Fréttir
246 247 248 249 250 251 252 253 254 … 334 ›
Hættur við að styðja Höllu Hrund Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður kom mörgum á óvart í morgun þegar hann lýsti yfir stuðningi við forsetaframboð Höllu Hrundar Logadóttur orkumálastjóra. Hann hefur nú dregið þann stuðning sinn til baka. Innlent 29.4.2024 16:45
Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar segir að lokunin sé vegna fjárskorts og hún megi heita skeytingarleysi gagnvart fólki með fíknisjúkdóm. Innlent 29.4.2024 16:16
Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Samninganefndir Sameykis og FFR, félags flugmálastarfsmanna ríkisins, hafa efnt til atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun félagsfólks sem starfar hjá ISAVIA ohf. Verkfallsaðgerðirnar hefjast 9. maí verði þær samþykktar, en atkvæðagreiðslunni um þær lýkur 2. maí. Innlent 29.4.2024 15:24
Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Sigurður Reynir Gíslason, jarðefnafræðingur og rannsóknaprófessor við jarðvísindastofnun háskólans, hefur verið kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíunni (American Academy of Arts and Sciences) fyrir störf sín á sviði jarðvísinda. Innlent 29.4.2024 14:42
Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum í Borgarfirði tók sig til og skrifaði grein þar sem hún furðar sig á stjórnsýslu landsins. Hún fari sínu fram hverju sem tautar og raular. Innlent 29.4.2024 13:13
Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Humza Yousaf, fyrsti ráðherra Skotlands, hefur ákveðið að segja af sér. Yousaf átti yfir höfði sér vantraustsyfirlýsingu vegna ákvörðunar hans um að rjúfa samstarf Skoska þjóðarflokksins og Græningja. Erlent 29.4.2024 13:08
Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Grindvíkingar hafa neyðst til að henda gríðarlegum verðmætum undanfarið vegna búferlaflutninga. Að minnsta kosti hálf búslóðin fór í ruslið hjá einum þeirra. Annar segir að enginn vilji hirða dótið og Góði hirðirinn sé sprunginn. Innlent 29.4.2024 13:01
Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Í júní á þessu ári verða í fyrsta sinn veitt Vigdísarverðlaun til valdeflingar konum á vegum Evrópuráðsþingsins. Sérstök valnefnd mun tilkynna hverjir þrír eru tilnefndir til þeirra í ár á Alþingi þann 2. maí, eða á fimmtudag. Í verðlaun eru 60 þúsund evrur sem samsvara um níu milljónum íslenskra króna og nýr íslenskur verðlaunagripur. Innlent 29.4.2024 12:59
Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Sunna Valgerðardóttir, frétta- og dagskrárgerðarkona á RÚV, hefur verið ráðin til þingflokks Vinstri grænna. Hún hefur þegar látið af störfum hjá RÚV. Innlent 29.4.2024 12:06
Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Í hádegisfréttum fjöllum við um úrskurð landskjörstjórnar frá því í morgun þess efnis að ellefu framboð til forseta hafi talist gild. Innlent 29.4.2024 11:36
Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Landlæknisembættið hefur ákveðið að krefjast þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að hann ógildi ákvörðun Persónuverndar frá 27. júlí 2023 þar sem embættið var sektað um tólf milljónir króna vegna öryggisveikleika á vefnum Heilsuvera.is. Innlent 29.4.2024 11:28
Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu – félags fanga á Íslandi segir það mikið gleðiefni að félagið hafi fengið rekstrarleyfi frá Gæða og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) til að sinna félagslegri ráðgjöf. Innlent 29.4.2024 11:19
Viktor og Kári heltast úr lestinni Tvö framboð til embættis forseta Íslands voru úrskurðuð ógild á fundi Landskjörstjórnar í dag. Þeir Viktor Traustason og Kári Vilmundarson Hansen fá ekki pláss á kjörseðlinum þegar kosið verður til forseta þann 1. júní næstkomandi. Innlent 29.4.2024 11:17
Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana í fjölbýlishúsi við Kjarnagötu á Akureyri rennur út klukkan 16 í dag. Lögreglan á Norðurlandi eystra mun gera kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald. Innlent 29.4.2024 10:43
Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Landskjörstjórn ætlar að úrskurða um gildi forsetaframboða á fundi í Þjóðminjasafni Íslands klukkan 11. Vísir verður í beinni útsendingu frá fundinum og fylgist með gangi mála í forsetavaktinni. Innlent 29.4.2024 10:29
