Eldgos og jarðhræringar
62 63 64 65 66 67 68 69 70 … 131 ›
Landverðir munu létta undir með björgunarsveitum við gosið Landverðir munu framvegis standa vaktina part úr degi til að létta undir með björgunarsveitum við gosstöðvarnar í Meradölum. Landsbjörg hefur kallað eftir því að geta losað sitt fólk undan sífelldri gæslu við gosstöðvarnar enda sjálfboðaliðarnir ekki óþrjótandi auðlind. Mikil umferð er við gosstöðvarnar og gistipláss í Grindavík eru full. Innlent 13.8.2022 12:08
Kunna ekki skýringar á minni gosóróa Jarðvísindamenn telja ekki að nýjar gossprungur séu að opnast í Meradölum, líkt og talið var mögulegt í morgun. Samdráttur í gosóróa á svæðinu í morgun vakti grunsemdir vísindamanna. Innlent 13.8.2022 09:50
Nokkrum fjölskyldum vísað frá í gær Nokkrum erlendum fjölskyldum var vísað frá gönguleiðinni að eldgosasvæðinu í Meradölum í gær. Var það gert vegna ungs aldurs barna. Eftirlit er sagt hafa gengið vel en gangan mun hafa reynst mörgum erfið í nótt og þurftu margir aðstoð við að komast niður af fjallinu. Innlent 13.8.2022 09:39
Næðisskikkjur og lekalausir pokar fyrir göngufólk í spreng Viðbúið er að fjöldi fólks leggi leið sína að gosstöðvunum í Meradölum um helgina, enda búið að bæta gönguleiðir og auka aðgengi að gosinu. Það eru þó ákveðnir hlutir sem einhverjir hafa áhyggjur af. Það eru klósettmálin. Innlent 12.8.2022 22:01
Ljósmöstur verða sett upp við gönguleiðina að gosinu á næstu dögum Á fimmta þúsund gekk að gosstöðvunum í Meradölum í gær samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Björgunaraðilar segja vel hafa gengið við gosið undanfarna daga þrátt fyrir þennan gríðarlega fjölda fólks og nú sé unnið að lagfæringu gönguleiðarinnar. Innlent 12.8.2022 16:22
Dæmi um að ferðamenn gangi af sér skóna Frá því að eldgosið í Meradölum hófst eru dæmi um að björgunarsveitir hafi þurft að skutla ferðamönnum til baka vegna þess að ekkert er eftir af skóbúnaði þeirra. Formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar biðlar til þeirra sem ætla að ganga að gosinu að undirbúa sig vel. Innlent 12.8.2022 14:46
Ferðamaðurinn sækir í eldgos og dónaskap Egill Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Forlagsins segir bóksölu til erlendra ferðamanna aldrei hafa verið meiri en nú selst helmingi meira af bókum til þeirra en 2019. Innlent 12.8.2022 10:52
Villtust af gönguleiðinni í nótt Viðbragðsaðilar á vakt við gosstöðvarnar aðstoðu átján manns sem villst höfðu af gönguleið A að eldgosinu í nótt. Innlent 12.8.2022 10:11
Krakkar ósáttir með bann á gosstöðvum: „Mér finnst það ekki í lagi“ Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir skýringum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum um ákvörðun hans um að takmarka aðgengi barna yngri en tólf ára að gosstöðvunum í Meradölum. Börn segja ósanngjarnt að sumir megi ekki skoða gosið. Innlent 11.8.2022 22:01
Umboðsmaður vill skýringar á barnabanni Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum og skýringum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum vegna ákvörðunar hans um að takmarka aðgengi barna yngri en tólf ára að gosstöðvunum í Meradölum. Innlent 11.8.2022 13:57
Bein útsending: Eldgosið í nærmynd Vísir sýnir beint frá eldgosinu í Meradölum. Hægt er að fylgjast með gangi gossins á Vísi sem og á Stöð 2 Vísi í sjónvarpi. Innlent 11.8.2022 13:25
Tímaspursmál hvenær hraun rennur suður úr Meradölum Hraun er enn ekki farið að flæða úr Meradölum en jarðeðlisfræðingur segir tímaspursmál hvenær það gerist. Þá muni hraunið renna í átt að Suðurstrandavegi, rúmlega fjögurra kílómetra leið. Innlent 11.8.2022 11:40
Telur mörg þúsund hafa gengið að gosinu í dag Svæðið við gosstöðvarnar í Meradölum var opnað aftur í morgun eftir þriggja daga lokun. Fjöldi fólks lagði leið sína að gosstöðvunum og telur björgunarsveitarmaður að þúsundir hafi farið um svæðið í dag. Innlent 10.8.2022 19:31
Gosmyndavél Vísis komin í loftið Vísir sýnir nú beint frá eldgosinu í Meradölum. Hægt er að fylgjast með gangi gossins á Vísi sem og á Stöð 2 Vísi í sjónvarpi. Innlent 10.8.2022 14:36
Hraun við það að renna út úr Meradölum Lítið vantar upp á að hraun fari að flæða út úr Meradölum en hraunið hefur hækkað um sjö til átta metra þar sem skarðið er hvað lægst. Þetta sýna stikur sem settar voru upp austast í dölunum á föstudag, að sögn Magnúsar Tuma Guðmundssonar, prófessors í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Innlent 10.8.2022 14:11
