
EM 2017 í Hollandi

Freyr búinn að tilkynna byrjunarliðið: Dagný byrjar frammi og þrír nýliðar í liðinu
Freyr Alexandersson hefur tilkynnt byrjunarlið íslenska kvennalandsliðsins fyrir leikinn gegn Frökkum í C-riðli EM 2017. Leikurinn fer fram á heimavelli Willem II í Tilburg.

Íslendingar út um allt í miðbæ Tilburg | Myndir
Íslendingar verða áberandi í stúkunni á Konunglega vellinum í Tilburg í kvöld en fram að leik skemmtu allir sér saman í sumarblíðunni í miðbænum.


Bein útsending: Íslendingafjör á tónleikum í Tilburg
Vísir er með beina útsendingu frá Pieter Vreedeplein torginu í Tilburg þar sem svokallað "Fan Zone“ er staðsett.

Íslendingapartý með forsætisráðherra og formanni KSÍ í Tilburg | Myndaveisla
Reiknað er með að um 3000 Íslendingar verði á leik Frakklands og Íslands í C-riðli EM kvenna í Tilburg í kvöld.

Stelpurnar spila í hvítu og dómarinn frá Ítalíu
Von er á tæplega 5000 áhorfendum á leikvanginn sem tekur rétt tæplega fimmtán þúsund áhorfendur í sæti.

Sjáðu stemmninguna í Íslendingapartí með forsætisráðherra í Tilburg
Bjarni Ben og fleiri góðir að hita upp á heimili Ingibjargar Sigfúsdóttur og Kristins Lárussonar fyrir stórleikinn gegn Frökkum. Þar er múgur og margmenni.

Misstu af EM 2013 vegna meiðsla: Þetta verður mótið okkar Söndru Maríu
Við höfum rætt það hvað þetta mót verði okkar mót einhvern veginn, segir Katrín Ásbjörnsdóttir sem deilir herbergi með Söndru Maríu Jessen.

Líklegt byrjunarlið Íslands: Þrjár berjast á kantinum
Freyr Alexandersson hafði um ýmislegt að hugsa áður en hann valdi liðið og tilkynnti leikmönnum það í gær.

Á bak við tjöldin með liðsstjórunum og gleðigjöfunum Laufeyju og Margréti
Við vorum ekki að koma með allt þetta dót til þess að fara heim. Það er á hreinu! segir liðsstjórinn Laufey Ólafsdóttir.

Glódís Perla: „Nú er þetta í okkar höndum“
Undirbúningi er lokið og nú er komið að stóru stundinni í Tilburg í kvöld.

EM í dag: Þjálfari Frakka leit á blað og sagði „Magnúsdóttir“
Eru Frakkarar "lúserar“? Þeir hafa allavega ekki unnið neitt með kvennalandsliði sínu þrátt fyrir að vera með einhver bestu félagslið í heimi í fótbolta.

Íslendingar sem gista í stórborgunum geta ekki fagnað of lengi í kvöld
Síðasta lestarferð frá Tilburg til Amsterdam og Rotterdam er á miðnætti.

Fyrirliði Frakka: Þurfum að vinna litlu úrslitaleikina okkar
Það verður við ramman reip að draga fyrir stelpurnar okkar í Tilburg í kvöld enda franska landsliðið eitt það allra besta í heimi. Wendy Renard, fyrirliði Frakklands, talaði um litlu úrslitaleikina sem bíða liðsins á næstu átta dögum.

Annað tækifæri til að heilla
Stelpurnar okkar hefja leik á EM í Hollandi í kvöld þegar þær mæta Frakklandi í fyrsta leik í Tilburg.

Eldar veislumat fyrir stelpurnar okkar og mundi eftir smjörinu
Maður verður að tipla á tánum til að byrja með. Ef þú færð þetta lið á móti þér ertu dauðadæmdur, segir Hinrik Ingi Guðbjargarson varðandi fyrstu skrefin inn í eldhúsið á hóteli kvennalandsliðsins.

Fengu táfýlusprey til að bregðast við ástandinu á leikmannaganginum
Anna Björk er náttúrulega með hrikalega táfýlu en við erum búin að fá táfýlusprey, segir Dagný Brynjarsdóttir.

Sænsku stelpurnar enduðu ellefu leikja taphrinu á móti Þýskalandi í kvöld
Svíþjóð og Þýskaland gerðu markalaust jafntefli í kvöld í seinni leik dagsins á Evrópumóti kvenna í fótbolta en þetta var fyrsti leikur liðanna í B-riðli keppninnar í Hollandi.

Íslendingar verða í miklum meirihluta í stúkunni á morgun
Varaformaður KSÍ segir von á allt að þrjú þúsund Íslendingum á Frakkaleikinn.

Stelpurnar okkar æfðu á konungsvellinum í Tilburg
Æfingin var fyrst og fremst nýtt til að leggja áherslu á andlega þáttinn.

Fyrsti sigur rússnesku stelpnanna í sögu EM kvenna
Rússnesku stelpurnar skrifuðu nýjan kafla í knattspyrnusögu rússnesku þjóðarinnar í fyrsta leik sínum á EM í Hollandi í dag. Rússland vann þá 2-1 sigur á Ítalíu í fyrsta leik B-riðils keppninnar.

Mikið stress og Söru Björk leið ekki vel eftir Frakkaleikinn 2009
Ég var átján ára, á fyrsta mótinu okkar. Það var fyrsta mótið fyrir okkur allar. Það var rosalega hátt spennustig og við vorum stressaðar fyrir leikinn, segir landsliðsfyrirliðinn.

Svona var blaðamannafundur Freys og fyrirliðanna í dag
Freyr Alexandersson, Sara Björk Gunnarsdóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir sátu fyrir svörum á blaðamannafundi fyrir fyrsta leik liðsins á EM 2017.

Guðbjörg: Þær frönsku frekar hrokafullar að eðlisfari
Því lélegri sem þær halda að við séum, því þægilegra finnst mér það, segir markvörður og varafyrirliði íslenska liðsins.

172% fleiri Hollendingar horfðu á upphafsleikinn en fyrir fjórum árum
Hollendingar fylgdust grannt með þegar kvennalandslið þjóðarinnar vann 1-0 sigur á Noregi í upphafsleik EM 2017 í gær.

Rakel verður á bekknum en allar aðrar heilar fyrir Frakkaleikinn
Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu, er búinn að tilkynna byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Frökkum í Tilburg á morgun.

Heimferð ekki á dagskránni
Guðrún Inga Sívertsen er fararstjóri íslenska liðsins á EM í Hollandi. Hún segir ótal hluti þurfa að ganga upp en finnur ekki fyrir stressi. Mikill hugur er í íslenska hópnum og á liðið ekki bókaða heimferð eftir riðilinn.

„Við virðum íslenska liðið“
Þjálfari franska landsliðsins býst við mikilli baráttu í leiknum á móti Íslandi á morgun.

Stelpurnar spila á konunglegum velli á móti Frakklandi | Myndir
Heimavöllur Willem II er völlurinn þar sem Ísland mætir Frakklandi í fyrsta leik sínum á EM á morgun.

Enn þá hægt að fá miða á leiki Íslands á EM
KSÍ verður með útibú í Hollandi þar sem hægt er að sækja miða og fá frekari upplýsingar.