Hlaup
Hlýnun jarðar á að hafa mikil áhrif á maraþonhlaup í heimnum
Maraþonhlaup verða enn meira krefjandi í framtíðinni ef marka má nýja rannsókn um breyttar aðstæður fyrir stærstu maraþonhlaup heimsins.
Ógeðslega erfitt og ógeðslega vont en brosir oft í viku á eftir
Karlotta Ósk Óskarsdóttir er stanslaust á hlaupum og notar þau til að gera upp fortíðina. Hún horfir þá líka til framtíðar og ætlar sér að setja fleiri Íslandsmet í framtíðinni. Ágúst Orri Arnarson hitti ofurhlauparann í Elliðaárdalnum.
Hljóp hálft maraþon í Crocs og drakk úr skónum
Rússneski hlauparinn Iskander Yadgarov fór óvenjulega leið í vali á skóbúnaði þegar hann keppti í hálfmaraþoni í Valencia á dögunum. Hann hljóp nefnilega í Crocs-skóm en náði engu að síður að klára hlaupið á innan við sjötíu mínútum.
Líður alltaf yfir hana þegar hún kemur í mark
Þau eru mörg vandamálin sem íþróttafólk þarf að glíma við en fá eru óvenjulegri en hjá táningsstelpu frá Suður-Dakóta-fylki í Bandaríkjunum.
Áslaug Arna kom alblóðug inn í sjúkratjaldið
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins sló í dag eigið met í fimm kílómetra hlaupi en ekki slysalaust. Hún lenti í hrakföllum á leiðinni og hljóp alblóðug. Hún kom saumuð og bundin í mark.
Líf, fjör og einmanaleiki
Um áttatíu manns á öllum aldri komu saman í vináttuhlaupi í Elliðaárdal á dögunum til að fagna forritinu Clyx, sem nú er aðgengilegt á Íslandi. Forritið miðar að því að hjálpa fólki að tengjast og draga úr einmanaleika.
Þorleifur lokið keppni á HM
Þorleifur Þorleifsson hefur lokið keppni á HM í utanvegahlaupum. Hann hætti eftir tuttugu hringi.
Dramatík í víðavangshlaupinu: Þorsteinn dæmdur úr leik fyrir að hrinda Arnari
Arnar Pétursson varð í dag Íslandsmeistari í víðavangshlaupum. Talsverð dramatík var í karlaflokknum en Þorsteinn Roy Jóhannsson var dæmdur úr leik fyrir að hrinda sigurvegaranum.
Furðulegasta hlaup ársins innihélt skyldustopp á Taco Bell
Það eru til margs konar maraþonhlaup úti um allan heim en eitt það sérstakasta hlýtur að hafa farið fram á dögunum í Denver í Colarado-fylki.
„Hélt að hjartað myndi springa úr brjóstinu“
„Tilfinningin var ólýsanleg,“ segir markaðs- og viðburðastýran Ósk Gunnarsdóttir sem átti vægast sagt viðburðaríka helgi í Chicago þar sem hún tók þátt í maraþoni sem endaði með trúlofun.
Heitir pabbar í hlaupaklúbbi
Það var mikil gleði um helgina í verslun 66°Norður á Hafnartorgi þegar fyrirtækið hélt hlaupaviðburð ásamt vörumerkinu R8iant sem er í eigu tónlistarmannsins Aron Can. Frægir feður, hlaup og nóg af söltum og steinefnum einkenndu þessa morgunstund.
Strava stefnir Garmin
Bandaríska íþrótta-og tæknifyrirtækið Strava hefur stefnt bandaríska íþrótta-og tæknifyrirtækinu Garmin sem lengi hefur verið samstarfsaðili þess og vill með því koma í veg fyrir að fyrirtækið selji flestar af nýjustu líkamsræktar-og hjólreiðagræjum sínum.
Tvær íslenskar á meðal þrettán bestu á HM
Elísa Kristinsdóttir og Andrea Kolbeinsdóttir náðu frábærum árangri á HM í utanvegahlaupum á Spáni í dag, þegar keppt var í 82 kílómetra hlaupi.
Þorsteinn tók fram úr mörgum og varð fyrstur Íslendinga í mark á HM
Þorsteinn Roy Jóhannsson varð í 57. sæti á heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum í krefjandi aðstæðum á Spáni í dag, í 45 kílómetra hlaupi. Alls hlupu sjö íslenskir keppendur af stað í morgun, fjórir karlar og þrjár konur.
Úr efstu deild í fótbolta á HM í utanvegahlaupum: „Ætla að njóta sársaukans“
Halldór Hermann Jónsson lék yfir hundrað leiki í efstu deild í fótbolta á sínum tíma og varð bikarmeistari með Fram. Í dag er hann í hópi fremstu utanvegahlaupara Íslands og keppir á HM á morgun.