Hátt í tvö þúsund fóru að gosstöðvunum þrátt fyrir lokanir Hátt í tvö þúsund manns fóru að gosstöðvunum síðustu þrjá daga, þrátt fyrir að lokað hafi verið fyrir aðgengi að þeim þessa daga. Lögreglan segir að erlendir ferðamenn hafi streymt inn á svæðið þrátt fyrir lokanir. Innlent 10.8.2022 12:23
Opna fyrir aðgengi að gosstöðvunum á ný Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að opna aftur fyrir aðgengi almennings að gosstöðvunum í Meradölum. Innlent 10.8.2022 09:37
Stærri gígur að myndast á miðri sprungunni Nokkuð myndarlegur og stærri gígur virðist vera að myndast á miðri gossprungunni í Meradölum. Gígurinn sást vel á vefmyndavél frá Langhól í nótt og hleypir hann frá sér stórum gosstrókum. Innlent 10.8.2022 07:28
„Utan frá séð lítur þetta út eins og einhver geðþóttaákvörðun“ Í morgun tók lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að gossvæðið yrði lokað fyrir alla umferð í dag, en tilkynnti jafnframt að ákvörðun hefði verið tekin um að heimila ekki umferð barna yngri en tólf ára um gosstöðvarnar, óháð veðurskilyrðum. Innlent 9.8.2022 21:38
Mikilvægt að undirbúa sig undir að gosið standi yfir í langan tíma Á fundi Vísindaráðs almannavarna í morgun var farið yfir nýjustu gögn og mælingar um eldgosið í Meradölum. Gosvirknin hefur haldist nokkuð stöðug síðustu daga og er það mikilvægt að undirbúa sig undir að gosið gæti staðið yfir í nokkuð langan tíma. Innlent 9.8.2022 17:21
Sum börn séu betur til þess fallin að ganga að gosinu en fullorðið fólk Í dag bárust fregnir af því að lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefði tekið þá ákvörðun að börn undir tólf ára aldri væru ekki velkomin að eldgosinu í Meradölum. Mikið ósætti virðist ríkja meðal fólks vegna ákvörðunarinnar en lögreglustjórinn, Úlfar Lúðvíksson segir að verið sé að „tryggja hagsmuni barna“ með þessari ákvörðun. Innlent 9.8.2022 17:15
Hraunið nánast komið út í enda Meradala Lítið er að frétta af þróun eldgossins í Meradölum en ekki hefur verið hægt að fara í mælingarflug yfir svæðið frá því á fimmtudag vegna veðurs. Órói er nú stöðugur og hefur dregið úr skjálftavirkni. Innlent 9.8.2022 14:20
Heimilt að sekta fólk sem ekki virðir lokanir á gosstöðvum Lögreglan á Suðurnesjum hefur heimildir til að sekta fólk sem virðir ekki lokanir lögreglu við gosstöðvarnar í Meradölum. Það er þó ekki til skoðunar sem stendur. Svæðið er lokað öllum í dag, vegna veðurs, og verður framvegis alfarið lokað börnum yngri en tólf ára. Innlent 9.8.2022 11:52
Eldgosið bannað börnum yngri en tólf ára Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að meina börnum yngri en tólf ára aðgangi að eldgosinu í Meradölum. Öflugri gæsla verður á svæðinu í dag en í gær. Innlent 9.8.2022 10:55
Gosstöðvarnar verða áfram lokaðar Tekin hefur verið ákvörðun um að áfram verði lokað inn á gosstöðvarnar í dag, þriðjudag, vegna veðuraðstæðna. Innlent 9.8.2022 09:05
Gosstöðvar að öllum líkindum opnaðar aftur þrátt fyrir vonskuveður Gönguleiðir að gosstöðvunum verða opnaðar aftur klukkan tíu að öllu óbreyttu. Það verður þó mjög blautt og mælt með því að bíða með ferðir fram yfir hádegi, að minnsta kosti. Gosórói helst óbreyttur. Innlent 9.8.2022 07:11
Gígar farnir að byggjast upp í Meradölum Við upphaf eldgossins í Meradölum opnaðist ein löng sprunga sem hraun vall upp úr. Nú virðist sem sprungan sé farin að skiljast að og gígar farnir að byggjast upp líkt og í eldgosinu í fyrra. Sérfræðingur segir gosið svipað því sem var í Geldingadölum í fyrra. Innlent 8.8.2022 20:50
Um tíu manns bjargað úr Meradölum Tveimur hópum ferðamanna, sem töldu um tíu manns, var bjargað af björgunarsveitarfólki við gosstöðvurnar fyrr í kvöld. Að sögn björgunarsveitarfólks voru ferðamennirnir kaldir og hraktir. Innlent 8.8.2022 18:55
Nokkrir hópar taldir villtir við gosstöðvarnar Búið er að kalla út nokkrar björgunarsveitir af suðvesturhorni vegna hópa fólks sem taldir eru vera villtir á svæðinu við gosstöðvarnar við Meradali. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg er vitað um minnst tvo hópa sem eru týndir og er vitað af fleirum á svæðinu. Innlent 8.8.2022 16:32
Vill að tilmæli verði gefin út um göngu barna að gosinu Borgarfulltrúi Flokks fólksins mælist til þess að yfirvöld gefi út sérstök tilmæli til foreldra að þeir taki fyrirmælum um að fara ekki með ung börn sín að eldgosinu í Meradal alvarlega. Innlent 8.8.2022 15:33
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent