Fréttir „
35 36 37 38 39 40 41 42 43 … 334 ›
„Við þurfum að flýta okkur hægt í þessari stöðu“ Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segir liggja fyrir að forsætisráðherra hafi ekki beðist lausnar fyrir sína ríkisstjórn. Ræða þurfi hvort setja eigi þess í stað starfsstjórn. Innlent 14.10.2024 13:30
Það henti VG að vera í „svolitlum slag“ við Sjálfstæðisflokkinn Bæði formaður VG og formaður Framsóknar hafa lýst ákvörðun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra um stjórnarslit, sem óvæntum. Þetta hafi komið þeim í opna skjöldu. Ólafur Þ Harðarson, stjórnmálafræðiprófessor var beðinn um að meta stöðu flokkanna eftir ákvörðun Bjarna. Innlent 14.10.2024 13:21
Skondið að sjá ágreininginn koma upp á yfirborðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segir ekkert óeðlilegt að ríkisstjórnin starfi áfram sem starfsstjórn en það sé skondið að sjá allan ágreininginn koma upp á yfirborðið. Þau verði bara að axla sína ábyrgð. Þorgerður ræddi við fjölmiðla á leið til fundar við forseta Íslands. Innlent 14.10.2024 12:58
Stuttur tími til að „komast í kjólinn fyrir jólin“ Nú þegar stefnir í kosningar fyrir jól, keppast flokkarnir við að smíða lista til að tefla fram. Uppstilling þykir líkleg víða, og aðeins einn flokkur hefur þegar tekið ákvörðun um að fara í prófkjör. Formaður eins flokksins segir þá ekki hafa langan tíma til að „komast í kjólinn fyrir jólin“. Innlent 14.10.2024 12:26
Pallborðið: Hvað segir stjórnarandstaðan um útspil Bjarna? Bergþór Ólason, Inga Sæland, Jóhann Páll Jóhannsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir verða gestir Pallborðsins í dag, þar sem til umræðu verður tilkynning Bjarna Benediktssonar í gær. Innlent 14.10.2024 12:24
Leggur upp í leit að lífvænlegum aðstæðum á Evrópu Fyrsti könnunarleiðangurinn til ístunglsins Evrópu gæti hafist í dag með geimskoti bandaríska geimfarsins Europa Clipper. Evrópa þykir einn mest spennandi hnöttur sólkerfisins því neðanjarðarhaf er talið að finna undir ísilögðu yfirborðinu. Erlent 14.10.2024 12:02
Óvissa í efnahagslífinu og erfitt að sjá að verðbólga hjaðni nú Deildarforseti Háskólans á Bifröst segir stjórnarslitin skapa óvissu í efnahagslífinu og erfitt sé að sjá að verðbólga haldi áfram að hjaðna í núverandi ástandi. Hún telur að atvinnulíf muni halda að sér höndum þar til það fer að róast. Nú vilji menn bæði vera í axlaböndum og með belti. Innlent 14.10.2024 11:56
Annar fyrrverandi Miðflokksmaður til liðs við Arnar Þór Baldur Borgþórsson, fyrrverandi varaborgarfulltrúi Miðflokksins, hefur gengið til liðs við Lýðræðisflokk Arnars Þórs Jónssonar. Árið 2021 hætti hann í Miðflokknum og gekk í Sjálfstæðisflokkinn. Innlent 14.10.2024 11:56
Verðlaunaðir fyrir rannsóknir á áhrifum stofnana á auðlegð þjóða Þrír hagfræðingar deila Nóbelsverðlaunum í hagfræði fyrir rannsóknir sem sýna hvaða þýðingu stofnanir samfélagsins hafa fyrir velgengni þess. Rannsóknir þeirra eru sagðar hafa varpað ljósi á hvers vegna sumum þjóðum vegnar vel en öðrum illa. Erlent 14.10.2024 11:40
Forseti fundar með formönnum Í hádegisfréttum fjöllum við um fundahöld dagsins sem hófust á Bessastöðum í morgun þar sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra fór fram á þingrof. Innlent 14.10.2024 11:32