Ástæða til að kanna betur tengsl ofurhlaupa og ristilkrabba
Krabbameinslæknir segir að full ástæða sé til að fylgja eftir rannsóknum bandarískra krabbameinslækna á tengslum svokallaðra ofurhlaupa líkt og bakgarðshlaupa við ristilkrabbamein. Mikilvægt sé að muna að hreyfing dragi úr áhættu á krabbameini.
Ísland aldrei sent jafn fjölmennt lið á HM í utanvegahlaupum
Heimsmeistaramótið í utanvegahlaupum fer fram á Canfranc-Pirineos á Spáni 25.-28. september. Tólf keppa fyrir Íslands hönd á HM og hafa aldrei verið fleiri.
„Ekkert eðlilegt að hlaupa ósofin í allan þennan tíma“
Þórdís Ólöf Jónsdóttir hljóp tæpa þrjú hundruð kílómetra í bakgarðshlaupinu í Heiðmörk um helgina en ákvað þá að segja þetta gott, til að eyðileggja sig ekki alveg. Nú tekur við góð hvíld, enda allt kerfið í rugli.
Hljóp undir fölsku nafni
Enski söngvarinn og lagasmiðurinn Harry Styles hljóp Berlínarmaraþonið sem fram fór á sunnudag á undir þremur klukkustundum.
Guðjón Ingi fagnaði í nótt á nýju brautarmeti
Guðjón Ingi Sigurðsson fagnaði sigri í nótt í fimmta bakgarðshlaupi Náttúruhlaupa í Heiðmörk, eftir keppni við Þórdísi Ólöfu Jónsdóttur um sigurinn. Hlaupið hófst klukkan níu á laugardagsmorgun.
Hefur orðið heimsmeistari jafn oft og Usain Bolt
Noah Lyles varð í dag heimsmeistari í 200 metra hlaupi í fjórða sinn í röð, sem aðeins Usain Bolt hefur tekist áður.
Fyrst til að verða heimsmeistari í báðum greinum
Hin bandaríska Sydney McLaughlin-Levrone, sexfaldur heimsmeistari í 400 metra grindahlaupi, varð heimsmeistari í 400 metra hlaupi á HM í Tókýó í dag.
„Er miklu minni fiskur í stærri tjörn þarna úti“
Þorsteinn Roy Jóhannsson er klár í slaginn fyrir heimsmeistaramótið í utanvegahlaupum sem verður á Spáni 25.-28. september.
„Finn að ég er að fara að toppa á réttum tíma“
Landslið Íslands í utanvegahlaupum undirbýr sig nú fyrir heimsmeistaramótið sem fer fram 25.-28. september á Spáni. Hin fjölhæfa Andrea Kolbeinsdóttir kveðst spennt fyrir mótinu.
Hleypur 110 kílómetra á dag til að setja heimsmet
Ungur maður frá Kanada er kominn hingað til lands til að setja heimsmet. Hann leggur af stað frá Hallgrímskirkju á sunnudagsmorgun og ætlar að hlaupa hringinn í kringum landið.
„Og Rakel er á lausu!“
Árlegt freyðivínshlaup í Elliðarárdalnum fór fram í gærkvöldi en þar klæðast keppendur sumarkjólum og dreypa á víni á milli þess sem þeir hlaupa fimm kílómetra leið.
Hljóp annað maraþon á tánum og minntist Bríetar Irmu
Eftir að hafa hlaupið heilt maraþon berfættur á Menningarnótt hljóp Guðmundur Emil Jóhannsson, betur þekktur sem Gummi Emil, aftur heilt maraþon á tánum í gær. Gummi minntist tveggja vina í kjölfar hlaupsins og segir mikilvægt að fólki tali um tilfinningar sínar.
Ofbeldismaðurinn fær ekki leyfi til að þjálfa á HM
Hlaupaþjálfarinn og fjölskyldufaðirinn Gjert Ingebrigtsen var fyrr á þessu ári dæmdur fyrir heimilisofbeldi en er ekki hættur þjálfun. Hann hefur hins ekki fengið leyfi til að fara á heimsmeistaramótið í frjálsíþróttum í næsta mánuði, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
„Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“
Met var slegið í söfnun áheita í tengslum við Reykjavíkurmaraþonið en yfir 320 milljónir króna hafa safnast til hinna ýmsu málefna. Sá efsti á lista hlaupara safnaði yfir þremur milljónum fyrir styrktarsjóð vegna endurhæfingar sonar síns.
„Það urðu smá árekstrar en heilt yfir var þetta ótrúlega vel skipulagt“
Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir skipulagið, eða skort þar á, í kringum Reykjavíkurmaraþonið. Formaður ÍBR segir að breytingum fylgi mistök en þau muni ekki endurtaka sig og heilt yfir hafi hlaupið verið ótrúlega vel skipulagt.