Fréttir

Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna
Bæjarstjóri í Ölfusi leggur til að hætt verði við byggingu nýrrar brúar yfir Ölfusár. Hann leggur til að vegur um Þrengsli verði bættur og Eyrarbakkavegur sveigður suður fyrir Selfoss. Þannig sparist milljarðar króna.

Níu ára stúlka sem féll niður loftræstistokk á rétt á skaðabótum
Barnung stúlka féll niður loftræstistokk við Þverholt í Mosfellsbæ árið 2015 og hlaut skaða af. Landsréttur staðfesti í gær dóm héraðsdóms um að eigandi fasteignarinnar þar sem slysið átti sér stað bæri skaðabótaábyrgð á slysinu.

Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið
Ísraelar vörpuðu í morgun sprengjum á landamærastöð milli Líbanon og Sýrlands. Tugir þúsunda hafa flúið yfir landamærin þar á undanförnum dögum en yfirvöld í Líbanon segja um 1,2 milljónir manna hafa þurft að flýja heimili sín.

Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku
Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, verður á faraldsfæti í barátturíkjunum í næstu viku til að hvetja fólk til að kjósa Kamölu Harris í forsetakosningunum í nóvember.

„Laxaastmi“ tekinn alvarlega fyrir vestan
Framkvæmdastjóri laxavinnslu hjá Arctic Fish í Bolungarvík segir öndunarfærasjúkdóma líkt og „laxaastma“ vera raunverulegt vandamál í sjávarútvegi sem forsvarsmenn fyrirtækisins taki alvarlega. Hann segir að í sláturhúsi fyrirtækisins sé heilsa og vellíðan starfsmanna í fyrirrúmi.

Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols
Þrír fyrrverandi lögregluþjónar í Memphis í Bandaríkjunum voru sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Tyre Nichols. Þeir voru þó sakfelldir fyrir að hafa áhrif á vitni í málinu og einn þeirra var sakfelldur fyrir að brjóta á réttindum Nichols.

Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar
Mjaldurinn Hvaldímír drapst í kjölfar bakteríusýkingar sem hann fékk vegna sárs í munni eftir prik sem sat fast. Það sýna niðurstöður krufningar. Greint er frá þessu á vef norska ríkisútvarpsins, NRK. Engar byssukúlur fundust í mjaldrinum við skoðun. 35 sentímetra langt og þriggja sentímetra breitt prik var fast í munni mjaldursins og er talið að prikið hafi valdið sýkingu sem svo leiddi til dauða hans.

Loftmyndir opna nýtt og einstakt þrívíddarkort af Íslandi
„Við erum mjög stolt af þessu. Þetta er nýtt í þessum þrönga geira sem kortabransinn er,“ segir Karl Arnar Arnarson, framkvæmdastjóri Loftmynda ehf., um nýtt þrívíddarkort af Íslandi.

Stormur við suðausturströndina
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlægri átt í dag þar sem víða verður strekkingur en gengur í hvassviðri eða storm við suðausturströndina. Búið er að gefa út gula viðvörun fyrir Suðausturland.

Býst við þremur áminningum til og hjólar í lögmannanefnd
Hæstaréttarlögmaðurinn Ómar R. Valdimarsson býst við því að Úrskurðarnefnd lögmanna muni áminna hann nokkrum sinnum fljótlega. Hann svarar nefndinni fullum hálsi og sakar hana um að gæta hagsmuna útvaldra lögmanna, eða „fínilögmanna“ eins og hann kallar þá.

Bandarískir kaþólikkar efndu til mótmæla við Páfagarð
Efnt var til mótmæla við Páfagarð í gær þar sem mótmælendur breiddu meðal annars úr fimmtán metra löngu bútasaumsteppi með sögum kaþólskra kvenna sem hafa gengist undir þungunarrof.

List í anda frægustu orða Vigdísar og allar slaufurnar á sama stað
„Listin á bolunum tengist brjóstakrabbameini. Þau máttu vinna annað hvort í kringum svarið hennar Vigdísar við spurningu frá þessum greyið blaðamanni sem spurði hana þessari fáránlegu spurningu, hvort það myndi há henni í starfi að vera bara með eitt brjóst? Hún var þá fljót til svara og sagði: „Það stóð nú aldrei til að hafa íslensku þjóðina á brjósti.“ Þau vinna í kringum þessa setningu eða í anda Bleiku slaufunnar.“

21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt
Kona af ættbálki Jasída, sem liðsmenn Ríkis íslam rændu fyrir tíu árum í Írak, þegar konan var aðeins 11 ára gömul, hefur verið bjargað úr prísund sinni á Gasa.