Uppstilling á framboðslista „ekki A-kostur“ Þótt formaður Samfylkingarinnar hafi lýst því yfir í gær að fátt annað komi til greina en að velja á framboðslista flokksins með uppstillingu hefur formleg ákvörðun um slíkt ekki verið tekin. Það er í höndum kjördæmisráðs flokksins að taka ákvörðun um fyrirkomulag við val á lista en formenn kjördæmisráða munu funda síðdegis í dag. Formaður framkvæmdastjórnar flokksins segist telja að fullur skilningur ríki fyrir því að farin verði þessa leið í ljósi þess hve stutt sé að öllum líkindum til kosninga, þótt „þetta sé ekki A-kostur.“ Innlent 14.10.2024 11:26
„Svívirðileg móðgun við kennara“ Kennarar í Reykjavík gera alvarlegar athugasemdir við þau ummæli sem Einar Þorsteinsson borgarstjóri lét falla á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í liðinni viku. Innlent 14.10.2024 11:08
„Mér gæti ekki verið meira sama um alla spekingana“ Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir að honum sé sama um það sem stjórnmálaskýrendur munu segja um ákvörðun hans að boða þingrof. Hann þurfi sterkara umboð og stærri þingflokk til þess að ná fram markmiðum Sjálfstæðisflokksins. Innlent 14.10.2024 10:31
Frank Walter Sands er fallinn frá Frank Walter Sands, athafnamaður og stofnandi veitingastaðanna Vegamóta og Reykjavík Bagel Company, er látinn, aðeins 58 ára gamall. Frank lést á sjúkrahúsinu í Avignon 8. október sl. af völdum hastarlegra ofnæmisviðbragða og hjartaáfalls þar sem hann var staddur í fríi í Suður-Frakklandi. Innlent 14.10.2024 10:23
Nota óbreytta Palestínumenn til að leita að sprengjum og gildrum Ísraelskir hermenn hafa ítrekað notað óbreytta Palestínumenn sem handsamaðir eru á Gasaströndinni sem mennska skildi, meðal annars með því að þvinga þá til að fara inn í byggingar og leita að sprengjum og gildrum. Tilfellum sem þessum hefur farið fjölgandi. Erlent 14.10.2024 10:19
„Þetta verður alger Kleppur“ Arnar Þór Jónsson, stofnandi Lýðræðisflokksins, segir að framundan séu annasamar vikur í kjölfar ákvörðunar Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra að óska eftir þingrofi með það að markmiði að halda þingkosningar í nóvember. Innlent 14.10.2024 10:02
Gerir grein fyrir ákvörðun sinni síðar í vikunni Halla Tómasdóttir, forseti, segist ætla að ræða við formenn allra flokka sem eiga sæti á Alþingi áður en hún tekur afstöðu til óskar forsætisráðherra um þingrof. Hún ætlar að greina frá ákvörðun sinni seinna í vikunni. Innlent 14.10.2024 09:55
Segja ásakanir „uppspuna frá rótum“ og „efni í hryllingsmynd“ Hjónin fyrrverandi sem veittu meðferðarheimilunum að Varpholti og Laugalandi forstöðu á árunum 1997 til 2007 segjast hafa mátt sæta ærumeiðingum og rógburði í fleiri ár. Þau segja að enginn fótur sé fyrir ásökunum fyrrum skjólstæðinga um meint andlegt og líkamlegt ofbeldi, skort á eftirliti, ógnarstjórnun og ásökunum um félagslega einangrun og niðurbrot. Þá hafi ríkisvaldið tekið þátt í „rógsherferð“ sem staðið hafi yfir í á fjórða ár gegn hjónunum. Innlent 14.10.2024 09:33
Óvenjulegt ef forseti féllist ekki á ósk um þingrof Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, gerir ráð fyrir að Halla Tómasdóttir, forseti, verði við bón hans um þingrof og að það væri afar óvenjulegt ef hún gerði það ekki. Það hversu fljótt þing verði rofið hafi áhrif á kjördag. Innlent 14.10.2024 09:22
