Norðvesturkjördæmi
1 2 3 4 5 6 7 … 8 ›
Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir greiðslur sem hún hafa þegið sem þingmaður landsbyggðarkjördæmis lögbundnar og ekki valkvæðar. Hún hafi kannað það fyrir nokkrum árum hvort hægt væri að afþakka greiðslurnar en fengið það svar að það væri ekki hægt. Innlent 19.10.2024 09:35
Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir annar þingmaður Norðvesturkjördæmis, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur þegið húsnæðis- og dvalarkostnaðargreislur upp á samtals 13,8 milljón krónur frá árinu 2016. Þórdís er frá Akranesi en hefur búið í Kópavogi síðastliðinn áratug. Hún er langt í frá eini þingmaðurinn sem fær greiðslurnar lögbundnu sem koma sumum spánskt fyrir sjónir. Innlent 18.10.2024 23:08
Stillt upp á alla lista Viðreisnar Uppstillingarnefndir stilla upp á alla lista Viðreisnar fyrir komandi Alþingiskosningar. Þetta var ákveðið í landshlutaráðum í gær og í kvöld. Spenna ríkir í baráttu um sæti á Reykjavíkurlistum flokksins. Innlent 17.10.2024 22:01
G. Sigríður vill annað sætið í Norðvestur G. Sigríður Ágústsdóttir hefur tilkynnt að hún hafi ákveðið að gefa kost á sér í annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Hún er fædd og uppalin á Bíldudal og býr í dag í Reykjavík. Innlent 17.10.2024 14:56
Bjarni hættur í Vinstri grænum Bjarni Jónsson þingmaður hefur sagt sig úr Vinstri grænum og sagt skilið við þingflokkinn. Hann segir flokkinn hafa sveigt af leið og brugðist grunngildum sínum og væntingum þeirra sem stóðu að stofnun hans. Innlent 17.10.2024 14:44
Ólafur vill leiða listann Ólafur Adolfsson lyfsali hjá Apóteki Vesturlands og fyrrverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akranesi gefur kost á sér í fyrsta sæti Sjálfstæðisflokksins á Norðvesturlandi. Áður hefur Teitur Björn Einarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins tilkynnt að hann sækist eftir sama sæti. Innlent 17.10.2024 08:15
Sjálfstæðismenn kjósa um efstu sæti á lista á landsbyggðinni Kosið verður um efstu sætin á framboðslistum Sjálfstæðisflokksins í landsbyggðarkjördæmunum á fundum kjördæmaráða sem fara fram á sunnudag. Raðað verður í neðri sætin. Innlent 16.10.2024 12:26
Sjálfstæðismenn keppast um sætin: „Ég las Morgunblaðið eins og aðrir“ Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, hyggst ekki láta það trufla sig ef varaformaður flokksins sækist eftir sæti á lista í sama kjördæmi. Þá íhugar Teitur Björn Einarsson þingmaður hvort hann muni sækjast eftir oddvitasæti í Norðvesturkjördæmi. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, sem hefur verið orðuð við framboð fyrir flokkinn segist ekki vera á leið í landsmálin. Innlent 15.10.2024 14:13
Þórdís gæti boðið sig fram í Kraganum Mögulegt er að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, bjóði sig fram í Suðvesturkjördæmi í kosningum sem fara fram í næsta mánuði. Hún segist íhuga það alvarlega. Innlent 15.10.2024 08:40
Skrifstofa Alþingis tekur dóm MDE til skoðunar Forseti Alþingis hefur óskað þess að skrifstofa Alþingis taki niðurstöðu dóms frá Mannréttindadómstóli Evrópu til skoðunar. Íslenska ríkið er í dómi talið brjóta gegn rétti til frjálsra kosninga. Þingkona Samfylkingar tekur málið upp á morgun í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Innlent 16.4.2024 14:04