Stilltu til friðar í slagsmálum fyrir utan skemmtistað
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stillti til friðar þegar slagsmál komu upp fyrir utan skemmtistað í Seljahverfi í gærkvöldi eða nótt. Upplýsingar voru teknar um þátttakendur en enginn handtekinn.

Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela
Hachem Safieddine, sem búist var við að tæki við sem leiðtogi Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna, er sagður hafa fallið í eldflaugaáraás í úthverfi Beirút, höfuðborgar Líbanon.

Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga
Lögmaður fyrrverandi eiginkonu Páls Steingrímssonar skipstjóra, sem var til rannsóknar grunuð um að hafa byrlað Páli, afritað upplýsingar á síma hans og dreift kynferðislegu efni, segir lögreglu hreinlega ljúga í Facebook-færslu um málið. Hann kallar eftir opinberri rannsókn á vinnubrögðum lögreglu í málinu.

Vísar orðum Jóns um nýja Ölfusárbrú á bug
Framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni vísar gagnrýni fyrrverandi Samgönguráðherra á fyrirhugaða Ölfusársbrú á bug, og segir Vegagerðina í stellingum til að hefja verkið. Boltinn sé nú hjá ráðherrum ríkisstjórnarinnar.

Þrír í haldi í fíkniefnamáli
Þrír voru í dag úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í héraðsdómi Reykjavíkur, grunaðir um aðild að fíkniefnamáli sem lögregla hefur til rannsóknar.

Hér sést risaþotan taka á loft frá Keflavíkurflugvelli
Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni var í dag og flaug vélin sérstakan kveðjuhring yfir Reykjavíkursvæðinu. Forstjóri Atlanta segir þessa flugvélartegund hafa byggt upp félagið.

Vita um tvo Íslendinga í Líbanon
Utanríkisráðuneytinu er kunnugt um tvo íslenska ríkisborgara í Líbanon. Annar þeirra hefur óskað eftir aðstoð Borgaraþjónustu ráðuneytisins.

Keyrt á tvo unga drengi
Keyrt var á tvo unga drengi í dag, í tveimur mismunandi tilfellum, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglunnar.

Minnast Bryndísar Klöru með tónleikum: „Fallegt hvað allir stóðu saman“
Minningartónleikar til heiðurs Bryndísar Klöru Birgisdóttur eru haldnir í kvöld, þar sem margir fremstu tónlistarmenn landsins koma fram. Skipuleggjandi segist hafa fundið mikinn samtakmátt meðal samnemenda Bryndísar Klöru.

Kynferðisleg svefnröskun hélt ekki vatni
Landsréttur staðfesti í dag tveggja og hálfs árs fangelsisdóm á hendur manni í nauðgunarmáli. Honum var gefið að sök að nauðga konu sem var sofandi, en maðurinn bar fyrir sig að hann sé haldinn af kynferðislegri svefnröskun.

Féll af steini við Seljalandsfoss
Lögreglan á Suðurlandi fékk tilkynningar um tvö slys með stuttu millibili seinni partinn í gær. Annars vegar féll ferðamaður af steini við Seljalandsfoss. Hins vegar féll einstaklingur af þaki húss í Rangárþingi.

Heilsugæslan til rannsóknar og síðasta farþegaflug júmbóþotu
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins rifti samningi sínum við Samgöngustofu, Fluglæknasetur og KSÍ um aðgang að sjúkraskrám eftir nýlegan úrskurð Persónuverndar. Rætt verður við forstjóra Persónuverndar í beinni í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Kaldasti september frá árinu 2005
Septembermánuður var óvenjukaldur á landinu. Meðalhitastig hefur raunar ekki verið jafn lágt frá septembermánuði árið 2005.

Hefja frumkvæðisathugun á Heilsugæslunni
Persónuvernd hefur ákveðið að hefja frumkvæðisathugun á vinnslu persónuupplýsinga í sameiginlegum sjúkraskrárkerfum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Segir nákvæmlega ekkert að óttast við atkvæðagreiðsluna
Formaður Viðreisnar segir þjóðina skulda unga fólkinu í landinu að fá tækifæri til að ákveða í þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði haldið áfram. Hún horfi til þess þegar Bretland yfirgaf Evrópusambandið í andstöðu við vilja ungs fólks í því samhengi.

Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja
Ísraelski herinn sagði íbúum 25 bæja og þorpa í sunnanverðu Líbanon í dag að yfirgefa heimili sín. Byggðirnar eru norður af Litani-á en hún markar svæði sem átti að vera nokkurs konar hlífðarsvæði samkvæmt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 2006 og þykir yfirlýsingin til marks um mögulega útvíkkun innrásar Ísraela í Líbanon.

Ótrúverðugar skýringar í nauðgunarmáli
Arnar Björn Gíslason, 26 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Arnar Björn var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember í fyrra og var refsingin staðfest í Landsrétti í dag.