Segir Svandísi aðeins eiga einn kost eftir „svipugöng niðurlægingar“ „Eftir það sem á undan er gengið, og eftir þau svipugöng niðurlægingar sem Bjarni og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins leiddu Svandísi í gegnum í atburðarrás gærdagsins, þá á Svandís því varla annan kost en þann að draga VG formlega út úr ríkisstjórninni.“ Innlent 14.10.2024 09:07
Ekki grunaður um að hafa ætlað að drepa Trump Manninum sem var handtekinn á kosningafundi Donalds Trump í Kalíforníu um helgina hefur nú verið sleppt úr haldi gegn tryggingu. Erlent 14.10.2024 08:55
Svona voru fundahöld forseta með formönnum flokka Formenn stjórnarandstöðuflokkanna funda með forseta Íslands hver á fætur öðrum í kjölfar fundar forseta með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra í morgun þar sem hann óskaði eftir þingrofi Innlent 14.10.2024 08:23
Vilja endurreist æru þeirra sem neituðu að berjast Fjölskyldur 20 manna sem voru fangelsaðir fyrir að neita að berjast fyrir yfirráðum Hollands á Indónesíu eftir seinni heimstyrjöldina krefjast þess að mennirnir verði hreinsaðir af sök. Erlent 14.10.2024 08:09
Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð Fjórir hermenn Ísraelshers létust og sjö særðust alvarlega í drónaárás Hezbollah á herstöð nærri Binyamina í gær. Um var að ræða hefndarárás vegna árása Ísraels á Beirút á fimmtudag, þar sem 22 létu lífið. Erlent 14.10.2024 06:48
Líkamsárás með hníf og ölvaðir unglingar Einn var handtekinn í gærkvöldi eða nótt í kjölfar líkamsárásar þar sem hníf var beitt. Áverkar árásarþola eru sagðir hafa verið minniháttar en engar frekari upplýsingar um málið er að finna í yfirliti lögreglu. Innlent 14.10.2024 06:26
„Þriðja banatilræðinu“ gegn Trump afstýrt Maður sem var með tvö skotvopn og fjölmörg vegabréf í fórum sínum var handtekinn á kosningafundi Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, við Coachella-dal í Kaliforníu-ríki í Bandaríkjunum í gær. Erlent 13.10.2024 23:04
Hætt að hugsa um það sem liðið er og horfa fram á við Þingflokksfundi Framsóknarflokksins lauk rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Þar komu þingmenn Framsóknar saman og ræddu óvæntar vendingar dagsins og næstu skref í ljósi þess að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tilkynnti í dag að stjórnarsamstarfinu yrði slitið. Innlent 13.10.2024 22:43
„Ennþá í töluverðu óvissuástandi um framvinduna“ Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor lítur svo á að mál Yazans Tamimi og fjölskyldu hans hafi verið „þúfan sem velti hlassinu“ í aðdraganda stjórnarslita. Óvissuástand ríkir þó enn um framhaldið að mati sérfræðinga, en ákvörðun um að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu kom ekki á óvart. Innlent 13.10.2024 21:17
Rollubingó og hrútasýning á Flúðum Allir glæsilegustu hrútar í Hrunamannahreppi komu fram á hrútasýningu á Flúðum þar sem þeir voru þuklaðir í bak og fyrir til að finna út hver væri með bestu lærin, bakið og bringuna. Þá vakti rollubingó sýningarinnar mikla kátínu gesta. Innlent 13.10.2024 21:04
Svandís safnar sjálfboðaliðum: „Ég bið ykkur um aðstoð” Svandís Svavarsdóttir formaður VG hefur sent ákall til flokksmanna um að nú sé kosningabaráttan hafin og hvetur öll sem hönd geti lagt á plóg til að skrá sig sem sjálfboðaliða. Þetta kemur fram í bréfi sem stílað er til félaga í flokknum nú rétt fyrir átta í kvöld. Innlent 13.10.2024 20:24