Fréttir
305 306 307 308 309 310 311 312 313 … 334 ›
Sex innbrot inn á heimili í Árborg Lögreglunni á Suðurlandi hefur fengið tilkynningu um sex innbrot inn á heimili í Árborg í desember síðastliðnum og það sem af er janúar. Þar af voru þrjú þeirra á gamlárskvöld og nýársdagsmorgun. Svo virðist sem að í flestum tilfellum hafi verið að ræða þjófnaði á skartgripum og reiðufé. Málin eru í rannsókn hjá Lögreglustjóranum á Suðurlandi en enginn hefur verið handtekinn vegna þeirra. Innlent 23.1.2024 20:30
Ríkið þurfi bæði að styðja við Grindvíkinga og samningsaðila Formaður Rafiðnaðarsambands Íslands segir mikilvægt að ríkið styðji við Grindvíkinga jafnt sem aðra í samfélaginu sem tengjast kjarasamningum. Þá sé brýnt að ná niður vöxtum sem bíti heimili félagsmanna gríðarlega fast. Innlent 23.1.2024 20:09
Óumflýjanleg hækkun húsnæðisverðs fari eftir útfærslum Viðbúið er að húsnæðisverð hækki þegar Grindvíkingar koma inn á fasteignamarkaðinn að sögn fjármálaráðherra. Hagfræðideild Landsbankans segir áhrif á þenslu og verðbólgu meðal annars fara eftir því hvort gripið verði til skuldsetningar eða skattheimtu. Innlent 23.1.2024 20:00
Sólveig Anna segir ríkisstjórnina ekki getað fríað sig ábyrgð í kjarasamningum Formaður Eflingar segir kjarasamninga ríflega sjötíu prósenta fólks á vinnumarkaði ekki eitthvað verkefni sem stjórnvöld geti ýtt frá sér vegna atburðanna í Grindavík. Samningarnir skipti alla þjóðina máli. Innlent 23.1.2024 19:29
Virðist hafa myrt tvær dætur og barnabarn og framið síðan sjálfsvíg Eldri karlmaður er sagður hafa drepið tvær dætur sínar og eitt barnabarn áður en hann tók sitt eigið líf í Akers-sýslu í Noregi í dag. Erlent 23.1.2024 18:53
„Þetta er hálft skref í rétta átt“ Daníel Ágúst Haraldsson, sem var einn fjölda tónlistarmanna sem mótmæltu fyrirhugaðri þátttöku Íslendinga í Eurovision, segist fagna því að yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi frestað endanlegri þátttöku fram yfir Söngvakeppni sjónvarpsins. Hann hefði þó viljað sjá skrefið stigið til fulls. Innlent 23.1.2024 18:25
Vilja breyta stjórnarskrá svo átján ára geti orðið forseti Fimm þingmenn Framsóknarflokksins hafa lagt fram frumvarp til breytingar á stjórnarskránni sem felur í sér að fjarlægja eigi það skilyrði að Íslendingur þurfi að vera 35 ára eða eldri til að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Þeir segja aldurstakmarkið tímaskekkju og það sýni vantraust gagnvart kjósendum. Innlent 23.1.2024 18:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Viðbúið er að húsnæðisverð hækki þegar Grindvíkingar koma inn á fasteignamarkaðinn að sögn fjármálaráðherra. Hagfræðideild Landsbankans segir hækkunina meðal annars fara eftir því hvort gripið verði til skuldsetningar eða skattheimtu. Innlent 23.1.2024 17:54
Grímuskyldan felld niður Farsóttanefnd Landspítala hefur lagt til við forstjóra spítalans að breyta grímuskyldu sem sett var á 4. janúar síðastliðinn í valkvæða grímunotkun. Innlent 23.1.2024 17:40
Ákveða sig eftir Söngvakeppnina Ríkisútvarpið ætlar ekki að taka neina ákvörðun um þátttöku sína í Eurovision í Svíþjóð fyrr en að lokinni Söngvakeppni sjónvarpsins. Að óbreyttu verður Ísland meðal þátttökuþjóða í Malmö í maí. Innlent 23.1.2024 17:10
Hafa áhyggjur af gífurlegri fjölgun mislingasmitaðra í Evrópu Vitað er til þess að rúmlega þrjátíu þúsund manns smituðust af mislingum í Evrópu í fyrra. Árið 2022 smituðust 941 og samsvarar aukningin því rúmlega þrjátíuföldun. Þetta kom fram á fundi ráðstefnu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Evrópu í dag. Erlent 23.1.2024 16:06
Kaldar kveðjur til Þróttar og KR Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn segir ekki nægilega skýrt hvernig eða hvort brugðist sé við þeim bráðavanda sem myndast hafi í aðstöðumálum íþróttafélaga og grunnskóla í Laugardal með nýrri þjóðarhöll. Innlent 23.1.2024 16:03
Sýknaður þrátt fyrir játningu um að binda niður barn og kitla það Maður, sem var ákærður fyrir að brot á barnaverndarlögum með því að brjóta á tíu ára gömlum dreng, hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness. Atvikið sem málið varðar átti sér stað í desember 2021. Innlent 23.1.2024 15:52
Vonast eftir afgerandi sigri gegn Haley Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, vonast eftir yfirgnæfandi sigri í forvali Repúblikanaflokksins í New Hampshire í dag. Hann vonast til þess að sigurinn verði svo afgerandi að hann geri út af við mótframboð Nikki Haley og annarra frambjóðenda. Erlent 23.1.2024 15:32
Lykildagsetningar þegar líður að kjöri nýs forseta Frambjóðendur til forseta Íslands mega þann 1. mars byrja að safna meðmælum rafrænt fyrir framboð sitt. Þeir hafa átta vikur eða til 26. apríl til að skila meðmælum og tilkynna um framboð. Þá verða fimm vikur til kjördags. Innlent 23.1.2024 14:56
