dómsmálaráðherra aðstoð í málefnum barna þegar kemur að útlendingamálum
Félagsmálaráðherra hefur boðið dómsmálaráðherra aðstoð í málefnum barna þegar kemur að útlendingamálum. Hann segir grundvallarbreytingar á atvinnuleyfiskerfinu hér á landi ekki kraftaverkalausn.

Hælisleitendur í rakaskemmdu húsnæði
Barnafjölskyldur sem hafa óskað eftir alþjóðlegri vernd búa í húsnæði á vegum Reykjavíkurborgar sem ungbarnaleikskóli flúði úr vegna rakaskemmda fyrir fjórum árum. Reykjavíkurborg segist vera búin að endurnýja húsnæðið. Víða sjást þó mygla og raki á húsnæðinu.

Lifandi vísindaskáldsaga og viðbrögð við henni
Um þessar mundir eru um þrjú ár síðan sitjandi ríkistjórn tók við völdum. Þetta hafa verið þrjú viðburðarík ár. Í stjórnarsáttmálanum er lögð áhersla á gott jafnvægi í ríkisfjármálum, að efnahagur vænkist hratt og að gæta þurfi að jafnvægi meðal allra sem landið byggja.

Straumhvörf í umönnun sjúklinga á hjúkrunarheimilum sem fá Covid-19
Sérstök Covid-19 einangrunardeild fyrir íbúa sem smitast á hjúkrunarheimilum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum hefur verið opnuð á Eir í Grafarvogi. Þetta er fyrsta deild sinnar tegundar hér á landi og mun valda straumhvörfum í umönnun íbúa hjúkrunarheimila sem þurfa ekki á hátækniþjónustu að halda á Landspítala.

Bassirou er kristinn og það breytir öllu til hins verra
Sindri Guðjónsson þýðandi segir fjölskylduna allt eins eiga yfir höfði sér ofsóknir og útskúfun í Senegal

Hlutdeildarlán - nýtt verkfæri, betri árangur
Það er oftast ekki fyrr en maður fær nýtt verkfæri í hendurnar, sem það kemur í ljós hversu mikil þörf var á að skipta um aðferð til að ná betri árangri.

„Skilinn eftir í þessari íbúð til að rotna og deyja“
Fyrir rúmum sex árum fékk Rán Péturs Bjargardóttir símtal frá föður sínum. Hún hafði þá ekki heyrt í honum árum saman, en hann var fíkill sem háði baráttu við geðklofa.

Segir Sjúkratryggingar Íslands ekki komnar inn í þessa öld
Sigurður Hólmar Jóhannesson gagnrýnir að ekki fáist niðurgreiðsla frá Sjúkratryggingum Íslands fyrir mörgum hjálpartækjum sem gætu bætt lífsgæði langveikra og fatlaðra barna til muna.

Rauði krossinn ætlar ekki að hætta rekstri spilakassa
Formaður SÁÁ telur að yfirvöld ættu að styrkja samtökin vegna tekjumissis sem verður vegna ákvörðunar félagsins um að hætta þátttöku í rekstri spilakassa.

Hefur greitt skatta og gjöld um árabil en hefur ekki rétt á atvinnuleysisbótum
Umsækjandi um alþjóðlega vernd, sem búið hefur hér á landi í tæp sjö ár og greitt skatta og gjöld, hefur hvorki rétt á atvinnuleysisbótum né öðrum félagslegum réttindum frá ríkinu.

Hefja undirskriftasöfnun til að sýna fjölskyldunni stuðning
Vinir fjölskyldunnar sem vísa á að óbreyttu úr landi eftir sex ára dvöl hérlendis hafa hrundið af stað undirskriftarsöfnun til stuðnings fjölskyldunni.

„Réttindi barnanna eru fótum troðin í þessu fordæmalausa máli“
Hjónum frá Sénegal sem eiga þriggja og sex ára stelpur sem fæddust hér á landi verður að óbreyttu vísað úr landi. Þau hafa án árangurs barist fyrir dvalarleyfi hér af mannúðarástæðum eða fyrir alþjóðlegri vernd í sex ár. Lögmaður þeirra segir málið án fordæma.

Kakan er lygi
Öryrkjabandalag Íslands gaf út myndband þann 11. október síðastliðinn þar sem kaka fjármálaráðherra var útskýrð frá sjónarhorni öryrkja. Skilaboðin voru einföld, það fá ekki allir að njóta.