Brotið gegn rétti til frjálsra kosninga: Höfðu betur í talningamálinu Mannréttindadómstóll Evrópu komst að því í dag að brotið hafi verið á rétti þeirra Magnúsar D. Norðdahl og Guðmundar Gunnarssonar í talningamálinu svo kallaða í Norðvesturkjördæmi. Íslenska ríkinu er gert að greiða þeim bætur. Innlent 16.4.2024 09:08
Teitur Björn vill kalla atvinnuveganefnd saman Verulegur urgur er nú í herbúðum Sjálfstæðismanna vegna ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að banna hvalveiðar. Innlent 20.6.2023 16:36
Teitur Björn mun taka sæti Haraldar: „Nokkuð óvænt“ Teitur Björn Einarsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, mun taka sæti Haraldar Benediktssonar á Alþingi eftir að sá síðarnefndi tekur við stöðu bæjarstjóra Akraness á næstu vikum. Teitur Björn segist spenntur fyrir verkefninu. Innlent 17.3.2023 10:58
Þingmaður ráðinn bæjarstjóri Akraness Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið ráðinn bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Hann tekur við stöðunni af Sævari Frey Þráinssyni sem nýverið var ráðinn forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. Innlent 17.3.2023 10:24
Ekkert sáttatilboð lagt fram í talningarmálinu Ríkislögmaður segir að ríkið hafi ekki lagt fram neitt sáttatilboð eða viðurkennt brot á mannréttindasáttmála Evrópu vegna kæru tveggja frambjóðenda í Alþingiskosningunum í fyrra. Frambjóðendurnir kærðu ákvörðun Alþingis að staðfesta kosningaúrslitin til mannréttindadómstólsins. Innlent 5.10.2022 17:36
Ríkið reyndi að ná fram sáttum í talningamálinu Ríkið hefur boðið fram sáttir í máli tveggja frambjóðanda er varðar umdeilda talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi í síðustu Alþingiskosningum. Málið verður tekið fyrir hjá Mannréttindadómstól Evrópu á næstunni. Innlent 5.10.2022 06:28
Varaþingmaður hættur í Flokki fólksins vegna hrossamálsins Varaþingmaður Flokks fólksins er hættur í flokknum vegna tengsla við meint dýraníð í Borgarfirði. Formanni flokksins blöskraði að varaþingmaðurinn væri tengdur málinu. Innlent 6.9.2022 16:32
„Við verðum að gera eitthvað, við eigum engan kost í stöðunni“ Stefán Vagn Stefánsson þingmaður Framsóknar og fyrrverandi yfirlögregluþjónn á Norðurlandi vestra segir löngu orðið tímabært að grípa inn í þá þróun sem eigi sér stað með skotvopn hér á landi. Tæplega níutíu þúsund skotvopn eru skráð hér á landi. Konu var banað og eiginmaður hennar særður í skotárás á Blönduósi aðfaranótt sunnudags. Innlent 22.8.2022 16:54
Vill að Svandís fundi með þingmönnum Norðvesturkjördæmis Eyjólfur Ármannsson, oddviti Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, hefur óskað eftir því að þingmenn kjördæmisins fái fund með Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, vegna stöðvunar strandveiða til að leita að lausn á málinu. Innlent 26.7.2022 14:00
„Mikil afturför, vanhugsað og ég er ósátt við minn ráðherra“ Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaþingmaður Vinstri grænna, gagnrýnir Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, harðlega fyrir áætlanir um að taka upp svæðaskiptingu á kvóta strandveiða á ný. Lilja segir ákvörðunina vanhugsaða, hún feli í sér mikla afturför og að ráðherra ætti frekar að einbeita sér að því að „taka á þeim hlutum sem vitað er að þarf að bæta í kerfinu.“ Innlent 6.7.2022 13:48
Karl Gauti kærir lögreglustjóra fyrir að fella niður rannsókn Karl Gauti Hjaltason, fyrrverandi þingmaður sem féll út af þingi við endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi síðasta haust, hefur kært lögreglustjórann á Vesturlandi til ríkissaksóknara fyrir að fella niður rannsókn á málinu. Innlent 8.4.2022 07:43