Sánchez hættir við að segja af sér Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar og formaður Sósíalistaflokksins, hefur ákveðið að segja ekki af sér. Hann hafði áður sagst vera að íhuga það sökum aðfarar hægriafla að sér og eiginkonu sinni. Erlent 29.4.2024 10:25
Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Helga Þórisdóttir, forsetaframbjóðandi og forstjóri Persónuverndar, kaus gegn Icesave og telur mikilvægt að forseti Íslands sé hlutlaus og óháður. Betra sé að hann hafi ekki verið í stjórnmálastarfi. Hún segist munu beita málskotsrétti ef skýr vilji þjóðar er fyrir því. Innlent 29.4.2024 09:20
Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir í dag nýtt Mælaborð farsældar barna. Um er að ræða nýtt verkfæri sem er hannað til að styðja við innleiðingu farsældarlaganna og innleiða gagnadrifna stefnumótun hvað hag barna varðar. Kynning hefst klukkan 9 og er hægt að horfa í beinu streymi. Innlent 29.4.2024 08:52
Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Fjölmiðlafrelsið stendur höllum fæti víðsvegar í Evrópu og er í verulegri hættu í nokkrum ríkjum, samkvæmt nýrri skýrslu Civil Liberties Union for Europe (Liberties) í Berlín. Erlent 29.4.2024 08:17
Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Litlar breytingar hafa orðið á gosinu við Grindavík í nótt þótt kvikusöfnun haldi áfram og hægt hafi á landrisinu. Innlent 29.4.2024 07:28
Norðlægari vindur í dag en um helgina Í dag verður vindur norðlægari en var um helgina. Á Austfjörðum verður strekkingur, en annars hægari vindur. Lítilsháttar skúrir eða él verða á Norður- og Austurlandi, en bjart með köflum suðvestanlands. Hiti verður á bilinu tvö til 12 stig, mildast verður syðra. Veður 29.4.2024 07:16
Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Nokkuð rólegt var á vaktinni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ef marka má yfirlit lögreglu yfir verkefni næturinnar. Þó voru 58 mál skráð í LÖKE og tveir gistu fangageymslur í morgun. Innlent 29.4.2024 07:11
Vopnahlé í sjónmáli? Háttsettur embættismaður innan Hamas hefur sagt við AFP að samtökin geri engar meiriháttar athugasemdir við nýjar tillögur Ísraelsmanna um vopnahlé á Gasa. Erlent 29.4.2024 06:54
Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Halla Hrund Logadóttir mælist með 29 prósent fylgi í nýrri skoðanakönnun Prósents og Baldur Þórhallsson kemur þar á eftir með 25 prósent fylgi. Katrín Jakobsdóttir mælist aðeins með 18 prósent og Jón Gnarr með 16 prósent. Innlent 29.4.2024 06:34
Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir formaður Lyfjafræðingafélags Íslands hefur miklar áhyggjur af starfsumhverfi lyfjafræðinga. Svo virðist sem uppákomur eins og vopnuð rán séu að færast í aukana. Innlent 28.4.2024 23:50
Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Karl og kona á 75. aldursári létust þegar bíll hafnaði í sjónum nálægt Stokkhólmi við Furusund. Verið var að aka bílnum um borð í ferju þegar bíllinn fór fyrir borð. Erlent 28.4.2024 22:18
Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Slökkviliðsminjasafn Íslands verður tæmt á næstu vikum eftir tíu ára rekstur. Umsjónarmenn safnsins óttast að saga slökkviliðsmanna á Íslandi muni glatast að einhverju leyti við brotthvarfið. Innlent 28.4.2024 22:06
Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Plokkdagurinn mikli var haldinn hátíðlegur með skipulagðri ruslatínslu víða um land í dag. Dagurinn er nú haldinn í sjöunda skipti og var settur með viðhöfn í Grafarvogi í morgun, að viðstöddum forseta Íslands og umhverfisráðherra. Vaskir plokkarar hófu leika strax í kjölfarið og ætla má að borgin sé orðin talsvert þrifalegri eftir yfirferð þeirra, enda safnaðist víðast hvar hratt í ruslapokana. Innlent 28.4.2024 21:29
Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Maður var handtekinn í kvöld eftir ofsaakstur í Vogahverfi í Reykjavík. Lögreglan veitti manninum eftirför með aðstoð sérsveitarinnar. Maðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og áfengis. Innlent 28.4.2024 21:09
Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og sérfræðingur um efnahagsmál telur óhætt að lækka stýrivexti Innlent 28.4.2024 20:25