Sveitarfélög og verktakar þurfi að draga úr álagningu
Ekki kemur til greina að heimila kaup á eldri íbúðum á höfuðborgarsvæðinu með hlutdeildarlánum að sögn félagsmálaráðherra. Sveitarfélög og verktakar þurfi að draga úr álagningu til að byggja megi hagkvæmar íbúðir.

Sífellt fleiri sveitarfélög segja sig frá rekstri hjúkrunarheimila
Fjögur sveitarfélög hafa sagt upp samningum sínum við ríkið og það fimmta íhugar það vegna óánægju með framlög til starfseminnar. Heilbrigðisráðherra sem hefur verið gagnrýnd fyrir að svelta einkarekin hjúkrunaheimili, vísar því á bug.

Málstofur Þjóðarspegilsins aðgengilegar öllum heima í stofu
„Það má líta á kosti þess að hafa þurft að fara í þær breytingar að hafa ráðstefnuna rafræna því jafnvel munum við ná betur til fólks með þessum hætti,“ segir Stefán Hrafn Jónsson forseti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands í samtali við Vísi.

Sjaldgæfir sjúkdómar og langveik börn – Tryggjum bætta umgjörð
Að greinast með sjúkdóm veldur streitu og kvíða, að greinast með sjaldgæfan sjúkdóm eða takast á við að barnið manns sé að berjast við langvinnan sjúkdóm hlýtur að vera enn meira íþyngjandi.

„Þetta sem gerðist á Landakoti er auðvitað grafalvarlegt“
Heilbrigðisráðherra segir áhrif hópsmits á Landakoti grafalvarleg og treystir því að spítalinn fari í saumana á allri atburðarásinni. Næstum hundrað og tuttugu manns hafa smitast í hópsýkingunni þar.

Bjarni segir að útgjöld til velferðarmála hafi aukist en ekki verið skert
Fjármálaráðherra segir að útgjöld til velferðarmála hafi snar aukist hér á landi og að nú fari um fjórðungur allra skatttekna og tryggingagjalda til almannatrygginga, sem sé tvöföldun frá árinu 2013.

Fáir á höfuðborgarsvæðinu geti nýtt hlutdeildarlán á næstunni
Frá og með mánaðarmótum geta þeir sem teljast tekju- eða eignaminni sótt um hlutdeildarlán hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun við kaup á fasteign. Úrræðið er hluti af lífskjarasamningnum og geta þeir sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð, eða hafa ekki átt íbúð í fimm ár, sótt um lánið.

„Eitthvað sem er ekki mér að kenna“
Þunguð kona á ekki rétt á veikindagreiðslum úr fæðingarorlofssjóði þar sem of langur tími er liðinn frá því hún var á vinnumarkaði.

Mannréttindi í velferðarþjónustu: Í minningu baráttukonu
Við Íslendingar erum og megum vera stolt af því að búa í velferðarsamfélagi. Með sameiginlegum sjóðum er séð fyrir menntun, heilbrigðis- og félagsþjónustu og lágmarksframfærslu.

Örsögur um Gunnu sem hugsaði með hjartanu
Guðrún Ögmundsdóttir, fyrrverandi þingmaður og borgarfulltrúi, hefði orðið sjötíu ára í dag. Hún lést þann 31. desember 2019.

Segir heilbrigðisráðherra hafa vitað af málinu síðan í febrúar
Formaður MS-félagsins segir mannréttindi konu með MS fótum troðin þegar henni var synjað um heimaþjónustu og húsnæði. Heilbrigðisráðherra hafi lengi vitað af málinu og ekkert gert. Nú sé verið að skoða lagalega stöðu konunnar.

MS- félagið skorar á stjórnvöld að leysa mál Margrétar
MS-félag Íslands segir að yfirvöldum hafi margítrekað verið bent á aðstæður Margrétar Sigríðar Guðmundsdóttur en hún hefur verið heimilislaus síðan í janúar. Félagið harmar stöðu hennar og telur nauðsynlegt að grípa strax til aðgerða.

Kópavogsbær ætlar í samvinnu við ríki að reyna að útvega konunni þjónustu
Kópavogsbær hefur sent frá sér tilkynningu vegna málefna konu með MS- taugahrörnunarsjúkdóms sem var synjað um áframhald á heimaþjónustu hjá bænum. Þar kemur fram að bærinn telji óásættanlegt að fólk lendi á gráu svæði milli ríkis og sveitarfélaga. Bærinn ætli eftir bestu getu að reyna að verða viðkomandi úti um þá þjónustu sem hún á rétt á í samvinnu við ríkið.