Vafi vegna nýrra kosningalaga ástæða þess að málin voru felld niður Lögreglustjórinn á Vesturlandi telur að ný kosningalög sem tóku gildi um áramótin kveði ekki á með beinum hætti um skyldu til að innsigla kjörgögn að lokinni talningu í kosningum. Því sé vafi á því hvort að meint brot starfsmanna yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis í síðustu Alþingiskosningum varði refsingu. Sá vafi var túlkaður starfsmönnunum í hag. Innlent 14.3.2022 15:36
Mál yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis fellt niður Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur fellt niður mál á hendur starfsmönnum yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis í kjölfar Alþingiskosninganna í september. Að minnsta kosti tveir starfsmenn yfirkjörstjórnar hafa fengið send bréf þess efnis. Þeirra á meðal Ingi Tryggvason, sem gegndi formannsstöðu, og Katrín Pálsdóttir sem sæti átti í yfirkjörstjórn. Innlent 14.3.2022 12:34
Frjálsar strandveiðar varða mannréttindi Strandveiðikerfið í dag er miklum annmörkum háð Það heimilar aðeins veiðar í 48 daga á ári, 12 daga á mánuði frá maí til ágústs. Þá er potturinn lítill og klárast reglulega áður en strandveiðitímabilinu lýkur, með þeim afleiðingum að margir ná ekki að fullnýta veiðirétt sinn. Skoðun 14.3.2022 08:31
Enginn í yfirkjörstjórn greitt sektina og styttist í ákærur Enginn þeirra fimm sem sátu í yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis í síðustu þingkosningum hefur greitt sekt sem þeim var gert að greiða til að ljúka máli sem varðar talningu atkvæða í kjördæminu. Fresturinn til að ljúka málinu er löngu liðinn. Innlent 27.1.2022 06:32
„Lestarslys í slow motion“ Kosningaklúðrið sem heltók líf okkar í lok septembermánaðar var „lestarslys í slow motion“ eins og einn þingmannanna sem datt út af þingi við endurtalninguna komst að orði. Hér rifjum við upp þetta líka skemmtilega mál, sem má kannski kalla helsta fréttamál ársins? Innlent 21.12.2021 07:01
Ný ríkisstjórn á morgun eða hinn Reiknað er með að Katrín Jakobsdóttir flytji stefnuræðu nýrrar ríkisstjórnar á Alþingi á miðvikudag. Stjórnarsáttmáli stjórnarinnar verður annað hvort kynntur á morgun eða á sunnudag. Innlent 26.11.2021 12:01
Traustið á Alþingi og lýðræðislegum ferlum í ræsinu Frambjóðandi Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi segir traust sitt á Alþingi og lýðræðislegum ferlum í ræsinu eftir niðurstöðu kjörbréfamálsins. Hann sjái engan annan kost í stöðunni en að fara með málið alla leið til Mannréttindadómstóls Evrópu. Innlent 26.11.2021 11:52
Galli í tillögu Svandísar hefði getað leitt til uppkosninga alls staðar nema í NV Hefði Alþingi hafnað tillögu Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um uppkosningu í Norðvesturkjördæmi í heild sinni í gær hefði þurft að boða til uppkosninga í öllum kjördæmum nema Norðvesturkjördæmi. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 26.11.2021 11:08
Fyrst verða greidd atkvæði um tillögu Pírata um nýjar alþingiskosningar Þingmenn munu fyrst greiða atkvæði um tillögu Pírata í kjörbréfamálinu um að ekkert þeirra kjörbréfa sem Landskjörstjórn gaf út að loknum kosningum verði staðfest. Þrjár tillögur verða lagðar fyrir þingfund í dag þar sem meirihluti kjörbréfanefndar leggur til að öll kjörbréfin verði staðfest. Innlent 25.11.2021 12:01