Maðurinn í Bátavogi lést vegna köfnunar Dánarorsök mannsins sem lést í Bátavogi í september í fyrra liggur nú fyrir. Samkvæmt endanlegri niðurstöðu úr réttarkrufningu lést maðurinn af völdum köfnunar, og þá hafði innvortisblæðing spillandi áhrif á súrefnisnæringu til heilans sem var til þess fallið að stuðla enn frekar að köfnuninni. Innlent 23.1.2024 14:55
Hemmi Gunn vekur þingheim til vitundar um gervigreind Björn Leví Gunnarsson Pírati boðar frumvarp um gervigreind og hefur sent þingmönnum drög. Hann segir að bregðast verið við strax. Innlent 23.1.2024 14:29
Með varanlega örorku eftir kylfuárás í Bankastræti Ungur karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Bankastræti í Reykjavík sem átti sér stað um nótt í október 2021. Innlent 23.1.2024 13:54
Meint framhjáhald gæti tafið málaferli gegn Trump um ár Fani Willis, héraðssaksóknari í Fulton-sýslu i Georgíu í Bandaríkjunum, hefur verið sökuð um að halda við saksóknarann sem hún réð til að halda utan um málaferli ríkisins gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta. Ásakanirnar gætu leitt til margra ára tafa á málaferlunum gegn Trump og öðrum sem voru ákærðir með honum. Erlent 23.1.2024 13:48
Gengur vel að aðstoða fólk með fíknisjúkdóm í apótekinu Tugir hafa nýtt sér skaðaminnkandi þjónustu í Reykjanesapóteki þar sem fólki er bæði hjálpað við að draga úr neyslu og veitt aðstoð í viðhaldsmeðferð. Lyfjafræðingur segir fyrirkomulagið hafa gefið góða raun og vill að það verði tekið upp á landsvísu. Innlent 23.1.2024 13:40
HR fær 200 milljónir í rannsóknarhús Háskólanum í Reykjavík hefur verið úthlutað 200 milljónum króna í stuðning til fjármögnunar undirbúnings að uppbyggingu á allt að 6000 fermetra rannsókna- og nýsköpunarhúsi við skólann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu. Innlent 23.1.2024 13:38
Fjórir fundust látnir í húsi í Noregi Lögregla í Noregi hefur hafið rannsókn vegna gruns um manndráp eftir að fjórir einstaklingar fundust látnir í húsi í Nes í Akershus, norðaustur af Osló. Erlent 23.1.2024 12:59
„Þú notar ekki sömu krónurnar tvisvar“ Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, fjármála-og efnahagsráðherra, segir ljóst að aðgerðir til handa Grindvíkingum hafi áhrif á stöðu ríkisfjármála og þar með mögulegt útspil stjórnvalda í kjaraviðræðum. Innlent 23.1.2024 12:27
Dapurlegt ef stjórnvöld ætla að draga í land í kjaraviðræðum vegna Grindavíkur Formaður VR segir dapurlegt ef stjórnvöld ætli að notfæra sér stöðuna í Grindavík til að draga í land með aðgerðir í tengslum við nýja kjarasamninga. Stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins virðist ekki hafa trú á að hægt sé að ná niður verðbólgu og vöxtum. Ef Seðlabankinn hækki vexti í byrjun febrúar sé þátttöku verkalýðshreyfingarinnar í þessari tilraun lokið. Innlent 23.1.2024 11:46
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á kjaraviðræðunum en Formaður VR segir dapurlegt ef stjórnvöld ætli að notfæra sér stöðuna í Grindavík til að draga í land með aðgerðir í tengslum við nýja kjarasamninga. Innlent 23.1.2024 11:36
Börn geti ekki leikið sér nógu mikið úti Börn og ungmenni í Bretlandi verða fyrir mikilli heilsufarsskerðingu þar sem þeim stendur ekki til boða að leika sér úti í sama mæli og áður í landinu. Hagsmunasamtök segja bresk stjórnvöld ekki horfa til mikilvægi þessa þegar kemur að skipulagsmálum. Erlent 23.1.2024 10:47
Ákærður fyrir 240 kynferðisleg skilaboð og 156 símhringingar Karlmaður hefur verið ákærður fyrir umsáturseinelti og kynferðislega áreitni með því að setja sig margítrekað í samband við konu gegn hennar vilja. Meint brot mannsins áttu sér stað árið 2022, nánar tiltekið frá aprílmánuði til desembermánaðar þess árs. Innlent 23.1.2024 10:44
Enn rís Miðflokkurinn Samfylkingin mælist með tæplega 26 prósenta fylgi og er enn stærsti stjórnmálaflokkurinn samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Fylgi Miðflokksins eykst þriðju mælinguna í röð og mælist flokkurinn nú með tólf prósenta fylgi. Innlent 23.1.2024 10:42
Sjúkraþjálfarar geti metið sjálfir hvenær fólk þurfi að koma Kári Árnason sjúkraþjálfari telur ljóst að það þurfi að breyta kerfinu þegar kemur að beiðnum frá heilsugæslu til sjúkraþjálfara. Hann sagði í Bítinu í morgun tregðu einhvers staðar í kerfinu við að breyta þessu og um væri að ræða óþarfa flækju. Innlent 23.1.2024 10:23
Felldu tuttugu og einn hermann í umsátri Ráðamenn í Ísrael segja 24 ísraelska hermenn hafa fallið í átökum við Hamas-liða á Gasaströndinni í gær. Þar af féllu 21 þeirra í sömu árás Hamas en gærdagurinn var sá mannskæðasti fyrir ísraelska herinn frá 7. október. Erlent 23.1.2024 10:15